Þjóðviljinn - 10.11.1944, Blaðsíða 8
Næturlæknir er í læknavarðstof-
anni í Austurbæjarbarnaskólanum.
Sími 5030.
Næturvörður er í Laugavegsapó- 1
teki. ,
Næturakstur: B. S. í. sími 1540.
Ljósatími ökutælcja er frá kl. 4,50 I
að kvöldi til kl. 7.30 að morgni.
Útvarpið í dag:
20,25 Útvarpssagan (Helgi Hjörvar)
21,00 Strokkvartett útvarpsins: An-
dante og Allegro úr Kvartett,
Op. 12, í Es-dúr, eftir Mendel-
sohn.
21,15 Tónlistarfræðsla fyrir unglinga
(Robert Abraham söngstjóri).
son).
22,05 Symfóníutónleikar (plötur):
Systrafélagið „AIfa“. Samkvæmt
auglýsingu á öðrum stað í blaðinu
heldur Systraféiagið ,,Alfa“ sinn ár-
lega basar (til styrktar fyrir líkn-
arstarfið) sunnudaginn 12. nóvem-
ber kl. 2 e. h. í Félagsheimili verzl-
unarmanna, Vonarstræti 4
Frá félögunum
Framhald af 3. síðu.
ari, Árni Kjartansson, Ingi-
björg Agnarsdóttir-, Margrét Ól-
afsdóttir og Loftur Helgason
gengu úr stjórninni en Loftur
er formaður ’ róðrardeildarinnar
og á því sæti í stjórninni og
sömuleiðis Ólafur Þorsteinsson,
sem er formaður skíðadeildar-
innar.
í skíðamáium Ármanns er
mikið líf og hinn nýi skáli
þeirra það langt kominn að
hann verður vígður í byrjun'
desember. ♦
Á sumrinu fór félagið þrjár
ferðir um landið. Glímuför um
Austur- og Norðurland. Fim-
leikaför um Vestfirði og hnefa-
leikaför um Norðurland.
Knattspymufél. Fram.
Á aðalfundi Fram, sem hald-
inn var fyrir nokkru, voru þess
ir menn kosnir í stjórn félags-
ins: Formaður: Þráinn Sigurðs-
son, Sigurbergur Elíasson, Sæ-
mundur Gíslason, Jón Jónsson.
Guðmundur Magnússon. Þá var
einnig kosinn húsbyggingar-
sjóðsstjórn og voru kosnir í
hana þeir Ragnar Lárusson,
Guðm. Halldórsson og Matthías
Guðmundsson. Sjóðir félagsins,
húsbygginga- slysa- og vallasjóð
ir, hafa aukizt verulega á árinu.
Á fundinum var samþykkt að
leyfa konum inngöngu í félagið
og eru þegar hafnar æfingar fyr
ir þær í handknattleik.
Mikill áhugi ríkir í félaginu
fyrir hinu nýja æfingasvæði
sem félagið hefur fengið til af-
nota. Þá er áformað að halda
uppi miklu skemmtilífi í félag-
inu í vetur.
Víkingur.
Á aðalfundi hlutu kosningu í
stjórn: Gísli Sigurbjörnsson, ÓI
afur Jónssðn, Þorbjörn Þórðar-
son, Guðjón Einarsson og Thor
Hallgrímsson.
Áður'hefur verið getið hér í
blaðinu um vígslu skíðaskála
þeirra sem er vissulega merkis-
viðburður í starfsemi félagsins.
Knaítspyrnufél. Valur
heldur aðalfund sinn n. k.
mánudagskvöld 1 húsi K.F.U.M.
Iiiliiim Dauina 81-
arðssoa IM sié i Mli
Frú Davina Sigurðsson heldur hljómleika í Gamla Bíó í kvGÍd
kl. 11,30. Frúin he|ur dvalið hér á landi\í 10 ár, en er nú á förum
héðan heim til átthaga, sinna í Skotlandi, og verða þetta því
kveðjuhljómleikar hennar og síðasta tækifærið fyrir Reykvíkinga
til þess að hlusta á söng hennar.
Á söngskránni verða aríur úr óperum, skozk þjóðlög og ís-
lenzk lög. Undirleik annast Páll K. Pálsson.
Fréttamaður Þjóðviljans átti í
gær stutt viðtal við frú Davinu
Sigurðsson.
—- Þér eruð á förum héðan?
— Já, ég hverf bráðlega heim til
átthaga minna í Skotlandi.
— Hvað hafið þér dvalið lengi
hér á landi?
— Tíu ár.
í svörtum kjól, syngjandi kirkju-
aríur, en nú kemur hiin fram með
nvja söngskrá og verða þessir
hljómleikar jafnframt kveðjuliljóm
leikar, og munu ekki endurteknir;
ættu því tónlistarunnendur í bæn-
um að kaupa miða að söng hennar
í dag, áður en það er orðið of seint.
J. B.
Hatm n£jabii.
