Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1995, Page 4
24
MÁNUDAGUR 26. JÚNÍ 1995
MÁNUDAGUR 26. JÚNÍ 1995
25
íþróttir
FH-Breiðablik
(0-1) 2-4
0-1 Rastislav Lazorik (23.) skoraði lag-
lega eftir slæm vamarmistök Auðuns
Helgasonar.
1-1 Hörður Magnússon (65.) með
skalla af stuttu færi eftir homspymu
Hallsteins Amarsonar.
1-2 Rastislav Lazorik (82.) úr víta-
spymu eftir að Jón Stefánsson féli i víta-
teig FH. Virtist mjög strangur dómur.
1-3 Rastislav Lazorik (84.) fullkomnaði
þrennu sína með laglegu marki eftir
snilldarsendingu Arnars Grétarssonar.
Stefán Amarson, markvörður FH, hálf-
varði skot Lazoriks en inn fór boltinn.
1-4 Anthony Karl Gregory (87.) með
glæsilegum skalla eftir góða sendingu
frá Lazorik.
2^1 Hörður Magnússon (88.) úr víta-
spymu eftir að dæmd var bakhrinding
á vamarmann Blikanna. Að því er virt-
ist annar strangur vítaspymudómur.
Lið FH: Stefán Arnarson - Jón Þ.
Sveinsson (Hlynur Eiríksson 61.), Lárus
Huldarson (Hilmar Erlendsson 70.), Ól-
afur KristjánssonAuðun Helgason -
Þorsteinn Haildórsson, Ólafur B. Steph-
ensen, Hrafnkell Kristjánsson, Hall-
steinn Amarson V. - Jón E. Ragnarsson,
Hörður Magnússon.
Lið Breiðabliks: Harjudin Cardaklija -
Willum Þór ÞórssonÚlfar Óttarsson,
Gústaf Ómarsson, Amaldur Loftsson -
Gunnlaugur Einarsson (Guðmundur
Guðmundsson 73.), Arnar Grétarsson
V., Jón Stefánsson, Kjartan Antonsson
- Anthony Karl Gregory, Rastislav Lazo-
rik
FH: 9 markskot, 7 horn.
Breiðablik: 9 markskot, 4 horn.
Gul spjöld: Ólafur K. (FH), Lazorik,
Gústaf (Breiðablik).
Rautt spjald: Enginn.
Dómari: Kristinn Jakobsson, ekki
hans besti dagur. Dæmdi ágætlega
lengst af en undir lokin dæmdi hann að
því er virtist tvær vafasamir vítaspym-
ur.
Áhorfendur: Um 300.
Skilyrði: Góð, ágætt veður og vel
þokkalegur völlur.
Maður leiksins: Rastislav Lazorik,
Breiðabliki. Skoraði þrjú mörk i leikn-
um og var mjög ógnandi allan leikinn.
Hefur tekið miklum framförum und-
anfarið og er að verða einn „heitasti**
sóknarmaðurinn i dcildinni.
VffJm
þarft að vita um
Dra.nualið DV
9(xuaaQ
Uppivsingar um stöðu
Líppivsingar i
oínsDraumal
• J®œ Éhraumaliðs íóöu
Staða 30 etstu liöanna
® Síaða 30 éfstu liðanna
Upplýsinear um verð
• önstakraiákmanna
Staðtesting á félagaskip tum
• Staðfesting á félagaskíptum
Glæsileo verðlaun eru i boði
tJyurSesíiiJiiáUarana‘‘
attganaesö „ppíiart nveis
mánaðar fær 15.000kr. vöruúttekt
frá sportvöru versluninni Sportu,
Stígalœsii ,„þjálfari“ sumarsins
fær að kunum utanlandsferð fvrir
tro með SamvTnmiftvðunhljufiitfevn
á fek erfendis að værðmæfi kr.
9®M)i og vöruúttekt að voðmæti
kr. 15000 frá ÚKKfi Glæsibæ.
DV DV
• Guðmundur Benediktsson KR-ingur í harðri baráttu við einn leikmann Vals á KR-vellinum í gærkvöldi. KR-ingar fóru með sigur af hólmi og eru í öðru sæti deildarinnar. DV-mynd Brynjar Gauti
Skaginn enn
með fullt hús
- eftir 1-2 sigur gegn Grindavík
Ægir Már Káxason, DV, Suöumesjum:
Skagamenn unnu sjötta leik sinn í
röð á íslandsmótinu í knattspyrnu í
gærkvöldi er þeir lögöu Grindvík-
inga aö velli í Grindavík, 1-2. Skaga-
menn virðast alveg óstöðvandi og
ekki í sjónmáli það lið sem getur lagt
þá að velli sem stendur.
