Þjóðviljinn - 07.01.1944, Blaðsíða 4
Föstudagur, 7. janúar 1944. — ÞJÓÐVILJINN
r'JÓÐVILJINN. — Föstudagur, 7. janúar 1944.
! þJÓÐVILJINN
Útgefandi: Sameiningarjlokkur alþýðu — Sósíalistajlokkurinn.
Ritstjóri: Sigurður Guðmundsson.
Stjórnmálaritstjórar: Einar Olgeirsson, Sigjús Sigurhjartarson.
Ritstjórnarskrifstofa: Austurstrœti 12, sími 2270.
j Afgreiðsla og auglýsingar: Skólavörðustíg 19, sími 218\\.
Prentsmiðja: Víkingsprent h.j., Garðastrœti 17.
Askriftarverð: I Reykjavík og nágrenni: Kr. 6,00 á mánuði.
Úti á landi: Kr. 5,00 á mánuði.
Eitt „menningarafrekið64 enn
Kai Munk, þjóðhetja Dana, er látinn, — myrtur af böðlum
Danmerkur, þýzku fasistunum, þessum brynjuðu villidýrum nú-
ímans, sem engu eira í „krossferð sinni gegn kommúnismanum“,
ivorki ómálga börnum né glæsilegustu höfðingjum andans, hvorki
konum né sjúkum og gömlum.
Kai Munk er dáinn. Enn einu sinni lúta frelsisunnandi menn
höfði sínu í lotningu fyrir fórnardauða þjóðhetjunnar. Enn einu
únn kreppa þeir kúguðu og vopnlausu hnefann og heita hefnd,
— og vopnaðar hersveitir frelsisins taka fastar um byssuskeptin
og miða enn betur á böðlana.
Kai Munk er dáinn. Pintaður líkami hans verður ekki til lífs
vakinn, — en orðið bans lifir, talar kjark í þjóð hans, vekur þús-
undir andlega dauðra til lífs og stríðs. Með lífi sínu og dauða hefur
hann gefið dönsku þjóðinni, annan Niels Ebbesen. Með píslarvætti
sínu og fórnardauða hefur hann lagt fram sinn mikla skerf til að
endurleysa dönsku þjóðina. En böðlar hans hafa enn þyngt sér
okið.
Kai Munk er ekki fyrsti rithöfundurinn, sem nazistar myrða,
— og verður því miður heldur ekki sá síðasti. Brúna morðpestin
hefur nú breiðst út í Evrópu í 10 ár. Kvalatólin, snaran og ríting-
urinn hafa ekki síður verið vopn villimennskunnar en skriðdrek-
arnir og steypiflugvélarnar.
Ossietsky, þýzki rithöfundurinn, var eitt af fyrstu fórnardýr-
um brúnu morðingjanna. Romain Rolland er nú látinn að sögn
Þjóðverja, kvalinn til bana í fangabúðum þeirra.
Fregnin um morðið á Kai Munk mun snerta fjölda íslendinga,
sem lítt hafa hugsað, er þeir hafa heyrt fréttirnar af múgmorðum
nazista. Nýlega bárust fregnir um að myrtar hefðu verið í Kieff
yfir 70 þúsundir manna, kvenna og barna. Rannsóknarnefnd Sovét-
þjóðanna tilkynnti veröldinni þennan hræðilega glæp. Eitt blað á
íslandi, Alþýðublaðið, — sem óskað hefur Hitler sigurs, — tók
undir við Berlínarútvarpið, lýsti fréttirnar ósannar og átaldi ís-
ienzka útvarpið fyrir að birta þær. Aðdáendunum að „menningar-
afrekum“ Hitlers finnst óþarfi að fólkið fái að vita, hvernig þau
eru í reyndinni þessi afrek, sem þeir dá, hvort sem þau eru fram-
in í Ukrainu eða Jótlandi, Kieff eða Kaupmannahöfn.
En svo er þeim hraustu herjum, sem nú reka böðulheri fas-
ismans á flótta, fyrir þakkandi, að nú eygjum við brátt enda-
lok hryðjuverka fasistanna.
Fyrstu stríðsglæpamennirnir, þrír Gestapoliðsforingjar, voru
nýlega teknir af lífi í Karkoff.
