Þjóðviljinn - 11.11.1944, Side 2
2
ÞJÓÐVILJI N N
Laugardagur 11. nóvember 1944.
-v
,,Kalt er við kórbak“
„Braggabúi" skrifar mér: „Það
hefur verið kalt þessa dagana eða
svo finnst okkur sem verðum að
hýrast í hinu svokallaða bráða-
birgðahúsnæði. Eg veit ekki hvort
menn gera sér yfirleitt ljóst, hvað
teflt er mikið í tvísýnu með líf og
heilsu þess fjölda fólks sem býr í
bröggum hér í Reykjavík. Eftir nýj-
vstu skýrslum að dæma er tala
þessa fólks hvorki meira né minna
en eitt þúsund, þar af um 400 börn.
Eg vildi nú mega skjóta þeirri
tillögu til heilbrigðisyfirvaldanna
hér í bænum að þau hefðu alveg
sérstaklega nákvæmt eftirlit með
heilsufari þessa fólks í vetur, því
það má öllum ljóst vera sem eitt-
hvað þekkja til bragganna að þeir
eru algerlega óhæft húsnæði fyrir
heilsuveilt fólk, ef það þarf að mæta
hörðum vetri.
Þessu eftirliti með heilsufari okk-
ar braggabúanna mætti haga þann-
ig, að sjúkrasamlagslæknarnir hús-
vitjuðu í bröggunum á hálfsmánað-
arfresti eða svo, og fylgdust vand-
lega með heilsufari fólksins. Sæu
þeir að eitthvað ætlaði að bregða
útaf með heilsufarið vegna lélegs
húsnæðis yrðu þeir að gera aðvart,
og skal þá ekki öðru trúað að ó-
reyndu en yfirvöld bæjarins gerðu
viðeigandi ráðstafanir til að bjarga
þeim mannslífum er læknar bæjar- !
ins teldu í hættu, vegna slæmrar
aðbúðar."
Þekkir unga fólkið ekki
vinsælustu ríthöfunda
þjóðarinnar?
„Vegfarandi" skrifar mér eftirfar-
andi um atvik sem kom fyrir hann
nýlega og varð hoáum nokkurt um-
bugsunarefni:
„Fyrir fáum dögum síðan gaf að
lita í sýningarglugga Bókaverzlunar
Sigfúsar Eymundssonar, heildarút-
gáfu af ritverkum Einars H. Kvar-
ans, ásamt stækkaðri ljósmynd af
höfundinum, einmitt sömu myndinni
og algengast hefur verið að sjá í
n
HTT
CL
Hel$í
Tekið á móti flutningi
til Vestmannaeyja árdegis
í dag.
Vönduð húsgögn
til sölu.
Tvíbreiður ottoman með
tveim pullum.
Standlampi.
Eikarborð.
12 manna matarstell, fall-
egt.
MJÖG ÓDÝRT.
Bragagötu 32, fyrstu hæð,
í dag.
blöðum og tímaritum undanfarin ár
Eitt kvöldið sem myndin var þarna,
varð mér gengið framhjá gluggan-
um. Á undan mér fóru tveir karl-
menn á að gizka milli tvítugs og
þrítugs. Þeim var litið í gluggann
eins og mér og sáu myndina af Ein-
ari H. Kvaran. Heyrði ég þá annan
þeirra segja: „Hvaða karl er nú
þetta?“ Ekki gat félagi hans svarað
því og héldu þeir þá áfram.
Um það verður ekki deilt, að
Einar H. Kvaran er einn þeirra
rithöfunda okkar sem náð hafa
mestum vinsældum hjá alþýðu
þessa lands. Minnist ég þess að fyr-
ir fáum árum lét bókavörður við
eitt stærsta bókasafn landsins hafa
það eftir sér, að Einar H. Kvaran
væri mest lesinn innlendra höfunda,
af þeim er bækur fengju léðar hjá
safninu.
Ef þetta atvik sem ég var að segj a
fró, mætti taka sem mælikvarða á
bókmenntalega þekkingu ungu kyn-
slóðarinnar í Reykjavík. þá gæti
maður hugsað sér að hún vissi ekki
mikið um tilveru þeirra rithöfunda
íslenzkra sem náð hafa minni vin-
sældum en Einar H. Kvaran.
Við íslendingar stærum okkur af
því að vera bókmenntaþjóð, og veit-
ist létt að færa rök fyrir þeirri full-
yrðingu. Nú getur enginn vafi leik-
ió á því, að til þess að bera það
nafn með réttu þurfum við að
þekkja og vita einhver deili á okkar
vinsælustu og víðlesnustu skáldum".
Bæjarpósturinn vill gera þá at-
hugasemd við þetta bréf, að þó hinjr
ungu Reykvíkingar er um ræðir í
bréfinu þekktu ekki mynd af Ein-
ari H. Kvaran, enda þótt hún væri
stækkuð, þá er ekki ^lveg vonlaust
að þeir hefðu kannast við nafnið.
