Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1995, Side 2
2
FÖSTUDAGUR 11. ÁGÚST 1995
Fréttir
Frágangi háhýsanna á Völimdarlóðinni loks lokið:
Sex ára baráttu íbú-
anna lauk með bænahaldi
þegar þeir fögnuðu lokafrágangi sameignarinnar
„Þetta var mikið félagslegt slys og
viö erum mörg sem höfum orðið að
líða fyrir það. Þegar Steintak varð
gjaldþrota fyrir 6 árum skildi það viö
húsin öll hálfkláruð og engin sam-
eign var komin; ekki lyfta, ekki dyra-
sími, ekki útidyrahurðir, engin
þvottahús, bara alls ekki neitt. Það
sem við, sem höfðum keypt þarna
íbúðir, þurftum því að gera var að
drífa þetta áfram. Við þurftum að
gera íbúðimar íbúðarhaefar og síðan
að ljúka viö sameignina. Við emm
því búin að tvíborga sameignina og
hefur það kostað aukalega um 1,5
milljón krónur á meðalíbúð. Okkur
tókst þetta og við fögnuðum þeim
merka áfanga okkar síðastliðinn
laugardag. Við héldum smá útihátíð
á lóðinni okkar og fengum séra Jak-
ob Hjálmarson til að fara með hús-
bæn í tilefni þessa,“ sagði Þorsteinn
Einarsson, formaður húsfélagsins að
Skúlagötu 10, en það em háhýsin
frægu á Völundarlóðinni.
Hann sagði að það væru á milh 60
og 70 fjölskyldur sem hefðu lent í
þessum hremmingum. Og fyrir utan
að þurfa að greiða sameignina tvisv-
ar tóku flestir við íbúðum sínum
miklu styttra komnum en þeir höfðu
greitt fyrir. Venjulegt launafólk í
þessum hópi mætti erfiðleikunum
með því að neita sér um sumarfrí í
mörg ár eða að kaupa sér bíl eða að
endurnýja þann gamla. Enda þurfti
fólk að taka mjög dýr og óhagstæð
lánvegna þessa.
„Á meðan við höfum staðiö í þess-
ari baráttu okkar höfum við haft
fjóra félagsmálaráðherra. Við höfum
ítrekað sent þeim erindi og beðið um
viðtal en höfum ekki einu sinni feng-
ið að komast inn á biðstofuna hjá
þeim. Við ætluðum að athuga hvort
ekki væri til einhver húsbréfavinkill
fyrir okkur en náðum aldrei að fá
að spyrja þá að því, hvað þá meira.
En nú er þessu lokið. Sameignin öll
og lóðin er fullfrágengin en fólk situr
auðvitað uppi með skuldirnar," sagði
Þorsteinn Einarsson.
Aö ná sambandi viö togarana í Smugunni:
Alveg vandræðalaust
ef fólk notar ritsímann
- segir Sævaldur Gunnarsson útgeröarstjóri
„Við notum alltaf ritsímann til að
ná sambandi við okkar skip í Smug-
unni. Einnig er til tölvubúnaður sem
er þannig að útgerðimar geta sent
boð beint í gegnum gervihnött til
skipa sinna og eru allmargar útgerð-
ir komnar með slíkan búnað. Ég hef
aldrei lent í minnstu vandræðum við
aö ná sambandi við okkar skip í
gagnum ritsímann," sagði Sævaldur
Gunnarsson, útgeröarstjóri Hrað-
frystihúss Þórshafnar sem gerir út
togarana Hágang I og Hágang II.
Fréttir hafa verið um að fjölskylda
sjómanns á skipi í Smugunni hafi
ekki náð sambandi við hann í gegn-
um norska strandstöð og kvartað til
norska sendiráösins vegna þessa.
Sævaldur sagði að veiði í Smug-
unni hefði glæðst síðustu daga og
einnig að um stærri fisk væri að
ræða. Hann sagði að nokkuð hefði
borið á smáfiski undanfarið og hefðu
til að mynda Hágangamir verið meö
smáfiskpakkningar í gangi fyrir
nokkru. Nú væri fiskurinn farinn að
veiðast í botntroll, aflinn meiri og
fiskurinn stærri.
Um þessar mundir munu vera á
milh 30 og 40 íslenskir togarar að
veiðum í Smugunni.
ElrlrS #|mamÍA iiv kln*
ekki oregio ur mut-
verki íslands
Þrátt fyrir breytt hlutverk Atl- ars með HaUdóri Ásgrímssyni ut-
antshafsbandalagsins mun hlut- anríkisráðherraogDavíðOddssyni
verk Islands innan þess verða síst forsætisráðherra meðan á dvöl
minna en áöur. Lega landsins milU hans stóö hér á landi. Meðal um-
Evrópu og Bandaríkjanna er ekki ræðuefna var ástandið í ríkjum
síður mikilvæg en áður og að auki fyrram Júgóslavíu og afskipti
má vænta þess aö vera íslands inn- NATÓ af stríöinu.
an bandalagsins geti auðveldað að- Á blaöamannafúndinum í gær
lögun nýrra ríkja að starfínu og gerði George að umtalsefhi farsæl
aukið Jíkur á varanlegum friði í samskipti Islands og NATÓ frá því
álfunni. Þetta kom meðal annars ísland gerðist stofnaðiU að banda-
frara á blaðamannafundi sem laginu 1949. Nú sé rætt um að
George A. Joulwan, yfirmaöur her- breyta bandalaginu, fjölga aðildar-
afla Atlantshafsbandalagsins í Evr- rikjunum og koma á fót samvinnu
ópu, hélt í Reykjavík í gærdag. um frið viö ríki Mið- og Austur-
George kom hingað til lands í Evrópu, sem aftur kalli á ný vinnu-
stutta skyndiheimsókn í fyrra- brögö þar sem ísland geti gegnt
kvöld en flaug aftur utan sfðdegis veigamiklu hlutverki.
