Þjóðviljinn - 05.01.1944, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 05.01.1944, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 5. janúar 1944 ÞJÓÐVIL JINN RITSTJÓRI: RANNVEIG KRISTJÁNSDÓTTIR — Börn í leikskóla Tjarnarborgar SÉrmeuttn stðFlsfílls vld ssiOliampUI y/ Viðtal við Þórhildi Olafs. Þórhildur Ólafsdóttir hefur veitt leikskóla og dagheimili Tjarnarborgar forstöðu í 2 ár. Viltu ekki segja Kvennasíð- unni ofurlítið frá starfi þínu, segi ég um leið óg við stönd- um upp frá miðdegisverði í Skíðaskálanum. Ertu frá þér, heldurðu að ég fari að tala um börn núna? Jú annars, það er víst að koma blindbylur úti, svo að við gerum ekki annað betra en að rabba svolítið saman. Þjóðviljinn er búinn að tala svo mikið við mig um starf mitt í Tjarnarborg, svo að það er varla við það bætandi — en það er annað, sem mér dettur í hug í sambandi við þessi mál. Við þurfum endilega að fá ein hverja innlenda menntastofnun þar sem starfsfólk leikskóla dag heimila og vöggustofa gæti feng ið menntun sína. Eg hef vissulega verið mjög heppinn með starfsfólk mitt hér. Margar stúlkurnar sem hafa unnið með mér hafa fengið á- gæta menntun, þó að hún væri ekki hjá flestum þeirra sniðin fyrir þetta starf. — Og svo hef- ur áhuginn fyrir starfinu ver- ið góður. Þörfin fyrir vöggustofur leik- skóla og dagheimili eykst stöð- 1 ugt og það er ekki hægt að ætl- ast til að ný heimili sé hægf að stofnsetja með algjörlega ó- vönu fólki. Uppeldisfræðingar nútímans telja flestir að grundvöllurinn að skapgerð og flestum venj- um barnsins, sé lagður fyrstu ár ævinnar, svo að mönnum ætti að vera það ljóst, að fólk sem við slíkt uppeldi fæst þarf ekki síður víðtæka menntun en aðrir kennarar. — Menntun þessi á auðvitað að nokkru leyti að vera falin í starfi við þær stofnanir sem menn ætla að vinna við síðar, en það er ekki nóg. — Mikill hluti hennar verð ur að vera falinn í bóklegu námi um sálarlíf barnsins, upp- eldistækni þá sem felst í ýms- um leikkerfum, um líkamsbygg- ingu og heilsuvernd barna pg svo framvegis. — Ef menn læra slíkt jafnhliða starfinu, verður það unnið á allt annan hátt. Menn taka það þá ;ekki einungis eins og leiðinlega vinnu sem um er að gera að sleppa sem fyrst frá, heldur fá annan áhuga fyr- ir þeim lifandi leir, sem þeir hafa með höndum og geta hjálp að til að móta á svo mismun- andi hátt. En nám þetta yrði sennilega að vera í sambandi við ein- hverja aðra menntastofnun, þar sem svipaðar greinar eru kennd ar. Það er varla hægt, kostnað- arins vegna að hugsa sér sjálf- stæða stofnun fyrir menntun þessa, enda ekki þörf á að út- skrifa marga nemendur á ári. Fyndist þér ekki gæti farið vel á að slík deild væri stofn- sett í sambandi við Hússtjórnar- kennaraskóla íslands, skýt ég inn í. — Jú mér hefur nú satt að segja dottið húsmæðraskól- arnir í hug — og þó að það komi kannske ekki þessu máli við. — Okkur veitti ekki af að' fá ein- hverja uppeldisfræðilega mennt un við húsmæðraskólana. Við Þórhildur spjöllum um þetta fram og aftur, leggjum niður fyrir okkur hvaða náms- greinar gætu verið sameigin- legar og komumst að þeirri nið- urstöðu, að mikill hluti hinnar bóklegu fræðslu geti samrýmst. Húsmæðrakennaraskóli íslands hefur verið stofnsettur og rek- inn af miklum dugnaði og mynd Er ástin goðsaga eða raunveruleiki? IIin sósíalistisku ríki eru að skapa nýtt siðferði á sviði ásta og kynferðismála, þar sem hinn fjár- hagslegi ágóði annars hvors ein- staklingsins er skilinn frá hjóna- bandinu. Karlmaðurinn er þar ekki skyldugur að „sjá fyrir konunni“, eins og það er kallað, en í stað þess bera hjónin bæði ábyrgð á börn- unum og eiga að styrkja hvort annað í veikindum. í Sovétríkjunum er allt gert til þess að gera konuna fjárhagsléga sjálfstæða, en með fjárhagslegu sjálfstæði beggja aðila hlýtur hinn eini mögulegi grundvölhir hjóna- bandsins að verða gagnkvæmt að- dráttarafl, vinátta og sameiginleg ábyrgð á uppeldi barnanna. Hið borgaralega þjóðfélag hefur búið til ógnarstóran