Þjóðviljinn - 02.06.1944, Síða 7
Föstudagur 2. júní 1944.
ÞJÓÐVILJINN
7
í
PHYLLIS BeNTLEY:
Halvor Floden:
ARFUR
SKÓLABÖRN.
I
jörðinni. Gunnar greíp hann og lamdi í kringum sig. J
Einn strákanna náði seinast í staurinn og tók hann af
honum. Þá réðust allir krakkarnir að honum og leituðu
í vösum hans.
Gunnar var svo hræddur, að hann gat varla hreyft
sig. Nú hlutu krakkarnir að finna tveggja krónu pen-
inginn. Og þá héldu allir að hann væri þjófur — og
mamma hans mundi gráta, þegar hún heyrði hann kall-
aðann það.
Hann fleygði fjöðrunum frá sér. Krakkarnir hópuð-
ust utan um þær, til að |tína þær upp, og þá komst Gunn-
ar á fætur.
En þá kallaði einhver: „Hann hefur annan unga í
vasa sínum. Eg fann þar eitthvað innan í bréfi“.
Gunnar lagði enn á sprett og krakkarnir eltu hann.
Honum sortnaði fyrir augum. Peningurinn! Enginn
mátti sjá peninginn. Hann hljóp niður brekkuna og
niður að ánni. Þegar hann kom fram á bakkann, fleygði
hann krónunum eins langt og hann gat út í hylinn. í
sama bili náðu krakkarnir honum. Nú varði hann sig
ekki. Hann bara lagðist niður á grúfu og hágrét.
Allt í einu var mamma hans komin. Hún spurði krakk-
ana, hvern af öðrum, hvað gengi að honum, en en'gihn
svaraði. Öll börnin skömmuðust sín og laumuðus’t burt.
„Hvað gengur að þér, Gunnar minn?“ spur.ði hún
blíðlega og klappaði á herðarnar á honum. Aldrei hafði
hann vitað það svona vel hvað mamma hans var góð.
Hann sagði við sjálfan sig, að hann skyldi aldrei fara í
neina skemmtiferð — aldrei fara að heiman frá henni.
Og svo sagði hann henni frá peningnum og öllu.
Þá kom kennarinn til þeirra. „Vertu ekki að gráta,
Gunnar litli. Þú færð að fara. Eg þekki mann, sem ætl-
ar að gefa þér föt“.
„Eg vil ekki fara. — Eg vil heldur vera heima hjá
mömmu“, sagði Gunnar kjökrandi.
„En út af hverju ertu þá að gráta?“
TfíttMÞETYA
„— Þjóðfélagið er eins og eim-
lest, sem þýtur áfram með alla
farþegana sofandi hvern í sínum
klefa. Það er sofandi ábyrgðar-
tilfinning, sem veldur því, að
engin sannindi ná til að festa
rætur í mannfélaginu. Væri þessi
svefn ekki staðreynd, mundi mót-
setningin milli tæknihraðans og
andlegra framfara ekki vera til.
Hver félagsleg hreyfing á við þá
erfiðleika að etja, að vekja þá,
sem sofa í lestinni.
María Montessori.
„ — Barnið er hinn eilífi Mess-
as, sem stígur niður til jarðarinn-
ar til að frelsa mannkynið frá
villu síns vegar“.
Emerson.
★
„Með því að gleyma heilag-
leikanum og sleppa hyggindun-
um, mundu menn verða hundrað-
fallt betri. Ef þeir hirtu minna
um kærleika og skyldur við ná-
ungann, mundi verða meira um
sanna velvild. —-------Ef hætt
væri að keppa um gróða, mundu
þjófar og ræningjar hvebfa.-----
Á frumöldunum tóku þjóðimar
ekki eftir konungum sínum.
Næstu kynslóðir unnu þeim og
töluðu vel um þá, síðan óttuðust
menn þá og loks fyrirlitu menn
þá. — — Engum er treyst iiema
hann beri traust til annarra.---
Þegar ættrækni hnignar, hafa
menn hátt um sonarskyldur og
föðurumhyggju.-------Þegar þjóð
er á fallanda fæti, talar hún mest
um hlýðni og hollustu við yfir-
völd landsins.-----“.
Lao-Tse.
★
„Þeir, sem meta sjálfan sig rétt
'og skynsamlega, eru hörunds-
sárir fyrir niðrandi ummælum".
