Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1995, Blaðsíða 16
16
FÖSTUDAGUR 11. ÁGÚST 1995
Iþróttir
ÍR lagði Þrótt
tveimur fævri
Gwen Torrence dæmd úr leik í 200 m hlauí
„Hún svind
- og hljóp tveimur metrum styttra en aðrir, sai
Beardsekki
íleikbann
Steward Beards, Englendingur-
inn í liöi Vals, var ranglega úr-
skuröaöur í leikbann á fundi aga-
nefndar KSÍ en þaö var vegna
viiiu í skráningu. Leikbann hans
er því afturkailað og hann getur
leikiö með Val í næsta leik.
Öldungamótí
Hafnarfirði
ÓG bikarmót öldunga í golfi fór
fram á Hvaleyri sl. laugardag. I
flokki 50 til 54 ára án forgjafar
sigraði Guðlaugur Gíslason, GK,
á 75 höggum. í keppni meö forgjöf
sigraði Pétur Vilbergsson, GK, á
63 höggum. í flokki 55 ára og eldri
sigraði Sigurjón Sverrisson í
keppni án forgjafar á 76 höggum
en í keppni með forgjöf sigraði
Sveinn Snorrason, GR, á 65 högg-
um. Þá sigraði Sveinn einnig í
flokki 70 ára og eldri en í flokki
60 til 69 ára sigraði Henning
Bjarnason á 68 höggum.
Frjálsíþrótta-
námskeiðhjá FH
Tveggja vikna fljálsíþrótta-
námskeið fyrir 5-12 ára krakka
verður haldið hjá FH-ingum og
hefst námskeiðið mánudaginn 14.
ágúst. Nánari upplýsingar í síma
555 1015.
Halldórkeppir
íEnglandi
Halldór Halldórsson, fyrsti
hjarta- og lungnaþeginn á ís-
landi, er á leið til Manchester í
Englandi á 10. heimsleika liffæra-
þega sem hefjast á laugardag.
Hann mun keppa í 400 metra og
1500 metra hlaupum á leikunum.
Þetta veröa stærstu leikar sem
haldnir hafa verið á þessum vett-
vangi.
GolfmóthjáGR
íCyrafarhoHi
Olís-Texaco golfmótið verður
haldið hjá GR í Grafarholti á
laugardag og sunnudag. Leiknar
verða 36 holur í karla- og kvenna-
flokkum án forgjafar og í einum
samanlögðum flokki með forgjöf.
Skráning fer fram í Golfverslun
Sigurðar Péturssonar í síma 587
2215.
Dale Brown með
fyrirlestur
Á sunnudaginn kemur veröur
Dale Brwon, aðalþjálfari L.S.U.,
með fyrirlestur fyrir þjálfara í
Keflavxk. Brown er að hefja sitt
24. tímabil með Louisiana State
og á þeim tíma komið liðinu 13
sinnum í úrsht NCAA. Þetta er
einstakt taakifæri fyrir þjálfara
og alla áhugamenn um körfu-
knattleik að láta sjá sig. Allar
nánari upplýsingar um fyrirlest-
urinn gefur Tómas Tómasson í
síma 421 5530.
Víkingarleika
gegn Hapoel
íslandsmeistarar Víkings í
borðtennis leika í fyrstu umferð
gegn meístaraliði ísraels, Hapoel
Ramat-Gam, i Evrópukeppninni.
Leikm-inn verður á Islandi í sept-
ember, Ljóst er að lið Víkings er
sterkt og á höið möguleika að
komast í 2. umferð keppninnar.
Af mælismót LEK
10 ára afmæhsmót LEK verður
haldið á Strandarvelli við Hellu á
sunnudaginn keraur og hefst
mótið kiukkan 9. Keppt verður í
karlaflokki 50-54 ára og 55 ára og
eidri. í kvennaflokki verður
keppt í flokkí 50 ára og eidri.
Skráning keppenda er í síma 487
8208.
Jón Kristján Sigurðsson skrifar:
1-0 Óskar Óskarsson (19.)
1-1 Ólafur Sigurjónsson (39.)
1-2 Guðjón Þorvarðarson (52.)
„Liðið sýndi mikla barátta í þess-
um leik. Það sýndi sig svo ekki
verður um villst að þegar viljinn
er fyrir hendi er ýmislegt hægt.
