Þjóðviljinn - 10.02.1944, Qupperneq 8
./ ^
L-
“'l i ii‘» [í
Os®rhorg!nni
Næturlæknir er í Læknavaröstöð
Reykjavíkur í Austurbæ j arskólan-
um, sími 5030.
Ljósatími ökutœkja er frá kl. 5 að degi
til kl. 8.25 að morgni.
ÚTVARPIÖ í DAG.
18.30 Dönskukennsla, 2. flokkur.
19.00 Enskukennsla, 1. flokkur.
19.25 Þingfréttir.
19.45 Lesin dagskrá næstu viku.
20.00 Fréttir.
20.20 Útvarpshljómsveitin (Þórarinn Guð-
mundsson stjórnar): a) Vorhugleið-
ingar eftir Nevin. b) Lög úr óperunni
„Valsadraumurinn" eftir Oscar
Strauss. c) Vorkoman eftir Ph. E.
Bacli. d) T.vrkneskur mars eftir
Michaelis.
20.50 Frá útlöndum (Axel Thorsteinsson).
21.10 Hljómplötur: Lög leikin á cello.
21.15 Lestur Islendingasagna (dr. Einar OI.
Sveinsson).
20.40 Hljómplötur: Gunnar Pálsson syngur.
-------- —-- ' "
Lcikjélag Reykjavíkur sýnir Vopn guð-
anna kl. 8 í kvöld. Aðgöngumiðasalan er
opin frá kl. 2 í dag.
Skipstjóra- og stýri-mannafélag Reykja-
víkur heldur fund í dag kl. 8.30 e. h. í skrif-
stofu félagsins í Ilamarshúsinu. Til um-
ræðu verða kaupsamningar, öryggismál sjó-
manna o .fl.
Samtídin, 1. hefti 11. árg., er nýlega kom-
in út. Flytur ritið m. a.: Viðhorf dagsins,
frá sjónarhóli blaðamanns eftir Karl Isfeld.
Um framtíð Evrópu eftir Eleanor Kibl-
redge. Grein sem nefnist Amerikumenn
kalla Gunder Ilágg Hermes vorra tíma.
Umsagnir um bækur o. m. fl.
Eyrbelckingafélagið heldur aðalfund á
félagsheimili V. R. föstudaginn 11. febrúar
kl. 8.30 e. h.
Vörubílastöðin Þróttur heldur árshátíð
sína fösludaginn 11. þ. m. i Tjarnareafé
og hefst liún kl. 7.30 e. h. Aðgöngumiðar
seldir i Vörubilastöðinni.
Upplýsingastöð fnngstúkunnar um bind-
indisrnál verður opin í Góðtemplarahúsinu
í dag kl. 6—8 e. h. Þeir, sem óska aðstoðar
eða ráðlegginga vegna drykkjuskapar sin
eða sinna, geta komið þangað, og verður
þeim liðsinnt eftir föngum. — Með þessi
mál verður farið sem trúnaðar- og einka-
mál.
ÁsKríftarsfmi Þjöðviljans
er 2184
Málfundahópur Æskulýðsfylk
ingarinnar í Reykjavík — félags
ungrcu- sósíalista — heldur fund
í kvöld kl. 9 á Skólavöröustíg 19
Umræðuefni: Bannmálið.
STJÓRNIN.
Flokkurínn
S krifstofa miðstjómar Sósíalistafokk^-
ins verður opin þennan mánuð frá kl.
4—7 e. h.
Ný bók efiír dómprcfastínn
af Kantaraborg
Frœðslunefndar Sósíalistaflolcksins
hefst annað kvöld, föstudag, á
Skólavörðustíg 19.
Tekið við þátttökuumsóknum til
n.k. mánudags.
KAUPIÐ
ÞJÓÐVILJANN
Framhald af 3. síðu.
