Þjóðviljinn - 29.12.1943, Side 1
LJINN
8. árgangur.
Miðvikudagur 29. des. 1943.
292. tölublað.
Iflssar fala Karastlsllf ao Haslaoila
r:mm
Sfálíðnaðarverk~
íallfnu afléff
Stálverksfniðjurnar í Ohio í
Bandaríkjunum voru aftur
komnar næstum í fullan gang
í gær, eftir að framleiðslan
hafði orðið minni en nokkurn
tíma síðan árásin var gerð á
Pearl Harbour.
Verkamönnum fjölgaði um
hver vaktaskipti, er verka-
menn höfðu fallizt á fyrirmæli
Stríðsverkamálanefndarinnar og
skeyti höfðu borizt frá Philip
Murray forseta sambands stál-
iðnaðarverkamanna. Áhrif
Roosevelts forseta máttu sín og
mikils. Lofaði hann, að verka
menn skyldu fá kjarabætur,
sem verkuðu aftur fyrir sig að
svo miklu leyti sem kauphækk
unin fylgdi reglum þeim, sem
settar hafa verið um kaup og
kjör. Stríðsverkamálanefndin
endurskoðaði þá afstöðu sína
samkvæmt þessu og veitti verka
mönnum þóknanir fyrir visst
magn stáls. Auk þess er verka-
mönnum lofað, að sérhver kaup
hækkun í nýjum samningum
Framhald á 8. síðu.
Rauðí herinn 12 km frá Korosfen
Hin nýja sókn Rússa á Úkraínuvígstöðvunum ryðst
fram eins og snjóflóð. Úrvalshersveitir Vatutins hers-
höfðingja, sem eru í broddi fylkingar, mola víggirðingar
og virki Þjóðverja með fjölda fallbyssna og skriðdreka
í sókn sinni til Korosten og Sitomír. — Á leiðinni til
síðarnefndrar borgar tók rauði herinn í gær bæina Kos-
inovka og Korostiséff. Hann er nú um 15 km. frá Sito-
mír í suðaustri.
Meginsóknarþungi rauða hersins beindist þó í norð-
vestur í gær. Þar sóttu Rússar svo langt fram í gær, að
þeir eru aðeins 12 km. frá Korosten. Víðast hvar á þess-
um vígstöðvum sótti rauði herinn fram 15—30 km. í gær.
Suðurarmur sóknarhersins
náði og miklum árangri í gær.
Er hersveitum Þjóðverja í
Dnépr-bugðunni talin stafa mik-
il hætta af því, ef Rússar taka
Berdiséff eða rjúfa járnbraut-
irnar fyrir suðaustan eða norð-
vestan hana.
Samtals tóku Rússar þarna í
gær yfir 60 bæi og þorp.
Þeir hafa nú á einni viku
náð aftur % hlutum þess land-
svæðis, sem Þjóðverjar lögðu
undir sig í 6 vikna árásum.
Auk þess hafa þeir tekið tölu-
vert landsvæði, sem Þjóðverjar
hafa haft á sínu valdi síðan á
fyrsta stríðsárinu.
Sóknin hefur verið svo hröð,
að Þjóðverjum hefur ekki gef-
izt neinn tími til að endurskipu
leggja lið sitt, — og varla ver-
ið hægt að tala um skipulegt
undanhald þeirra.
Á Vitebsk-vígstöðvunum hafa
Rússar þokazt enn nær borg-
inni og tekið marga byggða
staði. Á setulið borgarinnar að-
eins tvær undanhaldsleiðir eft-
ir: þjóðveginn vestur til Minsk
og járnbrautina suður til Orsja.
Þjóðverjar hafa hert m'jög á-
hlaup sín fyrir norðan Kirofo-
grad. Beita þeir miklu fótgöngu
og skriðdrekaliði. Hafa þeir ekki
náð neinum árangri, en orðið
fyrir feikilegu tjóni.
