Þjóðviljinn - 09.05.1944, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 09.05.1944, Blaðsíða 6
f ÞJÓi)V 1 LJ 1 N N Þriðjudagur 9. maí 1944. í ■ ! ! ' ’ I HUS Tilbúlxs hús frá Svíþjóð Undirritaðir hafa tryggt sér sölu-umboð á íslandi á tilbúnum sænskum timburhúsum. Sölumagn er þó mjög takmarkað, vegna mikillar eftir- spurnar og kaupa frá öðrum löndum, t. d. hafa Bretar þegar fest kaup á 67 þusund húsum frá Svíþjóð. Hús þau, er vér höfum til sölu, eru afgreidd í flekum (gólf, loft og þak þó í plönkum og borðum), ásamt öllu einangrunarefni, innréttingu í eld- hús, gluggum, hurðum, stiga, innbyggðum skápum o. s. frv. — Húsin hafa samþykki byggingarnefndar Stokkhólmsborgar. Þau hús, er vér getur selt til íslands, eru að stærð um 70—80 fermetrar, 3 herbergi, eldhús, bað og gangar á hæð. Notað er fullþurrkað, vandað timbur, fura, greni og eik. Afgreiðslutími húsanna er 8 vikur, frá því að pöntun er gerð. Vegna styrjaldarástandsins tekur seljandi að sér að geyma húsin kaupanda að kostnaðarlausu, þar til afskipun hefur farið fram, enda eru þau seld frítt um borð í Gautaborg. Greiðsluskilmálar eru þeir, að kaupandi opnar bankatryggingu fyrir and- virði kaupverðsins f. o. b. Verð húsanna er um kr. 6000.00 sænskar. Sölusamningar allir, sem gerðir verða við félög og einstaklinga, eru með fyrirvara um að nauðsynlegt gjaldeyris- og innflutningsleyfi fáist,- en útflutningsleyfi í Svíþjóð hefur þegar verið tryggt. Þeir, sem óska eftir nánari upplýsingum, sendi oss nafn sitt og heimilis- fang, ásamt kr. 15,00 til greiðslu kostnaðar á teikningum af mismunandi húsagerðum og stærðum, efnislýsingu o. s. frv. (Utanáskrift: Byggingafélagið Svea, Reykjavík). Virðingarfyllst BYGGINGAFÉLAGÍÐ SVEA REYKJAVÍK Sósíalistafélag Reykjavíkur fund þriðjudag 9. maí kl. 8.30 e. h. á Skólav.stíg 19. Fun .reíni: 1. Félagsmál. 2.. Vegavinnuverkfallið (Jón Rafnsson). 3. Konungsboðskapurinn og lýðveldisstofnunin (Éinar 01- geirsson). 4. Starfið í sambandi við lýðveldiskosningarnar. Sérstaklega er skorað á þá, sem kvaddir hafa verið til starfa í sambandi við lýðveldiskosningarnar að láta ekki undir höfuð leggjast að mæta á fundinum. STJÓRNIN. u....-- - . - A I \ I M M^rnar^ii épf.» i I. 0. C. T. Stúkan íþaka. Fundur í kvöld kl. 8.30 í Templarahöllinni. G. G. ann- ast. Hagnefndaratriði. SALTKJÖT Ákveðið hefur verið að selja innanlands nokkuð af stórhöggnu dilkakjöti fyrir aðeins 462 krónur heiltunnuna. Það af kjötinu, sem ekki selzt fljótlega, verður flutt út, og og verða því þeir, sem ætla að kaupa kjöt til sumarsins, að gera pantanir sem fyrst hjá kaupfélögunum eða S. í. S., og verður þá kjötið sent á hvaða höfn sem er með fyrstu ferð er fellur. TILKYNNING Það tilkynnist hér með að þann 13. þ. m. munu ný há- marksverðsákvæði fyrir fisk ganga í gildi í Bretlandi og lækkar hámarksverð á fiski frá íslandi frá og með þeim degi niður í það verð, sem gilti síðastliðið sumar. Reykjavík, 8. maí 1944. * SAMNINGANEFND UTANRÍKISVIÐSKIPTA. -vwvw/vw-wws/vrs/sjvs^sjwwwswwswsrfWSrfvs/vwsrf'wwsA/srfwvws^w Lagfæringar skemmda á lóðum vegna hitaveitulagna Að gefnu tilefni skal tekið fram, að bærinn er byrj- aður að lagfæra skemmdir, sem orsakazt hafa á lóðum vegna hitaveitulagna. Hlutaðeigendur eru góðfúslega beðnir, að senda bréf- legar tilkynningar til skrifstofu minnar, fyrir 13. þ. m. um þær lóðaskemmdir, sem ekki hafa verið lagfærðar. / / Reykjavík, 6. maí 1944. BÆJARVERKFRÆDINGUR. GLDFAST fiLER SKÁLAR OG FLEIRA Emeleraðar vðrur KAFFIKÖNNUR OG FLEIRA NÝKOMIl). ' H. Efnarssoi i Dllmii *. KAIIPIÐ ÞJOÐVILJANN IDAQ er síðastí söluaaKur * ílokki. Happdrættið.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.