Þjóðviljinn - 20.02.1944, Page 3
Sunnudagur 20. febrúar 1944.
ÞJÓÐVILJINN
1
Þvottakonan hefur lœrt að
meta sjáifa sig
Viðtal við Þuríði Friðriksdóttur tormann
Þvottakvennafélagsins Freyja.
Þuríður Friðriksdóttir
Eg var nú eiginlega á móti
því að félag þetta væri stofnað,
þegar til þess kom 1932. En
Jóhanna Egilsdóttir sem þá var
formaður verkakvennafélagsins
beitti sér fyrir því. Eg taldi
óþarft að stofna sérstakt félag
og fannst þvottakonurnar ættu
að ganga í verkakvennafélagið.
Eg lofaði þó að taka þátt í
því og var kosinn formaður.
Um þetta bil var stéttin á-
kaflega langt niðri, en það verð
ég að segja að okkur vannst
þó það á, að konurnar fóru fljót
lega að meta sjálfar sig á allt
annan hátt en áður. Við fór-
um einnig bráðlega eftir félags
stofnunina að leita fyrir okkur
um samninga og tókst fljótlega
að ná þeim við bæ og ríki, og
höfðum þar fulla samn: þar til
Haraldur lét segja þeim upp
1938 og samið var við verka-
kvennafélagið í staðinn. Eg var
þá í Alþýðuflokknum vinstra-
megin og það var borið á mig,
að ég hefði misbeitt valdi mínu
sem formaður.
Síðan hefur félagið barist í
bökkum. Framsókn fékk alla
samninga við ríkið og síðan bæ-
inn gegn um Alþýðusamband-
ið.
Eftir endurskipulagningu Al-
þýðusambandsins hefur Fram-
sókn síðan boðið okkur upp á
sameiningu, og ég veit að
stjórn Alþýðusambandsins tel-
ur það heppilegt að hér verði
eitt. félag, en innan þess verði
svo skipulögð þvottakvenna-
deild, fiskverkunardeild o. s.
frv. Auðvitað veit ég að stjórn
Framsóknar kærir sig ekkert
um okkur, enn sem komið er,
því að þvottakvennadeildin
mundi verða stærri en félagið
allt. Auðvitað hlýtur þetta að
verða eitt félag í framtíðinni
og tel ég það einnig æskilegt
undir vissum kringumstæðum,
en að öllu óbreyttu getur það
ekki orðið.
Við hvað starfa meðlimir fé-
lagsins aðallega?
Fjölmennastar eru þær, sem
þvo búðir, skrifstofur og ganga.
Við höfum nú sem s)lendur
samninga við ýms einkafyrir-
tæki, og hefur yfirleitt tekizt
að ná sæmilegum kjörum, enda
er nú svo mikil eftirspurn eft-
ir vinnu að við getum engan
veginn fullnægt þörfinni. Við
höfum fengið viðurkenndan •
einn frídag í mánuði og veik-
indaforföll mega vera allt upp
í 45 daga á ári. Það er óvenju
mikið, enda starfið þannig vax
ið.
Okkur hefur þannig gengið
vel hin síðari ár, en þó er það
oft bagalegt að það skuli vera
tveir samningsaðilar. Hvort fé-
lag vill auðvitað ná sem bezt-
um samningum fyrir sína með-
limi, en það vill nú samt verða
svo að stjórnirnar eru mismun-
andi þiarðskeyttar 'við samn-'
ingsborðið, og getur orðið erfitt
fyrir aðra stjórnina að fá vilja
sínum framgengt er hin hefur
gengið að verri kjörum.
Lang bezt er þá auðvitað að
ná samningum um uppmæling-
artaxta, því að það kemur rétt-
látast niður og hann höfum við
í þvottakvennafélaginu fengið
t. d. hjá Kron. Þá er tekið á-
kveðið gjald fyrir að þvo fer-
meterinn af gólffleti. 1,30 á fer-
metra þar sem lítið er af hús-
gögnum, en 1,40 ef meira er
inni.
Hvaða konur eru það, sem
aðallega vinna að gólfþvottum?