Það kemur sá tími að morðingjar Kai Munks, morðjngjar
Viggo Hansteens og annarra norskra píslarvotta, morðingjar Gabri-
el Peri og allra annarra, sem hafa verið myrtir fyrir baráttu gegn
fasismanum, fá sinn dóm — fá að dingla í snörunni, sem þeir
hingað til hafa búið öðrum. Við skulum vona að það verði í ár,
sem réttlát refsing nær þessum böðlum.
Og höfuðpaurarnir, — morðingjar þeir, sem þótzt hafa of fín-
ir til að reka rítinginn í fórnarlömb sín, — munu ekki sleppa að
bessu sinni. Hitler, Göring, Göbbels, Papen, Krupp, Schacht —
og hvað þeir heita allir þessir ráðherrar frelsisins og menningar-
innar, — munu enda í snörunni, þótt þeir svo flýji til Svíþjóðar,
Sviss, Tyrklands eða annarra landa, til þess að reyna að láta hlut-
leysið, sem þeir myrtu líka, skýla sér fyrir réttlátri refsingu.
Hvergi á jörðunni skulu þeir eiga griðastað, — enga undan-
komu, nema Júdasardauðann, sjálfsmorðið.
Nazistar hafa myrt Kai Munk.
Blóð hans sem allra annarra píslarvotta síðustu 10 ára mun
koma yfir nazistana. „Þriðja ríkið“ mun tortímast á þessu ári, —
en andi Kai Munks, andi frelsisins, skal sigra og lifa.
Innan skamms munu blaðalesendur oft sjá skammstafanim-
ar EAM og ELAS í stríðsfréttunum. Sú fyrri þýðir Þjóðfrelsis-
fylking, en sú síðari Þjóðfrelsisherinn. Þessar hreyfingar komu
upp í Grikklandi árið 1941, en ekki hefur verið hægt að segja
sögu þeirra fyrr en nú.
í hernum eru 30 þúsundir virkra hermanna og 175 þúsundir
œfðra hermanna eru reiðubúnir, þegar kallið kemur.
Það eru ekki nema fáeinar vikur
síðan heiminum varð kunnugt um,
að í liinu fornfræga Grikklandi hef-
ur um langt skeið undanfarið verið
frjáls andfasistisk ríkisstjórn og
andfasistiskur her, sem hefur sigr-
að Þjóðverjana í mörgum orust-
um og takmarkað yfirráð þeirra
við stærstu bórgir og bæi landsins.
Það voru hinar einkennilegu regl-
ur brezku ritskoðlmarinnar, sem
hindruðu að fréttir bærust af þessu,
enda þótt nokkrir brezkir herfor-
ingjar hefðu aðstoðað grísku skæru
liðana, sem unnu þessi afrek.
Grískt blað, sem kemur út í ICai-
ro, hafði nýlega eftirfarandi um-
mæli eftir Grikkja, sem var nýkom-
inn að heiman:
„Hið frjálsa Grikkland hefur ekki
aðeins varpað af sér oki hinna út-
lendu kúgara, heldur býr það við
lýðræðislegasta stjórnarfar, sem
gríska þjóðin hefur nokkurn tíma
þekkt.“
Stjórn hins frjálsa Grikklands er
í höndum Þjóðfrelsisfylkingarinnar
(EAM), og liún hefur Þjóðfrelsis-
her (ELAS) með 30 þúsundum
virkra hermanna og 175 þúsundir
æfðs varaliðs, sem er reiðubúið
fyrirvaralaust, hvenær sem á þarf
að halda.
BYRJUNIN VARÐ 1941
EAM-hreifingin. byrjaði seint á
árinu 1941, en Þjóðverjar höfðu
hernumið landið 23. apríl á sama
ári. Ilún byrjaði sem krafa um ■
brauð. Þjóðverjar voru í óða önn
að'ræna öllu, scm laust var. Kaup
var lágt, verðbólga rnikil og óaldar-
flokkar óðu uppi. •
Það voru leifar hinnar gömlu mót
þróahreifingar gegn einræðisherran-
um Metaxas, sem hafði starfað í
leyni jafnvel áður en Þjóðverjar
komu, cr áttu frumkvæðið. „Kom-
múnistar, frjálslyndir borgaraflókk-
ar og bændaflokkar (oft án sjálfra
flokksforingjanna), skipulögðu sam
tök með sér undir nafninu Þjóð-
frelsisfylkingin.