Dómprófasturinn segi!-:
„Tvö ár hafa gefið sovétskipu
laginu úrslitaprófið. Sovétrík-
in standa óhögguð. Öll fram-
faraöfl mannkynsins standa í
þakkarskuld við Sovétríkin. Ef
sósíalismi væri ekki rikjandi í
Sovétríkjunum væri algert ör-
yggisleysi í Bretlandi, og senni
lega væri Bretaveldi þá ekki
lengur til. Og horfurnar fyrir
Bandáríkin hefðu verið engu
betri árið 1943 en fyrir Bret-
land 1940. Hver einasti maður I
í Bretlandi og Bandaríkjunum
ætti að minnast með þakklæti
hetjudugs sovétþjóðanna og
þjóðskipulags og forustu Sovét-
ríkjanna.“
Þessi nýja bók Hewlett John-
sons hefur eins og hin fyrri
mikinn fróðleik að færa um Sov
étríkin og sovétþjóðirnar. Greint
er frá atvinnuháttum, þjóðfé-
lagsstofnunum og stjórnmálalífi
innan sovétskipulagsins, og á-
herzla lögð á hlutverk Komm-
únistaflokks Sovétríkjanna í
styrjaldarrekstrinum, en það er
njál, sem borgararithöfundum
hættir til að láta liggja milli
hluta. Dómprófasturinn er ekk-
ert smeykur við að horfa í augu
veruleikans, enda þótt hann
hitti þar fyrir kommúnista, hann
segir um Kommúnistaflokk
Sovétríkjanna:
„An slíks flokks hefðu Sovét-
ríkin ekki þolað slíkt áfall og
innrcts þýzku herjanna, og við-
haldið einbeittum vilja og
stefnu á hinum œgilegustu und
anhaldsmánuðum er komu eft-
ir fyrstu árás Hitlers. Það var
þessi stálkjarni einingar og ein
beitni, sem gerði mögulegt það,
sem sennilega er mesta afrek
hernaðarsögunnar, breytti skipu
lögðu undanhaldi um 1300 km.
land fyrirvaralaus't í langa og
árangursrika gagnsókn... Það
var viljaþrek Sovétríkjanna,
samanþjappað í Kommúnista-
flokknum, sem bjargaði Sovét-
ríkjunum og heiminum, árin
1941 og 1942“.
Andstæðingar sósíalismans og
Sovétríkjanna reyndu að gera
lítið úr bókinni Undir ráðstjóm,
dómprófasturinn væri forskrúf-
aður prestlingur, sem ekkert
vit hafði á þjóðfélagsmálum
hvað þá hernaði og iðnaði. Því
var gleymt, að Hewlett John-
son hefur auk prestsmenntunar
staðgóða verkfræðingsmenntun,
og það er engu síður verkfræð-
ingurinn en presturinn, sem
kemur fram í bók hans. Nei,
þeir bóttust vita betur þessi
þjóðmálaspekingar, sem for-
dæmdu „Undir ráðstjórn". En
svo undarlega vill til, að lesi
maður þá bók nú, og það sem
þessir sömu þjóðmálaspekingar
skrifuðu um sama leyti, kemur
í ljós, að það er Hewlett John-
son, sem fengið hefur reynsl-
una í lið með sér. Þess skal
minnzt, að í iúní 1941 lýsti
dómprófasturinn yfir því áliti
sínu, að Sovétríkin myndu fær
um að standast árás hinna „ó-
sigrandi" þýzku hersveita, er
þá flæddu inn í Sovétríkin, að
því er virtist með sama óstöðv-
andi þunga og áður í Póllandi
og Vestur-Evrópu. Flestir brezk
ir (og bandarískir) herfræðingar
töldu, að Sovétríkin gætu í
bezta lagi varizt herskörum
Hitlers sex til átta vikna tíma.
„Undir ráðstjórn“ kom fvrst
út meðan griðasáttmáli Sovét-
ríkjanna og Þýzkalands stóð á
dögum skæðasta Finnagaldurs-
ins. En bókin hafði það við sig,
að hún braut niður múra for-
dóma og fyrirframsannfæringu
um Sovétríkin, hún seldis í
tveim milljónum eintaka í Bret
landi og Bandaríkjunum og var
þýdd á fjölda mála. Þessi seinni
bók dómprófastsins hefur marga
beztu kosti hinnar fyrri, og mun
verða víðlesin og velmetin.