Áður fyrr voru margar af
þeim giftar konur, en margar
þeirra hafa hætt síðan afkoma'
manna þeirra batnaði. Nú má
segja að það séu allar tegund-
ir. Ákaflega margar af þeim
eru ekkjur, og það er ef til vill
ekki svo undarlegt. Ungu stúlk
urnar hafa yfirleitt sótzt eftir
starfinu, aftur á móti hefur
þarna verið helzt atvinnu að
fá fyrir konur, sem áður hafa
unnið heimilisstörf, en svo orð-
ið að leita sér atvinnu er manns
ins missti við.
Vinna engir karlmehn við
gólfþvotta og hvernig er þá
með kaup þeirra?
Það er mjög sjaldgæft, þó
að manni virðist gólfþvottar
væru ekki aíður karlmanna-
Alexandra Kollontay, sendi-
herra Rússa í Stokkhólmi, er
víðlesinn rithöfundur. Hún hef
ur ritað mikið um sovétkon-
una og sósíalismann og skrif
hennar um „frjálsar ástir“
vöktu á sínum tíma mikla at-
hygli og umtal.
Ritstjóri að tímariti einu
lagði fyrir hana ýmsar spurn-
ingar og fara þser og svör frú-
arinnar hér á eftir.
1. spurning:
Viljið þér segja okkur álit
yðar á hlutverki f jölskyldunn-
ar í framtíðinni. Kemur hún
til með að hafa sömu þýðingu
og áður eða teljið þér, að nýtt
sósíalískt þjóðskipulag muni
breyta fyrirkomulagi fjöl-
skyldulífsins?
Kollontay:
Hvað er orðið eftir af fjöl-
skyldulífi hjá okkur nú á tím-
um? Fjölskyldan var áhrifa- i
mikil og nauðsynleg fyrir þjóð
félagið, þegar hver fjölskylda
var framleiðandi sjálf (eins og
bændafjölskylduimar nú á dög
um í auðvaldsþjóðskipulagi).
Þegar foreldrarnir sáu að öllu
leyti um uppeldi barnanna og
þegar hver fjölskylda í bæjun-
um varð af fjárhagslegum á-
stæðum að sjá um eigið heim-
ilishald. ístuttumáli,þegar þjóð
félagið hafði ekki ennþá tekið
að sér þau störf, sem fjölskyld
an fyrr á tímum leysti sjálf
af hendi.
í öllum löndum er að renna
upp tímabil þar sem fjölskyld-
an í hinni gömlu almennu
merkingu orðsins verður meir
og meir ónauðsynleg og óþörf.
Þjóðfélagið, ríkið, sveitafélög-
Ín taka á sig byrðarnar við
barnauppeldið.' Konan tekur æ
meiri þátt í atvinpulífi þjóð-
félagsins og opinberum störf-
um.
Ef það eru augljós fyrir-
brigði í auðvaldsheiminum, að
áhrifa fjölskyldunnar gæti
stöðugt minna, þá kemur það
miklu skýrar í ljós í Sovét-
ríkjunum, þar sem ríkir geró-
líkt þjóðskipulag. Við vinnum
að því að skapa nýjan hugs-
unarhátt, og frjálst samband 1
milli kynjanna, samband, sem |
ekki miðast við fjárhagslegar
aðstæður, en byggist á ást og
sönnum félagsskap. En það
dregur engan veginn úr þeim
skyldum, sem faðirinn og móð-
irin hafa gagnvart barni sínu.
Lög Sovétríkjanna eru mjög
glögg og nákvæm á þessu sviði.
Það er ekki gerður neinn mun
ur á þeim, sem gifta sig lög-
lega eða búa saman án bless-
unar laganna. Karlmaðurinn
getur ekki svikið konuna og
barnið. Hann verður að leggja
sinn skerf til uppeldis barns-
ins. Og það eru ekki einungis
lögin, heldur áhrif þjóðfélags-
ins, félaga hans, sem krefjast
þess að hann uppfylli skyldur
sínar. Og þetta siðgæðislega
almenningsálit er það, sem
gerir lögin sterk.
2. spurning:
Gerir ekki hinn mikli hraði
í Sovétríkjunum konuna á-
byrgðalausa gagnvart lífinu og
skyldum þess?
Græn tweed-kápa, þétt hneppt,
með vasalokum á barmi og
mjöðmunum og litlum kraga.
verk en kvenna. Um launa-
kjör þeirra veit ég ekki, enda
hafa þeir oftast einhvern ann-
an starfa um leið, eru umsjón-
armenn, kyndarar, eða varð-
menn.