Marlcmið þeirra voru þessi ]>rjii
í höfuðatriðum:
1) Frelsun landsvns úr höndum
óvinanna.
2) Leppstjóm gríslcra svikara
slcyldi steypt af stqli og mynduð
bráðabirgðastjórn með þátttölcu
liinna andfasistisku floklca, er
mynduðu Þjóðfrelsisfylkinguna. —
(Ath. EAM-hreifingin tók ekkert
tillit til útlagastjórnarinnar).
3) Bróðurleg samvirina við aðr-
ar baráttuhreifmgar á Balkanskaga
(svo sem júgóslavneska skœruher-
inn), sem berðust fyrir sömu hug-
sjón.
Nefndir voru kosnar urn allt land
til að skipuleggja almenning. Feng-
ust þær fyrst í stað við ýms vanda-
mál hvers staðar fyrir sig til að
þjálfa almenning til þátttöku í alls
herjar frelsishreifingunni.
, VERKFÖLL OG KRÖFU-
GÖNGUR
Fyrsta stóra verkfallið var liáð
í april 1942 í Aþenu, Pirens, Salo-
niki og Patras. Starfsmenn borg-
anna kröfðust hærri launa, dýrtíð-
aruppbótar og þess sem þýðingar-
mest var: að fá nokkurn hluta laun-
anna greiddan með brauði,, græn-
meti og kjöti. Vérkfallsmenn heimt
uðu líka, að komið væri upp al-
menningseldhúsum fyrir atvinnu-
lausa.
Úrslit verkfallsins urðu þau, að
svikarastjórn Tsolagoglus lét í
minni polcann. Verkfallið hófst 14.
apríl og endaði 21. apríl.
IIREYFINGIN VERÐUR
PÓLITÍSKARI
í lok ársins 1942 fékk ILitler sér
nýjan forsætisráðherra, að nafni
Konstantinos Logoþetopoulos, og
fyrirskipaði almenna nauðungar-
vinnu.
Þess má geta, að Logoþetopoulos
hlaut menntun í Þýzkalandi og á
þýzka konu.
EAM efldi baráttuna og jók
pólitískt eðli livers verkfalls og
hverrar kröfugöngu.
Hámarki náði mótmælahreyfing
in fimmta marz síðast liðinn, er
tugir þúsunda manna streymdu út
á göturnar, afvopnuðu lögregluna,
þegar hún reyndi að skerast í leik-
inn, og héldu til verkamálaráðu-
neytisins í Aþcnu.
/ ráðuneytinu voru allir listar yf-
ir vcrkamenn og önnur gögn, sem
notuð voru við nauðungarvinnuna,
gripin og eyðilögð. Þegar svo þýzka
lögreglan kom í brynvörðum bíl-
um, varð hún of sein til að bjarga
vinnulistunum, en kom mátulega
til ajð vera skotin til bana.
Sama dag hófst allsherjarverk-
fa.ll, og stóð til 13. apríl, er stjórn
Logoþetopoulos lét undan. En fá-
um vikum seinna sagði Logoþeto-
poulos af sér og Þjóðverjar skip-
uðu í hans stað Jóhann Rhallys,
konungssinna.
BÆNDUM HJÁLPAÐ
Á þessu tímabili sendi EAM. full-
trúa upp í sveitirnar til að skipu-
leggja bændurna.
Þjóðverjar höfðu fyrst í stað átt
auðvelt með að taka matvælin af
grísku bændunum. Fáeinir Þjóð-
verjar voru sendir til hvers þorps
og látnir skipa öllum að afhenda
matvæli sín, og sögðu þeir þá vana-
lega: „í næsta þorpi er stór her,
svo að ykkur er eins gott að sýna
engan mótþróa“.
