Þjóðviljinn - 31.03.1944, Blaðsíða 8
,0i® bopginni
Næturvörður er í Laugavegsapó-
teki.
Ljósatími ökutækja frá kl. 7.30
að kvöldi til kl. 5,35 að morgni.,
Næturakstur: Aðalstöðin, sími
1383.
Útvarpið í dag:
18.30 íslenzkukennsla, 1. flokkur.
19.00 Þýzkukennsla, 2. flokkur.
19.25 Hljómplötur: Harmóníkulög.
20.25 Útvarpssagan. „Bör Börsson"
eftir Johan Falkberget, XIII
(Helgi Hjörvar).
21.00 Strokkvartett útvarpsins:
Strokkvartett nr. 29 í F-dúr
eftir Haydn.
21.15 Fræðsluerindi Stórstúkunnar:
Ofdrykkja og meðferð of-
drykkjumanna (Alfreð Gísla-
son læknir).
21.35 Spurningar og svör um ís-
lenzkt mál (Björn Sigfússon).
22.00 Syfóníutónleikár (plötur):
a) Píanókonsert eftir Ravel.
b) Symfónía nr. 2 í e-moll eft
ir Rachmaninoff.
23.00 Dagskrárlok. ,
Barnavinafélagið Sumargjöf: Á-
heit frá Birgi og Önnu, 50 kr. til
Vöggustofusjóðs Ragnheiðar Sigur-
bjargar ísaksdóttut. Kærar þakkir.
— Stjórnin.
Til Bamaspítalasjóðs Hringsins:
200 kr. frá velviljaðri utanfélags-
konu. — Frá fröken Steinunni Thor
steinson og Sigríði Zoéga, 1000 kr.
Kærar þakkir til gefenda, frá stjórn
Kvenfélagsins ,,Hringurinn“.
Stjórn Rangæingafélagsins í
Reykjavík hefur fært Nýja Stúd-
entagarðinum að gjöf frá félaginu
kr. 2.500.00 — tvö þúsund og fimm
hundruð krónur — til kaupa á hús
gögnum í herbergi það, sem ætlað
er til bústaðar stúdentum úr Rang-
árvallasýslu.
Virðingarfyllst pr. Stjórn Stúdenta-
garðanna, Magnús Jónsson, ritari.
Leiðrétting. í frásögn blaðsins af
fundi Rangæingafélagsins féll nið-
ur nafn ritarans Tryggva Árnasón-
ar. Gjaldkeri er Jón Ámason og
leiðréttist þetta hér með.
|Flokkurinnn
Skrifstofa Sósíalistafélags Reykja
víkur, Skólav.st. 19, er opin alla
virka daga kl. 4—7.
Félagsmenn eru vinsamlega beðn
ir að koma þangað og greiða gjöld
sín. '
*
Þeir, sem hafa hug á að eignast
brjóstlíkneski af Stalin, geta feng-
ið þau í skrifstofu Sósíalistafél.
R.víkur og Sósíalistaflokksins Skóla
vörðustíg 19.
Vinnuheimili
berklasjúklinga
Vinnuheimilissjóð berkla-
sjúklinga hefur borizt 40 þús.
kr. gjöf frá bændunum að
Reykjum í Mosfellssveit, þeim
Bjarna Ásgeirssyni og Guð-
mundi Jónssyni skipstjóra.
Segir í bréfi þeira til stjórn-
ar Samþands íslenzkra berkla-
sjúklinga, að gjöfinni skuli ráð
stafað eftir ákvörðunum stjórn-
ar sjóðsins.
AUGLYSIÐ
í WÓDVTUANUM
þJÓÐVIUIN
„Heilsufrædi
iþrólfamanna"
Framh.af 3. síðu
æði, og hefur ráðfært sig við
prófessor Torup:
Á fætur kl. 8 Einn bolli af
veiku tei eða hafraseyði með
sykri og sykursafa eða einn
bolla af heitri mjólk með einni
sneið af hveitibrauði og í við-
bót ein appelsína, eitt epli eða
banan
Stutt gönguför. Kl. 9 morg-
unmatur: Lítill kjötbiti (nýtt
kjöt), sætmauk, bolli af þunnu
tei með rjóma og sykri (ef te
kl. 8 þá nú hafraseyði). í stað-
inn fyrir kjöt má koma fisk-
meti með eldbornu (brúnuðu)
brauði, sykurmauk (syltetöj),
2 appelsínur, eða banani. Kl. 2
miðdagsmatur, soðið kálfskjöt
eða hænsakjöt með káli, baun-
um eða blómkáli og hveiti-
brauði. Til ábætis má hafa být-
ing (budding) eða soðin aldini
í staðin fyrir kjötið má eta
fisk, fáein jarðepli, ídífu og
smjör.