Samvinna um dreifingju
blaðanna
Margir lesendur Þjóðviljans kvarta
yfir því að þeir fái blaðið óreglu-
iega, jafnvel að líði hálfar og heil-
ar vikur án þess þeir sjái blaðið.
Það er eðlilegt að kaupendur blaðs-
ins séu ekki ánægðir yfir slíkri ó-
reiðu og vissulega er blaðaútgáfa
unnin fyrir gíg ef blöðin komast
ekki reglulega til lesendanna. Mönn
um verður þá fyrst fyrir að snúa
sér til afgreiðslu blaðsins með kvart
anir sínar og er það eðlilegt. En
lesendurnir verða að gera sér ljóst
að rheð aðfinnslum einum fá þeir
litlu áorkað, því óregluleg afgreiðsla
á blaðinu stafar ekki af öðru en
erfiðleikum á að fá nægilega mörg
börn til að bera blaðið til kaup-
enda. Vitanlega væri æskilegt að
afgreiðslur blaðanna hefðu sam-
vinnu um dreifinguna, þannig að
sama barnið eða unglingurinn bæri
út öll blöðin í sama hverfið. Mundi
starfið þá geta verið betur borgað,
þó sporin yrðu litlu fleiri. Sömu-
leiðis mundu blöðin, sem öll eru í
hreinustu vandræðum með dreifing-
una, þá sjá fram úr þeim vanda.
Og síðast en ekki sízt. Þeir mörgu
kaupendur dagblaða í Reykjavík
sem sárt kvarta um vanskil á blöð-
unum, mundu fá úr því bætt.
En því miður stendur víst eitt-
hvað í veginum íyrir, að þessi
samvinna miili blaðanna megi tak-
ast og verður því að leita annarra
úrræða.
Sýnist ekki annað ráð vænna en
að kaupendur blaðsins hafi sem
r.ánast samstarf við afgreiðsluna
með því að taka sig til og útvega
unglinga til að bera út blaðið. Er
enginn vafi á því að lesendurnir
sjálfir geta létt þar miklum erfið-
leikum af afgreiðslunni og t.-yggt
sér um leið góð skil á blaðinu.
Verkaskiptisg ríkis-
stjórnarinnar
Vcgna þess að jjölmargir lesend-
ur Þjóðviljans hafa óskað eftir að
birt yrði nákvœmlega verlcaskipt-
ing hinnar nýju ríkisstjórnar, verð-
um við nú við þeim tilmœlum og
birtum hana hér á eftir.
1. Forsætisráðherra, Ólafur
Thors. Undir hann heyra eftir-
greind mál: Stjórnarskráin, Al-
þingi, nema að því leyti, sem öðru-
vísi er ákveðið, almenn ákvæði
um framkvæmdastjórn ríkisins,
skipun ráðherra og lausn, forsæti
ráðuneytis, skipting starfa ráð-
herranna, mál, sem snerta stjórnar
ráðið í heild. Utanríkismál.
2. Ráðherra Áki Jakobsson.
Undir hann heyra sjávarútvegs-
mál (síldarverksmiðjur og síldarút-
vegsnefnd), Fiskimálanefnd, Lands
smiðjan, Atvinnudeild Háskólans,
Rannsóknarráð ríkisins, flugmál.
3. Ráðherra Brynjólfur Bjarna
son. Undir hann heyra kennslu-
mál, þar undir skólar, sem ekki
eru sérstaklega undan teknir, út-
varpsmál og Viðtækjaverzlun,
barnaverndarmál, Menntamála-
ráð, leikhúsa- og kvikmyndamál.
Ríkisprentsmiðjan.
4. Ráðherra Emil Jónsson.
Undir hann heyra kirkjumál, sam-
göngumál, þar undir vegamál,
skipagöngur, póst- og símamál,
loftskeytamál, vitamál, hafnar-
mál, mælitækja- og vogarmál, raf-
magnsmál þ. á. m. Rafmagnseftir-
lit ríkisins og raf,veitur ríkisins,
iðnaðarmál, þar undir iðnskólar,
iðnaðarmál, iðnfélög. Einkaréttar-
leyfi. Vatnamál, þar undir sérleyfi
til vatnsorkunotkunar.
5. Ráðherra Finnur Jónsson.
Undir hann heyra dómaskipun,
dómsmál, þar undir framkvæmd
hegningardóma, hegningarhús og
fangahús, tillögur um náðun, veit-
ing réttarfarslegra leyfisbréfa, mál-
flutningsmenn, lögreglumálefni,
þar undir gæzla landhelginnar, á-
fengismál, strandmál, sifjaréttar-
mál, erfðaréttarmál, persónurétt-
armál, eignarétt.armál, yfirfjárráða
mál, lög um kosningar til Alþing-
is og kjördæmaskipting, umsjón
um framkvæmd alþingiskosninga,
llojlliia eia rosiið fðlft
vantar okkur nú þegar til að bera Þjóðviljann til
kaupenda í eftirtöld bæjarhverfi:
Framnesvegur,
Bræðraborgarstígur
Ásvellir
T j arnargata—Hringbr aut
Sogamýri
Sósíalistar! Hjálpið til að útvega fólk til að
koma blaðinu skilvíslega til kaupenda. Talið við
afgreiðsluna.
