Þjóðviljinn - 09.05.1944, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 09.05.1944, Blaðsíða 2
ÞJÓÐVILJ ÍNN . Þriðjudagur 9. maí 1944. Végavinnpdeilan Fram að s.l. mánaðamótum höfðu staðið yfir samningaumlcit- anir milli Alþýðusambands ís- lands og ríkisstjórnarinnar um . kaup og kjör í vega- og brúagerð. Umræður nöfðu farið fram í mesta bróðerni, og var ckki annað sýnna en að samkomulag og gagn- kvæmtir skilningur væri ríkjandi í öllum megin atriðum. —Af hálfu fulltrúa ríkisins var það ótvírætt látið í Ijós og bundið fastmælum af þeggja hálfu, að fylgt skyldi sömu reglu og samkomulag varð um í fyrra varðandi skiptingu vinnu. En þessi regla var sú, að um kaup og kjör á hverju vinnu- svæði, færi eftir kjarasamningi og viðurkenndum taxta þess verka- lýðsfélags, sem starfaði næst, inn- an sömu sýslu. Þá var og lagt til af hálfu full- trúa Alþýðusambantlsins, að 48 stunda vinnuvikunni yrði skipt á 5 daga í stað 6, þar sem svo hagaði til að viðkomandi verkamönnum þætti sér henta það betur, en um þetta höfðu komið áskoranir frá fjölda verkalýðsfélaga, sem byggðu þessa áskorun ie reynsl- unni frá í fyrra. Þetta gerðu fulltrúar ríkisins ekki að neinu verulegu ágreinings- efni, en vildu hins vegar fá sam- komulag um, að unninn yrði 10 stunda vinnudagur með dagvinnu- taxta, eða 60 klukkustundir á viku á nokkrum tiígreindum fjall- vegum og heiðum, og færðu það 'ram máli sínu til stunðnings, að að 8 stunda vinnudagur eða 48 stunda vinnuvika hentaði þar ekki vegna aðstæðna, þó skyldi þessi undanþága ekki koma til greina, nema meiri hluti viðkomandi verkamanna væri því samþykkur. — Fulltrúar ríkisstjórnarinnar héldu því fram, að þessar undan- tekningar kæmu ekki tii greina nema á 3—4 tilgreindum stöðum á iandinu. Fulltrúar Alþýðusambandsins töldu hins vegar fulltrúa ríkis- tjórnar gcra of mikið úr örðug- leikum á framkvæmd 8 stunda vinnudagsins eða 5 daga vinnu- vikunnar á 48 klukkustundum á jressum tilgreindu stöðum, en tjáðu sig þó fúsa til að taka tillit til tæknilegra aðstæðna í þessu efni og ræða málið áfram á þessum grundvelli. — Þetta atriði virtist vera ])að eina, sem skoðanir skipt- ust um, en þó ekki það veigamik- ið, að samningar gætu strandað á bví. —. Þegar þetta var leyst, töldu *báðir aðiljar, að skipting kjarasvæðanna væri tiltölulega létt framkvæmdaratriði, sem ekki gæti valdið friðslitum, þar eð sam- komulag var um að fylgt yrði í bví efni meginreglum, sem sam- komulag varð um í fyrra milli ,ömu aðilja. En svo bregður við á síðustu stundu,- þegar löglegur vinnu- stöðvunarfyrirvari var að renna út, og búast mátti við því, að gengið yrði , á samkomulagsgrund velli, frá þessu eina ágreinings- ;fni, að fulltrúi ríkisstjórnar, vega- málastjóri, leggur fram, frá at- vinnumálaráðherra, skjal, sem hafði í meginatriðum eftirfarandi boðskap að flytja: 1. Kaup- og kjarasvæði skulu ekki len^ur helgast af samningum eða taxta þess verklýðsfélags, sem starfar næst vinnustað innan sömu sýslu. 