Þjóðviljinn - 19.02.1944, Side 7

Þjóðviljinn - 19.02.1944, Side 7
ÞJÓÐVILJINN ( Laugardagur 19. febrúar 1944. Þegar Þóra litla veiktist. klæða barnfóstrurnar hana í hvert skipti, sem hún fer út. Og vertu nú sæl, Sigríður. Þegar þær komu heim, fór Þóra að hágráta og sagði við mömmu sína. „Hversvegna varstu svona vond við mig, mamma? En mamma hennar svaraði engu. Næst þegar Þóra litla fór út og ætlaði að búa sig eins og hún var vön, sagði mamma hennar: „Bíddu svolítið. Eg ætla að segja honum Nonna, hvað læknirinn sagði við okkur um leið og við fórum. Og ég er að hugsa um að segja fleiri krökkum það.“ Þóra sagði ekki neitt, en hún fór að leita að ullar- leistunum sínum og skinnhúfunni. Síðan hefur hún aldrei fengið kvef. SYNGIÐ ÞIÐ MYS ! (Þýtt). Langt inni í skóginum var lítill bær. Þar bjó göm- ul kona með syni sínum. Þau voru fátæk, áttu aðeins ofurlítinn jarðarskika, eina kú og hest. Þau lifðu mest á mjólkinni úr kúnni. Stundum lánuðu þau nágrönnunum hestinn og fengu peninga fyrir það. Drengurinn dugði ekki til neins. Hann gekk með hendurnar í vösunum allan guðs langan daginn og mamma hans þóttist sæl og heppin, ef hann hjó ein- i stöku sinnum í eldinn. Þau urðu fátækari, með hverjum degi, sem leið. Einn góðan veðurdag bjó ekkjan til brauð úr síð- asta mjölhnefanum. Og nú hafði hún fyrir löngu síðan eytt þessum fáu krónum, sem maður hennar hafði lát- ið eftir sig. „Heyrðu, Óli, sagði hún við son sinn. „Nú eru éngin önnur ráð en að selja hana Brúnku og kaupa mjöl fyrir verðið hennar. Farðu nú í sparifötin í fyrramálið, þú yfátCgÞETTA Enskur trúboði: Nú hef ég kennt bér boðorðin, fjallræð- una og trúarjátninguna. Og nú spyr ég þig, bróðir: Viltu fara til himnaríkis, þegar þú deyrð? Indverjinn: Það held ég ekki. Trúboðinn: Hvað er þetta maður? Viltu ekki fara til guðs? Indverjinn: Eg er hræddur um, að himnaríki sé ekki merki legt land, því að þá væru Bret- ar búnir að slá eign sinni á það fyrir löngu. * Indíáni var leiddur fyrir rétt. „Kanntu að lesa og skrifa?“ spurði dómarinn. ,,Eg kann að skrifa en ekki að lesa“, svar aði ákærður. Honum var fengið blað og sagt að skrifa nafnið sitt. Indíáninn krotaði eitthvað á blaðið. „Hvað er þetta, sem þú hefur skrifað?“ spurði dóm- arinn. „Eg veit það ekki. Eg sagði yður, að ég væri ekki læs“, svaraði Indíáninn. Dómarinn: Hvers vegna sló uð þér manninn? Ákærður: Hann kallaði mig nashyrning. Dómarinn: Hvenær var það? Ákærður: Fyrir þremur ár- um. Dómarinn: Hversvegna lömd uð þér hann ekki strax? Ákærður: Þá hafði ég ekki séð nashyrning. En í gær sá ég hann. ★ Gyðingur var að selja fisk. „Hversvegna eru allir Gyðing- ar vitrir menn?