Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1995, Síða 9
MIÐVIKUDAGUR 5. JÚLÍ 1995
23
Þóra B. Jónsdóttir handverkskona:
Málar sveppi
og fólk á
sjávargrjót
í Hafnarfiröi getur að líta margt
yfirnáttúrlegt. Sagt er aö hvergi sé
álfabyggð meiri en þó á fólkið sem
er í garðinum á Jófríðarstaðavegi 10
ekkert skylt við álfa. Hér er á ferð-
inni handverk Þóru B. Jónsdóttur
sem hefur málað sveppi og fólk á
sjávargrjót undanfarið eitt og hálft
ár.
Engir tveir eins
Upphafið var að Þóra fór að skraut-
skrifa ýmsar athugasemdir á tré-
platta fyrir um 3-4 árum. Þeir voru
gerðir sem gjafir og fyrir um einu
og hálfu ári fór hún að byrja að fikta
við að mála á sjávargrjót og fékk
mikil viðbrögð frá fólki sem hvatti
hana til dáða.
Þóra segist hafa mjög gaman af að
mála á steinana enda alltaf verið
hrifin af steinum. Lögun og gerð
þeirra sé svo margbreytileg. í raun
eru engir tveir eins og hún því alltaf
með nýtt efni í höndunum.
Þóra, sem lokið hefur við 3 annir í
Myndlistarskólanum í Hafnarfirði,
segir sig aldrei skorta hugmyndir og
er ekkert hrædd viö að endurtaka
sjálfa sig. Nú í sumar, á víkingahátíð-
inni, verður hún með sölubás og
hyggst mála bæði víkinga og eins
einhverja af bæjarstjórnarmönnum
Hafnarfjarðar fyrir þá hátíð.
Taka þá inn
yfirveturinn
Fólkið og sveppirnir hennar Þóru
eru skemmtilegt skraut í garðinn og
fer einnig vel á að skreyta gróður-
skála með náttúruefnum eins og
þeim. Málningin, sem Þóra notar, er
Dekor-lakk og steinarnir eru fengnir
suður með sjó. Þóra mælir með því
að hlutimir séu teknir inn yfir vetr-
armánuðina til að litirnir endist bet-
ur.
Fyrir þá sem áhuga hafa er hægt
að nálgast steinafólkið í versluninni
Gjöf og kaffi í Hafnarfirði og einnig
hjá Þóru að Jófríðarstaðavegi 10 í
sama bæ.
Birkikvistur er viða illa farinn eftir erfitt vor.
Gróður illa farinn
í síðasta blaði húss og garða var
fjallað um hve sígrænn gróður hefur
farið illa í vetur eða réttara sagt á
útmánuðum þessa árs. Þegar líða tók
á sumarið kom betur og betur í Ijós
að sígrænn gróður er ekki sá eini sem
farið hefur illa í vor.
Á höfuöborgarsvæðinu má viða sjá
gamla og harðgera runna nánast líf-
lausa niður í 20 sm hæð. Sterkar rós-
ir eins og hansarós og fjallarós kól
víöa mikið og eru jafnvel dæmi um
að fjallarósin sé alveg dauð niður í
rót. Sama má segja um t.d. birkikvist
og eins er vitað um marga fallega
heggi sem eru alveg líflausir.
Stundum hefur verið sagt að garð-
yrkjumenn og garðræktaráhugafólk
sé sá þijóskasti kynstofn sem til er,
hann gefist aldrei upp. Það er ein-
mitt það sem þarf núna, ekki gefast
upp. Þeir runnar sem fariö hafa illa
koma langflestir meö nýja sprota frá
rót og þarf því bara að hreinsa ofan
af það sem dautt er. Gömul rót er
mun fljótari að koma upp með sterka
plöntu á nýjan leik heldur en ef ný
ung planta er keypt.
Hansarósin er ein þeirra tegunda sem almennt er talin harðger en er nú
viða mikiö kalin.
f-
Hús og garðar
Steinfólkið hennar Þóru er skemmtilegt skraut í garða.
#SSIáttuvélin
SÖLUSTAÐIR UM LAND ALLT
Rafmagns- garðsláttuvél
með grassafnara.
Laus við mengun og hávaða.
Þrjár stærðir.
Verð frá kr. 23.960
SINDRA
BORGARTÚNI 31 ■ SÍMI 562 7222
Coelastic eínið hentar alls staðar þar sem þorí er á áferðaríallegu, sterku og viðhaldsíriu þak- og þéttiefni. Coelastic er mjög auðvelt og fljótlegt í ásetningu á flöt- og allt að
45° hallandi þök. Coelastic leysir leiðinleg lekavandamál t.d. í steyptum þakrennum, kverkum og köntum sem eru frostsprungnir og skemmdir.
Lekur þakið og svalagólfið eða þarftu að
finna hentugt ef ni á skyggnið yfir
aðalinnganginum?
Þá er Coelastic ódýr lausn á dýru vandamáli
Coelastic er (Ijótandi þak- og þéttiefni sérstaklega hentugt á
þök og gólf þar sem þörf er á samskeytalausu, teygjanlegu og
áferðarfallegu efni til viðgerða og nýlagninga. Coelastic hefur
farið sigurför um gjörvalla Evrópu vegna hinna sérstöku eigin-
leika sinna. Helstu kostir Coelastic eru hversu fljótleg og auð-
veld öll vinna er með efnið, hvort heldur verið er að nota það
við nýbyggingar eða til viðgerða. Þegar Coelastic er komið á
myndar það áferðafallega, samskeytalausa, sterka, vatnsþétta
kápu sem þó „andar" og er viðhaldsfrí. Auk þess að vera mjög
þolið gegn útfjólubláum (UV) og innrauðum (IR) geislum er
Coelastic ekki viðkvæmt fyrir loftmengun sem er því miður
vaxandi vandamál hér á landi. Coelastic endurkastar bæði
Ijósi og hita, er hljóðeinangrandi og myndar vernd t.d. gegn
glóandi neistaflugi frá verkfærum. Coelastic hefur 400%
teygjuþol sem gerir efnið sérstaklega hentugt í þakrennur og
alls staðar þar sem þörf er á efni sem þolir mikla þenslu, t.d.
vegna hitabreytinga. Með alla þessa kosti í huga liggur í augum
uppi að Coelastic er kjörið á alls konar þök svo sem á báru-
járns- og steypt þök, undir torfþök og þakgarða, svalagólf,
bað- og búningsherbergi, blómaker og gosbrunna, svo nokkur
dæmi séu nefnd. Coelastic er ódýr og þægileg lausn á oft
óþægilegu og dýru vandamáli.
Hringið og sölumenn okkar veita túslega allar nánari upplýsingar.
heildverslun
Smiðjuvegi 30 - Kópavogi - Sími 587-2360