Strákamir sýndu mikinn karakter
með því að snúa leiknum sér í vii
einum færri og síðan tveimur færri
þegar skammt var til leiksloka. Við
gerum okkur alveg ljóst að það er
geysileg barátta fram undan,“
sagði Bargi Björnsson, þjálfari ÍR-
inga sem lögðu Þrótt, 1-2, í miklum
fallbaráttuslag á Valbjarnarvelh í
gærkvöldi.
Það er svo sannarlega hægt að
taka undir orð Braga, þjálfara ÍR-
hðsins, að baráttan lagði grunninn
að sigri liðsins. Eftir að ÍR-ingar
misstu Sigurjón Hákonarson á 37.
mínútu fylltust þeir miklum eld-
móði og tókst að jafna metin aðeins
tveimur mínútum síðar.
1. deildar hð Stjömunnar í hand-
knattleik heldur til Bandaríkjanna
um næstu mánaðamót, nánar tiítekið
tfl Atlanta, og mun dvelja þar í 8
daga. Stjörnumenn fara utan í boði
bandaríska landshðsins. Stjömu-
menn þurfa að greiða fargjaldið til
Bandaríkjanna en Bandaríkjamenn-
irnir munu sjá um aö greiða allt
uppihaldið og gistingu fyrir leik-
mannahópinn.
Að sögn Viggós Sigurðssonar, þjálf-
Skúlifór
tilVals
Íslandsmeistarar Vals í handknatt-
leik fengu í gær góðan hðsstyrk en
þá ákvað Skúli Gunnsteinsson, hnu-
maður og fyrirliði Stjömunnar til
margra ára, að ganga til liðs við fé-
lagið en DV greindi frá því fyrir
tveimur vikum að þessi félagaskipti
stæðu fyrir dyrum.
Stöðu Skúla hjá Stjörnunni mun
Magnús A. Magnússon taka en hann
kom til Stjörnumanna frá KR-ingum.
Þar er mjög sterkur leikmaður á ferð
sem ætti að geta fyllt skarð Skúla.
„Ég lagði mikla áherslu í vor að fá
Magnús til okkar enda var ég búinn
að sjá það aö Skúii var ekki lengur
í þessu á fuhu með okkur. Þetta var
því greinilega rétt mat. Ég sé Magnús
alveg fylla þetta skarð sem Skúh skil-
ur eftir sig og mér finnst strax í dag
Magnús vera orðinn betri leikmað-
ur,“ sagði Viggó Sigurðsson, þjálfari
Stjörnunnar, við DV í gær.
Þróttarar höfðu áður átt meira í
leiknum og vom mikhr klaufar að
vera ekki búnir að skora fleiri
mörk áður en ÍR-ingar komust á
blað. í síöari hálfleik var ekki að
sjá að Þróttarar væru einum fleiri
á velhnum því ÍR-ingar áttu síst
minna í leiknum.
Breiðhyltingar tóku vel á móti
Þrótturum og vom stórhættulegir
í skyndisóknum sínum. Vítaspym-
an sem ÍR fékk var óumflýjanieg
þegar Brynjólfur Bjarnason var
felldur innan vítateigs. Jón Þór
Eyjólfsson, ÍR-ingur, fékk að líta
rauða spjaldið þegar sex mínútur
vom tfl leiksloka.
Hvorki gekk né rak hjá Þrótti í
leiknum og hefur allt gengið á aft-
urfótunum hjá hðinu síöan það
missti stigin gegn Þrótti.
í 2. deildinni er fram undan gífur-
leg hörð og spennandi fahbarátta
sem ÍR, Þróttur, HK og Víkingur
taka þátt í.
Maður leiksins: Guðjón Þorvarð-
arson, ÍR.
ara Stjömunnar, verður farið út 1.
september og komið heim að morgni
9. september. Þann sama dag mun
liðið leika tvo leiki á opna Reykjavík-
urmótinu. Stjaman mun leika þrjá
opinbera leiki við bandaríska lands-
liðið og að sögn Viggós verður þeim
leikjum sjónvarpað í Atlanta og er
htið á þessa leiki sem undirbúning
fyrir ólympíuleikana sem fram fara
í Atlanta á næst’a ári.