En EAM afhjúpaði þella. bragð
og kenndi bændunum, hvernig þeir
ættu að sjá við Þjóðverjunum. —
IÍAM ráðlagði bændunum að fela
birgðir sínar. Bœndurnir lcomust
að því, að þcir áttu vini, — vini, er
jafnvel gátu barizt fyrir þá.
ELAS, — vopnaðir meðlimir i
EAM —, drápu þýzku kornsafnar-
J ana, tóku aftur matvælabirgðirnar
og skiptu þeim aftur á milli bænd-
anna. EAM samdi við bændurna
um að sjá ELAS fyrir mat, svo að
sverð og skjöldur fólksins gæti lif-
að. Máltæki EAM var: „Allt fyr-
ir skæruliðana“.
KONUR OG KLERKAR
GANGA í EAM
Margir foringjar og hermenn í
hinum fyrrverandi her Grikklands,
margir opinberir embættismenn, þ.
á. m. klerkar, gengu í EAM. Bisk-
upinn í Karani, þekktur leiðtogi
kaþólsku kirkjunnar grísku, gekk
í EAM. Samtök kvenna voru stofn-
uð. Konur gcngu jafnvel í ELAS.
Jafnframt þessu kom mótspyrnu
hreyfingin sér upp blaðakosti. Blað
EAM’S kallast Frjálst Grikkland,
og blað ELAS heitir Liberator. —
Ýmsar deildir í EAM gefa út sín
eigin blöð. T. d. gefur Kommún-
istaflokkurinn ennþá út Rizespastis
(sá róttæki). Önnur blöð eru: Or-
ustan, Lýðræðissinnin, Frjáls æska,
Rödd fólksins.
í nóvember 1942 sprengdu grísk-
ir skæruliðar upp hina miklu brú
yfir Gorgo-fljót, sem járnbrautin
milli Saloniki og Aþenu liggur eftir,
einmitt þegar Rommel þurfti mjög
á þeirri braut að halda, sprengdu
ELAS upp margar skotfæralcstir á
járnbrautinni milli Aþenu og Pelop
ponesus, brýr á járnbrautinni milli
Aþenu og Saloniki, Asopos-jáni-
brautabrúna í Mið-Grikklandi,
mikilvæg járnbrautagöng o. m. fl.
Á síðast liðnu ári gat EAM kom-
ið á fót veglegri borgaralegri stjórn
á sinu landsvœði. — Stórborgirnar
voru áfram undir stjórn Þjóðverja,
en sveitimar, þorpin og jafnvel
fremur stórar borgir, svo sem Kar-
ditsa, Forsala, Velestino, Servia,
Kastoria og Siatista eru undir
stjórn EAM-s.
ELAS varð svo öflugur, að hann
gat brotizt inn í úthverfi Aþenu 24.
apríl síðast liðinn og frelsað 45
pólitíska fanga, sem voru í fangelsi
þar.
\
MENN AF MÖRGUM ÞJÓÐ-
ERNUM í SKÆRUHERNUM
I ELAS eru brezkir hermenn, er
höfðu farið huldu höfði síðan llret-
ar voru hraktir frá Grikklandi ár-
ið 1941. Einnig eru þar hermenn
úr rauða hernum, sem hafa sloppið
úr fangabúðum Þjóðverja. Þar eru
lika ítalskir hermenn og nokkrir
albanskir, búlgarskir og þýzlcir and
fasistar.
Yfirforingi ELAS er S. Saraphis
höfuðsmaður. Hann var rekinn úr
gríska hernum árið 1935, af því að
liann hafði ásamt fleiri herforingj-
um reynt að hindra cndurreisn kon
ungdæmisins í Grikklandi. Hann
skipulagði skæruflokk og var í
fyrstu andvígur EÁM og ELAS, og
ELAS varð að afvopna hann og
liðsmenn hans. Saraphis höfuðs-
maður ferðaðist þá um Grikkland
og komst að raun um, að EAM
var ekki aðeins öílugust af mót-
spyrnuhreyfingum Grikkja, heldur
var hin langfremsta þeirra.
Hann bauð þá EAM þjónustu
sína og lofaði að hlýða reglum
hennar. Er hann nú orðinn æðsti
maður EAM í hernaðarefpum.
