Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1995, Page 6
6
FÖSTUDAGUR 11. ÁGÚST 1995
Neytendur
DV
Verðhækkun á mjólkurvörum
Þann 1. ágúst síðastliöinn hækk-
uðu ýmsar sérvörur frá Mjólkursam-
sölunni um tvö og hálft til þrjú og
hálft prósent.
Það voru þó ekki allar vörur frá
Mjólkursamsölunni sem hækkuðu.
Mjólkin sjálf kostar til dæmis eftir
sem áður 64 kr. víðast hvar og hreint
skyr, rjómi, mysa og G-vörurnar
hækkuðu ekki heldur. Hins vegar
hækkuðu vörur eins og skyr með
ávöxtum, jógúrt, kvarg, engjaþykkni
og kaldi. Ef meðaltalshækkunin, þrjú
prósent, er tekin má sjá að blandað
rjómaskyr, svo dæmi sé tekið, hækk-
ar úr 151 kr. í 156 krónur.
Hver er ástæðan?
Vilhelm Andersen, fjármálastjóri
hjá Mjólkursamsölunni, segir að
ástæðan sé fyrst og fremst hækkun
á aðföngum.
„Umbúðir, bragðefni og fleira sem
við þurfum aö kaupa hefur hækkað
að undanfömu og þess vegna neyð-
umst við til þess að hækka okkar
vörur í samræmi við það,“ sagði Vil-
helm. Hann sagði jafnframt að þær
vörur sem hækka nú, væru þær vör-
ur sem Mjólkursamsalan hefði nokk-
uð frjálsar hendur um álagninu á.
ástæðan er hækkun á aðfóngum, segir flármálastjóri MS
Aðrar vörur, eins og mjólkin sjálf,
rjóminn og hreint skyr, væri ekki á
þeirra valdi að hækka heldur hinnar
svokölluðu fimm manna nefndar
sem samkvæmt búvörulögunum
verðleggur þær vörur.
Hækkunin þann fyrsta ágúst síð-
astliðinn kom flatt upp á ýmsa neyt-
endur enda hafði Mjólkursamsalan
lítið sem ekkert kynnt þessar breyt-
ingar á verðskrá. Aöspurður sagði
Vilhelm að það hefði mátt kynna
hækkunina betur. Slíkt væri smekk-
legra gagnvart neytendum.
Frekari hækkanir?
Vilhelm kvaðst ekkert vita um þaö
hvort þær vörur sem stóðu í stað i
þessari hækkun myndu hækka á
næstu vikum. Þó er vitað að fimm
manna nefndin svokallaða, sem ræð-
ur verðlagi á þeim vörum, mun fara
yfir verðskrána um næstu mánaða-
mót, eins og venja er til.
Fimm manna nefnd þessi er skipuð
samkvæmt landslögum og í henni
eiga sæti 2 fulltrúar frá mjólkuriðn-
aðinum, 1 frá ASÍ, 1 frá BSRB og
fulltrúi samkeppnisstofnunar.
Mjólkursaia dvínar
A undanfórnum árum hefur mjólk-
Það er spurning hvort neytendur verða „alveg kókó“ vegna hækkananna
hjá Mjólkursamsölunni. Sá vinsæli drykkur hækkar þó ekki i þessari lotu
að minnsta kosti.
ursala í landinu farið dvínandi og
samkvæmt Adolf Ólasyni hefur sal-
an verið „röngu megin við núllið"
undanfarin ár, fyrir utan árið 1993
þegar Fjörmjólkin kom á markaðinn.
„Við erum í mjög harðri samkeppni
við ýmsa aðra drykki, svo sem
ávaxtadrykki, gosdrykki og vatn.
Fjörmjólkin lyfti sölunni hjá okkur
upp og á tímabili var hún 17% af
seldri mjólk í landinu en er nú kom-
in í 10%,“ sagði Adolf.
Hann sagði jafnframt að þrátt fyrir
að mjólkurneysla hefði dregist nokk-
uð saman hefði sala á ýmsum sérvör-
um aukist á móti, svo sem á engja-
þykkni. íslendingar hafa þannig fært
neysluna í mjólkurvörum frá venju-
legri mjólk yflr í sérvörurnar.
155 lítrar á mann
Eftir sem áður eru íslendingar með
allra , mestu mjólkurneytendum
heims, enda drekkur hver íslending-
ur að meöaltali 154,93 litra á einu ári
sem er fjórða mesta neysla í heimin-
um á hvern haus. Ef teknar eru allar
mjólkurvörur í heild sinni eru ís-
lendingar í þriðja sæti.
Belgía £==
Sviss *==
Þýskaland i=
Danmörk <=
Spánn
Finnland
Frakkland
Bretland J
Grikkland j
írland ;
Ítalía í
Lúxemborg j
Holland I
Noregur I
Portúgal <
Svíþjóð I
Hvenær berst Iréfið?
- meöalsenditími pósts til og frá landinu -
Póstur frá Islandi
Póstur til íslands
6
8
10
Taflan er unnin út frá niðurstööum könnunar Price Waterhouse samkvæmt UNEX-kerfinu. Miðað
er viö fimm daga vinnuviku. Laugardagar og sunnudagar eru því ekki meö, né heldur löggiltir
frídagar í viðkomandi löndum.
