Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1995, Qupperneq 8
22
MIÐVIKUDAGUR 5. JÚLÍ 1995
Hús og garðar
Hagnýt ráð um trjárækt og trjáklippingar:
Tímaritsgrein varð að
trj áklippingabókinni
í fyrravor kom út bókin Trjáklipp-
ingar. Höfundur hennar er Steinn
Kárason garðyrkjufræðingur og
útgefandi Garðyrkjumeistarinn hf.
Til að fræðast aðeins um bókina,
tilurð hennar o.fl. var Steinn Kára-
son tekinn tali.
Bókin
Fyrsti aðdragandi að bókinni var
grein um trjáklippingar sem Steinn
skrifaði í garðyrkjutímarit sem
hann ritstýrði fyrir allnokkrum
árum. Þessi tímaritsgrein hefur
hlaðið utan á sig og varð að bók-
inni Trjáklippingar, 110 blaðsíðna
bók sem kom út í fyrra.
Undirtitillinn er reyndar: Hagnýt
ráð um tijárækt og lífrænar vamir
gegn meindýrum, vegna þess.að í
bókinn fjallar Steinn meðal annars
um safnhauginn, gróðursetningu,
flutning trjáa, áburðargjöf og
fleira.
í trjáklippingabókinni er fjallaö
um Idippingu á um 140 algengum
tijá- og runnategundum, lítillega
fjallað um fáein blóm og nefnd um
50 rósaafbrigði sem vænleg eru til
ræktunar hér á landi. Einnig er
fjallað sérstaklega um klippingu og
snyrtingu vinsælla garðskála-
plantna. Bókin er prýdd góðum
skýringarmyndum sem flestar eru
eftir sænska teiknarann og kúnstn-
erinn Han Veltman. Mikil vinna og
áralöng reynsla Steins liggur að
baki textanum og á Garðyrkju-
meistarinn réttinn á notkun mynd-
anna hér á landi.
Bókin hefur gengið vonum fram-
ar enda mjög aðgengileg fyrir al-
menning. Jafnframt er hún einnig
góð fyrir þá sem lengra eru komnir
og er meðal annars notuð sem
UtHeiktæki og
busiiaugar
Róla og vegaróla,
Verð kr. 12.200, stgr. 11.590
Tvær rólur kr. 9.500, stgr. 9.025
Róla, vegaróla, tvöföld róla, kaðlastigi
verð kr. 20.800, stgr. 19.760
Fleiri gerðir eru einnig fáanlegar.
Stór busllaug, 122x244 cm.
Sterkur dúkur með botnlok-
um á stálgrind. Sæti og við-
gerðasett. Kr. 10.900.
Tilboð kr. 7.8Ö0, stgr. 7.410
Minni busllaug, 122x188 cm.
Verð kr. 5.400.
Tilboð kr. 4.500, stgr. 4.275.
Sendum i póskröiu. Kreditkort og
greiðslusamningar.
Varahlutir og viðgerðir. Verið vandlát
og versiið i Markinu.
444R
Armúla 40. Simar 553 5320 - 568 8860.
Bókin er prýdd mörgum skemmtilegum og skýrum útskýringarmyndum.
kennslugagn á Garðyrkjuskóla rík-
isins, en Steinn hefur kennt þar
trjáklippingar á þremur náms-
brautum og er námið 5 eininga fag,
kennt á tveimur önnum. Hann hef-
ur einnig haldiö fyrirlestra fyrir
almenning, sýnt litskyggnur og
glærur um tijáklippingar o.fl.
Steinn er menntaður garðyrkju-
fræðingur bæði í ylrækt og garð-
plöntuuppeldi, hann er einnig
meistari í skrúðgarðyrkju og hefur
tekið námskeiö í Danmörku í
blómaskreytingum og vann við það
í tæp 3 ár, var einnig garðyrkju-
ráðunautur og landvörður í 2 sum-
ur, þannig að þekking og reynsla
hans í græna geiranum er víðtæk.
En stór hluti vinnu hans á vegum
Garðyrkjumeistarans er fólgin í
ráðgjöf hvers konar.
Garðyrkjumeistar-
inn
r
Starfsemi Garðyrkjumeistarans
hf. byggir á yfir 20 ára reynslu af
garðyrkju- og umhverfismálum,
s.s. garðhönnun, nýbyggingu lóða,
viðhaldi og endurnýjun gróðurs
inni og úti, landvemd, blóma-
skreytingum, fyrirlestrum og út-
gáfu fræðsluefnis. Einstaklingar
eða hinir ýmsu hópar geta pantað
sérsniðin námskeið um hin ýmsu
efni í græna geiranum, allt frá tijá-
Steinn Kárason garðyrkjufræðingur er höfundur trjáklippingabókarinn-
ar.
klippingum og fræsöfnun til
sveppatínslu.
Einnig er Garðyrkjumeistarinn
með verklega þjónustu, s.s. viðhald
fyrir fyrirtæki og einstaklinga.
Sumarklippingar
Nú fer timi sumarklippinga á lim-
gerðum í hönd. Almenna reglan er
sú að klippa limgerðin mjórri að
ofan en neðan og klippa ekki inn í
gamlan við að sumri til. Sumar-
klippingu ætti að jafnaði aö vera
lokið áður en lengdarvexti lýkur.
Tré og mnnar era klippt og snyrt
á öllum tímum ársins, allt eftir teg-
undum og aðstæðum, þó að vetur-
inn sé aðalklippingartíminn. Eftir
vor eins og nú, þegar gróður kemur
visinn og kahnn undan vetri og
þörf er á meiri klippingu og sum-
part öðruvísi en venjulega, er ekki
síður mikilvægt að hafa góða bók
við höndina til að styðjast við til
að halda æskilegri uppbyggingu
gróðurins.
Bókin Tijáklippingar fæst í flest-
um bóka- og garðyrkjuverslunum,
en upplýsingar um námskeið og
fyrirlestra er að fá hjá Garðykju-
meistaranum í síma 552-6824.
Sælureltur fjjétekyldhmmmarS
Heitu pottarnir frá Trefjum eru fyllilega sambærilegir við þá bestu erlendu,
bæði hvað varðar verð og gæði. Þeir eru mótaðir úr akrýli, níðsterku plast-
efni, það er hart sem gler og hita- og efnaþolið.
Pá er auðvelt að þrífa og hægt er að fá laust lok eða létta og trausta
öryggishlíf, sem dregin er yfir pottinn, þegar hann er ekki í notkun.
Pottana má hafa frístandandi eða grafa þá í jörð og ýmis auka-
búnaður er fáanlegur, svo sem loft- og vatnsnuddkerfi.
Akrýlpottarnir frá Trefjum fást í ótal litaafbrigðum og 5 stærðum,
sem rúma frá 4 - 12 manns. Pað er auðvelt að láta drauminn rætast, því
verðið er frá aðeins 79.875 krónum!
Komið og skoðið pottana uppsetta í sýningarsal okkar, hringið eða
skrifið og fáið sendan litprentaðan bækling og verðlista.
TREFJAR HF. HJALLAHRAUNI 2, HAFNARFIRÐi, SÍMI 555-1027