Þekktust af öðrum mótþróa-
hrcyfingum í Grikklandi eru sam-
tök Napoleons Zervas hershöfð-
ingja, sem hafa á sínu valdi land-
skika á suðurtakmörkum Þessalíu.
Ilann skiptir sér ekkert af borg-
aralegri stjórn héraðsins, heldur
hugsar eingöngu um hernaðinn. —
Zervas hafði lengst af samvinnu
við EAM og ELAS, en sendimenn
Georgs konungs virðast nú hafa
spillt honum við þau. Hefur Georg
útnefnt hann hershöfðingja, en
hann var áður höfuðsmaður.
1
FRAMUNDAN ER BARÁTTA
GEGN GEORG KONUNGI
Þegar Georg konungur sagði í
júlímánuði síðast liðnuin, að hann
mundi fara til Grikklands jafn-
skjótt og hluti af því hefði verið
frelsaður og láta svo fara fram
þjóðaratkvæði sex mánuðum eftir
að hann vœri kominn þangað,
sendi EAM nefnd til Kairo til að
telja honum hughvarf.
Formaður nefndarinnar var Eli-
as Tsirimokos, fyrrv. þingmað-
ur og nú forseti Sambands almenna
lýðræðisflokksins, sem er eitt af
stjórnmálasamtökum þeim, er
mynda EAM.
Sendinefndinni frá EAM var al-
veg vísað á bug af kónginum. —
Kröfu hennar um ráðherra í stjórn-
inni, og að kóngurinn kœmi elclci til
Grilcklands, fyrr en þjóðaratlcvœða-
greiðsl.a hefði sýnt, hvort þjóðin
vildi konungdœmi eða lýðveldi, var
hafnað.
En EAM stendur föstum fótum,
því að hún er hin raunverulega
stjóm Grikklands. Moslcvusamn-
ingurinn hefur undirstrikað At-
lantshafssáttmálann. Gríska þjóð-
in mun skera úr um málið.
Auðhringarnir enn á
kreiki
Hinn opinberi ákærandi Banda-
ríkjastjórnar hefur ákœrt þekkt
stórfyrirtœki vegna brota á and-
hringalöggjöfinni. Meðal hinna á-
kœrðu eru lmperial Chemical In-
dustries, Du-Pont-félagið og Wel-
lington vopnaframleiðslufélagið.
Þau eru ákærð fyrir þátttöku í
þjóðhættulegum samtökum alþjóð
legra auðhringa. Nokkrir af helztu
cigendum þessara fyrirtækja eru
ákærðir persónulega fyrir að hafa
lagt svo fyrir deildir sínar í Suður-
Ameríku, að þær ættu að halda á-
fram sambandi við sendiirjcnn
þýzku hringanna.
Æskulýðsfylkingih í Reykjavík
— jélag ungra sósíalista, heldur
fyrsta fund sinn á árinu í kvöld kl.
8V2 á Skólavörðustíg 19. Félagar
fjölmennið og mætið stundvíslega.
Sjá náhar auglýsingú annars staðar
í blaðinu. Stjórnin.
Grískir hermenn.
Orðsending
tii frk.
Frk. Jóhanna Knudsen skrif-
ar langa grein í Morgunblaðið
þ. 30. f. m., er hún nefnir: „Eig-
um við að eftirláta hernum
stúlkubörnin“. Er greinin að
lang mestu leyti persónuleg á-
deila á iqig, sem öll er byggð
á ósannindum, rangfærslum og
blekkingum. Ég nenni ekki að
taka þátt í slíkum umræðum, og
verður því frk. Knudsen að
vera ein um þær framvegis,
mín vegna. En þeir, sem lesa
þær greinar mínar, sem hún
vísar til, og bera þær saman við
fyrrnefnda grein hennar, mun
verða ljóst, að afarhæpinn hlýt-
ur málstaður þeirrar mann-
eskju að vera, sem þarf að fela
sig bak við róg og níð um mann
sem hún þekki ekki neitt.
