Þjóðviljinn - 07.01.1944, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 07.01.1944, Blaðsíða 8
Næturvörður er í Laugavegsapó- teki. Ljósatími ökutækja er frá kl. 3 að degi til kl. 10 að morgni. ÚTVARPIÐ í DAG: 18.30 Islenzkukennsla, 1. flokkur. 19.00 Þýzkukennsla, 2. flokkur. 19.25 Hljómplötur: Harmónikulög. 20.30 Útvarpssagan: „Bör Börs- son“ eftir Johan Falkberget, I (Helgi Hjörvar). 21.00 Strokkvartett útvarpsins: Kvartett nr. 15 í B-dúr eftir Mozart. 21.15 Útvarpsþáttur (Formaður útvarpsráðs). 21.35 Spurningar og sviir um ís- lenzkt mál (Björn Sigfússon) 22.00 Symfóníutónleikar (plötur): a) Bach: Konsert fyrir tvær fiðlur. b) Mozart: Harpsicordkon- sert nr. 1. c) Beetlioven: Symfónía nr. 2. Sósíalistar í Reykjavík! Gerið svo vel og komið í skrifstofu Sósíal- istafélagsins og vitjið nýju félags- skírteinanna. Trúlofun sína hafa opinberað ungfrú Margrét Sigurðard., Lauga- veg 87 og Helgi Loftsson járnsm., Ránargötu 11. Skátar! Skíðaferð í Þrymheim, laugardagskvöld kl. 8. Farmiðar í Penslinum, Laugavegi 4, í kvöld kl. 4—0. t Ramirezstjórninlí WF" AtiiMÍW?-. fSteSv'’''’ - ' . áir.itíKrW Argeatínu hættuleg fasisfakiíka LÖNDON. — General News Service. Innan brezku verkalýðshreyf- ingarinnar hafa komið fram al- varlegar raddir til mótmæla vinsamlegri afstöðu brezku stjórnarinnar til fasistastjórnar Ramirez hershöfðingja í Argen- tínu. - ' Fimm kunnir nazistiskir áróð- ursmenn eru á leið frá Berlín til Argentínu, en argentíska stjórnin hefur aðeins til mála- mynda lagt hömlur á áróðurs- starfsemi þýzkra nazista. Áróðursmiðstöðvar nazista beina nú mjög athygli sinni að Bolivíu, en stjórnarbyltingin þar nýlega má telja fyrsta skref í átt til lýðræðis og alþýðufylk- ingar í þeim löndum Suður- Ameríku, sem búið hafa við ein- ræði og harðstjórn. Almenn ánægja meB innrásarf oringjan a Framh.. af 1. síðu. bandaríska afturhaldið, að nauðsynlegt má teljast að lýð- ræðissinnar fylgist vel með af- stöðu hans, en sjálfsagt reynist honum Evrópa talsvert öðru- vísi en Alzír. Enda þótt brezkir herfræð- ingar meðal sósíalista skrifi ekki undir það takmarkalausa lof, er hlaðið hefur verið á Montgomery hershöfðingja, vænta þeir þess, að hann beiti við innrásina þeim nákvæma og rækilega undirbúningi, sem einkennt hefur herstjórn hans, og er í þessu tilfelli sérstak- lega nauðsynleg, svo takast megi að vinna úrslitasigra á sem allra skemmstum tíma. Teheran- ráðstefnan ........ NÝJA BÍÓ •••••••• Svarti svanurinn (The Black Swan) Stórmynd í litum eftir sögu Rafael Sdbatini. Aðaihiutverk: Tyrone Power Maureen O’Hara. Bönnuð börnum innan 14 ára Sýnd kl. 5, 7 og 9. Sala hefst kl. 1. Ársuppgjör og útfylling skattaskýrslna annast HARRY VILLEMSEN, Suðurgötu 8. Sími 3011 ;... TJARNAR BÍÓ *••••• TRÚÐALÍE I | (THE WAGONS ROLL AT 5 5 NIGHT) j • m • Spennandi amerískur sjón- ; • leikur. ; Humphrey Bogart, • t Sylvia Sydney, ; : Eddie Albert, : Joan Leslie. ; Sýning kl. 5, 7 og 9. ; ; Bönnuð