Þjóðviljinn - 27.06.1944, Síða 7

Þjóðviljinn - 27.06.1944, Síða 7
'Þriöjudagui' 27. júní 1944. ÞJÓÐVILJINN 7 Elsa Beskov: UPPELDISVÉLIN. um. Þeir sögðu, að Pési gæti ekki fengið að vera í skól- anum lengur, því að aðrir drengir tækju eftir honum óþægðina. Meistari Gráskeggur varð ofsareiður. Hann fór að svipast um eftir Pésa og ætlaði að flengja hann ærlega. En Pési sást hvergi. Mtistari Gráskeggur gekk fram og aftur um stofuna í þungum þönkum. Stofan var fjörutíu álna löng og á henni voru tólf gluggar. Hann var að hugsa um, hvað | hann ætti að gera við Pésa> því að í bréfinu stóð greini- lega, að í öllu Kringluríki væri ekki 'til skóli, sem vildi hafa hann. En meistarinn hafði alls ekki tíma til að kenna Pésa sjálfur. Hann hélt áfram að ganga fram og aftur um gólfið, og í hægri hendi hélt hann á vendinum, sem hann ætlaði að flengja Pésa með, strax og hann kæmi í aug- sýn. En Pétur lá á grúfu undir borðinu og beið eftir því, að pabbi hans færi að hugsa um uppfinningar sínar. Þá var hann ævinlega úti á þekju og Pési bjóst við að geta forðað sér, án þess að hann tæki eftir. Allt í einu staðnæmdist meistari Gráskeggur og lagði lófann á ennið. Hann hafði fundið ráð. Honum hafði dottið í. hug að smíða uppeldisvél. Þá þyrfti hvorki skóla né kennara í Kringluríki framar og börnin yrðu menntuð og vel upp alin, án þess að for- eldrarnir þyrftu að grípa vöndinn. Annað eins hafði meistara Gráskegg aldrei dottið í hug. Hann snaraði sér að stóra skrifborðinu og fór að gera uppdrátt að vélinni. Pési gægðist fram undan borðin og ætlaði að skjótast burt, en rétt í því opnuðust dyrnar og þjónn tilkynnti, Meðal þekktustu ..gullgerðar- manna“ og undralækna á sín- um tíma var Spánverjinn St. Germain (Sumir segja að hann hafi verið frá Portúgal). Hann var fæddur í byrjun átjándu ald ar. St. Germain kom síðan fram á sjónarsviðið við helztu kon- ungshirðir Evrópu undir ýms- um nöfnum en allaf með greifa- nafnbót. Hann kvaðst geta ,,bú- ið til“ gull og gimsteina, gert kraftaverk og gefið gömlum konum aftur æskufegurð sína. Af þessum ástæðum naut hann hylli madame Pompadour og hún trúði á fegurðarmeðul hans. St. Gei’main dvaldi hjá þjóðhöfðingjum í París, Berlín og Pétursborg og vakti alls staðar jafn mikla hrifningu. Hann sagðist hafa fundið upp „lífs-eleksír“ og geta lifað eins lengi og hann vildi, enda kvaðst hann hafa þekkt Krist og post- ula hans persónulega og sankti Pétur hefði verið' sérstakur vinur sinn. Ökumaður „greifans“ var einu sinni spurður, hvort það væri satt, að húsbóndi hans væri fjögur þúsund ára gamall. Ökúmaðurinn hugsaði sig um. „Eg veit það ekki“, sagði hann seinast, „en ekki finnst mér honum hafa farið aftur þessi hundrað og þrjátíu ár, sem ég hef unnið hjá honum“. St. Germain kunni ýmisar listir sem styrkti menn í þeirri trú að hann væri kraftaverka- maður. Meðal annars skrifaði hann með báðum höndum í einu, jafnhratt og jafn vel, eft- ir því sem samtíðarmenn hans hafa um hann ritað. Ludvik fimmtándi fékk honum íbúð í höllinni Chambort og greiddi honum 100.000 franka í laun á ári. „Greifinn“ dó að síðustu 1 sóma og yfirlæti árið 1780 hjá vini sínum Karli greifa í Hess-' en-Kassel. Annar „greifi“ að nafni Cagl- iostro var óheppnari. Hann rak- aði saman fé með gullgerðar- fölsun og bjó til „lífs-elexir“, en var settur í ævilangt fang- elsi í Róm. Goethe og Dumas hafa gert hann frægan í skáld- verkum sínum. ir PHYLLIS BENTLEY: ARFUR tveir ultu í gólfið. reyndi að koma ofan í hann brennivíni, en hann skók höfuð- ið af öllum mæti og stundi hátt. Vissu þeir ekki að hann var bindindismaður? Síðan fann hann til ógurlegra kvala í fót- unum. Það var verið að draga af honum stígvélin. Köld og mjúk hönd var lögð á enni hans og hann heyrði þýða kvenrödd. En það var ekki móðir hans, sem var hjá honum. „Vesalings drengyrinn.11 Röddin var raunaleg og blíð. Hann leit upp og sá frítt og fín- gert konuandlit, stór, grá augu og ljóst hrokkið hár. Helena Singleton laut niður að honum og breiddi sængina þéttar að herðum hans og hálsi! Hann hreyfði höfuðið og kyssti hönd hennar með brennheitum vör- um. 3. Heima í New-House/ hafði ver ið búist við Jónathan um morg- uninn og gert ráð fyrir, að hann kæmi með næturvagni. En þeg- ar hann kom ekki, þá var hans vænzt um hádegi, því að þá var vagn á ferðinni. En Jónathan kom ekki. Wil var að hugsa um að senda Brigg til Annotsfield til þess að spyrja frétta. En Brigg hafði tekið sér fyrir hendur meiri háttar hreingerningu í litargerð inni og fengið einn Thorpe- drengjanna sér til hjálpar. Brigg sagðist ekki hafa tíma til að fara. Seinna um daginn komu tveir fátæklega klæddir menn til Syke Mill. Þeir sögðu að ekki væri ómaksins vert að taka upp vinnu í verksmiðjunni í dag. Jafnframt spgðu þeir þau tíð- indi, að Joth hefði flutt meist- aralega ræðu í York og að þeir hefðu síðast séð hann með Singleton presti. Will varð rólegur, þegar hann heyrði þetta og flýtti sér til Maríu til að segja henni það. Iiún sat hjá Brigg gamla. „Það lítur út fyrir að Joth hafi vakið mikla eftirtekt í York,“ sagði hann þurrlega. Það var óvíst, hvort hann var ánægð ur eða reiður, en María leit á hann innilega glöð Brigg gamli spurði önugur: „Er drengurinn ekki kominn?“ „Ekki enn,“ svaraði Will ró lega, eins og hann byggist við Jónathan á hverri stundu. En Jonathan kom ekki. Og þegar Will hafði heyrt það ell- efu, tólf sinnum, að Jonathan hefði flutt ágæta ræðu í York, var hann orðinn hinn versti og spurði verkamennina, sem komnir voru úr ferðalaginu, hvers vegna þeir hefðu svikizt um að líta eftir Joth. Einhver | Þeir afsökuðu sig með því, að þeir hefðu álitið að honum væri borgið, þegar þeir sáu hann hjá prestinum. Will reyndi að sannfæra bæði sjálfan sig og Maríu um, að Jonathan hefði orðið eftir í bænum, því að þar hefði átt að vera einhver annar fundur. En hann trúði þessu ekki sjálf- ur frekar en María. Því lengra sem leið á kvöld- ið því hræddari urðu þau um son sinn. Will og Brigg sátu einir að kvöldverði. María sat við ofn- inn og skalf af óró og kvíða. Þá var allt í einu barið að dyrum og maður úr spunahús- inu bað Will að tala við sig. Will gekk með honum út fyrir stofudyrnar og var sannfærður um að maðurinn kæmi til þess að segja honum lát Jonathans. „Nei, nei“, sagði maðurinn, því að hann sá hvað Will hugs- aði. „Svo illt er það ekki, herra Oldroyd. Hann er bara veikur, hefur hita og einhver sár á fót- unum. Singleton — presturinn í Eastgate-kapellunni, fór með hann heim til sín. Þar er nóg húsrými. Þau eru ein prestur- inn og systir hans. Ungfrú Singleton sagði að ég skyldi segja móður hans að þau skyldu gera allt sem hægt væri fyrir Jónathan og að hún þyrfti ekki að vera hrædd um hann“. „Er Joth dáinn?