2. Á félagssvæðum skulu að vísu gilda samningsbundin kjör við- komandi verklýðsfýlaga, en þó ekki á öllum félagssvæðum. Starfssvæði Verkamannafélags Raufarhafnar, Verklýðsfélag's- ins Esjan, Vhrklýðsfélags Ölfusárhrepps o. fl. skulu að mestu eða öllu leyti þurrkuð út, til þess að rýra kjörin, þvert ofan í löglega samninga og taxta félaganna. 3. Framkvæmd 48 stunda vinnu- vikunnar á «5 dögum skal sett í sjálfdæmi eins mánns, verk- stjórans, en ekki skcitt um vilja meiri hluta viðkomandi verkamanna í þessu efni. 4. Utan félagssvæðanna skal greiða sama kaup og í fyrra, þrátt fyrir það, að samkvæmt þá gildandi reglu á kaupið á sumum svæðum að vera nokkru hærra, vegna nýrra kjarasamninga viðkomandi verkalýðsfélaga. — Hvað hér er átt við kemur í ljós í yfir- lýsingu vegamálastjóra f. h. at- vinnumálaráðherra 3. maí s. 1., en hún hljóðar svo’: „Ríkisstjórnin hefur falið mér að lýsa yfir því, að vega- gerð rílcissjóðs mun á þessu sumri greiða gildandi verka- kaup verklýðsfélaga á jélags- svœðum þeirra, en utan félagS- svæða sama kaup og s. I. ár og eftir sömu kau'psva;ðaskiptingu og veita verkamönnum sömu hlunnindi og áður“ • , Eins og sjá má á þessari yfir- lýsingu, er ekki minnzt á ann- að en kaup og hlunnindi, en ekki cinu orði á vinnudag eða vinnuviku. Þetta segir hvorki meira né minna en það, að rík- isstjórnin ætlar sér ekki aðeins að láta 10 stundá vinnudaginn ná til hinna tilgreindu 3—4 fjallvega. Af þessu verður ekki annað ráðið en að atvinnumála- ráðherra ætli_ sér að þurrka út með öllu 8 stunda vinnudaginn og 48 stunda vinnuvikuna í dreifbýli og sveitum,- og ekki nóg með það, heldur einnig á sjálfum félagssvæðunum, hvað sem samningum félaganna líð- ur. 5. Allt, sem bundið var fastmæl- um á samningafundum, um ■ samkomulag í meginatriðum og stóð að því er virtist óhaggað til elleftu stundar, reynist nú helber blekking og fals af hálfu atvinnumálaráðherra og full- trúa hans. Málshöfðun ráðherrans á hend- ur Alþýðúsambandinu vcgna „ó- Iöglegrar“ vinnustöðvunai' er mjög í stíl við þá eindæma framkomu, sem hér ór lýst að framan. Lög- legur frestur, þ. e. vika eða meira, líður frá því tilkynuingin um vinnustöðvun berst ráðherranum, án alhugasemda eða móftmæla, á meðan aðiljar ræða lausn málsins, sáttir um aðalatriðin, en hvort- tveggja skeður í senn á síðustu stundu: Fulltrúar ráðuneytisins renna frá öllu því, sem þeir frá upphafi málsins virtust vera sam- þykkir, höfða mál á hendur Al- þýðusambandinu. Og til að kóróna þetta, auglýsa enn betur siðferðis- ástandið innan þessarar háu stofn- unar, er vitamálastjóri hindraður í því að semja við Alþýðusam- bandið um kjörin við vitabygg- ingar, sem enginn ágreiningur var um, enda sams konar kjör og gilt liafa í þessari vinnu árum saman, — til þess eins að koma af stað ófriði J landinu, Þessa fjandsamlegu og fjar- stæðukenndu málshöfðun skal taka sérstaklega fyrir í blaðinu mjög bráðlega, ef rúm leyfir. • En eitt má hverjum manni Ijóst vcra: Deila sú, sem nú er hafin við fýrirtæki ríkisins, er framkölluð af sjálfuin atvinnumálaráðherran- um og miðar að því, af lians hálfu, að hefja allsherjar árás á launakjör alþýðunnar, þurrka út lögleg fé- lagssvæði verklýðsfélaganna, af- nema 8 stunda vinnudaginn en innleiða 10 stunda vinnudag og fá skertan samtakarétt