Æfintýri prinsessunnar 1
Fjörug gamanmynd með:
OLIVA DE HAVILLAND
ROBERT CUMMINGS
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
SYSTRAFÉLAGIÐ
ALFA
Systrafélagsins ,.Alfa“
verður haldinn sunnu-
daginn 12. nóv. kl. 2 e.
h. í Félagsheimili verzl-
unarmanna, Vonarstr. 4.
Stjórnin.
— Þér hafið sungið hér töluvert?
— Já, ég hef sungið í kór Tón-
listarfélagsins undir stjórn dr.
Urbantschitseh. Eg hef oftast
sungið kirkjumúsík, söng m. a. ein-
söngshlutverk i Jóhannesarpassí-
unni og Messías.
— Ilvað viljið þér segja um
starfið með Tónlistarfélaginu og
íslenzkt sönglíf?
— Samstarfið við dr. Urbantsch-
itsch hefur verið ágætt. Eg tel
það mikið liapp fyrir ísland að
hafa notið starfskrafta svo ágæts
tónlistarmanns sem hann er, hann
hefur framúrskarandi hæfileika, ó-
vcnjulegan dugnað og prýðilega
tónlistarmenntun.
Ég dáist að því hve margir á-
gætir söngkraftar eru hér í jafn-
litlum bæ og Reykjavík og hve
tónlistaráhugi er mikill.
— Þér fóruð í söngför um land-
ið s.l. sumar?
— Já, ég fór, ásamt Einari
Sturlusyni, í söngför um Norður-
og Austurland. Fáll Kr. Pálsson,
píanóleikari, sem er ágætur hljóm-
listarmaður, aðstoðaði okkur af
mikilli prýði. Okkur var alstaðar
ágætlega lekið, einkanlega á Akur-
eyri, en Tónlistarfélagið þar bauð
okkur að endurtaka tónleikana
fyrir styrktarmenn sina.
— Þér komið með nýja söng-
skrá nú?
— Já, hingað til hef ég alltaf
sungið kirkjutónlist og býst e. t.
v. við að Reykví'kingar geti ekki
hugsað sér mig öðru vísi en al-
varlega, í svörtum kjól. syngjandi
kirkjuaríur.
Nú ætla ég að syngja aríur, m.
a. úr Faust og fleiri óperum. Ég
ætla einnig að syngja nokkur ís-
lenzk lög og skozk þjóðlög.
— Hvernig hefur yður fallið við j
ísland og Islendinga? i
— Mér hefur fallið mjög vcl við
ísland og íslendinga. Á söngför-
inni s.l. sumar fékk ég í fyrsta sinni
tækifæri lil þcss að skoða landið,
og ég vildi óska að ég' hefði mátt
halda áfram að ferðast um það,
kynnast því. |
Þótt atvikin hagi þvi þannig,
að ég verði nú að hverfa héðan, þá
þykir mér það leitt, því mér hefur
fallið mjög vel vjð íslendinga og
ég fer héðan með söknuði.
Eins og frúin komst sjálf að orði,
liafa Reykvíkingar oftast séð hana‘1
HitáveitusÝjóri segir:
Eyðið ekki heita vatninu að óþörfu
\ Helgi Sipirðsson hitaveitustjóri kallaði blaðamenn á íund
sinn í gær og ræddi við þá nauðsyn þess, að bæjarbúar eyddu
ekki hitaveituvatninu að óþörfu. Lagði hann áherzlu á að menn
lokuðu fyrir innrennslin í húsin að næturlagi, þar sem geymam-
ir fylltust ekki að öðrum kosti og því ekki hægt að fullnægja
hitaþörfinni á daginn. Dæmi eru til þess að eytt hefur verið 150
—160 lítrum á sekúndu að næturlagi, en mesta eyðsla að degi
til hefur orðið 350 lítrar á sek.
Geymamir á Öskjuhlíðinni tæmdust kl. 7 í fyrrakvöld, en
í gærmorgun voru 4 geymamir fullir, en tæmdust kl. 5 síðdegis.
Fómst hitaveitustjóranum orð á þessa leið:.
Þegar um er að ræða nýtt fyrir-
tæki eins og Hitaveitu Reykjavík-
ur, sem ek'kert fordæmi er fyrir
annarsstaðar, er erfitt- að segja
fyrirfram í hve miklu frosti hún
myndi nægja. Þetta er undir svo
mörgum atriðum komið að reynsl-
an ein getur skorið úr því. Það
sem helzt kemur til greina er
vatnsmagnið og hversu sparlega er
með vatnið farið í húsunum, þ. á.
m. hvort vatnið er notað til ann-
ars- en hitunar.
Vatnsmagnið, sem nú er dælt í
bæinn, er h. u. b. 220 1. á sekúndu.
Er það nokkru meira en það vatns-
magn, sem talið var þurfa, en hins
vegar nokkru minna cn álitið var
vera fyrir hendi. Látlaust er unn-
ið að því að auka það, én um ár-
angur verður ekki sagt fvrr en
jafnóðum.