“ kallaði hás öldungsrödd. Will sneri sér við og sá Brigg gamla standa við stigauppgöng- una og styðja sig við handriðið. María heyrði hróp hans og kom út úr stofunni. Andlit henn ar var afmyndað af skelfingu. Will gætti einskis annars en hughreysta hana og gleymdi Brigg gamla alveg. Þegar hann loksins mundi eftir honum hafði Brigg hnigið niður í efsta stigaþrepinu og hallaði sér upp að handriðinu. Hann var náföl- ur í framan, greip andann á lofti og baðaði út höndunum. Will kallaði á Brigg og þeir báru gamla manninn inn í her- bergi hans og lögðu hann í rúm- ið. „Nú er úti um hann“, taut- aði Will. „Sæktu niömmu þína og biddu hana að koma með brennivín“. Will vakti yfir Brigg gamla um nóttina, en um morguninn reið hann til Eastgate, þar sem Singleton bjó. Singleton prestur og systir hans buðu Will inn í stofu, þar sem bókaskápar nær því huldu veggina. Presturinn skýrði Will í fám orðum frá mótinu í York og sagði, að Jonathan hefði lungna bólgu. Helena Singleton fylgdi Will upp á loftið, sýndi honum her- IWiÍÉÉilM. _ _ _ bergi Jonathans og skildi hann síðan einan eftir hjá syni sín- um. Jonathan lá á hliðinni, hreyf- ingarlaus og rjóður í kinnum. Will virtist lTann ekki sérlega þjáður, hann þekkti föður sinn og svaraði spurningum hans þurrlega eins og hann var van- ur. Will varð rólegur hvað heilsu hans snerti. En allt í einu lét Joth aftur augun og tautaði samhengis- lausar setningar. Will varð ó- rólegur og yrti á hann. Jona- than leit upp. Augnaráðið var flóttalegt og skilningslaust. Will andvarpaði og fór að hugsa um hvað hann ætti að segja móður hans. Og hvernig stóð á því, að þessi drengur hafði alltaf ver- ið svo einrænn og- þrályndur. Hvernig hafði honum dottið í hug að ganga til York og heim aftur, eins og hanp var fatlað- ur? Will stóð á fætur og ætlaði að fara. Þá datt honum allt í einu í hug, að hann hafði aldrei kysst son sinn. Hann laut nið- ur og kyssti brennheitt enni Jonathans. Hann kom auga á tvo gull- peninga á borðinu hjá lyfja- glasinu. Þá var honum nóg boð- ið. Litla krossgátan Lárétt: 1. gráta — 7. lifandi — 8. kall —- 10. titill — 11. espa — 12. jökull — 14. trylltar — 16. stig — 18. tveir samhljóðar — 19. illt umtal — 20. mint — 22. læti — 23. ekki notandi — 25. skreyta. Lóðrétt: 2. sund — 3. tæti — 4. ákveð — 5. einkennisstafir — 6. spyrni — 8. reykir — 9. ósannar — 11. líffæri — 13. rittæki r— 15. leysast — 17. stoppað — 21. magur — 23. fór — 24. tvisvar sá sami. RÁÐNING KROSSGÁTUNNAR I SÍÐASTA BLAÐI Lárétt: 1. bóngóð — 7. karp — 8. æt. — 10. mí — 11. átt — 12. t. d. — 14. námur — 16, fráir — 18. ræ — 19. lið — 20. B.P. — 22. úf — 23. bíar — 25. sítrón. Lóðrétt: 2. ok — 3. nam — 4 grini — 5. óp — 6. áttræð — 8. ætur — 9. út- flúr — 11. óm — 13. drif — 15 ár- bít — 17. áð — 21. par — 23. bý — 24. ró,

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.