Um nærfellt tuttugu ár hef
ég haft margvísleg opinber
trúnaðarstörf með höndum og
aldrei verið borin á brýn van-
ræksla eða ótrúmennska í
þeim, fyr en nú, að frk. Knud-
sen gerir það. Vil ég því upp-
lýsa, að ég hef þrisvar átt stutt
samtal við þessa konu, á skrif-
stofu hennar og álíka oft talað
við hana í síma. Það eru öll
okkar kynni. Ég læt lesendur
þessara lína um að ákveða,
hvort einhlítir muni dómar
hennar um hæfni mína eða
vanhæfni til opinberra starfa,
og um trúmennsku mína eða
ótrúmennsku í þeim störfum,
sem ég hef með höndum. Um
störf frk. Knudsen, önnur en
þau, sem ég hef vikið að í grein
um mínum, hef ég enga löngun
til að ræða; það geta aðrir bet-
ur, t. d. sjúklingarnir, sem voru
á hressingarhælinu í Hvera-
gerði, þegar hún var forstöðu-
kona þar.
Ég vil vísa til fyrrnefndra
greina minna um tilganginn
með þeim, og treysti yfirleitt
dómgreind almennings svo vel,‘
að ég mun hlíta dómi þeirra,
sem kynna sér málavexti. Verði
greinarnar, beint eða óbeint, til
þess að stöðva hinar miðalda-
Jóhönnu Knudsen
legu yfirheyrslur og „rannsókn-
ir“, sem frk. Knudsen hefur
stundað í nærfellt tvö ár, án
heimildar eða umboðs frá
nokkrum ábyrgum aðila, þá
hafa þær náð tilgangi sínum
og gert meira gagn, en flesta
getur órað fyrir.
Reykjavík, 3. jan. 1944.
Arnfinnur Jónsson.
Anton Bjðrnsson
Framh. af 3. síðu.
ist hann geta, og það svo vel, að
unun var á að horfa. Til marks um
fjölhæfni Antons má geta þess, að
1942 var hann Islandsmeistari í
fimmtarþraut og tugþraut.
Haustið 1942 ákvað Anton að
helga íþróttunum líf sitt og gerast
íþróttakennari, þvi á þann hátt
fannst honum hann bezt geta út-
breitt íþróttirnar meðal almenn-
ings og kennt fjöldanum það sem
hann kunni svo vel. Þess vegna
fór hann á íþróttaskólann á Laug-
arvatni og útskrifaðist þaðan sem
íþrótlakennari s.l. vor.
Strax í haust hóf liann svo liið
nýja starf sitt — íþróttakennsluna,
gcrðist sendikcnnari í. S. í. og kom
þá brátt í ljós, að hann var ekki
síðri sem kennari en hann liafði
verið sem nemandi áður. Enda
byggði félag hans og reyndar fleiri,
miklar vonir á honum sem íþrótta-
kenriara.
Iþróttamenn íslands hafa því
misst mikið við hið skyndilega frá-
fall hans.
Anton var sannur íþróttamaður
gegnum allt lífið. Ávallt svo hreinn
og beinn og drenglundaður. Fram-
koman prúð og yfirlætislaus, en
þó glæsileg, enda var hann mynd-
arlegur á velli og bjart yfir honum.
Nú er þessi góði drengur ekki
lengur meðal vor og sár söknuð-
ur fyllir hjörtu okkar. En minning
hans mun lifa um langan aldur,
því hún er óvenju björt og hrein.
3. B.
Heílsufrœdi íþrótfamanna
tit
10 þúsund króna
minningargjöf til
Dvalarheimilis
sjómanna
Útgerðarfélagið Einar Þorgils
son & Co. h. f. Hafnarfirði, hef-
ir gefið í byggingarsjóð dvalar-
heimilis aldraðra sjómanna 10
þús. krónur til minningar um
þá þrjá menn, sem fórust er
botnvörpungurinn Garðar fórst
eftir árekstur við Bretlands-
strendur 21. maí síðastliðinn.
Þeir sem fórust voru: Oddur
Guðmundsson, vélstj. Reykja-
vík, Alfreð Stefánsson, kynd-
ari, Hafnarfirði, og Ármann Ósk
ar Markússon, háseti, Þykkva-
bæ.
(Samkvæmt frétt til Blaða-
mannafélagsins frá Þórhalli
Halldórssyni.)