alþýðunnar í heild, undir yfirskyni laga, en gegn lögum. IJér er ekki um að ræða á- rás *á vegavinnuverkamenn ein- ungis, heldur á alla launþega landsins og samtakarétt þeirra. Þetta skilur öll hin vinnandi þjóð, og hún mun ekki svara þessari' árás afturhaldsins með minna afli en þcgar hún braut af sér fjötra þrælalaganna sællar minningar. Sfyrkir til leikara Fé því er Menntamálaráð veitti á þessu ári til leikara hef ur nú verið úthlutað af nefnd þeirri er Félag leikara kaus til þess. Var fénu úthlutað þannig: 1200 krónur fengu Gunnþór- unn Halldórsdóttir og Friðfinn- ur Guðjónsson, 1000 krónur frú Guðrún Indriðadóttir, 900 kr. fengu Arndís Björnsdóttir, Brynjólfur Jóhannesson, Gest- ur Pálsson, Haraldur Björnsson, Indriði Waage, Lárus Pálsson, Soffía Guðlaugsdóttir, Valur Gíslason og Svava Jónsdóttir, Akureyri. 700 krónur fengu: Jón Norð- fjörð, Akureyri, Þóra Borg Ein- arsson, 650 kr. fengu: Alfreð Anrdésson, Alda Möller, Lárus Ingólfsson, 550 krónur: Emelía Borg, Jón Aðils, Sigrún Magn- úsdóttir, og 500 krónur Edda Kvaran og Hildur Kalman. Barni bjargað frá drukknun Á suimudagsmoi'guniim féll 6 ára gamall drengur út af bryggju á Siglufirði. Tv^ir Siglfirðingar, þeir Jón Jó- hannsson og Oskar Garibaldason, voru þar nærstaddir og tókst þeim að bjarga barninu. Skoðanaskipti Margur maðurinn hefur stært sig af því að vera énginn „veifiskati“ í skoðunum, og vissulega má telja það til kosta, að vera ekki háður hverjum skoðanaþyt, sem um loftín líður. En þessi kostur getur breyzt í hinn herfilegasta ókost ef hann er iðkaður án skynsemdar. Tímarnir breytast, það er stað- reynd. Nýir tímar færa ný viðhorf að höndum, og það er einkenni hins gáfaða og þroskaða manns að fylgj- ast vel með tímans rás, og mynda sér skoðanir með tilliti til hinna nýju viðhorfa. En þetta þýðir að gáfaður maður endurmetur skoðan- ir sinar og viðhorf til lífsins, — til manna og málefna, — oft, á langri- ævi, og það er hverjum manni van- sæmd að gera það ekki. Þessar staðreyndir er hverjum manni gott að hugleiða, því sannleikurinn er sá, að réttmæt varúð gegn hvers- konar veifiskatahætti, verður hjá mörgum að steinrunninni þjóðhættu legri íhaldssemi, sem varnar honum að mynda sér skoðanir í samræmi við breytta tíma. Það er hverjum manni sómi að breyta um skoðun þegar hann finn- ur að forsendur fyrri skoðana eru brostnar og forsendur fyrir nýjum . skoðunum til orðnar. Breyttir tímar Aldrei hafa breytingar tímanna verið stórstígari en nú. Nýir at- vinnuhættir, ný tækni hefur gjör- breytt öllum þjóðfélagsástæðum. Allt stefnir að því að vefa örlög einstaklinganna í hverju þjóðfélagi fastar saman, og sömuleiðis örlög þjóðanna. Um leið og hinar ytri að- stæður breytast þannig, er það hin brýnasta nauðsyn að hugsunarhátt- ur almennings breytist að sama skapi. Tímar einstaklingshyggjunn- ar verða að hverfa, og í þeirra stað að hefjast tímar félagshyggjunnar, atvinnulífið verður að reka á grund velli sameignar og samvinnu. Það er hverjum m'anni sómi að kunna að draga réttar ályktanir af þess- um bréyttu forsendum, og hafa skoðanaskipti í samræmi við það. Munið lýðveldið Kosningaskrifstofa