Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1995, Síða 7
MIÐVIKUDAGUR 5. JULl 1995
21
dv Hús og garðar
Oryggishellur frá Gúmmívinnslunni eru i kringum trampólinið í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum.
Gúmmívinnslan Akureyri:
Framleiðir endur-
unnar gúmmíhellur
þarf að hafa það í huga við lagningu
þeirra. Eins og við svo mörg önnur
verk er ávallt gott að fá ráð hjá fag-
fólki áður en hafist er handa.
Gúmmíhellurnar þurfa að hafa
góðan stuðning allt í kringum lögn-
ina og getur stuðningurinn verið
rammi úr járni eða timbri en einnig
er hægt að fella hellurnar í venjulega
hellulögn eða malbik. Hellurnar eru
80x80 sm að stærð en eru stimplaöar
með 40x40 sm mynstri og passa þann-
ig inn í hinn almenna íslenska hellu-
staðal.
Allar almennar upplýsingar er að
fá hjá Gúmmívinnslunni h/f á Akur-
eyri, s: 461-2600, en þeir dreifa vöru
sinni um land allt tÚ kaupenda.
Umræða um öryggi barna og
hvernig megi komast hjá slysum á
þeim hefur verið mikil undanfarin
ár. Fall af einhverju tagi eru algeng-
ustu slysin sem börn verða fyrir' við
leik. Meö því að hafa mjúkt og demp-
andi undirlag við leiktæki barna er
hægt að minnka tíðna slysa talsvert.
Ný tegund
Gúmmívinnslan h/f hefur í sam-
vinnu við íslenska vöruþróun h/f
þróað öryggishellur úr endurunnum
hjólbörðum. Gúmmíhellur frá
Gúmmívinnslunni hafa verið til í
nokkur ár en í fyrra kom á markað-
inn ný gerð sem er þykkari og mýkri
og gefur meiri dempun en þær eldri.
Gúmmívinnslan og íslensk vöruþró-
un hlutu viöurkenningu Slysavarna-
félagsins, Öryggi barna - okkar
ábyrgð, árið 1994 fyrir þessar nýju
öryggishellur.
Eldri hellurnar eru nú meira ætl-
aðar á staði þar sem fólk vill ein-
angra kulda, s.s. á svalir eða þar sem
fallhætta er lítil, til dæmis í kringum
sandkassa. Yfirborö þeirra er stamt
og eru því tilvaldar þar sem börn
vantar spyrnu við leiki sína.
Passa inn í hellulögn
Við lagningu gúmmíhellna er und-
irbyggt með frostfríu efni og þjappað
eins og við almenna hellulögn.
Gúmmíhellur þenjast út í hita og
Naglfestan og Veðurkápan
Fyrir nokkrum árum gaf Vírnet hf.
út fróðleiksrit um stálklæðningar á
þök og veggi og í ár kemur út þriðja
útgáfa þess rits. Jafnframt því er
bætt um betur og fróðleiksrit með
aðgengilegum leiðbeiningum um val
og notkun nagla er einnig gefiö út.
Naglfestan-um
nagla og neglingu
Fræðsluritinu Naglfestunni er í
grófum dráttum skipt í þrjá megink-
afla sem heita naglar - uppruni og
framleiðsluferill, tæringarvörn fest-
inga og áraun og útdráttarprófanir
(mæling á haldi nagla) og staðlar.
Efnið, sem er að mestu samið af þeim
Birni Marteinssyni, arkitekt og verk-
fræöingi hjá Rannsóknarstofnun
byggingariðnaðarins, og Pétri Sig-
urðssyni efnaverkfræðingi, er mjög
aðgengilegt og skýrt sett upp. Fjöldi
skýringarmynda er í ritinu auk línu-
ritá og ýmissa taflna.
Sérstakur kafli er einnig í bókinni
með hagnýtum upplýsingum um alla
nagla sem framleiddir eru hjá Vír-
neti hf. auk leiðbeininga um hvar
hver tegund hentar.
Veóurkápan-um
stálklæðningu húsa
í fræðsluritinu Veðurkápunni er
kappkostað að fara hlutdrægnislaust
með staðreyndir en Vírnet er fram-
Fræðsluritin Naglfestan og Veðurkápan eru aðgengileg fyrir almenning.
leiðandi Borgarnessstáls. Birtar eru
niðurstöður rannsókna og prófana
sem unnar eru af sérfræðingum. Efni
Veðurkápunnar er að miklu leyti
unnið af Birni Marteinssyni en Pétur
Sigurðsson og Jón Bjarnason efna-
verkfræðingur hafa einnig lagt hönd
á plóginn.
Komið er inn á fjölmarga verk- og
efnisþætti er varða stálklæðningar.
Upplýsingum, sem nýtast hinum al-
menna húsbyggjanda til ákvarðana-
töku og verkframkvæmdar, er komið
skilmerkilega á framfæri. Fjöldi
skýringa- og deilimynda prýðir ritið,
auk þess eru ýmsir umreiknikvarð-
ar, sem viðkoma byggingariönaðin-
um, aftast í ritinu.
Enn sem komið er er eingöngu
hægt að nálgast fræðslurit þessi hjá
Vírneti, s: 437-1000, en til stendur að
dreifa þeim í einhverjar bygginga-
vöruverslanir.
Garðúðari
tS'GARDENA
^ 1 Gleðilegt sumar!
Skógarplöntur með
stórum rótarhaus,
35 í bakka, fura,
birki, greni og víðir,
frá kr. 1080.
'tUir dqyw1 eru hlöntuduyw<
i irmwqgsstöd
(íqtf- og lithiHufii* nuutat1
Blómstrandi runnar,
fjölbreytt úrval.
Sumarblóm og
sígræn tré.
Ráðgjöf - þjónusta - helgartilboð
Fossvogsstöðin, Fossvogsbletti 1 -fyrir neðan Borgarspítalann.
Opið 8-19, um helgar 9-17, sími 5641777