Ausfur~
vígsföðvarnar
Framhald af 1. síðu.
sveitin sé farin af austurvígstöðv-
unum. Hafi hún upphaflega verið
15000 manna, og séu 12000 konm-
ir heim, en ekki er þess get.ið. hvar
3000 séu.
Rússneskt tímarit var í gær mjög
liarðort i garð spænsku fasistanna.
Sagði, að ekkert mark væri takandi
á hlutleysi þeirra. Þeir hefðu tek-
ið þátt í stríði Hitlers frá byrjun
og styddu hann enn.
Pólski forsætisráðherran í Lon-
don tilkynnti í gær, að fulltrúi
pólsku stjórnarinnar væri starfandi
í Póllandi. Ilefði hann jafnmikil
völd og forsætisráðherra og mundi
liafa þau, unz hinn eiginlegi for-
sætisráðherra kæmist þangað sjálf-
ur. Þegar tími væri til kominn yrði
gefið upp nafn hans og aðseturs-
staður. Kvað hann pólsku stjórnina
hafa skipað liðsmönnum sínum í
Póllandi að herða baráttuna gegn
Þjóðverjum. Er reyndar kunnugt,
að það lið er samsett af pólskum
fasistum, sem hafa fram að þcssu
einbcitt kröftum sínum að því að
herja-á skærusveitir pólsku alþýð-
unnar, sem hefur frá upphafi bar-
izt sleitulaust gegn nazistum í
beinu trássi við stjórnina í Lond-
on, sem krafðist þess, að bcðið
væri eftir fyrirmælum hennar um
það, hvenær mætti hefja barátt-
una. Hafa ljótar sögur borizt af
bræðramorðum pólsku afturhalds-
seggjanna og ofsóknum gegn mót-
þróahreyfingu verkamanna og
bænda. Eri samtÖk alþýðunnar
hafa staðizt allar árásir bæði er-
lendra og innlendra óvina.
Flugferðir milli
Indlands og Kína
Samkvæmt frétt frá New
Dehli fá nú Kínverjar meiri
birgðir nauðsynja loftleiðis en
þeir fengu áður eftir Burma-
veginum. ,
Flugsamgöngur þessar voru
hafnar skömmu eftir að Japan-
ar lokuðu Burmaveginum, og
var fyrst í stað notast við mjög
fátæklegán flugvélakost.
Framhald af 3. síðu.
mjög viðkvæmt fyrir hvers
konar truflun á næringu og
blóðrás. Þegar gætt er að
þessum gagnlegu áhrifum í-
þróttanna á öll líffæri líkam-
ans og starfsemi þeirra, þá. er
auöséð að þær bæta stórum
úr þeim skaðsemdum sem
hversdagslífið jafnan hefur í
för með sér að meira eöa
minna leiti. Unglingar, sem
lifa hollu íþróttalífi, ná góð-
um þroska, verða hraustir og
þrautseigir og þeim mun fær-
ari til hvers konar vinnu. í-
þróttirnar eru í sínu innsta
eðli heilbrigðisbót.
íþróttir má iðka á tvennaa
hátt. Menn geta iðkað íþrótt-
ir á hægan hátt eingöngu sér
til gagns og gamans. En
menn geta líka tamið sér í-
þróttir í því skyni að sækja
kappleiki, en þá reyna menn
aö auka þrótt og getu líkam-
ans sem mest má verða. Þær
hægu íþróttir, sem fyrr voru
nefndar, eru í rauninni eng-
um um megn, en hinir veröa
tiltölulega fáir, sem færir
gætu talizt til kappleikja, því
'ríö þaö skipti ’ s'.’o miklu máli
um meðfætt atgerfi manns-
ins. En þegar um samkepþn-
isíþróttir er aö ræöa, þá er
full þörf á íþróttaheilbrigöis-
fræöi.
íþróttaheilbrigðisfræðin er
þó í rauninni ekki annað en
ströng fyrirmæli um áð
halda þau boðorð, sem hver
maður ætti að lúta heilsu sinn-
ar vegna. Þessi fræði eru
mikilsverð fyrir alla íþrótta-
menn.
