Þjóðviljinn - 11.07.1944, Síða 1
ðtiskemmtun „Hringsins"
Afarmikil aðsókn var að skemmt
un Kvenfélagsms ,,Hringsins“ í
Hljómskálagarðinum um helgina.
Félagskonur höfðu líka lagt sig
mjög í líma til þess að allt gæti
farið þar sem bezt fram.
Eigi er enn vitað, hve mikill
hreinn ágóði af skemmtununum og
sölu merkja og happdrættismiða
Framhaid á 8. aiðti.
Rauðí hefíiin tekur Sloním og Lúmtnets
Hin stórkostlega sókn sovétherjanna heldur áfram
á allri víglínunni frá Litháen til Pripetfenjanna.
í sókninni inn í Litháen hafa náðst miklir árangr-
ar um helgina. í gærkvöld höfðu sovétherirnir umkringt
Vilnius, höfuðborg Litháen, og bardagar voru að byrja
í borginni sjálfri.
Sovétherjunum tókst í gær að rjúfa eina mikilvæg-
ustu samgönguleið Þjóðverja í Eystrasaltslöndunum,
járnbrautina milli Dvinsk í Lettlandi og Kovno í Lithá-
en, með því að taka járnbrautarbæinn Útsanie.
í dagskipunum sem Stalín birti FINNAR SKELKAÐIR
í gærkvöld tilkynnti hann töku
borgarinnar Slonim, sem er 50
km. suðvestur af Baramovitsi.
í sókninni til Pinsk tók rauði
herinn borgina Lúmínets, sem er
40 km. frá Pinsk. Er sóknin á þess-
um vígstöðvum mjög hröð, og hafa
Rússar tekið fjölda fanga og mikið
af hergögnum.
1 rússneskri frcgn segir fið Hitl-
í?r hafi flutt aðalstöðvar sínar frá
Austur-Prússlandi, lengra inn í
Pýzkaland. Framsveitir rauða hers
ins vovu í gær um 150 km. frá
landamærum Austur-Prússlands.
lands.
Hitler hefur gefið fyrirskipuif
xim að skjóta skuli hveru þann liðs
foringja, sem geri ráðstafanir til að
gefast upp, og hefur einnig hótað
að fjölskyldur þeirra liðsforingja
er það geri skuli fá að kenna á því.
í Helsinki ríkir þessa dagana
mikill órói og kvíði yfir hinni
hröðu framsókn Rússa, eftir því
sem Stokkhólmsfregnritari brezka
útvarpsins skýrir frá. Sérstaklega
eru menn kvíðafullir yfir sókn
Rússa til Eystrasalts, sökum hinn-
ar.miklu hættu, er vofir yfir þýzka
hernum í Finnlandi, ef sókn Rússa
verður ekki stöðvuð.
Aðalfundar Lelhfélags
Reykjavlkur
Aðalfundur Leikfélags Reykja-
víkur var haldinn nýlega. I vet-
ur hefur Leikfélagið sýnt sex leik-
rit við góða aðsókn, enda er fjár-
hagur félagsins góður, þótt það
hafi lagt í mikinn kostnað við upp-
setningu sumra leikritanna, svo
sem Péturs Gauts.
Á fundinum var stjórn félags-
ins kosin. Valur Gíslason, sem ver-
ið hefur formaður félagsins, baðst
undan endurkosningu, og var
Brynjólfur Jóhannesson kosinn
formaður í hans stað. Frú Þóra
Borg Einarsson var kosin gjald-
keri, en Ævar Kvaran ritari. í
nefnd til að vera í samráði við
félagsstjórnina í vali leikrita voru
kosnir: Gestur Pálsson og Jón
Aðils.
og sskja fran á ðllum vígstöðvum
Eftir langa og harða bardaga tókst Bandamönnum loks að
taka Caen að fullu um helgina. Sækja þeir nú frá borginni.
Bandamenn sækja fram suður eftir Cherbourgskaga og verður
nokkuð ágengt, þó er mótspyma Þjóðverja jafnan hörð. Flugvélar
Bandamanna hafa gert árásir bak við víglínu Þjóðverja.
Fulltrúi dðnsku leynihreyfingarinnar fer til Hoskva
Sovétstjómin hefur viðurkennt Frelsisráð Danmerkur, leyni-
stjóm frelsishreyfingar dönsku þjóðarinnar, að því er segir í
fregn frá danska blaðafulltrúanum.
Stjóm Sovétríkjanna fékk í apríl í vor tilmæli frá danska
|
frelsisráðinu um að veita móttöku fulltrúa ráðsins, og taka þann-
ig upp að nýju stjórnmálasamband milli Danmerkur og Sovét-
ríkjanna.
í tilmælum þessum leggur
frelsisráðið áherzlu á að slit
stjórnmálasambandsins 1941
hafi verið gegn vilja þjóðarinn-
ar og gert vegna mikillar þving-
unar af Þjóðverja hálfu. Síðan
29. ág. 1943, er danska ríkis-
stjórnin fer frá og Danakonung-
ur varð fangi Þjóðverja, er
danska Frelsisráðið eini aðilinn,
sem getur komið á sambandi
milli dönsku þjóðarinnar og Sov
étríkjanna.