DV
Alþj óðleg póstkönnun:
Póstþjónusta á ís-
landi á uppleið
- talsmenn Pósts og síma ánægðir með niðurstöðurnar
Nýlega voru birtar niðurstöður
könnunar sem Alþjóðapóstfélagið
(Intemational Post Corporation) lét
gera á póstsamgöngum í Evrópu-
löndum. Félagið hefur það að
markmiöi sínu aö bæta póstþjón-
ustuna í heiminum og beindist könn-
unin að því að finna út á hvaða svæð-
um póstsamgöngum sé einkun ábóta-
vant.
Talsmenn Póst- og símamálastofn-
unarinnar hér á íslandi telja að nið-
urstöðurnar séu góðar fyrir íslend-
inga.
1,3 milljónir bréfa
Könnun þessi var unnin á þann
hátt að bréfvoru send í þeim tilgangi
aö fylgjast með hversu fljótt og vel
þau bærust á milli staða. Um 1,3
milljónir bréfa voru send í þessum
tilgangi og með í reikningin voru tek-
in 64 mismunandi atriði, svo sem
þyngd bréfanna, mismunandi utaná-
skrift, frímerking, póststimplanir og
fleira. Könnunin fór fram á öllu síð-
asta ári og verður áfram í gangi allt
árið um kring og verða niðurstöður
birtar reglulega. Markmiðið er að
fylgjast með póstþjónustunni og
bæta hana.
Hvar stendur ísland?
Taflan hér á síðunni sýnir niður-
stöður könnunarinnar frá fyrsta
fjórðungi þessa árs. Þar sést til dæm-
is að bréf frá íslandi til Danmerkur
er rétt rúmlega tvo daga að meðal-
tali að berast til viðtakanda þar. Bréf
frá Ítalíu til íslands er hins vegar
rétt tæpa sex daga á leiðinni, en ef
íslendingur vill senda til Ítalíu verð-
ur viðtakandinn þar að bíöa níu daga
eftir bréfinu.
Ef þessar tölur eru bornar saman
við heildartölur frá árinu 1994 má sjá
að póstur til og frá íslandi kemst nú
í fleiri tilfellum til viðtakenda innan
þriggja daga, en það er sá tími sem
Alþjóðapóstfélagið miðar við. Sann-
arlega jákvæö þróun.
Gottmeðgrillinu:
Graslauks-gúrkusalat
- frábært meðlæti,.segir Ingvar Sigurðsson
Enn birtum við ljúffengar upp-
skriftir frá Ingvari Sigurðssyni, mat-
reiðslumeistara á Argentínu. Þetta
salat segir Ingvar vera gott með öll-
um mat og kjörið til þess að taka
með í útileguna. Sæta sinnepið gefur
salatinu mikið bragð þannig að rétt
er að fara varlega í það og bæta frek-
ar smám saman út í ef menn vilja
auka sæta bragðið.
Graslaukinn er hægt að fá í flestum
búðum en einnig er mjög auðvelt að
rækta hann í garðinum ef fólk hefur
aðstöðu til þess. Hér kemur upp-
skriftin:
2 dl majones
1/2 dl sýrður ijómi
1-2 msk. sætt sinnep
1 msk. sykur
2 msk. saxaður graslaukur
2 msk. saxaðar súrar gúrkur
2 tsk. dill (þurrkað)
Þessu er öllu hrært saman og
blandað vandlega. Salatið er síðan
bragðbætt með salti, pipar og aro-
Spörun - nokkur einföld rá Það er algengt að fólk kvarti und- n bensín 5 sem draga úr eyðslu ar eru bónaðar oft svo þær eyði
an oi nau Densinveroi ner a lanui. Það gleymist hins vegar oft að bensínkostnaö er hægt að lækka verulega þrátt fyrir lúð háa bensín- verö. Hér koma nokkur ráð til öku- minna eiasneyti:; • Bíll í hægagangi eyðir Ef stansað er í meira en hálfa til eina minútu borgar sig peningalega að drepa á bílnum.
og skila árangri. • Hraðakstur kostar Eyðslan getur aukist um tíu pró- • Haltu jöfnum hraða Bíllinn eyðir mest við hraða- aukningar, snöggar inngjafir, of
ef ekið er á 100 km/klst. í stað 80 km/klst. Meö öðrum orðum, bíllinn og þess háttar. Best er að halda jöfnum hraða.
Kemst íu /o lengra a nveijum uira ef ekið er á 80 km/klst. en á 100 km/klst. • Þrýstingur í hjólbörðum • Skreppum saman Það er mikilvægt, bæði fyrir bensínsparnað og slit á bílum, að fólk reyni að samnýta bílana sína.
Það margborgar sig aö mæla þrýstinginn í hjólbörðunum og hafahannjafnan. Ójafn þrýstingur Tvenn hjón ættu frekar að fara saman á einum bíl og deila bensín- kostnaði en að fara á sínum bílnum
eöa linur hjólbaröi eykur eyðslu. • Minnkið loftmótstöðu Öll loftmótstaða eykur eyöslu. Hafið því glugga og topplúgu lok- aöa, forðist óþarfa farangur á topp- grind og hafiö bilinn hreinan, það skiptir máli. (Vissuö þiö að flugvél- hvor og eyða helmingi meira bens- íni. Þessi ráð ættu allir ökumenn að geta nýtt sér. Þau eru fengin hjá bifvélavirkjum og áhugamöimum um bensínsparnað. Svo muna allir að fara varlega í umferöinni.
Ingvar Sigurðsson matreiðslumeist-
ari gefur hér neytendum enn eina
Ijúffenga uppskriftina og nú að gras-
lauks-gúrkusalati sem gott væri að
borða með grillmatnum um helgina.
mati eftir smekk.
Verði ykkur að góðu!