ÞJÓÐVILJINN
Skólavörðustíg 19. Sími 2184.
ríkisborgararéttur, útgáfa Stjórn-
artíðinda og Lögbirtingablaðs. Fé-
lagsinál, þar undir styrktarstarf-
semi til berklasjúklinga, sem haldn
ir eru langvinnum sjúkdómum,
sjúkrasjóðir, ellistyrktarsjóðir, ör-
y.rkjasjóðir, slysatryggingarsjóðir,
nema sérstaklega séu undan tekn-
ir. Bvggingarfélög. Heilbrigðismál,
þar á meðal sjúkrahús og heilsu-
hæli. Verzlunarmál, sem ekki eru
í úrskurði þessum falin öðrum ráð-
herra, þar undir verzlunarskólar,
verzlunarfélög, kaupfélög og sam-
vinnufélög.
(i. Ráðherra Pétur Magnússon.
Undir hann heyra fjármál ríkisins,
þar undir skattamál, tollmál og
önnur mál, er snerta tekjur ríkis-
sjóðs, svo sem ef verzlun er rekin
til að afla ríkissjóði tekna. Undir-
skrift ríkisskuldabréfa. Fjárlög,
fjáraukalög og reikningsskil ríkis-
sjóðs. Hin umboðslega endurskoð-
un. Embættisveð. Eftirlit með inn
heimtumönnum ríkisins. Laun em
bættismanna. Eftirlaun, lífeyrir
embættismanna og ekkna þeirra.
Peningamál, þar undir peninga-
slátta. Yfirleitt fer þessi ráðheira
með öll þau mál, er snerta fjár-
hag ríkisins eða landsins í heild,
nema þau eftir eðli sínu eða sér-
stöku ákvæði heyri undir annan
ráðherra. Hagstofa íslands. Mæl-
ing- og skrásetning skipa. Ennfrem
ur viðskiptamál, þar undir inn-
flutningsverzlun og utanríkis-
verzlun, bankamál og sparisjóðir.,
gjaldeyrismál, verðlagsmál (dýrtíð
arráðstafanir). Landbúnaðarmál,
þar undir ræktunarmál, þar á m.
skógræktar- og sandgræðslumál,
búnaðarfélög, búnaðarskólar, garð-
yrkjuskólar, húsmæðraskólar, dýra
lækningar, þjóðjarðamál.
Ráðherrafundi skal halda um ný
mæli í lögum og um mikilvæg
stjórnarmálefni. Svo skal og ráð-
herrafund halda, ef einhver ráð-
herra óskar að bera þar upp mál.
Með úrskurði þessum er úr gildi
fallin konungsúrskurður frá 29.
desember 1924, um skipun og
skipting starfs ráðherra o. fl., með
orðnum breytingum.
MUNIÐ
Kaffisöluna
Hafnarstræti 16
Glímufélagíd ARMANN
Æfíngatafla 1944-1945
Allar íþróttaæfingar verða í íþróttahúsinu við Lindargötu.
í stóra salnum:
Tímar Mánudag Þriðjudag Miðvikudag Fimmtudag Föstudag Laugardag
7—8 II. fl. karla A II. fl. kvenna A Handknattl. karla II. fl. karla A II. fl. kvenna A Handknattl. karla
8—9 I. fl. kvenna I. fl. karla íslenzk glíma I. fl. kvenna I. fl. karla íslenzk glíma
9—10 II. fl. kvenna B II. fl. karla B I. fl. karla II. fl. kvenna B II. fl. karla B
í minni salnum:
7—8 Old boys Telpur fimleikar Old boys Telpur fimleikar
~r 8—9 Drengir fimleikar Handknattl kvenna Drengir fimleikar Drengir fimleikar Handknattl kvenna Drengir Handknattl
9—10 Hnefaleikar Frjálsaríþróttir Hnefaleikar Hnefaleikar Frjálsariþróttir Hnef aleikar
Glímuæfing drengia er á sunnudögum kl. 11—12 árd. Handknattleikur karla á sunnudögum kl. 1 2
e. h. og Handknattleikur kvenna á sunnudögum kl. 2—3 e. h.
Sundæfingar eru í sundlaugunum á þriðjud. kl. 8—9 og í Sundhöllinni á mánud. og miðvd. kl. 9 10.
Sundknattleikur á fimmtud. og föstud. kl. 10—10.40 í Sundhöllinni.
Nýir félagar láti innrita sig á skrifstofu félagsins í íþróttahúsinu (niðri), sími 3356; hún er opin dag-
lega frá kl. 8—10 e. h. Þar fá menn allar upplýsingar viðvíkjandi félagsstarfseminni. Ármenningar!
Munið að greiða félagsgjaldið strax.