lýðveldiskosn- ii^ganna er á Hótel Heklu. yeitið henni alla þá aðstoð og upplýsingar sem þér getið í té látið. Nú er að- eins hálfur máúuður til kjördags. Hvað eruð þið að rífast? Piltarnir við Aiþýðublaðið eru eitthvað að rífast út af því að Þjóðviljinn benti þeim á að allar líkur Úentu til að Alþýðuflokkurinn væri að semja við Framsókn um að koma á einmenningskjördæmum og að afnema uppbótarþingsæti, og ennfremur um kauplækkun og auk- ið vald til handa forseta. Þjóðvilj- inn taldi sennilegt, og raunar víst, að Alþýðuflokkurinn væri reiðubú- inn að mynda stjórn með Framsókn upp á þessi bíti. Út af þessu hafið þið fengið kast kæru kollegar við Alþýðublaðið. Viljið þið gera svo vel að svara eftirfarandi spurningum: 1) Samþykkti ekki Framsóknar- þingið að flokkurinn skyldi beita sér fyrir að koma á einmennings- kjördæmum og afnema uppbótar- þingsætin? 2) Samþykkti ekki sama þing að flokkurinn skyldi beita sér fyrir að auka forsetavaldið? 3) Samþykkti flokkurinn ekki að raunverulega nauðsyn bæri til að lækka launin í landinu? 4) Sagði ekki Alþýðublaðið að stefna þingsins væri í samræmi við jafnaðarstefnuna, og lét þá undr un sína í ljósi yfir því að Framsókn armönnum skyldi detta í hug að framkvæma stefnu sína með íhald- inu, fannst því ekki sjálfsagt, að slíka stefnu ætti að framkvæma með vinstri samvinnu? — Öllum þessum spurningum verðið þið að svara játandi, ef þið ætlið að segja satt. Hvað eruð þið> svo að rifast? Iðnnemaf er luku prófi í vor Áður hefur verið skýrt frá uppsögn Iðnskólans hér í blað- inu. Hér fara á eftir nöfn þeirra 104 iðnnema er luku prófi, flokkuð eftir iðngreinum: . Bifvélavirkjar: Sigurður V. Þorvaldsson, Sigurgeir Guðjóns son. Prentmyndagerð: Eggert Lax- dal, Sigurbjörn G. Þórðarson. Málmsteypumenn: Gunnar Guðmundsson, Loftur J. Jóns- son. Klæðskerar: Friðrik Welding, Guðbjörn Jónsson, Guðm. V- Sigurðsson, Haraldur Ö. Sig- urðsson, Kristbergur Guðjóns- son. Gullsmiðir: Haukur Guðjóns- son, Jón Björnsson. Bólstrar: Guðm. H. Halldórs- son, Ingólfur A. Gissursson, Jó- hann E. Bjarnason. Jámsmiðir: Agnar J. Sigurðs- son, Andrés Bjarnason, Atli Halldórsson, Gunnlaugur P. Steindórsson. Ljósmyndari: Guðrún Guð- mundsdóttir. Veggfóðrari: Guðmundur J. Kristjánsson. Myndskeri: Friðrik M. Frið- leifsson. Tréskeri: Engilbert Ólafsson. Listmálari: Einar G. Baldvins son. Glerslípari: Benedikt I. Arn- kelsson. Ketilsmiðir: Auðunn G. Guð- mundsson, Stefán G. Jónsson.. Feldskeri: Stefán V. Þorsteins. son. Blikksmiður: Andrés Haralds; son. Netagerðarmaður: Gísli P. J6 hannsson. Bókbindarar: Arnkell Berg- mann, Ásgeir Ármannsson, Geir Þórðarson. Rafvirkjar: Ásgeir Sæmunds- son, Guðjón Kr. Eymundsson. Guðjón Ragnar Stefánsson. Guð> mundur Guðmundsson, Guð- mundur H Þórðarson, Hörður Ðavíðssun, Ingvar J. Guðjóns- son, Narfi Þorsteinsson. Rakarar: Auður Runólfsson, Eg'ill Valgeirsson, Kári Elías- son. Páll O. Kjartansson. Hárgreiðsludömur: Áslaug Jónsdóttir, Gunnlaug K. Guð- mundsdóttir, Ingunn Jensdóttir, Þórunn Björnsdóttir. Húsgagnasmiðir: Einar D. Davíðsson. Guðjón Árnason. Framh á 8 síðu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.