Miðdagsdúr, því næst einn
peli af mjólk (eða ekkert). Síð
an í baðhúsið. Eftir róðurinn.
3A 1. af heitri mjólk í baðhús-
inu. Kvöldmatur. Kalt kjöt og
hveititbrauð og mjólk, ögn af
maismjölsmauki eða því um
líku. Hvíld til háttatíma, í sið-
asta lagi kl. 10 e. h. Allsherj-
ar boðorð: Ekkert tóbak, áfengi
eða kaffi, engar kynferðisnautn
ir. — Opinn gluggi í svefnhús-
inu. Engar iðkanir rétt á und-
an eða rétt á eftir máltíðum.
Borðaðu aldrei meira en lyst-
in leyfir.
Sigurður Jakobsson
Framh. af 2. síðu.
um hvernig menn gætu bezt hag-
nýtt sér þetta líf. Sumir liölluðust
að hinum gullnu tækifærum og til-
viljunum og hver yrði að bjarga
sér eihs og blési. Einn úr hópnum
sagði þá eitthvað á þessa leið: Líf-
ið er engin tilviljun og verður ekki
lifað af tilviljun, ef eitthvað á að
vinnast. Mcnnirnir verða í samein-
ingu að gróðursetja lífið og græða
það út, en ekki rífa upp og rót-
sýkja fegurstu plönturnar, liver
sem betur getur. Það er hlutverk
dauðans, en ekki Iífsins.
Sjálfur var ég búinn að gleyma
þessu kvöldi, þegar Sigurður
minnti mig á það fyrir 4 árum.
Eg var yngstur af ykkur, sagði
hann og fannst allir hafa nokkuð
til síns máls. En nú sé ég, að hið^
blinda kapphlauj) um lífsgæðin,
getur ekki hjálpað í heild. Auður-
inn sem við það skapast, skyggir
á minninguna. Ég heyrði það líka
á mörgu og sá, að honum var
þetta ljóst.
Kannski er það líka svo, bæði
fyrir þá, sem hverfa og þá, sem
eftir lifa, að sárasti broddur þess,
er við köllum dauða, verður að-
eins mýktur á J)ann hátt, að rétta
gróanda lífsins hjálparhönd,
tengja líf sitt lífi annarra manna.
Ég vona að sá gróandi rétti þeim
aðstandendum, sem hér eiga um
sárast að binda, J)á vinarhönd.
Ilalldór Pótursson.
Dómnefnd í kvæða-
samkeppni þjóðhátíð-
arnefndar
Þjóðhátíðarnefnd kaus í gær
eftirtalda menn í dómnefnd til að
dæma um ættjarðarkvæði þau, er
nefndinni kann að berast og stofn-
að hefur verið til samkeppni um:
Prófessor Alexander Jóhannes-
son.
Dr. Þorkell Jóhannesson lands-
bókavörður.
Dr. Símon Jóh. Ágústsson.
Ljóðin eiga að vera komin til
Jjjóðhátíðarnefndar í síðasta lagi
20. apríl, og skal nafn höfundar
fylgja í lokuðu umslagi ásamt
merki því, er hann hefur sett á
kvæði sitt.
Dauðaslys
Framnald af 1. síðu
ir er og slengdist með höfuðið
á húsvegginn.
Meðal þeirra sem voru stadd-
ir þarna rétt hjá var Kristján
Sveinsson læknir, og brá hann
þegar við til aðstoðar. Hafði
Haraldur þegar misst meðvit-
undina og fossaði blóð
úr vitum hans, mun höfuðkúp-
an hafa brotnað við höggið
Var hann síðan fluttur á
Landspítalann og lézt hann þar
rétt fyrir kl. 12 á hádegi í gær.
Austurvígstoðvarnar
Framh. af 1. síðu.
Chisinau, sem er nú um 65 km.
undan.
Ribnitsa, sem er járnbrautar-
stöðvarbær á eystri bakka Dnéstr,
féll í hendur Rússa í gær. Er öll
járnbrautin þaðan austur til Per-
vomeisk á valdi rauða hersins.
FLÓTTI Á SVARTA-
IIAFSVÍGSTÖÐVUNUM.