Samkeppnisíþróttirnar eru
ótvírætt afar mikill stuðning-
ur fyrir alla íþróttaviðleitni
hverrar þjóðar. í kappleikjum
kemur það í ljós hváð líkam-
inn getur mest unnið af
hreystiverkum, og líkamar
kappleikamanna bera vott um
þann mikla líkamsþroska og
líkamsfegurð, sem íþróttirn-
ar einar geta skapað.
Kappleikirnir glæða einnig
stórum félagsskap meðal
íþróttamanna og vekja jafn-
framt athygli allrar alþýöu á
nytsemi íþrótta. Það er ekki
úr vegi að benda á það, að
heimsmót íþróttamanna að
undanförnu hafa stórum
stuðlað að því aö skapa kunn-
ingskap og vekja vináttuþel
meöal æskumanna allra þjóða
og harla líklegt að margt
gott geti af því leitt þegar
tímar líða.
Tamningin fyrir kappleiki
er afar mikils virði, hún eyk-
ur orkuna sem mest má verða
og verður þá á að ætla lík-
ama sínum þá mestu áreynslu
sem hugsazt getur án þess að
líkaminn líði baga af því.
Tamning kennir þeim líka að
keppa að settu markmiði og
venur þá af þeirri lítil-
mennskuliugsun áð þeir geti
aldrei náö takmarkinu.
Tamningunni fylgir og jafn
an einstök gleði og ánægja,
ánægja yfir því aö gera
skyldu sína og láta eigi bug-
ast hvaö sem að höndrnn ber.
Ef menn eru tamdir í sveit-
um veqða sveitirnar jafnan
góðir félagar og finna í leikj-
um hinn mikla mátt sam-
vinnu og samheldni. Það er
ekki unnt aö lýsa þeirri lifs-
gleðí sem fylgir tamningunni,
menn verða að lifa hana.
Aö lokinni tamningu kem-
ur til kappleikjanna, og bar
verður hver að standa sig af
fremsta megni. Kipplíng
(enska skáldið heimsfræga)
kemst vel að orði í einu kvæði
sínu um það sem allt. á velt-
ur þegar á herðir:
Getirðu vanið vööva, taugar,
hjarta
— sem vill oft slappast — á
aö hlyða þér,
og alltaf drýgja dáö en aldrei
kvarta
og aldrei víkja hvernig svo
sem fer.
— Þá ertu, vinur, maður!
Skýrsla danska
íþróttasambandsins
Framhald af 3. síðu.
Knattl.samb. 994 244.873
Bogsk.samb. 26 589
Skylmingasamb. 15 843
Golfsamb. 9 1.206
Handkn.samb. 294 34.208
Hockey samb. 8 637
Leikfimissamb. 78 37.387
Húökeipasamb. 54 2.222
Tennissamb. 128 11.094
Veðreiðasamb. 31 3.183
Róörarsamb. 116 20.758
Skotsamb. 149 5.672
Skautasamb. 19 5.784
Sund og björgunar-
sambandið 94 14.507
Skíðasamb. 86 8.224
Vetraríþr.fél. 1 189
íþr.samb. herm. 24 2.030
Þetta verða samtals 2 831
félög með 480.415 félagsmönn
um. Þess má geta hér, áð
251.941 eru starfandi af þess-
ari töflu en 28.474 eru ekki
starfandi.
Frá áramótum til 1. júní
s. 1. var aukning félaga í sam
bandiö 81 með um 11.000 fé-
lagsmenn sem sýnir vel hve
áhugi er mikill fyrir íþróttum
í Danmörku.
Knattspyrnusambandiö er
mannflest með 994 félög og
244.873 og þótt 159.139 séu
óstarfandi þá vekur talan at-
hygli manna. Næst kemur
leikfimissambandiö með
28,000 starfandi félaga. og eru
konur þar í meiri hluta. Síðan
koma frjálsar íþróttir, hand-
knattleikur og Badminton.
Risið hefur upp íþróttaskóli
í Vejle á Jótlandi fyrir at-
beina Svend Aage Thomsen,
og eru bundnar við hann
miklar vonir. Ákveðið er að
Danir fái sitt eigið íþrótta-
,,lexikon“ í tveim bindum.
Einnig er unnið aö því að
koma upp íþróttaminjasafni
þar.