Þjóðviljinn - 23.11.1944, Blaðsíða 1
á
9. árgangur. Fimmtudagur 23. nóv. 1944. 236 tölublað
18. þing Alþýðusambands íslands
ÞtiroiAir Guðnuiai fn mbb
Varaforsetar: Hermann Gudmundsson og Hanníbal
, Valdimarsson — 208 fullgíldír fulltrúar rnættír í gær
Franska stjómin fær
einn milljard dollara -
Nú, þegar stjórn Bandaríkjanna
hefur veitt stjórn de Gaulles við-
urkenningu, fá Frakkar aftur full
umráð yfir inneignum sínum í
Bandaríkjunum. — Nema þær
meir en einum milljarð dollara.
Bandaríkin tóku upp þá reglu,
er Þjóðverjar óðu yfir mestalla
Evrópu, að kyrrsetja (,,frysta“)
peningainnistæður og önnur verð-
mæti svo sem hlutabréf, sem hin
hernumdu ríki .áttu í Bandaríkj-
unum, til að Þjóðverjar eða lepp-
stjórnir þeirra næðu ekki í þær.
Þetta var sjálfsögð og lofsverð
ráðstöfun, en óþarfur dráttur virð-
ist hafa orðið á að afhenda stjóm
de Gaulles fé Frakklands.
Fundur hófst í Alþýðusambandsþinginu kl. 10 í gær-
morgun og stóðu fundir yfir með matar- og kaffihléi til
kl. 7 í gærkvöld.
Fram fór kosning forseta þingsins og var Þórodd-
ur Guðmundsson, Siglufirði, kosinn með 105 atkvæðum,
en Finnur Jónsson, ísafirði, fékk 101 atkv.
Kosning fór einnig fram á 1. varaforseta þingsins,
kosið var milli Hermanns Guðmundssonar Hafnarfirði
og Hannibals Valdimarssonar ísafirði, en talningu at-
kvæða var frestað.
208 fullgildir fulltrúar sátu þingið í gær, en óút-
kljáð er enn með kjörbréf nokkurra fulltrúa, sem sam-
komulag varð ekki um hvort tekin skyldu gild og stóðu
allmiklar umræður um það í gær.
Þinginu bárust í gær heillaóskir frá Farmanna- og
fiskimannasambandi íslands og Iðnnemasambandi ís-
lands.
Fundur hefst í dag kl. 4 e. h.
Fundur hófst í gær með þvi
að kjörbréfanefnd skilaði störf-
um. Ágreiningur hafði orðið í
nefndinni um gildi nokkurra
kjörbréfa, frá félögum sem kos-
ið höfðu eftir að löglegur kosn-
ingafrestur til þingsins var út-
runninn. Lagði meiri hluti
nefndarinnar, þeir Sigurður Ól-
afsson og Marteinn Sigurðsson,
fil að fulltrúum þessara félaga
yrðu veitt full réttindi, en
minni hlutinn, Þorsteinn Péturs
son, lagði til að lög sambands-
ins yrðu höfð í heiðri, en að
þessum fulltrúum yrði veittur
þingseturéttur með málfrelsi og
tillögurétti, án atkvæðisréttar.
Það mun koma fyrir á flest-
um þingum að einhver ágrein-
ingur verði um kjörbréf. Það
■vakti því ekki litla furðu, eink-
um fulltrúanná' utan af landi,
sem ekki er að fullu kunnugt
háttemi vissra manna hér, þeg-
ar atvinnurekandinn Sæmund-
ur Ólafsson notaði þenna á-
greining sem átyllu til þess að
hiella sér með stráksfegum
hrakyrðum yfir samstarfsmenn
sína í Alþýðusambandsstjórn-
inni' og til að bera hinar
þyngstu aðdróttanir og brigzl á
■starfsmenn sambandsins.
Starfsmenn sambandsins, þeir
Jón Rafnsson og Guðmundur
Vigfússon svöruð'u Sæmundi
Ólafssyni mjög hógværlega og
sýndu fram á að fullyrðingar
hans og aðdróttanir voru stað-
leysur einar.
Ræður þeirra Hannibals
'Valdimarssonar og Sigurjóns
Ólafssonar vöktu einnig furðu.
Fulltrúar utan af landi, sem
komnir eru hingað um langan
veg, undruðust að menn þessir
skyldu halda pólitískar æsinga-
ræður, þeir líta svo á, að þetta
þing sé haldið til þess að fjalla
um hagsmuna- og menningar-
mál íslenzkrar alþýðu, en ekki
til þess að slíkir „fulltrúar" fái
tækifæri til þess að þjóna lund
sinni. Hinir mörgu heiðarlegu
flokksmenn þessara manna,
sem umfram allt vilja samstarf
um velferðarmál verkalýðsins,
munu hafa liðið önn fyrir fram
komu þeirra.
Sæmundur Ólafsson og hans
„sálufélagar“ (svo notuð séu
hans eigin orð) börðust hatram
lega gegn því að Verkamanna-
fél. Dyrhólahrepps yrði tekið í
Alþýðusambandið, en vildu
neyða þetta félag, sem telur 56
meðlimi til þess að vera í Vík-
ur-félaginu sem er í öðrum
hreppi, en það hefur þráfald-
lega gengið á réttindi Dyrhóla-
hreppsmanna. — Hliðstætt væri
að skipa Hafnfirðingum að vera
i Dagsbrún.