bömum nan 12 ára. : ••••••«•• «••••••••••••• (•••••••••••••••••••••••••••••••••••••• Svarfír kvensilkisokkar eru komnir. Verzlun H. Toft Skólavörðustíg 5 Þetta er fyrsta myndin, sem íslenzkt blað birtir af hinni sögulegu ráðstefnu í Teheran. Ráðstefnan hófst 28. nóv. 1943 í sendiherrabústað Sovétríkjanna í Teheran, og lauk fjórum dögum síðar með sameiginlegri yfirlýsingu Churchills, Roosevelts og Stalíns um sameiginlega baráttu gegn fasistaríkjunum þar til sigur vinnst og samvinnu til að koma á varanlegum friði. — Á myndinni: Stalín, Roosevelt, Churchill, og að baki þeirra Harry Hopkins ráðgjafi Roosevelts, Molotoff, utanríkisþjóðfulltrúi Sovétríkj- anna, Averell Harriman, sendiherra Bandaríkjanna í Moskva, Archibald Clark-Kerr, sendiherra Bretlands í Moskva, Eden, utanríkisráðherra Bretlands og William D. Leahy, forseti herforingjaráðs Roosevelts (yzt til hægri). í hernaðarflugvél yfir ísiandi Framhald af 1. síðu aðra, hnígur, breytist — hverf- ur. BREIÐASTA BYGGÐ ÍS- LANDS Við erum aftur inn yfir land- inu. Svartir hamraveggir fjalla fyrir neðan blasa við eins og brotsár. Gjárnar í hraununum, sem eru hrikalegar gangandi manni, sýnast nú eins og lítið brot á pappírsblaði. Suðurlandsundirlendið, flatt eins og pönnukaka. Hveragerði, Selfoss, Stokkseyri, Eyrarbakki — hvítt brim við ströndina. Hinum einstöku bændabýlum mótar fyrir sem litlum deplum. Þau eru annars samlit jörðinni — hulin snjó — og hverfa inn í heildarsvip landlagsins. Vestmannaeyjar blasa við úti í hafinu. Eyjafjallajökull í glampandi sól. Hekla — Öræfin innaf renna saman í fjörrum skugga. Lengra áleiðis mótar fyrir hærri fjöllum. Kerlingar- fjöll. Það er haldið inn yfir landið. Árnar hvíslast eins og aeðar um sveitirnar, breikka út til hafsins, mjókka inn til lands- ins. Við nálgumst fjöllin. Hinsvegar sætir skipun Mait- land Wilsons sem yfirhershöfð- ingja á Miðjarðarhafssvæðinu, talsverðri gagnrýni. Hann er að vísu álitinn hæfur herstjórn- andi, en á pólitíska sviðinu hef- ur hann stutt svo afturhalds- klíkur, að nær öll lýðræðisöfl í Balkanríkjunum hafa mjög illan fciíur á honum. MJALLÞAKIÐ LAND, ROÐAÐ FÖLVU SKINI JANÚAR- SÓLAR Vissulega halda þau enn hrika leik sínum þótt við séum „hátt uppi“! Öðru megin eru þau blíð á svip, böðuð sól, hinu megin eru ferlegir skuggar. Annar vangi þeirra mjallrjóður og hýr. Hinn grettur og strangur. Sum- staðar skefur mjallkóf fram af hvössum klettabrúnum. Hin breiða bringa Skjaldbreið ar er ímynd hins trygga, sterka, stöðugleikans. Nú fljúgum við yfir skálina í kolli Skjaldbreið- ar. — Hinir hvössu tindar Jarl- hettnanna, sem neðan af jörð- inni séð eru einhverjir hinir tignarlegustu á íslandi, eru héð- an að sjá eins og hvassir, hálf- illyrmislegir oddar. Við fljúgum rétt yfir hvíta mjallbreiðu Langjökuls, sem er eins og sléttur, þaninn dúkur. — Líklega hefur enginn sldða- maður verið með í förinni, því enginn hrópar að hér væri gott á skíðum! E. t. v. hafá