Þjóðviljinn - 16.01.1944, Side 1
II
„Mlar"
Slgllrii aarfl
Aðalfundur félagsins
í fyrradag
Verkamannafélagið Þróttur á
Siglufirði hélt aðalfund sinn 14.
þ. m. *
Menn þeir, sem uppstillinga-
nefnd félagsins stillti upp, voru
allir sjálfkjörnir, og er stjómin
þannig skipuð:
Fqrmaður: Gunnar Jóhannsson.
Varaform.: Gunnl. Hjálmarss.
Gjaldkeri: Gísli Sigurðsson.
Meðstjórnandi: Guðm. Jóhannss
í félaginu eru nú 534 félags-
menn. Á fundinum gengu inn
74 menn.
Skuldlaus eign félagsins er1
nú 55 þús. kr. Ársgjöld eru ekki
útistandandi nema hjá 16 mönn
um.
Ákveðið var að hækka árs-
gjaldið upp í 50 kr.
Aðalfunduff
Sreiðf irðingaf éfagsins
Aðalfundur Breiðfirðingafé-
lagsins var haldinn í Lista-
mannaskálanum 13. þ. m.
Hin nýja stjórn er þannig
skipuð:
Formaður: Jón Emil Guðjóns
son.
Varaformaður: Ingveldur Sig
urðardóttir.
Ritari: Sigurður H. Jónsson.
Framhald á 8. síðu.
VILJINN
Sunnudagur 16. janúar 1944.
12. tölublað.
Ekkert fiefur spurzt til toprans síðan ð þriðjudag. Ábðfn skipsins var 29 menn
Togarinn Max Pemberton er nú talinn af. Flug-
vélar og skip leituðu hans í gær en án árangurs.
Eins og áður hefur verið frá skýrt heyrðist seinast
til togarans s.l. þriðjudag, var hann þá staddur við Mal-
arrif á Snæfellsnesi.
Enn er höggvið stórt skarð í hóp íslenzkrar sjó-
mannastéttar.
Áhöfn Max Pembertons var 29 menn og fara nöfn
þeirra hér á eftir:
Pétur' Maack, skipstjóri, Rán-
argötu 30, Rvík, fæddur 11. nóv.
1892. Kvæntur, engin börn í ó-
megð.
Pétur A. P. Maack, 1. stýri-
maður, Ránargötu 2, Rvík,
fæddur 24. febrúar 1915. Kvænt-
ur, átti 2 börn 4 og 3 ára og 1
fósturbarn 8 áraí
Jón Sigurgeirsson, 2. stýrimað
ur, Ásvallagötu 28, Rvík, fædd-
ur 9. nóvember 1912. Kvæntur
og áíti 2 börn, 5 ára og á 1. ári.
Þorsteinn Þórðarson, vélstjóri
Sólnesi við Baldurshaga, fædd-
ur 19. maí 1892. Kvæntur og
átti 5 börn, 15, 13, 10, 6 og 2
Pétur Maack. ára.
Daislpfiapnenn! Diuið
fireiðið attoœðl i dag, a
Síðasti dagur allsherjaratkvæðagreiðslu verkamanna
í Dagsbrún um uppsögn samninga félagsins er í dag.
f dag skera verkamenn úr því með atkvæði sínu,
hvort þeir ætla að fá leiðrétt það ranglæti, sem þeir
hafa verið beittir meðan gróðinn flæddi inn í landið
og einstakir menn söfnuðu auði.
Meðan gróðinn hefur hrúgast
upp í þessu landi og kjör ýmsra
stétta verið bætt, hafa verka-
menn beðið eftir leiðréttingu
mála sinna.
Þeim var lofað að grund-
völlur vísitölunnar skyldi verða
lagfærður. — Það var svikið.
Þeir óskuðu eftir fulltrúa í
nefndina er átti að leiðrétta
vísitölugrundvöllinn. — Því var
ekki sinnt.
í dag svara verkamenn vald-
höfunum fyrir svikin í vísitölu
málinu.
Enginn verkamaður má sýna
kæruleysi við þessa atkvæða-
geiðslu.
Látið ekki feistast til þess
að sitja heima af vissunni um
það að uppsögnin verði sam-
þykkt. Sá sem situr heima vinn
ur ekki aðeins sjálfum sér tjón
heldur og öðrum verkamönn-
um, því fleiri sem sitja heima,
því frekar gera atvinmurekend-
ur tilraunir til þess að hindra
að verkamenn fái leiðréttingu
mála sinna.
Ef allir verkamenn greiða at-
kvæði með uppsögn samning-
annna tryggir það þeim sigur-
inn fyrirfram. Það minnsta,
sem hver verkamaður getur
gert í baráttunni fyrir hættum
kjörum sín og stéttar sinnar, er
að greiða atkvæði.
Atvinnurekendur reyna að
hræða verkamenn með atvinnu
leysi. \
Það er imdir samheldni verka
manna sjálfra komið, hvort þeir
verða tryggðir gegn atvinnu-
leysinu.