HM-
úrslit
200 m hlaup kvenna:
1. Merlene Ottey, Jam......22,12
2. Irina Privalova, Rússl..22,12
3. Galina Machugina, Rússl. ...22,37
4. Melanie Paschke, Þýsk...22,60
5. Silke Knoll, Þýsk.......22,66
400 m grindahlaup karla:
1. Derrick Adkins, Band....47,98
2. Samuel Matete, Sambíu...48,03
3. Stephane Diagana, Frakkl. ..48,14
Sjöþraut kvenna:
1. Ghada Shouaa, Sýrl......6651
2. Svetlana Moskalets, Rús.6575
3. Rita Iancsi, Ungverjal..6522
Þrístökk kvenna:
1. Inessa Kravets, Úkr.....15,50
2. Iva Prandzheva, Búlg....15,18
3. Anna Biryukova, Rússl...15,08
50 km ganga karla:
1. Valentin Kononen, Finnl. .3:43,42
2. Giovanni Perricelli, ítaliu.3:45,U
3. Robert Korzeniowski, Pól. 3:45,57
Merlene Ottey frá Jamaíka tryggði sér
í gær heimsmeistaratitilinn í 200 metra
hlaupi á HM í frjálsum íþróttum. Ottey
kom að vísu önnur í mark í úrshtahlaup-
inu sem era engin ný tíðindi því Ottey
hefur verið mjög iðin við að vinna til
silfurverðlauna á stórmótum.
Gwen Torrence, heimsmeistari í 100
metra hlaupi, kom langfyrst í mark.
Tími hennar var 21,77 sekúndur sem er
besti tími ársins. Fagnaðarlátum hennar
var vart lokið þegar dómarar kváðu upp
þann úrskurð að hún hefði stigið út af
braut sinni og var hún umsvifalaust
dæmd úr leik. Forráöamenn bandaríska
landsliðsins mótmæltu ákaft en dómn-
um var ekki breytt. Ottey var því krýnd-
ur heimsmeistari, rússneska stúlkan Ir-
ina Privalova, Rússlandi, varð önnur og
landa hennar Gahna Malchugina varð í
þriðja sæti.
Veit það innst inni að
ég vann hlaupið örugglega
„Ég ætla ekki að láta þetta eyðileggja
fyrir mér sigurinn í 100 metrunum. Eg
veit innst inni að ég vann örugglega
þetta hlaup og ég trúi varla að nokkur
geti glaðst yfir því að fá medalíu á þenn-
an hátt, vitandi það að hafa ekki unnið
til hennar," sagði Torrence þegar Ijóst
var að hún haföi verið dæmd úr leik en
hún hefði veriö þriðja konan í sögunni
tfl að vinna bæði sigur í 100 m og í 200 m
á sama heimsmeistaramóti.
„Hún hafði rangt við og þess vegna var
hún dæmd úr leik. Hún svindlaði og
hljóp tveimur metrum styttra en alhr
aðrir og þess vegna varð hún fyrst. Ég
veit ekki hvort hún hefur gert þetta af
ásettu ráði en ég heyrði af því að hún
hefði einnig stigið á linuna í undanúr-
slitahlaupinu," sagði Ottey en hún varð
einnig heimsmeistari í 200 metra hlaupi
á HM í Stuttgart fyrir tveimur árum.
Hvað fær Shouaa núna
frá forseta Sýrlands?
Sýrlendingar unnu fyrsta sigur sinn á
stórmóti í frjálsum íþróttum þegar
Ghada Shouaa tryggði sér heimsmeist-
áratitilinn í sjöþraut kvenna. Svetlana
Moskalets frá Rússlandi vann silfur-
verðlaunin og Rita Inancsi frá Ungverja-
landi vann bronsið.
Þegar ljóst var að hin 21 árs gamla
sýrlenska stúlka hafði unnið til gull-
verðlauna á HM spurðu menn sig hvað
forseti Sýrlands, Hefez al-Assad, myndi
færa henni að gjöf en þegar hún vann
sigur á Asíuleikunum í fyrra fékk hún
að launum glæsMllu og bifreið.
Hápunkturinn á heimsmeistaramót-
inu í gær var heimsmet Inessu Kravets
frá Úkraínu í þrístökki kvenna. Kravets
stökk 15,50 metra en gamla metið átti
Anna Biryukova frá Rússlandi, 15,09
metra, sett árið 1993.
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Körfuknattleiksdeildar Hauka
verður haldinn föstudaginn 18. ágúst 1995
kl. 20.00 í Haukahúsinu í Hafnarfirði.
Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Stjórn Körfuknattleiksdeildar Hauka.
Stjörnumenn á
leið til Atlanta
-1 boði bandaríska landsliðsins