Schopenhauer.
„Það er satt“, hvíslaði María
og byrgði andlitið við öxl har.s
„Jæja, fjandinn hafi það. Eg
skal borga yður það allt“, hróp-
aði Will.
Marta roðnaði: „Nei, þér þurf-
ið þess ekki. María er systir
þess besta manns, sem nokkurn-
tíma hefur fæðst í Iredalnum.
Henni er alltaf velkomið að
vera hjá mér og drengnum lika,
og það skal alltaf eitt yfir okkur
ganga“.
„En þetta er mitt hús“, bættl
hún við með kulda og virðu-
leik. „Viljið þér ekki gera svo
vel og fara út. Þér eigið konu
og barn heima og ættuð heldur
að vera þar“.
Will bölvaði sárt í hljóði, en
ástarvíman var runnin af hon-
um undir þessum reiðilestri og
hann skildi það fullvel sjálfur,
að hann varð að fara.
„Þetta er satt“, sagði hann
lágt við Maríu. „Eg má ekki
koma hingað framar. Vertu
sæl“. Hann kyssti hana að
skilnaði.
„Vertu sæll Will“ hvíslaði hún
og reikaði að stólnum við eld-
stæðið.
„Getið þér nú hafið yður af
stað?“ hvæsti Marta og gaf Will
olnbogaskot. „Ætlið þér að eyði
leggja hana alveg fyrir mér?“
Hann fór þegjandi en sneri
sér við í dyrunum, til að sjá
Maríu einu sinni enn. En hann
sá ekki andlit hennar, því
Martha laut niður að henni.
Hann gat ekki annað en hugs-
að til þess, að Jonathan hafði í
tólf ár alizt upp hjá konu, sem
hataði föður hans og leit á hann
sem morðingja Joe.
„Djöfullinn hafi allan Iredal-
inn“, sagði hann við sjálfan sig
um leið og hann gekk út.
Þegar hann kom út á heiðina,
steig hann af baki, lagði hand-
legg á makka hestsins, grúfði
andlitið niður í faxið og gaf
tilfinningum sínum lausan
tauminn.
Kirkjuklukkan í Marthwaite
sló sjö og vakti hann til skyn-
samlegrar athugunar. Hvað
skyldu þeir hafa tekið sér fyrir
hendur í verksmiðjunni á með-
an hann var í burtu? Hann hélt
áfram ferð sinni, kom við í
„Rauða ljóninu“ og drakk eitt
glas af öli. Þegar hann kom
heim, var Brigg að leika sér í
garðinum og hljóp á móti hon-
um.
„Þér er svo heitt, pabbi“
sagði drengurinn og horfði á
rautt og sveitt andlit föður síns.
„Er það furða?“ sagði Will
og stökk af baki. , Ertu búinn
að lesa?“
Brigg gekk í skóla í Marth-
waite, en honum leiddist það.
Hann sagðist ekki hafa lesið
neitt, en það hefði heldur eng-
inn hjálpað sér. Mamma þans 1
hafði verið þreytt og lagt sig
útaf. Og þegar hann kom til afa
síns, var gamli maðurinn að
sofna. Brigg benti heim að hús-
inu. Þar sat afi hans og blund-
aði í djúpum, stól undir hús-
hliðinni.
„Jæja, þá verð ég að hlýða
þér yfir sjálfur“, sagði Will.
„Hvenær, pabbi?“ hrópaði
hrópaði drengurinn glaður.
„Hvenær, hvenær, hvenær“,
sönglaði hann, eins og bífluga
væri að suða.
Þegar þeir komu að verk-
smiðjudyrunum, staðnæmdist
Brigg og sagði gramur: „Mamma
vill ekki, að ég sé þar“.
I Will varð feginn að losna við
hann. Það var eins og hann hefði
búizt við, að margt hafði orðið
að bíða þess, að hann kæmi.
I Honum var líka sagt að hann
! yrði að líta inn í spunahúsið
Þar vann sonur hans.
Jonathan stóð við glugga úti í
horni og var að vinna, Will
leit á hann og tók eftir því, að
hann var þreytulegur, fölur og
hafði dökka bauga kringum
augun. Hafði Martha ekki sagt.
að hann væri lasinn?
