Þjóðviljinn - 20.06.1944, Síða 1
VILJINN
9. árgangur.
Þriðjudagur 20. júní 1944.
Sósíalistafélag Reykjavíkur
heldur fund í kvöld kl. 8,30 að
Skólavörðustíg 19.
Sigfús Sigurhjartarson al-
þingismaður flytur framsögu-
132. tölublað. ræðu um stjómmálaviðhorfið.
Sveínn Björnsson kjörínn Syrsfí forsetí Islands
Ejri myndimar: Frá þingjundinum aö Lögbergi. Alþingismenn rísa
úr sœtum. Biskup jlytur rœðu. Neðst: Einar Olgeirsson jlytur rœðu
Forseti íslands jlytur rœðu á Reykjavílcurhátíðinni 18. júni. (Vignir).
Hátíðahöldin við stofnun lýðveldis á íslandi munu engum úr minni líða sem
átti þeirri hamingju að fagna að taka þátt í þeim.
Hámark hátíðarinnar var hinn sögulegi þingfundur 17. júní að Lögbergi á
Þingvelli sem hófst kl. 1.55, þar sem lýst var gildistöku lýðveldisstjórnarskrárinnar
og Sveinn Björnsson kjörinn fyrsti forseti fslands, en mannhafið umhverfis þingstað
inn fagnaði lýðveldinu. ' *
Forsætisráðherra setti hátíðina kl. 1.30 að Lögbergi, og áður en þingfundur
hófst, flutti biskup íslands, hr. Sigurgeir Sigurðsson ræðu, en sálmar voru sungnir
fyrir og eftir prédikun.
Forseti sameinaðs Alþingis, Gísli Sveinsson, setti þingfundinn með þessum
orðum:
„Þá er fundur settur í sameinuðu Alþingi, að Lögbergi á Þingvelli við Öxará.
Vegna þeirra merkilegu mála, er hér eiga að sæta fullnaðarmeðferð, hefur
Alþingi í dag með stjórnskipulegum hætti verið flutt af sínum venjulega samkomu-
stað í höfuðstað landsins til þessa fornhelga staðar, þar sem einatt áður dró til úr-
slita í tilverumálum hinnar íslenzku þjóðar.
Verkefni þessa fundar er tvíþætt, í samræmi við það, sem þegar hefur fullgert
verið og lög standa nú til, og er samkvæmt dagskrá fundarins ákvarðað þannig:
1. lýst gildistöku stjórnarskrár lýðveldisins íslands, ásamt öðru er þeim þætti
heyrir.
2. Kjörinn forseti íslands, er síðar vinnur eið að stjórnarskránni“.
Var gengið til dagskrár og tekið fyrir fyrra málið á dagskránni.
Forseti las þingsályktunina frá 16. júní um gildistöku lýðveldisstjórnarskrár-
innar og bætti við þessum orðum:
„SAMKVÆMT ÞVÍ SEM NÚ HEFUR GREINT VERIÐ, LÝSI EG YFIR ÞVÍ,
AÐ STJÓRNARSKRÁ LÝÐVELDISINS ÍSLANDS ER GENG^N í GILDI“.
Lýðveldisfáninn var dreginn að hún og eftir örstutta bið hófst klukknahring-
in, klukkan var tvö, og er hljómurinn þagnaði varð djúp þögn, menn lutu höfði,
snortnir hátíðleik og alvöru. Þegar þjóðsöngurinn rauf þögnina, er varað hafði eina
mínútu, fundu menn að þeir höfðu lifað eina þeirra stunda þegar öll tilvera þjóðar-
innar einbeitist, hugirnir samstillast í lotningu fyrir tímamótunum. Lýðveldi var end-
urreist á íslandi.
ÞAÐ SEM GERZT HAFÐI
UM MORGUNINN
Fyrsta hugsunin morguninn
17. júní hefur hjá flestum verið
hin sama: Veðrið. En það hafði
ekkert kraftaverk gerzt um
nóttina, himininn þungbúinn og
loftið þungt af regni. Þá að
taka því. Hátíðanefndin hafði
fullvissað þjóðina um að stofn-
un lýðveldisins á> Þingvelli færi
fram hvernig sem veðrið yrði
þennan merkisdag. Og svo hlaut
að verða.
Fremur var fámennt á götum
Reykjavíkur þennan laugar-
dagsmorgun. Fánaprýdd borgin
virtist nærri yfirgefin.
Alþingismenn og gestir Al-
þingis söfnuðust saman í Al-
þingishúsinu og kl. 9 hófst virðu
leg athöfn, þingmenn gengu
fylktu liði úr þinghúsinu að
styttu Jóns Sigurðssonar. For-
seti sameinaðs þings lagði blóm
sveig að styttunni og flutti
stutta ræðu, en að henni lok-
inni lék Lúðrasveit Reykjavík-
ur þjóðsönginn.
Frá athöfn þessari fóru ríkis-
stjóri, ríkisstjórn og gestir að
bílum og var ekið áleiðis til
Þingvalla. Bílaröðin virtist
Frh. á 4 síðu