„Þetta var mikill þaráttuleikur.
Þaö er mjög gott að fara héðan með
þrjú stig á sama tíma og Grindvíking-
ar eru að berjast á botninum. Við
réðum ferðinni lengst af og höfðum
góð tök á leiknum. Eftir að þeir skor-
uðu var smávegis pressa á okkur en
við stóðumst hana,“ sagði Ólafur
Þórðarson, fyrirliði Skagamanna,
eftir sigurinn gegn Grindavík í gær-
kvöldi.
Grindvíkingar báru mikla virðingu
fyrir íslandsmeisturunum og sást
það strax í upphafi leiksins. Skaga-
menn höfðu tögl og hagldir í fyrri
hálfleiknum og voru mun'betri aðil-
inn og voru sterkari í nánast öllum
návígjum.
Strax í fyrri hálíleik, eftir aðeins
30 sekúndur, fengu Skagamenn víta-
spyrnu og heimamenn mótmæltu
harðlega. Vildu margir meina að
knettinum hefði verið spymt í hönd
Þorsteins en dómarinn var á ööru
máh. Haraldur skoraði síöan úr vít-
inu af miklu öryggi.
Skagamenn bættu síðan við öðra
marki eftir 15 mínútur og var þar á
ferðinni glæsilegt mark. Ólafur Þórð-
arson skaut þá viðstöðulausu skoti
frá vítateigi eftir sendingu frá Har-
aldi Ingólfssyni. Ólafur skaut yfir
Alöert Sævarsson í marki Grindvík-
inga en hann lék í stað Hauks Braga-
sonar sem komst ekki í lið Grindvík-
inga að þessu sinni. Grindvikingar
náðu síðan að minnka muninn og
tækifæri til að jafna en skot Þórarins
Ólafssonar fór beint í fang Þórðar
Þórðarsonar í marki meistaranna.
„Við bárum of mikla virðingu fyrir
þeim fyrstu tuttugu mínútur leiksins
en eftir það komumst við aðeins
meira inn í leikinn. Það var rosalega
djarft af dómaranum að dæma víta-
spymuna á okkur og sá dómur var
alveg út í hött. Ég hef aldrei séð dóm-
ara bera eins mikla viröingu fyrir
neinu liði eins og í þessum leik. Öll
vafaatriði voru dæmd þeim í hag.
Við erum hins vegar aö spila illa og
verðum að rétta okkar hlut ef við
eigum ekki að missa af lestinni,"
sagði Tómas Ingi Tómasson, sóknar-
maður Grindvíkinga.
Fjörugur lokakaf li
- þegar Blikar unnu FH-inga, 2-4, í Krikanum
Róbert Róbertsson skrifar:
„Við erum á uppleið og komum vel
stemmdir í leikinn. Við kláruðum
þetta vel og fengum 3 mikilvæg stig
sem eiga eftir að telja í lokin,“ sagði
Willum Þór Þórsson, leikmaður
Breiðabliks, eftir að liðið hafði sigrað
FH, 2-4, í 1. deildinni í Kaplakrika í
gærkvöld. Leikurinn einkenndist því
miður, eins og flestir leikir í sumar,
af miðjuþófi og fáum hnitmiðuðum
sóknum beggja Uða. Þegar 8 mínútur
voru til leiksloka virtist allt stefna í
1-1 jafntefli en þá gerðu Blikar út um
leikinn á fjörugum lokakafla.
FH-ingar voru reyndar æfir þegar
Kristinn Jakobsson dómari dæmdi
að því er virtist mjög stranga víta-
spyrnu á þá og Rastislav Lazorik
skoraði af öryggi. Við það snerist
leikurinn algerlega og Blikar, sem
áttu í vök að verjast lengst af síðari
hálfleiks, bættu tveimur laglegum
mörkum við á næstu 5 mínútum og
staðan var skyndilega orðin 1-4.
FH-ingar minnkuðu muninn úr víta-
spyrnu rétt á eftir og virtist sá dómur
einnig mjög strangur.
„Þaö er alvarlegt mál þegar leikir
eru teknir af liðum. Vítaspymudóm-
urinn á okkur var hreint fáránlegur
og eyðilagði leikinn fyrir okkur.