Um leið og Will gekk fram
hjá, heyrði hann, að maðurinn.
sem vann með Jonathan við vél
ina, hreytti út úr sér: „Geturðu
ekki gert þetta almennilega
asninn þinn?“ Það sem Jona-
than átti að gera var að stinga
þráðum inn í vélina á hverju
augnabliki. Þræðirnir máttu
ekki lenda á ská inn í vélina,
heldur alveg beint, annars varð
garnið ójafnt. En Will datt í
hug, að það væri ekki von að
drengurinn væri handstyrkur
og fingrafimur, eftir að hafa
staðið við þessa vinnu allan
daginn.
Hann gat heldur ekki varizt
þeirri hugsun, að hér hefði
irengurinn staðið í sömu spor-
um og gert sömu handtökin,
meðan hann reið sjálfur upp til
Moorcock, talaði við Maríu, fór
heimleiðis og hvíldi sig í
„Rauða ljóninu“.
Hann gekk sneyptur leiðar
sinnar. En í sama bili heyrði
hann manninn orga á ný:
„Bölvaður hvolpurinn þinn.
Geturðu aldrei gert eins og þér
er, sagt?“
Will sneri sér snöggt við. Jon
athan lá á gólfinu og maðurinn
stóð yfir honum með uppreitt
hamarskaft í hendinni.
„Ertu vitlaus?" kallaði Will,
stökk að manninum og sló hann
heljarhögg í höfuðið með
krepptum hnefa. Hann lagði
alla sorg sína, reiði og samvizku
kvöl í þetta högg, og maðurinn
féll endilangur á gólfið.
„Eg skal kenna þér það, að
berja ekki börnin í minni verk
smiðju. Burt með þig, og komdu.
aldrei hingað aftur“, öskraði
Will.
Maðurinn reis hægt á fætur.
„Drengurinn eyðilagði spunann
og einhver annar hefði verið
látinn gjalda þess. Það er ekki
mín sök að börnin vinna þang-
að til þau geta varla staðið“.
„Út. með þig! Farðu heim til
þín undir eins“, sagði Will.
„Eg fer hvert sem mér þókn-
ast. Það kemur yður ekki við“,
svaraði maðurinn og strauk
blóðið af kinninni.
Will gekk nær honum og leit
svo ógnandi á hann að hann
hörfaði aftur á bak. Hann gekk
út en leit um leið á félaga sína,
sem næstir voru, eins og hann
langaði til að spyrja þá hvern-
ig þeim litist á framkomu hús-
bóndans.
Þegar hann var farinn, sneri
Will ^ér snöggt. við og allir
mennirnir toku af kappi til
vinnu sinnar, ncma Jonathan.
Hann stóð í sömu sporum og
hafðist ekkert að.
„Á ég líka að fara heim?“
spurði hann svo varla heyrðist.
Þegar hann talaði svona lágt
minnti hann Will á Maríu og
honum hlýnaði um hjartaræt-
umar.
„Þú getur farið út og látið
Brigg lesa“, sagði hann.
Litla krossgátan
LÁRÉTT
1. sölnuð —.7. ás — 8- ‘'farinn — Hl-
þekkt ljóðskáld — 11. kveðið — 12.
— 14. bera — 16. votar — 18. bor — 19.
stafur — 20. athuga — 22. ös — 23.
spræna — 25. líffærinu.
LÓÐRÉTT
2. aðgangur — 3. felling 4. hsettá —
5. greinir — 6. tímamarks — 8. baun —
9. saurguð — 11. þrœldómur — 13. for-
föðurins — 15. þrælmenni — 17. sama og
10. lárétt — 21. vatnsfall — 23. ræð hús-
um — 24. stjórnleysi.
RÁÐNING KROSSGÁTBNNAR
í SÍÐASTA BLAÐI
Lirétt
1. rólfær — 7. fjáð — 8. S. R. — 10
Án — 11. kví — 12. ró — 14. gaman —
16. al'tar — 18. R. E. — 19. mön — 20.
tuv — 22. il — 23. fasi — 25. héraðs.
*
Lóðrétt
2. óf — 3. ljá — 4. fanga — 5. a-ð — 6.
þrímein — 8. svar — 9. framir — 11. km.
— 13. óföl — 15. armar — 17. tn. — 21.
ýsa — 23. fé — 24. ið.