Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1995, Side 32
SIMATORG DV 904 1700
562*2525
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma
562 2525. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiöast
3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar
nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn.
RITSTJORN - AUGLYSINGAR - ASKRIFT - DREIFING: 563*2700
BLAÐAAFGREIÐSLA OG
ÁSKRIFT ER OPIN:
Laugardaga: 6-14
Sunnudaga: lokað
Mánudaga: 6-20
Þriðjudaga - föstudaga: 9-20
BÐNN SIMI BLAÐA-
AFGREIÐSLU: 563 2777
KL. 6-8 LAU6ARDAG& OG MÁNUOAGSMORGNA
Frjálst,óháð dagblað
FÖSTUDAGUR 11. ÁGÚST 1995.
Ólafur Jóhann Ólaísson, forstjóri hjá Sony 1 New York:
Vaxtarbroddurínn í gagn
virkum skemmtihugbúnaði
„Viö erum að fara i auknum
mæli inn á gagnvirka markaðinn
sem er orðinn .einn helsti vaxtar-
broddurinn í fyrirtækinu. Ástæðan
er sú að næstu 20-30 árin mun
skemmtiefni, þar sem fólk þarf aö
gera eitthvað annað en að horfa eða
hlusta, aukast mjög mikið, bæði
tengt sjónvarpi og tölvum. Það er
sá hluti skemmtanaiðnaðarins sem
hefur aukist langmest síðustu
fímm árin og eykst mjög ört. Sony
Electronic Publishing hefur vaxið
mjög hratt og það er í rauninni
bara staðfesting á því að það verður
eitt helsta vaxtarfyrirtækið innan
Sony á næstunni," segir Ólafur
Jóhann Ólafsson, forstjóri Sony
Electronic Publishing, Inc.
Ólafur Jóhann hefur tilkynnt að
nafhi fyrirtækisins Sony Electr-
onic Publishing, Inc., verði breytt
í Sony Interactive Entertainment,
Inc., til að sýna betur áherslu Sony
á gagnvirkan skemmtihugbúnaö í
framtíðinni en breytingin kemur 1
framhaldi af stærri skipulagsbreyt-
ingum innan Sony. Búið er að
stokka Sony Electronic upp í sjö
dótturfyrirtæki, stúdíó, sölu-,
markaðs- og dreifingarfyrirtæki,
og færa til ýmsar deildir auk þess
sem sjöunda fyrirtækið er með alla
framleiðslu Sony á CD ROM disk-
um.
- En eiga fréttir af vandræðum
Sony-forstjórans með samstarfs-
mann að nafni Steve Race og Jap-
ani við einhver rök að sfyðjast?
„Þessar fréttir voru ansi rangar
eins og kom í ljós þegar þessi mað-
ur hætti og öli skipulagsbreytingin
fór fram. Eg er búinn að undirbúa
þessar breytingar í eitt ár og síð-
ustu tvo mánuði hefur mikiö gerst,
deildir verið fluttar til og menn far-
ið í aðrar stöður. Þá fylgja alitaf
raiklar sögusagnir og þetta var
bara ein þeirra. í svona stórfyrir-
tæki eru menn ekki alltaf sammála
en það er bara það venjulega," seg-
ir Olafur Jóhann sem staddur er
hér á landi.
-GHS
Flugleiðir:
Nýjarflugleið-
ir og 80 nýir
starfsmenn
Samningarum
neyðarvaktslöð
Flugleiðir hyggjast á vori komanda
hefja flug til tveggja nýrra staða,
Boston í Bandaríkjunum og Halifax
í Kanada. Vegna þessa mun einni
Boeing 757-200 þotu verða bætt við
flugflotann og hyggst félagið ráða um
80 nýja starfsemenn vegna aukinna
umsvifa. Flogið verður þrisvar í viku
til Boston og tvisvar í viku til Halifax.
Frá og með 1. september nk. veröur
innanlandsflug Flugleiða skilið frá
öðrum einingum félagsins en það
verðurþóáframhlutiFlugleiða. -sv
Samningar standa yfir milli dóms-
málaráðuneytisins og hlutafélags í
eigu Slökkviliðs Reykjavíkur, Slysa-
varnafélags íslands, Securitas hf„
Vara hf. og Sívaka hf. um uppbygg-
ingu og rekstur neyðarvaktstöövar.
Stöðin á að taka við beiðnum um
aðstoð gegnum samræmt neyðar-
númer í Evrópu, 112, en það tekur
gildi um áramót. -GHS
Þjófurálínu-
skautum gómaður
Tveir spænskir ferðamenn eru nú
svo gott sem strandaglópar á Egils-
stöðum. Spánverjarnir ætluðu að
ferðast um landið á vélhjólum og
gistu á tjaldstæðinu á Egilsstöðu í
nótt. Þegar þeir vöknuðu í morgun
var búið að stela hlífðaríotum þeirra
sem þeir höföu hengt til þerris í gær-
kvöld. Lögreglan á Egilsstöðum
rannsakarnúfatahvarfið. -pp
„Strákurinn opnaði peningakass-
ann, hrifsaði til sín peninga og hljóp
út. Hann var á línuskautum en við
náðum strax í skottið á honum og
afhentum lögreglunni kauöa. Hann
var þrettán ára og hefur líklega
hlaupið með tólf til þrettán þúsund
krónur út úr búðinni. Þetta hefði
auðvitaö verið slæmt ef við hefðum
ekki náð honum en fyrst svo fór þá
erum við ánægðir," sagði starfsmað-
ur sportvöruverslunarinnar Bolta-
^mannsins viö Laugaveg eftir að hafa
gómað ungan þjóf í versluninni í gær.
Dean Martin lifir
Hare Krishna-félagar af ýmsu þjóðerni hafa dvalist hér á landi að undanförnu og fóru i fyrstu friðargöngu Hare
Krishna á íslandi i Reykjavík um helgina. Gangan er hluti af 10.000 kilómetra alþjóðlegri Hare Krishna-göngu til
Moskvu sem farin verður á einu ári. DV-mynd JAK
„Dino lifir enn - Dean Martin há-
tíð“ er yfirskrift mikillar skemmti-
dagskrár sem fram fer í Þjóöleikhús-
kjallaranum næstkomandi fimmtu-
dag.
í dag kl. 16 halda aðstandendur
hátíðarinnar hæfileikaprufu í Þjóð-
leikhúskjallaranum þar sem leitað
verður að hstafólki til þess aö koma
fram á hátíðinni en auk þess kemur
fram fjöldi landsþekktara skemmti-
krafta.
LOKI
Egilsstaðir- Reykjavík
álínuskautum .
Veðrið á morgun:
Gola
eða
kaldi
Á morgun verður suðaustan
gola eða kaldi. Rigning verður
með suður- og austurströndinni
en víðast þurrt annars staðar.
Hiti verður á bilinu 10 til 20 stig,
hlýjast í innsveitum norðan-
lands.
Veðrið í dag er á bls. 36
'mWFILl/
4 - 8 farþega og hjólastólabílar
5 88 55 22