Vítaspyrnudómurinn á þá var jafn
fáránlegur og það var eins og um
uppbót væri að ræða,“ sagði Viðar
Halldórsson, varaformaður knatt-
spyrnudeildar FH, sem var mjög
óánægður eins og margir með víta-
spyrnudómana. Kristinn dómari var
hins vegar í góðri aðstöðu, án efa
bestu aðstöðunni, og virtist viss í
bæði skiptin.
FH-ingar eru komnir í mjög slæma
stöðu eftir fjóra tapleiki í röö og hafa
fengið á sig 16 mörk í þessum fjórum
leikjum sem segir margt um leik liðs-
ins. Hallsteinn Arnarson var besti
maður liðsins að þessu sinni.
Blikar kláruðu leiknn á mjög góð-
um lokakafla en fram að því haföi
ekki mikiö verið að gerast í leik liðs-
ins. Willum Þór var sterkur í vörn-
inni, Arnar Grétarsson lék vel á
miðjunni og Lazorik var mjög skæö-
ur í sókninni og skoraði þrjú mörk.
________________íþróttir
Grindavík-ÍA
(0-ti) 1-2
0-1 Haraldur Ingólfsson úr víta-
spyrnu á 46. mín eftir að boltinn
fór í hönd eins leikmanns Grind-
víkinga.
0-2 Ólafur Þórðarson á 60. mín-
útu eftir að hafa fengið góða send-
ingu frá Haraldi Ingólfssyni.
1-2 Ólafur Ingólfsson á 86. mín-
útu eftir sendingu frá Grétari
Einarssyni.
Lið Grindavíkur:Albert Sæv-
arsson - Gunnar Már Gunnars-
son, Milan JankovicV., Þorsteinn
Guðjónsson;.'., Björn Skúlason
(Ólafur Bjarnason 76.) - Ólafur
Ingólfsson, Zoran Ljubicic, Guð-
jón Ásmundsson (Þórarinn Ólafs-
son 60.), Þorsteinn Jónsson -
Tómas Ingi Tómasson, Grétar
Einarsson.
Lið Akraness: Þórður Þórðar-
son - Sturlaugur Haraldsson, Ól-
afur Adolfsson;.'. (Theódór Her-
varsson 80.), Zoran Miljkovic,
Sigursteinn Gíslason - Haraldur
Ingólfsson, Alexander Högnason,
Sigurður Jónsson;.)., Kári Steinn
Reynisson (Pálmi Haraldsson 66.)'
- Ólafur Þórðarson;.'., Bjarki Pét-
ursson (Stefán Þórðarson 83.).
Grindavík: 6 markskot, 5 hom.
Akranes: 12 markskot, 4 horn.
Gul spjöld: Tómas Ingi, Grinda-
vík, Bjarki, ÍA, Stefán ÍA.
Rautt spjald: Enginn.
Dómari: Eyjólfur Ólafsson,
sæmilegur.
Áhorfendur: 653.
Skilyrði: Völlurinn góður og
gott knattspyrnuveður.
Maður leiksins: Ólafur Þórðar-
son, Akranesi. Geysilega mikil
yfirferð og varla blettur á vellin-
um sem hann kom ekki á í leikn-
um.
STAÐAN
Akranes......6 6 0 0 12-2 18
KR............6 4 0 2 8-6 12
Breiðablik....6 3 1 2 10-9 10
Leiftur.......6 3 0 3 11-9 9
Keflavík......5 2 2 1 4-3 8
ÍBV...........6 2 1 3 17-10 7
FH............6 2 0 4 11-16 6
Fram..........5 1 2 2 4-9 5
Grindavík.....6 114 8-12 4
Valur.........6 1 1 4 6-15 4
• Eftir leikina í 1. deildinni í gær-
kvöldi lítur listinn yfir marka-
hæstu leikmennina þannig út:
Tryggvi Guðmundsson, IBV.......5
Rastislav Lazorik, Breiðabl....5
Ólafur Þórðarson, ÍA...........4
Sumarliði Árnason, ÍBV.........4
Jón Þór Andrésson, Leiftri.....3
Mihpjlo Bibercic, KR...........3
Ríkharður Daðason, Fram........3
Rútur Snorrason, ÍBV...........3
Haraldur Ingólfsson, ÍA........3
Sanngjarnt
á Ólafsf irði
- Leiftur komið í flórða sætið
KR-ingar óðu í
marktækifærum
- eitt mark nægði þeim til sigurs gegn Valsmönnum
Helgi Jónsson, DV, Ólafsfirði:
Leiftur vann mjög sanngjarnan sig-
ur á IBV í gærkvöldi. Það var að vísu
ekki skemmtilegt knattspymuveður,
sunnanvindur sem setti sitt mark á
leikinn. Leiftur lék undan vindinum
í fyrri hálfleik og var um nærri ein-
stefnu að marki Vestmannaeyinga
að ræða. Samt skoruðu heimamenn
þá aðeins eitt mark. Lokatölur leiks-
ins, 2-1, fyrir Leiftur.