Landsbankinn gefur út
500 krónu seðla
Stjóm Landsbanka íslands
hefur samkvæmt lögum nr.
10 frá 15. apríl 1928 gefið út
handa Landsbankanum 500
króna seðla með svofeldri
gerö:
Seðlamir em jafnir 100
króna seðlum Landsbankans
áð stærð, 10X15 cm. Framan
á þeim er prentað gildi þeirra
og er talan tilgreind með bók-
stöfum, í þrem orðum, og
fyrir neðan þau í tveim lín-
um: Samkvæmt lögum nr. 10,
15. apríl 1928 Landsbanki ís-
lands. Eru þessi orð öll með
dökkgrænum lit á marglitum
grunnfleti með brugðnu
skrautverki, umhverfis hann
eru tvennir grænir bekkir
með skrautgreinum. Fyrir of-
an er letrað nafn bankans:
Landsbanki íslands, en undir
þeim stendur nafn formanns
bankaráðsins og nafn eins af
bankastjórunum, og eru þau
nöfn með rithönd þeirra.
Vinstra megin við orðin er
prentuð brjóstmynd Jóns Sig-
urðssonar, en hægra megin
er mynd Jóns Eiríkssonar sem
sem vatnsmerki í hvítum,
kringlóttum reit. Á öll horn er
prentuð talan 500, er tákn-
ar gildi þessara seðla, og er
hún með Ijósgrænum lit í
dökkgrænum, ferhyrntum reit
Aftan á seðlinum er hinn
hvíti, kringlótti reitur, með
mynd Jóns Eiríkssonar sem
vatnsmerki í, vinstramegin,
en hægra megin er prentuð
mynd af alþingisstaðnum
gamla, Þingvelli við Öxará, er
myndin í kringlóttri umgjörö
og upphafsstafir bankans L
og í.,skrautlega dregnir, hvov
til sinnar handar. Grunnflöt-
•X nVja BlÓ
I \
TJABNAB BÍÓ --
TÍL VIGSTOÐVANNA |
(„To The shores of Tripoli") |
Gamanmynd í eðlilegum |
litum. |
•
JOHN PAYNE
MAUREEN 0‘HARA
RANDOLPH SCOTT |
Sýnd klukkan 5—7—9.
Böra. innan 16 ára
fa ekki aðgang.
Giæfrafðr
(Desperate Joumey)
ERROL FLYNN
RONALD REAGAN
RAYMOND MASSEY
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Bönnuð bömum innan 16 ára
Hringið í síma 2184 og
gerizt áskrifendur-
LEIKFELAG REYKJAVIKUR.
-V0PN GUÐANNA“
Sýning í kvöld kl. 8.
Aðgöngumiðasalan er opin frá kl. 2 í dag.
Mni hsafldiF til uarfliæslu
Framhald af 1. síðu.
Eitt norsku leyniblaðanna skor-
ar fastlega á þá Norðmenn, sem
neyddir eru til gæzlu við járn-
brautir og annarsstaðar, að hlýða
ekki frekari þýzkum fyrirskipun-
uin, segir í fregn til Norsk tele-
grambyrá í London.
Bendir blaðið á að þessi skyldu-
kvöð sé lögð á samkvæmt kvisl-
ingslögunum frá 6. ág. 1942 „um
vernd gegn óvinaaðgerðum gegn
ríkinu eða flokkum“. í þessari
kvislingslöggjöf er játað, að varúð-
arráðstafanirnar miðist við menn
„sem grunaðir séu um óvinaað-
gerðir gegn ríkinu og þá sem vegna
stjórnmálastefnu sinnar mega telj-
ast skyldugir að fremja slíkan
verknað“.