þeir gleymt því af hrifningu. Við höfum fyrir löngu spennt af okkur beltin og ryðjumst nú út að gluggunum til beggja handa og horfum niður. Við, sem rifumst í gær, höf- um gleymt því í dag. I dag er- um við aðeins íslendingar, sem horfum í þögulli hrifningu á mjallþakið land okkar, roðað fölvu skini janúarsólar. Og enn er haldið áfram — „yfir fjöll, yfir dali“. Hin breiða byggð Borgarfjarðar lýkst upp. Baula heldur fegurð sinni og tign, einnig þótt litið sé niður 1 á hana úr fjarska. Það er hald- Sími 1035. DAGLEGA Stidsslíll usnlar NY EGG, soðin og hrá Kaíf isalan Hafnarstræti 16. ið til Reykjavíkur. Við fljúgum yfir Esjuna. Hversu mörgum svitadropum hefðum við ekki út hellt ef við hefðum ætlað að ganga upp á Esju. Mér er ekki grunlaust um að einhverjir okk ar hefðu gefist upp — líklega skilyrðislaust! ÞEIR ÆTTU AÐ SJÁ ALLT SEM ÞEIR HAFA GJÖRT! í’ vistarheimilið Suðurborg. Upplýsingar þar. Barnavinafélagið Samargjöf Aíiskonar veitingar á boðstóium. Það er flogið yfir bæinn. Hús, götur og mannvirki blasa við. Úr loftinu sér maður fyrst verulega hve götur Reykjavíkur eru hlykkjóttar og stuttar. Væri ekki ráð fyrir bæjar- stjórn, verkfræðinga og aðra slíka að leigja sér flugvél einn góðan veðurdag. fljúga yfir bæ- inn og sjá allt sem þeir hafa gjört! FLUGMENN NORÐURHJAR- ANS Það líður að leiðarlokum. Það er gott, veður, en nokkuð kalt. Manni verður hugsað til her- j mannanna, flugmannanna, sem j eiga að vera á verði dag og nótt í öllum veðrum. Mannanna, sem heyja hér sinn þátt í str,ði allra frelsisunnandi þjóða gegn sameiginlegum óvini. Oft hlýt- ur þeirra verk að vera vossamt og þreytandi, þótt stundum heyr j ist að þeir hljóti að eiga náð- uga daga — og vissulega eru hér rólegar „vígstöðvar", þegar hugsað er til þeirra staða, þar sem stöðugt er sótt og varizt. Og víst hefur þetta nyrzta ey- virki í Atlanzhafi sína miklu þýðingu. Það eru ekki nema nokkrir dagar síðan fréttist um það, að stöðvar nazista á Græn- , iandi voru yfirunnar fyrir að- 1 stoð flugmanna héðan. Hverfisgötu 69 Ferðin er senn á enda. Flugið er lækkað. Brátt verðum við jarðbundnir á ný. Við snertum jörðina aftur, án þess að verða þess eiginlega varir. „Perfect landing“ segja Ameríkanarnir, sem með okkur hafa verið, enda er það enginn viðvaningur sem vélinni stýrir. JARÐBUNDNIR Á NÝ Flugvélin rennur áfram eft- ir vellinum. Staðnæmist. Við förum út og höfum nú aftur fast land undir fótum. Flug- ferðinni er lokið. Við höfum verið „uppi“ IV2 klst. Tourtillot hershöfðingi stígur út úr flugvélinni á eftir okkur, mjúkur í hreyfingum, glaður og brosandi, rétt eins og hann hefði setið í makindum heima í stofunni sinni. Við réttum honum hendina. Þökkum fyrir þessa ógleyman- legu ferð. Setjumst inn í bílana Hinn venjulegi starfsdagur blaðamannsins er hafinn. — *ínnan lokaðra veggja bíða okk- ar skröltandi setjaravélar og hringjandi símar. J. B.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.