Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1995, Side 13
FÖSTUDAGUR 11. ÁGÚST 1995
13
Það var tiltölulega rólegt hjá stelpunum í fatahenginu á Tunglinu þegar DV bar að. Halla, Dóra og Unnur
fatcihengispíur gáfu sér því tíma til að brosa blítt.
Það var engin spurning um stemninguna hjá Heiðu, Steinunni og írisi á Ingó þegar DV greip þær glóðvolgar af
dansgólfinu. D V-my ndir T J
Meiming
Orðfáar
stemningar
Ásdís Óladóttir er ung skáldkona sem fyrir skömmu
gaf út sína fyrstu ljóðabók, Birta nætur. Þetta er falleg-
ur og ástúðlegur titill og lýsandi fyrir ljóðin sem mörg
hver geisla af mýkt og hlýju eins og t.d. ljóðið Tár:
Eins og ljósið dregið niður
á litlum lampa
er ekkinn tekinn að hljóðna
í litlu herbérgi. (17)
Ljóðið býr yfir kyrrlátri angurværð og er Ásdís nokk-
uð lunkin við að ná fram stemningu andartaksins í
stuttum, einföldum og orðfáum ljóðum í þessum anda.
í ljóðinu Birta nætur yrkir hún um íslenska nætur-
birtu og kemur í íjórum línum til skila þeirri lífsgleði
og innri óþreyju sem býr í sumarnóttinni:
Birta nætur
fyllir mig þrá.
Eg stig dans inn í
glóandi hnöttinn. (32)
Mér finnst Ásdísi takast best þegar hún heldur sig
á þessum hófsömu nótum en síður þegar hún vill vera
háfleyg. Þá ramba ljóðin á brún tilgerðar og flatneskju
eins og Vorljóð sýnir vel:
Á helgu vori
dreypum við
á mjúku vatni.
Eilífur
er gljúpur draumur. (29)
Ólíkt Birtu nætur, sem er fallegt í látleysi sínu, er
þetta ljóð uppskrúfað og óekta og það sama á við um
eftirfarandi ljóð:
í reykmettuðum bíl
í litlausri kvikmynd
angurvær
með bros á vör
örvasa sál. (28)
Ómarkviss orðanotkun lokar lesandann úti og þótt
vissulega megi álykta sem svo að hér sé ort um lífs-
leiða skilar sú stemning sér ekki. En það er einmitt
Bókmenntir
Sigríður Albertsdóttir
meginstyrkur Ásdísar hve skemmtilega henni tekst
oft að laða fram litlar en skarpar myndir sem magna
upp vissa stemningu. Fegurðarstemningu í því stutta
ljóði Fegurð:
Við enda götunnar
búa
falleg
orð. (23)
Eða stemningu ástar í einu af betri ljóðum bókarinnar,
Litagleði:
Úr dropóttum krukkum
þú blandaðir liti
ímyndana þinna.
Bleikt fyrir sól,
blátt fyrir mold
en fyrir saflrgrænan sjó
valdirðu mig. (27)
Þótt fmna megi ýmsa annmarka á ljóðunum, sem
vel má flokka undir reynsluleysi byrjandans, er Ásdís
Óladóttir áhugaverð skáldkona sem lætur vonandi
heyra meira í sér í framtíðinni.
Birta nætur
Ásdís Óladóttir
Andblær 1995
__________________ Fréttír
Risarabarbari
í Hveragerði
Þrátt fyrir heldur kalt sumar hefur risastór víða en þó mestur að Kamba-
gróður víða sunnanlands tekið vel hrauni 42. Þar er hann nokkuð á
við sér enda hefur ekki skort væt- annan metra á hæð og gildur eftir
una. Rabarbarinn í Hveragerði er því.
Brenda Kristmundsdóttir með mesta risann i garði sínum að Kambahrauni.
DV-mynd Sigrún Lovísa, Hveragerði
Taktu þátt í
Sumar Þrumuleik
Bónus Radíó í síma 904 17^0 og
þú átt þess kost að vinna olæsilega
Samsung Max 370 hljómtækjasamstæðu
að verðmæti kr. 35.900 ega tíu
geisladiskastanda frá Bónus Radíó að
verðmæti kr. 1.490 hver/
Þú hringir í síma 904
og svarar þrem
laufléttum
spurningum
um hin
fjölbreyttu
Sumar-
Þrumutilboði
Bónus Radíol ^
Svörin við sptirrtingunum
finnur þú í fjögflrra síðna
blaðauka frá BÓnus Radíó
sem fylgdi DV \
laugardaginn 29. júlí.
Grensásvegi 11
Sími: 5 886 886 Fax: 5 886 888