Þjóðviljinn - 22.03.1938, Side 4
as l\íý/a Ti'io ss
Leynifarpeginn.
með undrabarninu
SHIRLEY TEMPLE
Barnasýning kl. 6. Aðgöngu-
miðar seldir frá kl. 4.
Næturlæknir
Kjartan Ölafsson, Lækjargötu
6 B, sími 2614. ./
Næturvörður
er í Reykjavíkur apóteki og
lyfjabúðinni Iðunn.
Útvarpið í dag
8.30 Dönskukensla.
10.00 Veðurfregnir.
12,00 Hádegisútvarp.
18.45 Þýskukensla.
19,10 Veðurfregnir.
19.20 Þingfréttir.
19.40 Auglýsingar.
19,50 Fréttir.
20.15 Erindi: Berklaveiki og
berklavarnir á heimilum, I.
(SigiUrður Magnússon prófess-
or).
20.40 Hljómplötur: Létt. lög.
20.45 Slysahætta fyrir börn á
heimilum (frú Sigríður Eiríks
dóttir).
21.05 Symfóníutónleikar:
a) Tónleikar Tónlistarskólans.
b) (21.45) Tónverk eftir Schu
bert (plötur).
22.15 Dagskrárlok.
Skipafréttir
Gullfoss er í Leith, Goðafoss
er á leið til Vestmannaeyja frá
Kaupimannahöfn, Brúarfoss er í
Kaupmannahöfn, Dettáfoss er í
Hull, Lagarfoss er í Reykjavík,
.Selfoss fór til útlanda í gær, Dr.
Alexandrine kom frá, útlöndum
í gærmorgun og fer norður og
vesitur í kvöld kl.; 6.
Leiðrétting
1 úrdrætti úr ræðu Brynjóiifs
Bjarnasonar um gerðardóminn
hefir slæðst sú villa, að Brynj-
ólfur hafi sagti að ríkisstjórnin
ætli bá leið að koma á lögþving-
uðum dóm:i á grundvelli tillögu
sátita&emjiara. Þarna hefir frá-
sögnin skolast. Brynjólfur sagði
að ef bankarnir ekki vildu beita
valdi sínu til þess að láta tog-
arana fara út með þeim kjörum
sem fengist hefði samkomulag
við sjómenn um þá ætti ríkis-
stjórnin þá leið að lögþvinga
nýja sáttatillögu sem þannig
væri fengin trygging fyrir að
sjómenn ætu sætt sig við.
Vísir gerir afstöðu kommún-
ista til málsins að umtalsefni á
grundvelli þeirrar villu sem
slæddist inn í útdrátt Þjóðvilj-
ans. Getur Vísir sannfært sig
um, að hér er rétt frá skýrt um
efni ræðunnar með því að at-
huga handrit þingræðanna og
eru bollaleggingar þlaðsins út af
þessu máli þar með úr sögunni.
Sendisveinafél. Reykjávíkur
heldur framhalds aðalfund
sinn á morgun kl. 8-| síðdegis í
Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu. Á
fundinum verða tekin fyrir þau
aðalfundarstörf, sem ekki vanst
tími' til að ljúka á síðasta fundi
og ýms önnur mák
U. M. F. Velvakandi
í kvöld kl.i 9.
Frá höfninni
Franskur togari kom. hingað
í gærmprgun til þess að taka kol
og enskur togari kom hingað
vegna- bilunar.
Leikfél. Reykjavíkur
Samæfingin verður á fimtu-
dag kl. 84 e. h.
Bassar, munáð raddæfingarn-
ar í kvöld.
Kjartan Ölafsson skilaði eftir-
farandi ágreiningi:
»Ég tel ósanngjamt, að sjó-
menn fái ekki hlutfallslega sömu
kauphækkun á ísfiskveiðum,
isem meirihluti gerðardóms vio-
urkennir að þeim: beri á salt-
fisikveiðum.i Einnig tel ég ófull-
nægjandi hækkun þá„ sem úr-
skurðurinn gerir ráð fyrir á síld-
arpremíunni. Iilutfall það, sera
úrskurðurinn gerir ráð fyrir á
milli launa, kyndara 4 ísfisk- og
raltfiskveiðum, tel ég rnjög ósann
gjarnan., Loks tel ég, að hætta
sé á því, að úrskurðurinn sé
ekki nægileg lausn á þeirri
kaupdeilu, sem honum er ætlað
að leysa úr, og vísa ég þar um
til árangurs af tveimur atkvæða
greiðslum sjómianna um tillögu
sáttasemjara.