„Við vorum ekki
nógu einbeittir"
í síðari hálfleik snerist leikurinn við
en þá sóttu Eyjamenn. Það voru samt
Leiftursmenn sem skoruðu annað
mark strax í byrjun síðari hálfleiks.
Leiftursmenn voru mun ákveðnari
og það gerði gæfumuninn, enda sagði
Ingi Sigurðsson, Eyjamaður, að þeir
hefðu ekki verið nógu einbeittir og
hreinlega vantað sigurviljann, sem
Ólafsfirðingar hefðu haft í kvöld.
Friðrik Friðriksson, markvörður
ÍBV, var rekinn af velh á síðustu
mínútu leiksins fyrir að verja með
hendi langt fyrir utan vítateig skot
Páls Guðmundssonar þegar hann
var rloppinn einn í gegn.
Páll Guðmundsson, Júlíus
Tryggvason og Gunnar Oddsson var
bestur hjá Leiftri en hjá Eyjamönn-
um var Leifur Geir Hafsteinsson
ógnandi í framlínunni.
Leiftur-ÍBV
(1-0) 2-1
1- 0 Sigurbjöm Jakobsson (35.) Páll
Guömundsson tók aukaspymu og í
teignum tók Sigurbjörn Jakobsson viö
boltanum og þmmaöi í netiö fram hjá
hálfu ÍBV-liðinu.
2- 0 Pétur Bjöm Jónsson (50.) Páll
Guömundsson tók hornspymu, boltinn
barst til Gunnar Oddssonar sem sendi á
Pétur Bjöm sem skaUaöi laglega yfir
Friörik markvörö.
2-1 Sumarliði Árnason (75.) Skoraöi
úr vítaspymu eftir aö Ingi Sigurösson
haföi veriö felldur af Þorvaldi markveröi
Leifturs.
Lið Leifturs: Þorvaldur Jónsson -
Júlíus Tryggvason>%, Nebosja
CorovicV., Gunnar Oddsson;.;., Sigur-
bjöm Jakobsson - Slobodan Milisic, Pét-
ur Bjöm Jónsson, Ragnar Gíslason, Páll
Guömundsson - Gunnar Másson (Einar
Einarsson 82.) - Sverrir Sverrisson.
Lið ÍBV: Friörik Friðriksson - Friðrik
Sæbjömsson>%, Heimir Hallgrímsson,
Dragan Manjolivic;.'., Jón Bragi Amar-
son - Rútur Snorrason (Bjamólfur Lár-
usson 63.), Hermann Hreiöarsson, Ingi
Sigurösson, Steingrímur Jóhannsson
(Sumarliöi Áraason 50.) - Tryggvi Guö-
mundsson (ívar Bjarklind 63.), Leifur
Geir Hafsteinsson>\
Leiftur: 16 markskot, 5 hom.
ÍBV: 13 markskot, 7 hom.
Gul spjöld: Þorvaldur (Leiftur),
Corovic (Leiftur), Sigurbjöm (Leiftur),
Milisic (Leiftur), Jón Bragi (ÍBV).
Rautt spjald: Friörik (ÍBV).
Dómari: Gylfi Orrason, góður.
Áhorfendur: 400.
Skilyrði: Sunnanvindur, 4-6 vindstig.
Maður leiksins: Páll Guðmundsson,
Leiftri.
Bjöm Leósson skrifar:
„Þetta var sigur liðsheildarinnar þar
sem allir voru að berjast allan tímann.
Við áttum að skora 2-3 mörk til viðbótar
en nýttum ekki færin. Ég er ánægður
með sigurinn og markið, það er alltaf
gaman að skora," sagði Hilmar Björns-
son, KR, en hann skoraði sigurmarkið
gegn Valsmönnum á KR-vellinum í gær-
kvöld.
Leikurinn einkenndist af baráttu þar
sem hvorugt liðiö hafði efni á að tapa
stigum. KR-ingar óðu í færum, sérstak-
lega Mihajlo Bibercic, en hann var
hreint ekki á skotskónum í gærkvöld.
