Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1995, Page 5

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1995, Page 5
FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 1995 5 Fréttir Sjónmælingafræðingur tekinn til starfa á íslandi: Landlæknir með athuga semd frá augnlæknum - sem telja starfsemina ekki samrýmast lögum Stjórn Augnlæknafélags íslands hefur sent athugasemd til landlækn- isembættisins vegna starfsemi Sig- þórs Péturs Sigurðarsonar, sjón- tækjafræðings hjá Gleraugnagallerí- inu, sem var opnað nýlega í Kirkju- hvoh gegnt Dómkirkjunni. Sigþór er jafnframt menntaður sjónmælinga- fræðingur frá Danmörku og mælir sjón í fólki en það telja augnlæknar sig eina hafa leyfi til. Auk sjónmæl- inga Sigþórs eru jafnframt seld gler- augu hjá Gleraugnagalleríinu. í lög- um um starfsemisjóntækjafræðinga segir að þeir megi ekki mæla sjón í fólki, eingöngu útbúa og selja fólki gleraugu samkvænit mæhngu frá augnlækni. í kvörtun til landlæknis er einmitt vísað til þessara laga og telja augnlæknar starfsemina ekki samrýmast landslögum. Engin ís- lensk lög eru til um þá starfsemi sjónmæhngafræðings sem Sigþór segir að tíðkist alls staðar á Norður- löndum og víðar í Evrópu. Matthías Halldórsson aðstoðar- landlæknir staðfesti í samtah við DV aö erindi Augnlæknafélagsins hefði borist embættinu. Málið væri þó skammt á veg komið og aðeins búið að óska röksemda frá Sigþóri í Gler- augnagalleríinu. „í lögum um sjóntækjafræðinga segir m.a. að þeim sé einungis heim- ilt að fullvinna og selja gleraugu og hnsur ef fyrir hggi tilvísun eða for- skrift læknis. Við fyrstu sýn virðist umrædd starfsemi ekki samrýmast lögum en það á eftir að kanna það nánar. Við eigum eftir aö fá rök Gler- augnagallerísins. Vel má vera að því sé heimilt að mæla sjónina en styrinn stendur um hvort sjóntækjafræðing- um sé heimilt að búa til gleraugu samkvæmt eigin mælingum," sagði Matthías. Segir íslensk lög ekki samrýmast EES Sigþór hefur nýlega hafið starfsemi á íslandi eftir aö hafa unniö sem sjón- mælingafræðingur í Kaupmanna- höfn síðustu 6 ár. Að mati Sigþórs standast lög um starfsemi sjóntækja- fræðinga á íslandi ekki samninginn um evrópska efnahagssvæðið, EES, og vill hann að þau veröi endurskoð- uð. „Ég hef löggildingu frá danska heh- brigðisráðuneytinu sem sjónmæl- ingafræöingur. Ég veit dæmi þess, t.d. í Noregi, þegar sjónmælinga- fræðingar tóku þar fyrst til starfa að það mætti andstöðu þarlendra augn- lækna. Síðan kom í ljós að það var ástæðulaust því norskir augnlæknar hafa aldrei áður haft jafnmikið að gera. Við erum menntaðir í því að sjá hvort óeöhlegar eða eðlilegar breytingar hafl átt sér stað á sjón- inni. Við óeðhlegar breytingar mæl- um við með augnlækni en sýni nið- urstöður eðlilegar breytingar er það undir viðkomandi komið hvað hann vih gera í framhaldinu," sagði Sig- þór. Tölvum stolið Brotist var inn í Austurbæjarskóla í fyyradag og þaðan stohð tölvubún- aði. Farið var inn um glugga á tölvu- stofu og þaðan stolið netstjóra og lyklaborði og útstöð og lyklaborði. Einnig var brotist inn í fyrirtæki við Skipholt og þaðan stohð hörðum diskum og örgjöfum. Miklar skemmdir voru unnar á dyrabúnaði hússins. -sv ennþá fengið bréf frá landlækni, þaö hlyti að vera á leiðinni. Ékki náðist tal af neinum stjórnar- manna Augnlæknafélagsins þar sem þeir eru alhr í sumarleyfi. Svipar til baráttu tannlækna gegn Bryndísi tannsmið Margir telja að mál Sigþórs svipi til þess þegar tannlæknar kröfðust lögbanns á starfsemi Bryndísar Kristjánsdóttur tannsmiðs og töldu hana ekki mega móta tennur í fólki, aðeins smíða þær. Málið endaði fyrir dómstólum þar sem Bryndís bar sig- urúrbýtum. _bjb Góður hitabrúsi. Blár orange eða bleikur Sigþór Pétur Sigurðarson að störfum við sjónmælingar hjá Gleraugnagalleriinu í Kirkjuhvolshúsinu. Augnlæknar hafa sent landlæknisembættinu erindi þar sem þeir telja að starfsemin samrýmist ekki lögum. DV-mynd GVA Sigþór sagðist ekki vera í stéttarfé- lagi sjóntækjafræðinga á íslandi þótt hann ætti rétt á því. Hann sagðist vilja halda sig utan þess á meðan starfsemi hans væri til umflöllunar hjá landlækni auk þess sem hann vildi hafa sjónmælingafræðina að- skilda frá sjóntækjafræðinni. Sigþór gat þess reyndar að hann hefði ekki -Það fæst Magasín v—' HúsgagnahöUhmt Bddshðfða 20-112 Reyk|avík - S(ml 587 1410 AIJDIO FULLKOMINN BÍLGEISLASPILARI MEÐ ÚTVARPIOG ÞJÓFAVÖRN AUDIOLINE Compact Dlsc Player dsp ri C3 D-p D L0UD 8 3ESET C'UD INTRO oncu aðeinskr.Í2JÍIJSJCJCJ RÉTT VERÐ KR. 39.900 - ÞÚ SPARAR KR. 10.000 25W*2SWHigh Pow#r System EJ£CT luuú UA A.MEN MUTE llgfT jSEL LEVEL + '44 MANU I* >M4 SEEK þM i 5 i 6 *REP RND SbráraiRPSM asTÖÐiN AirM ik n i 11 a n rtik n i i— SIÐUMULA 2 - SIMI 568 9090

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.