Ágreiningur Kjartans Thors
var eftirfarandi:
»Með tilvísun til framlagðra
skýrslna um afkomu togaraút-
gerðarinnar er það ljóst, að þessi
atvinnurekstur getur ekki risið
undir auknum kaupgjöldum.
Get ég því ekki fallist 4 niður-
stöðu meirihluta gerðardóms-
ins«.
Tilkynning;
til einsíakra áskrifenda úti á landi
Peir áskrifendur, eiga eftir að greiða blað-
ið frá fyrra ári, verða að hafa greitt skuld
sína fyrir 1. apríl, annars verða stöðvað-
ar sendingar til peirra.
Afgreiðsla Þjóðviljans.
(ierdardóinuriim
FRAMH. AF 1. SIÐU.
Félags islenskra botn- i
vörpusldpaeigenda œnnars
vegar og Sjámannafélags
Reykjavíkur, Sjómannafélags
Patreksfjarðar og Sjónrmma-
félags Hafnarfjarðar hins veg-
ar árið 1938, gilda samningar
dags. 28. jan. 1935 wm ráðn-
ingarkjör háiseta, matsveina,
aðstoðarmanna á vél, kyndara
og brœðslumanna á botnvörpu
skipum mcð þeim breytingum,
sem kér segir:
»,Vá er kaupverð síldar yfir I
5 kr. pr. mál, somkvæmt á-
kvörðun Síldarverksmiðja rík-
isins, og skal þá aukaþóknun-
in hœkka í sama hlutfalli og
síldarverðið«.
Skip talid aí*
1 Þórshöfn er nú alment talið
að Fossanes; hafi farist við Is-
land í ofvtðrinu með 19 færeysk-
um mönnum og 2 Islendingum.
(F.tJ.)
4 Gamtattio 4
Lítilsvirt
kona
Gullfalleg og hugnæm þýsk
my.nd eftir sjónleik
OSCAR WILDE
Aðalhlutverkin leika
KÁTIIE DORSCH og
GUSTAF GRUNDGENS.
Hijómsveit Reykjavíkur.
-Bláa táiaa«
(Tre smaa Piger).
leikin annað kvöld kl. 8ý í
15. SINN.
Aðgöngumiðar seldir frá kl.
4—7 í dag og eftir kl. 1 á morg-
un.
Frá Spáii
FRAMH. AF 1. SIÐU.
Áhlaupi ítalska hersins var
hrundið, þrátt: fyrir það að inn-
rásarherinn beytti óspart stór-
skotaliði, skriðdrekum og flug-
vélum.
Álitið er að mesta hættan af
sókn uppreisnarhersins sé þar
með liðin hjá.
Undanfarna daga má, heita ai
hafi verið látlausar loftárásir á
Barcelona,
Yfir 3000 manns hafa, látið
iífið, og þýðingarmiklar bygg-
ingar eyðilagst, þar * á meðal
þinghúsið. 10000 manns eru
heimilislausir.
Vicky Baum.
Helena Willfúer 75
Auðvitað mundum við ekki bjóða yður sömu kjor
og öðrum byrjendum, en reyna að fara í
kringum taxtann! Ég mundi því leggja til að bætt yrði
við 200 marka þjónustuviðbót á mánuði«. Hann leií
snöggt til Helenu, og flýtti sér að bæta við: »og svo>
væri hægt að hafa sérstaka hæfileika-viðbót, — eig-
urn við að segja, önnur 200 mörk á mánuði?«
Helena brosti: »Nei, þakk«, sagði hún, — annað
ekki.
Það kom svolítið líf í þögulu herrana 1 djúpu s,tól-
pnum. Ilún leit til doktor Sandhagen og hann brosti
örlítið til hennar. Ekki að láta þá stinga yður í vas-
ann, — las hún út úr andliti hans.
»Ef ég skil yður rétt, þa neitið þér tilboði voru. Ég
fullvissa yður um, að þetta eru óvenjugóð kjör, sem
yóur bjóðast. Vér getum ekki gengið fram hjá þeirri
staðreynd, að þér hafið ekki áður unnið að iðnaðar-
framleiðslu. Þó að tilætlunin sé að fá yður stjórn á
vísindahlið deildarinnar, verðum vér að leggja skipu-
lagningu og frarnleiðslustjórnina öðrum 4 herðar, og'
það þýðir aukinn kostnað«.