Furðulegt að hann skyldi ekki vera tekin
út af því að hann var arfaslakur.
„Ég vona að við höfum lært á ósigrin-
um á Akranesi í síðustu viku. Það þýðir
ekkert að vera að hugsa um nema einn
leik í einu og nú er erfiður bikarleikur
framundan. Stjarnan er með gott Uð og
ég reikna með spennandi leik frá upp-
hafi til enda,“ sagði Hilmar Björnsson.
Það má meö sanni segja að hart hafi
verið barist í leiknum eins og ávallt þeg-
ar þessi lið eigast við. Á köflum mátti
litlu muna að upp úr syði. KR-ingar byrj-
uðu með látum og Guðmundur Bene-
diktsson skaut í þverslá á 8. mín. eftir
fljóttekna aukaspymu. Stuttu síðar lenti
boltinn í þverslá KR-marksins eftir hjól-
hestaspyrnu frá Kristni Lárussyni. KR-
ingar fengu þrjú færi til viðbótar fyrir
hlé en inn vildi boltinn ekki.
Lárus Sigurðsson, markvörður Vals,
bjargaði sínum mönnum vel í upphafi
síðari hálfleiks þegar hann varði meö
úthlaupi skot frá Einari Þór Daníelssyni
sem kominn var einn í gegn. Lárus kom
þó engum vörnum viö þegar Hilmar fékk
góða stungusendingu inn fyrir, Hilmar
vippaði snyrtilega yfir Lárus sem reyndi
úthlaup. Bibercic var síöan hvað eftir
annað í dauðafærum en eins og fyrr seg-
ir tókst honum ekki aö koma boltanum
í markið.
Valsmenn fengu sitt besta færi undir
lok leiksins en Kristján Finnbogason
varði vel skalla Stewarts Beards. Vals-
menn léku stífan varnarleik og gekk illa
að byggja upp sóknir. Staða liðsins á
botni deildarinnar er ekki góð og liðið
verður að leggja meiri áherslu á sóknar-
leikinn ef stig eiga að fást í næstu leikj-
um.
KR-ingar virðast vera eina liðið sem
getur veitt ÍA einhverja keppni í sumar.
Tapi Skagamenn stigum í næstu leikjum
er aldrei að vita hvað gerist. Vesturbæj-
arrisinn gæti vaknað til lífsins á nýjan
leik.
KR-Valur
(0-0) 1-0
1-0 Hilmar Björnsson (57.)
Brynjar Gunnarsson gaf goða
stungusendingu inn fyrir á Hilmar
sem vippaði yfir Lárus markvörð.
Lið KR: Kristján Finnbogason-
Óskar Þorvaldsson, Izudin Dervic,
Þormóður Egilsson, Sigurður Örn
Jónsson;.;. - Brynjar Gunnars-
sonv., Hilmar Bjömsson;.'., Ás-
mundur Haraldsson (78.), Einar
Þór DaníelssonV., Heimir Guð-
jónsson, - Mihaljo Bibercic, Guð-
mundur Benediktssonv.
Lið Vals: Lárus Sigurðsson -
Bjarki Stefánsson, Kristján Hall-
dórsson;.;., Jón Grétar Jónsson
(Anton Bjöm Markússon 63.), Petr
Mrazek, Davíð Garðarsson - Ólaf-
ur Brynjólfsson (Jón S. Helgason
71.), Gunnar Einarsson, Sigþór
Júlíusson - Stewart Beards, Krist-
inn Lárusson;.\
KR: 13 markskot, 6 horn.
Valur: 6 markskot, 2 horn.
Gul spjöld: Heimir KR, Bjarki,
Jón Grétar, Davíð Val.
Rautt spjald: Enginn.
Dómari: Bragi Bergmann. Var
sjálfum sér samkvæmur en leyfði
of mikla hörku.
Áhorfendur: Um 1600.
SkilyrðúFremur kalt og völlurinn
ekki góður.
Maður leiksins: Izudin Dervic, KR.
Öryggið uppmálað í vöm KR. Átti frá-
bærar rispur upp kantinn og fór oft illa
með andstæðinginn.
20% afsláttur
affótboltaskóm
Skór frá Lotto,
Patrick og Puma
Gervigrasskór, malar-
og grasskór
Nr. frá 28 til 46
SPORTVÖRUVERSLUNIN
SPARTA
Laugavegi 49 - sími 551 2024