Samtals eyðilögðu Rússar 105
skriðdreka fyrir Þjóðverjum í
gær og 15 flugvélar.
Erindasafn
Útvarptsíðinda
II. hefti, skrifafl af
GuBmundi Thoroddsen
Annaö hefti af Erindasafni
Útvarpstíðinda er nýkomið wt.
Guðmundur Thoroddsen pró-
flessor skrifar þetta hefti. Eru
það minningar frá æsku höf-
undar, Flateyjarferð, Horn-
strandaþáttur og ýmsar frá-
sagnir af ferðum höfundarins.
Þeir, sem hlustað hafa á frá-
sagnir Guðmundar Thóroddsens
í útvarpinu, af ferðum hans um
landið, munu hlakka til að lesa
þessa bók.
IBJa á Akureyri semur
Samningar tókust í gcer milli
Iðju, félags verksmiðjufólks á
Akureyri og S. I. S.
Skulu samningarnir gilda til
eins árs og uppsagnarfrestur
3 mánuðir.
Hafði len.gi staðið í þófi og
tókust samningar loks fyrir
milligöngu sáttasemjara þar
Þorsteins M. Jónssonar.
SKELKAÐIR N AZISTAR VÍGGIRÐA VESTRIÐ
Duke of York átti drýgstan fsátt
í að sökkva Scharnhorst
Nánari fregnir hafa borizt af sjóorustunni í norðurhöfum.
Það voru átta brezk herskip og eitt norskt, sem tóku þátt
í að sökkva Schamhorst. Voru sex þeirra undir beinni yfirstjórn 1
sir Bruce Frasers, yfirmanns brezka heimaflotans.
í brezka flotanum voru omstuskipið Duke of York, beiti-
skipin Jamaica, Belfast, Norfolk og Sheffield og fjórir tundur-
spillar (einn þeirra norskur).
Skipalestin var stödd suð-
austur af Bjarnarey og brezka
flotadeildin skammt undan er
vart varð við Scharnhorst. Nor-
folk réðst þegar til atlögu og
kom einu skoti á hann. Sneri
Scharnhorst þá burt á fullri ferð
til norðausturs.
Nokkrum klukkutímum síð-
ar leitaði Scharnhorst enn fær-
is við skipalestina. Var Norfolk
enn fyrir og varð nú fyrir
skoti frá Scharnhorst. Hvarf
Scharnhorst svo frá, en beiti-
skipin og tundurspillarnir
fylgdu á eftir og gekk svo lengi
dags. Var nú farið að rökkva
og stefndi Scharnhorst á fullri
ferð suður.
Var nú orustuskipið Duke of
York komið á vettvang. Tókst
því að komast í skotfæri við
Scharnhorst með öllum byssum
á bakborða í einu, og hitti fljót-
lega í rnark. Sneri Scharnhorst
nú fyrst í norður en tók síðan
stefnu í austur á fullri ferð.
Hófu nú öll brezku herskipin
eltingaleik, og leit um tíma út
fyrir, að Scharnhorst ætlaði að
sleppa sökum hraða síns. Tókst
þó tundurspillunum að skjóta á
hann tundurskeytum og munu
3 þeirra hafa hæft. Duke of
York hóf nú aftur skothríð á
Scharnhorst og kom brátt upp
mikill eldur og skipið stöðvað-
ist. Jamaica skaut þá síðustu
skotunum á Scharnhorst, sem
sökk skömmu seinna.
Nokkrum mönnum af áhöfn-
inni var bjargað.
Auk Norfolk .varð einn tund-
Framhald á 8. síðu
Ilvenær verður innrásin gerð? er hin mikla spurning, sem milljónir manna í löndum Bandamanna
liafa beðið óþreyjufullar mánuðum saman eftir að fá svar við.
Innrásarundirbúningurinn er nú það á veg kominn, að innrásarhershöfðingjarnir hafa verið skip-
aðir. — Myndin sýnir liluta af vesturströnd meginlands Evrópu.
I