Þýzkur útvarpsfyrirlesari, sem
fyrir tveim dögum hafði raupað af
þvi, að Þjóðverjar mundu geta
haldið varnarlínti sinni á vestri
bakka Búgs, varð að játa í gær,
að varnir Þjóðverja í Suður-
Úkraínu væru í upplausn.
Rauði herinn sótti vestur frá
Búg í gær víðast 20—30 km. Tók
hann yfir 200 bæi og þorp á svæð-
inu milli Vosnesensk og Nikolaéff
og er nú um 80 km. frá Odessa.
GtfBBEÍS BIÐUR VESTUR-
VELDIN UM IIJÁLP!
Göbbels birti í gær grein í riti
sínu Das Reich. Segir hann þar,
að mesta hætta stríðsins nálgist
með risaskrefum. Það þýði ekki
að leyna því lengur.
Verst þykir honum, hvað fólk sé
ófúst að trúa }>ví, hvað mikil
hætta stafi af kominúnismanum.
Sárbænir- liann Breta og Banda-
ríkjamenn að bjarga Þýzkalandi
úr hinni ægilcgu bolsévikkahættu,
sem yfir })ví vofi!
Ilitler hefur fyrirskipað, að all-
ir Þjóðverjar cigi að taka þátt í
skotæfingum í apríl.
Benda Bandanienn á, að þetta
sýni, að hann búist við hernaðar-
átökum í Þýzkalandi sjálfu.
Wm* TJARNAR BIO nyja Bio m
Allt fór það vel „GÖG & GOKKE“ og
(It AU Came True) GALDRAKARLINN
Bráðskemmtileg amerísk („A Hunting we will Go“)
mynd. Fjörug mynd og spennandi.
ANN SHERIDAN JEFFREY LYNN STAN LAUREL.
HUMPHREY BOGART OLIVER HARDY.
FELIX BRESSART Sýnd kl. 5, 7 og 9. og töframaðurinn DANTE. Sýnd kl. 5, 7 og 9. 4*
Ný skáldsaga:
Fjalilfl oo draoflioFiDD
eftir
Óiaf Jóhann Sigurðsson
Ólafur Jóh. Sigurðsson er ungur rithöfundur,
sem menn hafa gert sér miklar vonir um, >frá því
hann 'birti fyrstu bók sína, aðeins 17 ára gamall.
Eftir hann eru áður komnar út, auk barnabóka,
tvær skáldsögur og eitt smásagnasafn.
FJALLIÐ OG DRAUMURINN hlýtur að vekja
athygli vegna þess, hve bókin er óvenjulega vel
skrifuð af jafn ungu skáldi.
Sagan lýsir æskuárum íslenzkrar sveitastúlku,
fram til þess hún giftist og fer að búa sjálf. Er
sennilegt, að höfundur hugsi sér framhald af
verkinu, og ætli sér með því að rita sögu sveita-
konunnar.
Fjallið og draumurinn er safarík bók, ljóðræn
í stíl, fögur að máli.
Þessum unga rithöfundi ættu Islendingar að
fylgjast vel með.
Fjallið og draumurinn vekur á skáldinu nýtt
traust.
Bókin er í stóru broti, 432 þéttletraðar blað-
síður, vönduð að prentun og öllum frágangi.
Verð 50* kr. heft, 62 kr. innbundin. Kápu-
mynd eftir Þorvald Skúlason.
Fjallið og draumurinn fæst í öllum bóka-
verzlunum, en Bókabúð Máls og menningar
hefur bókina í umboðssölu.
WBFX
Skrifstofa vor
verður lokuð í nokkra daga vegna viðgerðar. Áríðandi erindum við Sambandið verður svar-
að í síma 3980. Alþýðusamband íslands.
Húsamálning, hreingerningar
ÓSKAR & ALLI. Sími 4129
Smuts marskálkur, forsætisráð-
herra Suður-Afríku talaði í gær á
þingfuridi um sigra Rússa sem J)á
glæsilegustu í veraldarsögunni.
Sagði hann, að Bandainenn kæmu
brátt til sögunnar að vestan. Eoft-
árásir þeirra ættu að undirbúa
jarðveginn.
Eden hefur varað Balkanríkin
við að aðstoða Þjóðverja við Gyð-
ingaofsóknir }>ær, sem þeir hafa
hafið í }>essum londum.
Skíðaferð I Þvymheim
á laugardag. Farmiðar í
kvöld kl. 6—6.30 að Aðal-
stræti 6, uppi.
Þeir, sem pantað hafa
dvöl í Þrymheimi um pásk
ana, vitji farmiða á sama
stað og tírna.