í gær. George fundaði meðal ann- -kaa
,r ö d d
FOLKSINS
904-1600
Á að hækka bílprófsaldur
upp i 18 ár^
Alllr i stafrana k«rflnu meO t«n»ail$»Im» e»t» nýtt atr ftetsa þftnuttu.
Þú getur svaraö þessari
spurningu meö því aö
hringja í síma 904-1600.
39,90 kr. mínútan.
Já l_j
Nei _2j
Bátnum var bjargað á þurrt eftir að hann sökk. Hann hafði skamma viödvöl
á yfirborði ægis. DV-mynd Eggert Antonsson
Hvammstangi:
Gisinn fyrir ægi
Eggert Antonsson, DV, V-Húnavatnssýslu:
Smábátur sökk í höfninni á
Hvammstanga á dögunum. Þegar
báturinn var sjósettur hafði líklega
ekki komið í sjó lengi, var heldur
gisinn fyrir ægi og sökk eftir tvo tíma
á yfirborði hans. Slökkvibíll var
fenginn til að dæla sjó úr bátnum og
vörubílskrani var notaöur til þess að
lyfta undir hann svo hægt væri að
sjótæma hann og koma honum á
þurrt á ný. Reyndist þetta ágæt æfing
fyrir slökkviliösmenn aö nota nýjan
slökkvibíl við svona aðstæður.
Laxveiði 1 sjó við Akranes:
Hafa fengið 400 laxa
ínetádag
Daiúel Ólafsson, DV, Akranesi:
Mjög góð veiði hefur verið í net hjá
tveimur bæjum, sem hafa leyfi til að
leggja laxveiðinet í sjó, nálægt Akra-
nesi. Bæirnir eru Kirkjuból og Kúla.
Sigurjón Guðmundsson, bóndi á
Kirkjubóli, sagði að veiöin í ár hefði
verið mun meiri en í fyrra. Stundum
hefðu allt að 400 laxar komið í netin
yfir daginn. Nú væri þetta farið að
minnka vegna strauma og væri veið-
in um 40 laxar yfir daginn. Svipað
hefur einnig verið upp á teningnum
hjá Kúlubændum.
Talað hefur verið um að semja við
bændur á þessum bæjum um upp-
kaup á réttindunum en að sögn Sig-
urjóns Guðmundssonar hefur ekkert
gerst í þeim málum í sumar.
Stuttar fréttir
Líklegt er að samkomulag náist
um stækkun álversins, að sögn
iðnaðarráöherra. Vinnuveitend-
ur og verkalýðshreyfing hafa
þrjár vikur til að semja um rýmri
útboösreglur, skv. Stöð 2.
Hæstiréttur skipi í nefnd
Utanríkisráðherra telur hugs-
anlegt að fela Hæstaréttí að skipa
menn í kaupskrámefnd, að sögn
RÚV. Nefndin úrskurði um laun
íslenskra starfsmanna hjá Varn-
arliðinu.
Engar viðskiptahindranir
íslensk og dönsk stjórnvöld
vUja ekki setja viðskiptahindran-
ir á franskar vörúr til aö mót-
mæla kjarnorkutilraunum
Frakka, skv. Stöð 2.
Ekkertframboð
Enginn gefur kost á sér til vara-
formanns í Alþýðubandalaginu á
landsþingi í haust. Varaformaður
veröur kjörinn beint á landsþing-
inu.
loðnafundin
Loðna hefúr fundist á lokuöu
svæði úti fyrir Vestíjörðum. Leyfi
hefur fengist til aö kasta á
gönguna, skv. RÚV.
Bretar hafa áhuga á Uxa
Stórir breskir tónleikahaldarar
vilja koma að tónlistarhátíðinni
Uxa á næsta ári. Nokkurt tap var
af hátíðinni, skv. Stöð 2.
200 tepptir i Þórsmörk
Tæplega 200 ferðamenn voru
tepptir f Þórsmörk fram eftir degi
i gær vegna mikilla vatnavaxta,
samkvæmt Sjónvarpinu.
Bankaleyndrofin?
Bankaeftirlitið teiur ástæðu til
að láta ríkissaksóknara úrskurða
um hvort bankaleynd hafi veriö
rofin hjá Landsbankanum. Bank-
aráð telur það ólíklegt- -GHS
Hreindýrahræ í tugatáli eystra:
Dýrin hafa ekki lifað af harðindin í vor
Sesselja Traustad., DV, Borgarf. eystra:
Hreindýraveiðin er hafin hér
eystra. Hefur farið rólega af stað en
þó er búið að fella einn tarf. Að sögn
Skúla Sveinssonar veiöimanns er
mikið um hreindýrahræ í Loðmund-
arfirði og Húsavík, rétt norðan Loð-
mundarfjarðar, og virðist sem dýrin
hafi ekki þolað harðindin í vor. Hann
taldi 52 hræ á þessum slóðum. Hjörð-
in á veiðisvæði Borgfirðinga er talin
vera rúmlega 100 dýr og virðist svæð-
ið ekki bera öllu fleiri dýr í slæmu
árferði.
Úthlutaður kvóti til Borgarfjarðar-
hrepps er 17 dýr, 5 tarfar og 12 kýr.
Heimamenn munu veiða hluta kvót-
ans en ákveðið hefur verið að gera
tilraun meö sölu á hiuta leyfanna í
ár. Því hefur Hreindýraráði verið
fahð að annast sölu á 3 tarfaveiðileyf-
um og 6 kúaleyfum eftir 7. ágúst.