Blaðið bætir við: „Til óvinaað-
gerða gegn ríkinu og flokknum er
nú talið allt það er skaðað getur
hagsmuni Þjóðverja. Saklausir
menn eru teknir sem gislar fyrir
verk, sem þeir hafa aldrei unnið
né látið sér til hugar koma. Kvisl-
ingslögin eru andstæð öllum al-
þjóðarétti og miðast fyrst og
fremst við ofsóknir gegn norskum
ættjarðarvinum og kúgun norsku
þjóðarinnar. Margir varðmann-
anna liafa þegar látið lífið á verð-
inum. Fyrst voru Norðinennirnir
sendir til varðþjónustu gegn
skemmdarverkamönnum sem ótví-
rætt er hlutverk- hernámsmanna.
Svo voru þeir sendir til járnbraut-
argæzlu. Næst Verða þeir sendir til
að gæta annarra hernaðarlega mik-
ilvægra staða, og loks kemur að
því sem Þjóðverjar ætla sér mcð
þessu: Norðmenn verða settir til
varðgæzlu á hættulegustu stöðun-
um og látnir berjast við innrásar-
lið. Á þennan liátt, með því að
fórna norsku blóði, halda Þjóðverj-
ar líklega að þeir geti hindrað árás
Bandamanna.
urinn umhverfis er með
brugönu skrautverki, og yzt
umgjörð með skrautgreinum
í, en innan við hana er talan
500 1 hverju horni í kringl-
óttum skildi með skrautverki
umhverfis í ferhyrntum reit.
Öll bakhliðin er prentuð með
grænum lit.
Sú skoðun verður stöðugt al-
mennari meðal góðra Norðmanna,
að þátttaka í slíkri varðgæzlu sé
þeim ekki samboðin, og geti orðið
að dulbúinni herkvaðningu, sé ekki
tekið fyrir hana nógu snemma.
Kjörorð allra Norðmanna hér eftir
á að vera: „Enginn lilýðir kvaðn-
ingu til varðgæzlu við járnbrautir
eða annarsstaðar fyrir Þjóðverja“.
Þegar liafa tugþúsundir Norð-
manna verið kvaddir til varð-
gæzlu, 20 verðir hafa þegar béðið
bana við starfið og um 40 særzt.
Austurvígstöðvarnar
Framnald af 1. síðu
var einn bær 25 km. fyrir vestan
Lúga, annar 20 km. fyrir norðan
og sá þriðji 30 km. fyrir norðaust-
an.
í sókninni vestur og norðvestur
frá Novgorod var nokkrum gagn-
áhlaupum hrundið og margir
byggðir staðir teknir.
Á öllum austurvígstöðvunum
eyðilögðu Rússar í fyrradag 90
skriðdreka fvrir Þjóðverjum og 19
flugvélar.
KVÍÐI í LEPPRÍKJUNUM.
Fréttir frá Svisslandi herma, að
finnska stjórnin hafi komið saman
á fund í dag til að taka til athug-
unar aðvörun Bandaríkjastjórnar
út af þátttöku Finnlands í stríðinu.
Helsingfors er nú rýmd sem óðast,
Hafa verið sendar aukalestir með
fólk, og fjöldi bíla tekinn leigu-
námi.
í Búlgaríu hefur verið hert á
ýmsum öryggisráðstöfunum, m. a.
tekið upp strangt eftirlit með allri
umferð fólks að kvöldi til.
Leiðtogar stjórnarandstæðinga í
þinginu halda því fram, að með
hruni Mússolinis liafi öxullinn horf-
ið úr sögunni, og séu Búlgarar því
lausir við allar skuldbindingar sín-
ar gagnvart honum.
Samband Þýzkalands og Ung-
. verjalands er töluvert spenlit. Hafa
Þjóðverjar borið fram nýjar kröf-
ur, en liins vegar heimtar almenn-
ingur hástöfum, að allar ungversk-
ar hersveitir séu tafarlaust kvadd-
ar hcim.