Mikil þátttaka í atkvæða-
greiðslunni er ekki aðeins sigur
í kaup- og kjarabaráttunni,
heldur er hún og um leið bar-
átta gegn atvinuleysinu.
Á síðasta degi atkvæðagreiðsl
unnar verða verkamenn að at-
huga eftirfarandi:
að léleg þátttaka þýðir minnk-
andi horfur á því að kjara-
bætur fáist fram.
að allir þeir, sem heima sitja
verða taldir andstæðir því
að sagt verði upp gildandi
samningum.
að verkamenn munu láta sig
það miklu skipta hverjir það
eru sem heima sitja.
Þeir verkamenn, sem
heima sitja taka á sig' á-
byrgðina á því, hversu fé-
laginu tekst að halda á
málefnum stéttarinnar.
Notið atkvæðisrétt ykk-
ar í dag!
Á morgun verður það of
seint!
í :
Max Pemberton.
Þóröur Þorsteinsson, vélstjóri,
Sólnesi við Baldurshaga, fædd-
ur 10. maí 1924, sonur Þorsteins
Þórðarsonar.
Hilmar Jóhannesson, kyndari,
Framnesveg 13. Rvík, fæddur 4.
marz 1924. Var hjá foreldrum
sínum.
Benedikt R. Sigurösson, kynd
ari, Hringbraut 147, Rvík, fædd-
ur 19. desember 1906. Kvænt-
ur og átti 4 börn, tvö 15 ára,
14 og 6 ára.
Gísli Eiríksson, bátsmaður,
Vífilsgötu . 3, Rvík, fæddur 1.
apríl 1894. Kvæntur, átti 3 upp-
komin börn og eitt 14 ára.
Björgvin Björnsson, stýrimað-
ur, Hringbraut 207, Rvík, fædd-
ur 24. ágúst 1915. Kvæntur og
átti 1 barn 2 ára.
Guöjón Björnsson, háseti, Sól-
vallagötu 57, Rvík, fæddur 27.
febrúar 1926. Var heima hjá
foreldrum. Bróðir Björgvins.
Valdemar Guðjónsson, mat-
sveinn, Sogamýrarbl. 43, Rvík,
fæddur 21. ágúst 1897. Kvæntur
og átti 3 börn, 11, 8 og 6 ára.
Guðmundur Einarsson, neta-
maður, Bárugötu 36, Rvík,
fæddur 19. janúar 1898. Kvænt-
ur og átti 2 börn, 10 ára og á
1. ári.
Guðm. Þorvaldsson, bræðslu-
maður, Selvogsgötu 24, Hafnar-
firði, fæddur 7. des. 1899.
Sigurður Pálmason, netamað-
ur, Bræðraborgarstíg 49, Rvík,
fæddur 25. nóvember 1894.
Ekkjumaður, átti 2 börn, 13 og
11 ára.
Guðni Sigurðsson, netamaður,
Laugaveg 101, Rvík, fæddur 15.
janúar 1893. Kvæntur en barn-
laus.
Sæmundur Halldórsson, neta-
maður, Hverfisgötu 61, Rvík,
fæddur 2. apríl 1910. Kvæntur
og átti eitt barn ársgamalt.
Kristján Halldórsson, háseti,
Innri-Njarðvík, fæddur 20. marz
1906.
Jens Konráðsson, stýrimaður,
Öldugötu 47, Rvík, fæddur 29.
september 1917. Kvæntur en
barnlaus.
Jón M. Jónsson, stýrimaður,
Hringbraut 152, Rvík, fæddur
10. október 1914. Ókvæntur.
Valdemar Hlöðver Ólafsson,
háseti, Skólavörðust. 20A, Rvík,
fæddur 3. apríl 1921. Var hjá
foreldrum sínum.
Magnús Jónsson háseti, Frakka
stíg 19, Rvík, fæddur 11. ágúst
1920. Var hjá foreldrum sínum.
Jón Hafliðason, háseti, Fram-
nesveg 30, Rvík, fæddur 19.
september 1915. Kvæntur og
átti 1 barn á fyrsta ári.
Halldór Sigurðsson, háseti,
Jaðarkoti, Árnessýslu, fæddur
26. september 1920.
Gunnlaugur Guðmundsson,
háseti, Óðinsgötu 17, Rvík, fædd
ur 15. janúar 1917. Ókvæntur.
Kristján Kristinsson, aðstoðar
matsveinn, Háteig, Rvík, fædd-
ur 2. júní 1929. Var hjá for-
eldrum sínum.
Ari Friðriksson, háseti, Látr-
um, Aðalvík, fæddur 4. apríl
1924.
Aðalsteinn Amason, Efsta-
sundi 14, Langholti, Rvík,
fæddur 16. september 1924.
Jón Ólafsson, háseti, Kefla-
vík, fæddur 22. marz 1904.
Arnór Sigmundsson, háseti,
Vitastíg 9, Rvík, fæddur 3. okt.
1891. Kvæntur og átti fyrir
blindu gamalmenni að sjá.
Á þriðjudaginn birtir Þjóð-
viljinn myndir af öllum sem
fórust með skipinu.