“ spurði mað- ur, sem var nærstaddur.,, Það er vegna þess að við borðum sérstaka tegund af fiski. Og hérna er hann. „Maðurinn keypti fiskinn, borgaði hann og beit strax í hann. „Þetta er bara reykt síld“, sagði hann. „Sjáum til, þú ert strax orð- inn svolítið vitrari“, sagði Gyð- ingurinn. LECK FISCHER: m 1 Þau þögðu öll. Sjúkrabíll fór framhjá og gaf merki, sem var eins og eymdarlegt væi. Henrik hrökk vi'ð og leit ósjálf rátt út í gluggann. Hann sá í anda ungan mann, sem lokar vandlega eldhúsgluggunum og opnar gaspípuna. Nú koma björgunarmennimir inn til hans, ungir, röskir menn, sem hafa fasta atvinnu og góð laxm. Henrik hafði engan hug á aö fremja sjálfsmorð. Og þeg ar hann hugsaði nánar um það, ógnaði honum sú þján- ing sem því hlaut að fylgja að svifta sig lífi. Hinsvegar skildi hann, aö svo mikið gat. hugarstríð manna orðið, að þeir gripu til þess. Lífsþráin gat kulnað út, þegar allar framtíðarvonir voru dánar. Það gat gengiö svo langt, að hægt værí að horfast í augu við þjáningar dauðans. Lundbom dró andann djúpt og fór að drekka kaffiö, þó að hann langaði ekkert í það. Hann beit einu sinni í hveiti- brauðsneiðina og lét hana svo liggja áhreyfða hjá bollanum. Hugsun, sem kvaldi hann, kom aftur og aftur. Hann varð aö segja það, sem hon- um bjó í brjósti: „Eg hefði átt að eiga eitt- hvaö til elliáranna, en það varð einhvern veginn aldrei neitt afgangs. Eg er reyndar líftryggður en þaö kemur ekki að haldi í lifanda lífi. Eg hefð'i átt að líftryggja mig þannig, að ég fengi vissa upphæð á ári í ellinni“. „Þú hefur gert allt, sem í þínu valdi stóð. Þaö erum viö sem ekki erum á réttri hillu. Þú ert orðinn gamall og hefð- ir að réttu lagi átt að hætta að vinna“. Svea tíndi brauðmola af j borðinu á diskinn sinn og leit á Henrik. Hann átti bágt með að þegja, en stillti sig þó. „Hefði ég átt aö hætta áð vinna?“ Lundbom skildi ekki hvaö hún átti viö. „Já, við hefðum átt aö ala önn fyrir þér“. ,,Þiö!“ Lundbom skildi ekk- ert enn. Hann. hafði aldreí hugsað sér þann rhöguleika, aö hann hætti að vinna, með- an hann gæti staðið upprétt- ur. „Já, viö, börnin þín“. „O, þiö hafið nóg með ykk- ur“. Lundbom brosti góðlátlega. Hann hafði orðiö fyrir von- brigöum, þegar Karl lét sem sér kæmi vandræði hans ekk- ert viö, en nú hughreysti Svea hann. Hitt var annaö, aö hún gat ekki hjálpaö honum. Það gladdi hann, að hana langaöi til þess. Hann hélt áfram og brosti feinmislega, því að nú ætlaði hann að segja þeim dálítið sem hann hafði aldrei orðað við nokkurn mann: „Einu sinni sagði ég við sjálfan mig: Fari nú svo aö ég geti aldrei safnaö pening- um til þess aö komast heim, þá hjálpa krakkarnir mér og skjóta saman handa mér ferðapeningum, þegar ég er orðinn gamall og get ekkert hvort eð er. Já, þetta datt mér einu sinni í hug“. „Þetta mundum við líka gera með glöðu geöi, ef við' gætum“, sagði Henrik og svaraði fyrir þau bæði. „Æ, þetta er náttúrlega eins og hver önnur vitleysa. Eg hef víst ekkert í feröalag aö gera á gamals aldri. En þegar ég kom hingað fyrst, var það ætlunin að dvelja ekki nema nokkur ár, fara svo heim aftur og setja á stofn verkstæði sjálfur. En það komst aldrei svo langt. Og nú hef ég víst ekkert er- indi heim“. „Þú gætir fariö heim til að sjá æskustöövarnar, eöa bara til að létta þér upp og hvíla þig“. Henrik þótti vænt um að geta talað um þetta til að hressa fóstra sinn. Hann ótt- aöist þaö að vísu ekkert að tala viö Sveu 1 einrúmi, eftir aö gamli maðurinn væri far- inn. En það mátti dragast. „Eg gæti þá fariö á úti- skemmtanir og brugðið mér 1 dansinn! — Nei, veistu hvað, Henrik? Eg var einu sinni að segja mömmu þinni frá birki- trjám, sem ilmuðu svo yndis- lega. En hún bara hló að mér og sagöi, áð það væri aldrei ilmur af trjám. Hún vissi ekki betur. Nei, komið þiö bara til Lapplands. Þá getið þið séö birkigöng með eigin augum“. „Vex birki í Lapplandi — ?