I »Það er hreint ekki vís,t, herra forstjóri, að ég geti
ekki unnið að skipulagsmálunum og framleiðslustjórn-
inni, — ég hef að sjálfsögðu lagt, m,ig fram til að
kynna mér einmitt þau mál síðan þér bentuð mér á
þessa stöðu. Það starf, sem ég hef lagt í vit,ali,n er
a'lls ekki fræðilegt, starf. Tíminn einn verður að
sanr.a hvort é.g er fær um a,ð stianda í stöðu mlinni í
iðnaðarfyrirtæki yðar, — ef að samningar okkar á,
milli takast á annað borð«.
Þetta var djarft, — en einmitt þann,ig kom Helena
fram á úrslitastundunum í lífi sínu. Botstieber for-
stjóri lyfti hinu virðulega goethe-höfði siínu, og lagói
sig nú aílan fram., »Það vona ég, það vona
ég sannarlega, að samningar takist okkar á milli, frú
doktor. Viljið þér ekki lofa oss að heyra hvað þér
sjálfar gætuð hugsað yður? En ég vara yður fyrir-
fram við því að stefna of hátt. Þó að ótrúlegt megi
virðast, reiknum við með hverjum eyri. Sá eyrir, sem
vér græðurn á hverri einstakri vöru, verður að miljón-
uíii með þeirri geysilegu umsetningu sem vér höfum.
»Rétt er það, herra forstjóri, — en ég kann líka að
reikna, — ef ekki með aurum, þá með lífsverðmætum.
Ég er orðin þrítiug, og fram að þessu hef ég liíaö eins
og flækingsseppi! Ég hef,i ekki mátt vera að því að
njóta lífsins. Ég hef soltið, þolað kulda, lagt. á mig
næturvökur, — ég hef reynt ótrúlega, mikið ilt, — og
nú vil ég uppskera laun erfiðis míns, og það refja-
laust. Ég vil geta lifað eins og manneskju er sæmandi,
og geta bætt barninu mínu það, sem það hefir farið á
mis við. Ég ætla að látia mér líða vel, — já hreint og
beint vel! Já, þér verðið ef til vill hissa á því sem ég
segi, — en ég get ekki sagt það öðru vísi en svo, að
mig er farið að langa í dálítið meðlæti —■«
Helena sá brosandi og undrandi andlit hvert s.em
hún leit. Botstíeber forstjóri lagði nú af sér stífnis-
gerfið, og sagði innilega: >xÞess unnum vér yður á-
bvggilega,, frú doktor. Auðvitað eigið þér heimtíngu.
á góðu lífi, — og að svo miklu leyti, sem slíkt stend-
ur í okkar valdi .... Viljið þér ekki láta okkur heyra
hvernig þetta »meðlætí« verður í framkvæmd?«
»Ég vil fá skilyrðislausa stjórn deildarinnar, sem
framleiðir vitalin, um alt: er lítur að sjálfri fram-
leiðslunni, 1000 marka mánaðarlaun og hluta í nettó-
hagnaðinum af framleiðslunnk.
»Hve stóran hluta,?«
»Tvö prósent. af nettóhagnaðinum. Ég vænti þess
að ég geti áður en langur tími líður gert; framleiðsl-
una ódýrari, svo að hægt sé að fara niður fyrir þau
2,80 mörk, er þér hafið reiknað út að væri lægsti
framleiðslukostnaður á stykkið. Ég verð auðvitað að
hafa einkatilraunastofu til að starfa í«.
»Vér höfum tilraunastofu, þar sem fjörutíu efnar
•fræoingar vinna að tilraunum.
»Ég þarf einkatilraunastofu handa sjálfri mér, tvo
aðstoðarmenn og tvo lyfjafræðinga. Auðvitað held ég
áfram starfi okkar Köbcllins', ég geri mjg ekki á-
nagoa með þessa öinu uppgötvum Vitalin er aðeins
byrjunin — íyrsti liðurinn. Einka-tilraunastofa er
fyrir mér þýðingarmeira atriði en sjálft kaupið«,
sagoi hún óþoljnmóðlega, og roðnar örlítið.
»Vér göngum að þessu með því skilyrði, að verk-
smiðjur vorar fái forkaupsrétt. að þeim uppgötvun-
um, sem þér kunnið að gera«, — svaraði Botstieber