helgibaug uni samband karls og konu, en á hinn bóginn er venjulega fyrst spurt þeg ar forsjóninni nú loksins hefur tek- izt að sameina tvo elskendur fyrir heiminum, og trúlofun hefur birzt í Mogganum. „Hefur hann góða atvinnu", og ef ekki, er sagt: „al- veg er ég hissa á aumingja stúlk- unni. Iliin er svo lagleg, að liún hefði víst áreiðanlega getað krækt í einhvern betri“. Hér á eftir fer álit enskrar konu á þessum málum, þýtt úr „Modern Woman": „Of margir æskumenn og konur ganga út í ástalífið með hið hættu- lega sambland af fáfræði og róm- antízkum hugmyndum, sem eiua veganesti. Bíómyndir, lélegar skáld sögur, en umfram allt foreldrar og uppalendur, eru sekir urn léttvægi nestisins. Ráðgjafar þessir fara ])ó ekki eftir kenningum sínum. Stúlka, sem alin hefur verið upp í þeirri trú, að ástiu væri allt, uppgötvar um leið og hún verður ástfangin, að það sem aðallega ríður á fyrir foreldr- ana að vita, er: „Hefur hann góð laun?“ Auðvitað verður hún lmeyksluð og rugluð. í löndum, þar sem gift- ingin er ákveðin af venzlamönnum má auðvitað finna einn og annan mótþróagjarnan ungling, en menn verða þar ekki varir við þann á- rekstur, sem skapast af mótsögn- inni milli kenningar og raunveru- arskap undir forsjá Helgu Sig- urðardóttur, en ennþá eru þar einungis menntaðir matreiðslu- kennarar. Okkur vantar mennt- un fyrir sauma- og vefnaðar- kennara, og nemendur hverrar greinar fyrir sig eru svo fáir, •og það getur ekki náð nokkurri átt að skipta fræðslu þessari niður á margar stofnanir. Við eigum að stefna að því, að sam- eina allar greinarnar við sömu menntastofnun og byggja fræðsl una á sama uppeldisfræðilega grundvelli. Slík stofnun verður að rísa innan skamms og þá virðist menntun leikskólakenn- ara og annarra þeirra sem við smábarnauppeldi fást eiga þar heima. leika, sem er svo algcngur hér á landi. Mælikvarðinn á eiginmanninum er nákvæmlega tiltekinn. Hann verður að stunda vissa atvinnu. Tekjur hans mega ekki fara niður úr vissum launaflokki, og ef þær eru mikið hærri en tekj- ur foreldra stúlkunnar, hefur ungi maðurinn sennilega ekki alveg hreint í pokahorninu. Hann má vera vondur við móður sína, ef hann ekki stingur hnífnum upþ í sig. Það sem spillir mest möguleik- unum fyrir hamingjusömu hjóna- bandi er ef til vill, hve konurnar eru uppteknar af því, að þær þurfi að giftast, og sú hugmynd, að lífs- starf konunnar sé, að gera sig sem girnilegastar í augum karlmann- anna. Stúlkurnar vaxa upp í hinum stöðuga ótta við — að giftast — við að giftast ekki — og hina ó- þolandi félagslegu álitskröfu — að giftast stöðugt í huga sér. Af því að ég er kona, veit ég betur hvernig þessi lögmál verka meðal kvenna en karla. En þau hljóta ckki síður að hafa eyðileggj- j andi áhrif á hina fínni framkomu karlmannsins í kynferðismálum. Því að með hinum ríkjandi hugs- unarhætti liggur ágæti karlmanns- ins á þessu sviði ekki í húmor, gáf- um, blíðu, skilningi eða riddara- mennsku, heldur eingöngu í því, að hann er fæddur karlkyns. I þjóðfélagi, þar sem eiginmanna- veiðar eru hið ákjósanlegasta tak- mark kvennanna, hlýtur stundum heppilegri tælcni til karlaþrælk- unar að verða hið eina arðvænlega hlutverk konunnar. Og þar liggur aðalhættan. Ekki í karlaþrælkun- innni sjálfri, heldur í þeirri stað- reynd, að til þess að verða „aðlað- andi“ fyrir karlmann verður kon- an að breyta sjálfri sér.---------- Konur, sérstaklega þær, sem eru mjög áfjáðar í að giftast, geta breytt sér á yfirborðinu á hræði- lega auðveldan hátt og með mikl- um árangri. Ég þekki konu, sem las Shakespeare, horfði á fræg mál- verk og hlustaði á symfóníur á meðan hún var trúlofuð, af því að unnustinn hafði slík áhugamál. En Frh. á 5. síðu. Tízkumyndir Einföld og smekkleg nýtízku- kolla, sem samrœmist vel ís- lenzkri veöráttu. Eins og mynd- in sýnir má hárið ekki koma fram fyrir eyrun. Jakkakjóllinn er alltaf lientug flík. Nýtízku frakki með skinnkraga og skinnhúfu

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.