Sovétstjórnin svaraði þegar
23. apríl að hún liti þannig á
að Frelsisráð Danmerkur sé nú
hinn eini opinberi stjórnarað-
Framhald á 8. síðu.
Bretar hafa unnið að því að
hreinsa til í Caen og sigrast á
einstökum hersveitum Þjóð-
verja þar. Þeir halda áfram
framsókn sinni frá borginni á
6 km. breiðri víglínu og hafa
sótt fram um 4 km. Sérstaklega
harðir bardagar standa um hæð
eina, sem nefnd er 112. Þjóðverj
ar eiga erfitt með undankomu
yfir fljótið, þar sem Bandamenn
hafa sprengt einu brúna, sem
liggur yfir fljótið á stóru svæði
Voru það Typhoonflugvélar,
sem gerðu það.
Bandamenn sækja suður eftir
Cherbourgskaga. Hafa þeir tek
ið nokkur þorp á leið sinni, en
mótspyrna Þjóðverja er afar
hörð.
Halifax lávarður sendiherra
Breta í Washington heimsótti
Eisenhower yfirhershöfðingja
Bandamanna í bækistöðvum
hans í Normandle í gær. Hali-
fax hefur nú verið gerður jarl.
Sjómenn I Veslmannaeyium
fengu aðalkröfu sinní framgengti
Samningar voru undirrilaðir í fyrradag
Deila síldveiðisjómanna í Vestmannaeyjum er leyst.
Samningar voru undirritaðir nokkru eftir háðegi s.l.
sunnudag milli fulltrúa sjómanna og atvinnurekenda.
Sjómenn fengu framgengt þeirri aðalkröfu sinni að
gilda skuli sama kaup á öUum bátunum, einnig tvílemb-
ingum.
Atkvæðagreiðsla fór tvisvar fram um miðlunartillögu
sáttasemjara og var hún samþykkt í seinna skiptið með
43 atkv. gegn 33.
Samningar þessir eru tfýímælalaust sigur fyrir síld-
veiðisjómennina, þar sem aðalkrafa þeirra náði fram að
ganga.
A
Þjóðviljinn mun innan skamms skýra nákvæmlega frá
deilu þessari.
Sandgerðisdeilan fyrir Félagsdómi
il Wuaoiianilli sflBiua tu ianl l snala
Mf oi aetlir l.h. urialijflaHlaialta
Dómamrnír voru ósammála
Félagsdómur kvað í gær upp dóm í máli því
sem Vinnuveitendafélag íslands f. h. Finnboga Guð
mundssonar gegn Alþýðusambandi íslands eða til
vara Alþýðusambandinu f. h. Verklýðs- og sjómanna
félags Gerða- og Miðneshrepps.
Alþýðusambandið var sýknað af kröfuð stefnanda,
en dæmt til að greiða f. h. Verklýðs- og sjómanna-
félagsins 1500 kr. skaðabætur, 200 kr. sekt og 300
kr- málskostnað.
Dómararnir voru ekki sammála, tveir töldu að
sýkna bæri félagið af skaðabótakröfunni og annar
þeirra taldi að sýkna bæri það með öllu.
í forsendum dómsins segir m. a. svo:
„Mál þetta er höfðað með
stefnu, dags. 7. maí f. á„ af
Vinnuveitendafélagi íslands f.
h. Finnboga Guðmundssonar,
útgerðarmanns gegn Alþýðu-
sambandi íslands f. h. Verka-
lýðs- pg sjómannafélags Gerða
og Miðneshrepps.
Tildrög máls þessa og máls-
atvik eru þessi:
Haustið 1942 kom til kaup-
deilu um kaup og kjör verka-
fólks í venjulegri verkamanna-
vinnu milli Verkalýðs sjómanna
félags Gerða- og Miðneshrepps
annarsvegar, sem hér eftir verð
ur nefnt Verklýðsfélagið. og
þriggja vinnuveitenda hinsveg-
ar, Hraðfrystihúss Gerðabát-
anna h.f., H.f. Miðness og H.f.
Garðs. Auglýsti verkalýðsfélag-
ið taxta 8. okt. 1942, en nefndiir
vinnuveitendur neituðu að fara
eftir honum og 4. jan. 1943 til-
kynntu þeir verklýðsfélaginu,
hvaða kaup þeir ætluðu að
greiða.
Þetta sama haust sagði verk-
lýðsfélagið einnig upp samningi
um kaup og kjör verkafólks í
venjulegri verkamannavinnu,
sem það hafði gert við Útvegs-
bændafélag Gerðahrepps 7. jan.
1942, en útvegsbændafélagið
virðist ekki hafa átt í neinum
samningum við verklýðsfélagið
þetta haust um endurnýjun þess
samnings.
Hinsvegar var þá í gildi og
er enn samningar milli verklýðs
félagsins og útvegsbændafélags-
ins ódagsettur, en að sögn
beggja aðilja frá 7. jan. 1942,
um hlutaskipti í vélbátum og
náði sá samningur til þeirra, er
störfuðu að útgerð bátanna, sjó-
manna og landmanna.
Hinn 12. jan. 1943 hafði enn
eigi komizt ái samkomulag í
Framh. á 5. síðu.