Notkun vatnsins er hinsvegar
mun meiri en áætlað hafði verið.
Verður að telja að sum sú notkun
Sé með ölhi óþörf. Eyðsla að nótt\u
til er t. d. miklu meiri en nokk-
urí'i átt gietur náð, að þörf sé á.
Þetta leiðir aftur til þess, að í
frostum verðui' að tempra vatns-
rennslið í bæinn að nóttunni til
að geta fyllt geymana á Oskju-
hlíð. En því eru samfara margs-
konar óþægindi og reksturstruflan-
ir. Enda kemur temprunin ekki
að fullu haldi, því að vegna óþarfr-
ar nætureyðslu fer, þrátt fyrir
hana, vatn til spillis, sem ella gæti
komið að haldi að deginum. Er
því alvarlega skorað á menn að
loka fyrir hitaveituna hjá sér á
kvöldin og opna hana á morgnana
ekki fyrr en þörf er á.
Þá er vitað, að fjölda margir
menn hafa óþarflega heitt hjá sér,
stilla hitanotkunina í mildu veðri
ekki nægilega eftir veðurlagi og
verður því hitafrekari en ella, sem
kemur svo sjálfum þeitn og öðr-
um í koll í kuldum.
Heita vatnið er að sjálfsögðu
mjög mikið notað til uppþvotta,
baða og jafnvel neyzlu. Er ekki
nema gott um þetta að segja, að
öllum jafnaði, þó að í áætlunum
hafi verið ráðgert að menn fengi
eingöngu afrennslisvatn til þess-
ara nota. Frá þeim áætlunum var
horfið bæði vegna þess, að vegna
kostnaðar og mannfæðar var erf-
itt að framkvæma þær, og að
venjulega er miklum mun ])ægi-
legra að nota heita vatnið bcint.
En í frostum^er nauðsynlegt nð
menn dragi úr þessari notkun eftir
ýtrustu getu. Því lengur dugar
vatnið til hitunar.
Fleiri atriði koma hér til greina.
Menn verða að muna að fyrirtæk-
ið er enn á tilraunastigi, og langt
frá því að allt sé komið í það liorf,
sem að lokum verður. En full á-
stæða er samt til að vænta, að ef
almenningur og stjórnendur fyrir-
tækisins leggjast á eitt um að sjá
fjVirtækinu borgið, þá muni hita-
veitan duga til upphitunar fvrir
allt hitaveitusvæðið nema í því
meiri frostum. En af hálfu stjórn-
enda hitayeitunnar er það m. a.
til athugunar hvort ekki sé unnt,i
ef þörf reynist, að koma því svo
fyrir, að fyrst verði tekin upp
kolakynding í stórhýsum, þar scm
hún ér hægari, svo að vatnsleysið
verði öllum almenningD síður til
baga.
UARNAjvBÍÓ CSips
Sonur greifans
af Monte Ctiristó
LOUIS HAYWARD
JOAN BENNETT
GEORGE SANDERS
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
gamanleikur eftir franska
skáldið Alfred' Savoir.
Frumsýning í kvöld kl. 8
UPPSELT '
NB. Fastir gestir að 2. sýn-
ingu (sunnudagssýningunni)
eru vinsamlega beðnir að
vitja aðgöngumiða sinna í
dag kl. 4—7 annars eiga þeir
á' hættu að miöarnir verði
seldir öðrum.
I. O. G. T.
BAZ4R
Hinn árlegi bazar verð-
ur í Gi. T.-húsinu í dag
og hefst kl. 3 e. h. Margt
góðra og eigulegra hluta
eins og venjulega.
Nefndin.
Enskt ullartau
Drengjafataefni
\
ERLA
Laugaveg 12.
Allskonar viðgerðir
framkvæmdar
Dvergasteinn
Haðarstíg 20. Sími 5085.
Háskólafyrirlestur á sænsku. Pet-
er Hallberg flytur í kvöld kl. 8,30
I í í. kennslustofu háskólans fyrir-
■ lestur um sænska skáldið Hjalmar
■ Gullberg, og er það fjórði fyrirlest-
urinn um sænsk skáld á ófriðar-
árunum. Öllum er heimill aðgang-
ur.
Flugmálaráðstefnan hafin.
Fulltrúar íslands mættir
AlþjóðaTlugrnálaráðstefnan kom
saman í Chieago í. þ. m'„ og eru
þar saman komnir fulltrúar 51
þjóðar. Af Islands hálfu mættu á
þessum fyrsta fundi þeir Thor
Thors sendiherra, formaður ís-
lenzku sendinefndarinnar, og Agn-
ar E. Kofoed-IIansen, flugmála-
ráðunautur. Var Thor Thors kos-
inn í nefnd þá, er ákveður fundar-
sköp ráðstefnnnnar.