Samþykkt var með 102 atkv.
gegn 85 að veita fulltrúum
tveggja félaga er ólöglega höfðu
kosið, þingsetu með málfrelsi
og tillögurétti, en vegna mál-
þófs þess er Sæmundur Ólafs-
son var forustumaður fyrir,
vannst eigi tími til að ganga
frá öllum kjörbréfum í gær.
Forseti þingsins var kosinn
Þóroddur Guðmundsson með
Framh. á 8. síðu.
Peter Freuchen á
leið til Grænlands
Hinn kunni danaki GrœnUmds-
fari og rithöfundur, Peter Freu-
chen, er kominn tíl London frá
Stokkhólmi.
Hann er á leið til Washington,
en þar ætlar hann að fá leyfi til
að fara til Grænlands.
Hann ætíar líka að fá leyfi til
að flytja nokkur Alaska-hreindýr
til Grænlands.
Hann ætlar að fara' aftur til
Danmerkur jafnskjótt og hún er
frjáls.
MilHn íi inillMaM
v
Bandaríkjanenn hafa eytt allri mótspyrnu í Eschweiler
Frakkar hafa tekið borgina Mulhouse í Elsass- j
Lothringen. Eru þeir komnir góðan spöl framhjá borg- !
inni og eru komnir norður að Colmar.
Allri mótspyrnu Þjóðverja er lokið í Metz, — sömu-
leiðis í Eschweiler, — á milli Aachen og Kölnar.
Mulhouse er rnerk iðnaðarborg
með 100.000 íbúa. Þar var allt for-
ingjaráð 19. hersins þýzka hand-
tekið.
Sókn • Bandamanna er svo hröð
í Norður-Frakklandi, að þýzki her-
inn er að klófna í smáparta, scm
sumir eiga ekki undankomu von,
svo sem sá parturinn, sem er ná-
lægt Belfort. •
F.F.I. sameinast
franska hernum
Fvrir nokkru síðan náðist sam-
komulag um að sameina franska
heimaherinn hinum reglulega
franska her. — Foringjar heima-
hersins halda sömu tign og for-
ingjaráð hans sameinast foringja-
ráði hins. — Yfirherstjórn heiina-
hersins verður ráðgjafanefnd her-
málaráðuneytisins.
Delmas hershöfðingi, fulltrúi
mótspyrnuhreyfingarinnar, á að
sjá uni sameininguna, og i hans
þjónustu verða eftirlitsmenn, út-
nefndir af mótspyrnuhreyfingunni.
Eiga þeir að ferðast um landið og
ha-fa eftirlit með sameiningunni,
sérstaklega þó að fylgjast með
starfsemi herskólanna.
7. bandaríski herinn nálgast
Strasbourg úr norðvestri. Er hann
þarna um 30 km frá Rín.
3. bandaríski herinn hefur sótt
hratt fram og er kominn að og inn
fyrir landamæri Saarhéraðs^ á 50
km kafla.
1500 fangar voru teknir í Metz
í gær, þ. á. m. yfirforingi setu-
liðsins.
Her Pattons liefur tekið 18.000
fanga síðan 8. nóvember.
9. herinn er kominn inn í 2 þorp
á bökkum 'Ruhrárinnar.
Tveimur gagnáhlaupum Þjóð-
verja var hrundið í nágrenni Gei-
lenkirchens.
Fjórða þing Sósíalista-
flokksins
iFjórða þing Sameiningar-
flokks alþýðu ■— Sósíalista-
flokksins — hefst 37. þ. m.
(nœstk. vmnudag) og verður
sett að Skólavörðustíg 19
þann dag, kl. 8^/z e- h.
Fulltrúamir utan af landi
cru sevi óðast að koma til
bœjarins, en nokkrir munu
enn ólcomnir.
Prófessor Eddington
látinn
Sir Arthur Stanley Eddington
lézt í “gœr í Englandi 62 ára að
aldri.
Hann var stjörnufræðikennari
við Cambridge-háskóla, og var
j höfundur margra heimskunnra
' bóka um vísindaleg efni.
Námamenn í S-Wales
vilja sameiningu
í Bretlandi fer nú fram atkvæða-
greiðsla meðal kolanámaverka-
manna um það, hvort þeir vilji
sameina öll verklýðsfélog sín í eitt.
Atkvæðagreiðslu er lokið í Suð-
ur-Wales og voru 8 af hverjum 9
verkamanna fylgjandi sameiningu.
Minningarathöfn í New
York vegna Goðafoss-
slyssins
Skrlfstofa Eimskipafélagsins í
New York gekkst fyrir þvi að hald-
in væri minningarathöfn vegna
þejrra sem fórust á Goðafossi, í
kirkju þar í borg, og fór hún fram
í fyrradag kl. 6 síðd. Sr. Oktavíus
Þorláksson og cand. theol. Pétur
Sigurgeirsson (biskups Sigurðsson-
ar) fluttu ræður við þetta tæki-
færi.
»