Hvernig hefur yður líkað að
fást við félagsstarfsemina?
Ágætlega, þó að það hafi
nú gengið á ýmsu verð ég þó
að segja að við höfum fengið
kaupbætur og ég hef alltaf
fundið hvað félagið hefur haft
mikil áhrif 1 þá átt, að kenna
konunum að meta sjálfar sig,
og þeim hefur skilizt að þær
eiga líka rétt til þess að lifa.
Kollantay:
Hvað eigið þér við með ,,á-
byrgðarlaus“. Ef þeir eigið við
skyldur konunnar gagnvart
búsýslu og heimili, þá reyna
þær að komast hjá ýmsum ó-
nauðsynlegum störfum, sem
fjötra þær og skerða frjáls-
ræði þeirra. Að njóta frjálsræð
is er ekki það sama og vera
daufur, kærulaus og ábyrgðar-
laus. Að losna við gagnslaust
umstang á heimilunum og láta
ekki gamlar venjur og for-
dóma vera fjötra um fót, er
fyrst og fremst frjálsræði,
sem skapar okkur skilyrði til
andlegs þroska. Okkar nýja,
sósíalíska þjóðfélag hefur gefið
milljónum kvenna frelsi, en
konan mun aldrei geta notið
sín við sömu störf og maður-
inn, fyrr en hún hefur losað
sig við fjötra heimilisverk-
anna.
Sovétkonan skoðar ekki
heimilið, brennidepilinn, er
allt snýst um. Ef hún á að
velja á milli skyldunnar við
þjóðfélagið og skyldunnar við
heimilisstörfin, er áreiðanlegt
að hún lætur þá seinni sitja á
hakanum. En það er alls ekki
ætlunin að vanrækja annað
hvort, meðan heimilisstörfin
kalla að. Takmarkið 1 okkar
sósíalíska þjóðfélagi er að
skipuleggja hlutina á þann
hátt, að slíkir * árekstrar eigi
sér ekki stað, að heimilisverk-
in taki minni tíma, þjóðfélag-
ið sjái um allskonar stofnanir,
sem hjálpi konunum að losna
við hin þreytandi hússtörf og
hjálpi mæðrunum við uppeldi
barnanna.
3. spurning:
Hvort metur Sovétkonan,
eða ætti hún að meta meira
skylduna við þjóðfélagið eða
skylduna við þann mann, sem
hún elskar?
Kollantay:
Hún hlýtur að meta þjóðfé-
lagið meira. Ástin — já, hún
er stór þáttur í lífi konunnar
eins og mannsins. En þegar
konan hefur ýms áhugamál og
starf, sem hún hefur áhuga
fyrir, þá verða ekki ástarmál-
in aðalatriðin í lífi hennar.
Verði hþn fyrir vonbrigðum.
sem oft kemur fyrir, þá getur
það ekki bugað hana, ef hún
hefur sitt ákveðna starf að
vinna og veit um skyldur sín-
ar gagnvart því þjóðfélagi sem
hún lifir í. Þess vegna leggjum
við, konur Sovétríkjanna, alla
okkar umhyggju og starf í
þágu hins nýja þjóðfélags, sem
við tökum með hrifningu og
atorku þátt í að skapa og gefa
okkur möguleikana til frelsis
og þroska. Og það er eina leið
in sem við getum farið til að
losna að fullu við hugsunar-
hátt hinnar gömlu Evu og sem
breytir konunni í sannari og
sterkari persónuleika og gerir
hana hæfa að lifa í betri og
þroskaðri heimi morgundags-
ins.
Um ástina \il ég segja þetta
við unga manninn: Gefðu kon-
unni, sem þú elskar, meira af
ástúð hjarta þíns, og þegar þú
hættir að elska hana, máttu
aldrei gleyma, að hún er jafn-
framt félagi þinn. Og við kon-
una segi ég: Gefðu ekki hjarta
þitt óskipt og þig alla á vald
ástarinnar, geymdu eitthvað af
hjarta þmu — eins og karlmað
urinn gerir ævinlega — svo þú
farir ekki á mis við aðra dá-
samlega hlutl, sem lífið hefur
að bjóða.
Þ. V. þýddi lauslega.