“ „Hvað ætli þú vitir um Lappland. Þú heldur víst að ísbimir gangi þar út og inn og við séum Eskimóar“. Lundbom hló hjartanlega, Hann hafði marg oft sagt þessa fyndni um ísbirni og Eskimóa, þegar hann var spurður um Lappland. En hann mundi ekkert eftir því núna, og þess vegna hló hann. „Eg hef aldrei komið svona langt norður“, sagði Henrik. „En ég hef komiö alla leið norður í Gállevara og það var áður en járnbrautin var kom- in þangaö. Eg fór fótgang- andi alla leið og það voru oft margar mílur milli bæja. Nú liggur járnbraut alla leið vestur að Narvik. Á þeim ár- um var alltaf hægt að fá vinnu, ef maöur dugði til vinnu. Þá var engum fleygt út á götuna eftir sex ára strit — og það á gamals aldri — “. Lundbom var kominn ti] sjálfs sín aftur. Hann hafði um stund veriö langt í burtu og horft-á mýflugurnar flögra um greniskóginn 1 glaöa sól- skini. „Hvers vegna ertu að kvelja þig meö þessu?“ spurði Svea lágt. Hún hafði hlustað róleg á ferðsögu hans. En til hvers var þetta allt? „Ætli ég fái ekki atvinnu viö aö sauma vesti? Eg skal segja þér, Svea. Einu sinni var ég atvinnulaus í hálfan mán- uð. Það var þegar mamma þín gekk með þig. Þá fórum við bæði að sauma vesti. Við saumuðum dag og nótt. En við höfðum líka mikið upp úr því“. Lundbom sagöi þetta frem- ur dapurlega og hin svöruðu ekki fyrst í staö. Henrik horföi niður á gólfiö og Svea starði á teskeiöina sem hún hélt á. Loksins íagöi hún teskeiðina variega fiá sér og sagði stilli lega: „Það getur vel verið, að þú fáú að sauma vesti, en heidur ekkert annaö“. Lundbom veitti rödd henn- ar meiri athygli en orðunum, sem hún sagði. Og honum féil tónninn illa. Auövitað var erf- iöara aö fá að sauma vesti núna en í fyrri daga. En hún gat þó verið ofur lítið von- betri. Það ðar hart að sætta sig við það aö enginn mögu- leiki væri til aö fá vinnu. Lundbom reis á fætur. „Eg held ég fari aö hátta. Þaö er orðiö framorðiö. Góða nótt“. Henrik og Svea svöruðu bæði í einu: „Góöa nótt“, og hann hvarf fram úr dyrun- um. Þau sátu kyrr um stund, þegjandi og ráðalaus. Hann var gamali, bágstaddur mað- ur, en þau gátu ekki hjálpaö honum neitt. Svea stóö snöggt á fætur og fór aö taka bollana af borö- inu. Henrik hafði gleymt aö drekka kaffið og flýtti sér aö lúka viö þaö. Það glamraði ó- venju mikiö í bollunum, þeg- ar Svea raöaöi þeim á bakk- ann. „Nú skal ég búa um þig á bekknum. Og þá geturðu hátt að þegar þú vilt“, sagði hún við Henrik. Þau drógu skúffuna undan legubekknum og tóku upp rúmfötin. „Ertu reiö viö mig?“ spurði Henrik. „Hvers vegna ætti ég aö vera reió við þig?“ Hún breiddi úr sænginni og var handfljót. „Þú ert ekki eins og þú ert vön að vera“. „Eg hef áhyggjur eins og aðrir. Pabbi er oröinn atvinnu \

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.