Þjóðviljinn - 28.11.1944, Side 2
2
ÞJÓÐVÍLJINN
Þriðjudagur 28. nóvember 1944.
Abyrgðarpóstur
í bréfi til Bæjarpóstsins segir
„J'*
„Nýlega sá ég rætt um það í
Bæjarpóstinum að nauðsynlegt væri
að bera ábyrgðarpóst til Reykvík-
inga, í stað þess að nú verður hver
og einn að sækia sinn póst á póst-
húsið. í dag tekur svo Víkverji und
ir þetta í Morgunblaðinu. Það er
gott að ummæli Bæjarpóstsins
skyldu vekja menn til umhugsunar
um þetta mál, sem er bæði sjálf-
sagt og þarft, og mundi spara mikla
fyrirhöfn ef það væri tekið upp af
vandvirkni og samvizkusemi.
Annar póstur
En áður en við gerum kröfu til
að fá borinn út ábyrgðarpóstinn þá
verðum við að gera kröfu til að
lagfært sé það dæmalausa sleifar-
lag sem oft er á útburði bréfa um
bæinn. Nýlega hitti ég mann sem
býr í Sogamýri. Hann kvaðst fá
póstinn vikulega, ég hringdi á póst-
húsið og þar segja þeir að póstur-
inn fari í Sogamýrina þrisvar í
vikú. Hverjum á að trúa? Og af
útburðinum í bænum sjálfum vil
ég aðeins taka eitt dæmi. Tímarits-
hefti, sem sent var í pósti til á-
skrifanda í Rvik kom aftur til af-
greiðslunnar. Utan á heftið var
stimplað: „Finnst ekki í húsinu“.
Maðurinn var búinn að eiga þarna
heima í fleiri ár, svo að ólíklegt er
að ekki hafi allir þar vitað um
nafn hans. Svona gengur það til
og munu engir telja þetta gott.
26. 11. ’44. J.“
Byggingatillögur Sigfúsar
Sigurhjartarsonar
Frá húsnæðislausum:
„Eg hef orðið þess var, að áhugi
fólks, sem á við slæman húsakost
að búa eða er sem sagt húsnæðis-
laust, fyrir hinum merkilegu til-
lögum Sigfúsar Sígurhjartarsonar,
sem birtust í Þjóðviljanum fyrir
viku síðan, er mjög mikill. Með
þessum tillögum er bent á úrlausn
á einu alvarlegasta vandamáli sem
Reykvíkingar eiga hér við að stríða
og það er hægt að leysa þetta vanda
mál, ef rétt er að farið. Fólkið,
sem hýrist í köldum og óvistlegum
bröggum og kjallaraíbúðum, fyllist
notalegri tilhlökkun við umhugs-
unina um hlý og vistleg hús. En
verða svo vonir þessa fólks aðeins
tálvonir einar? Ur því verður fram
tíðin að skera.
Hér hefur verið bent á mögu-
leikana og lagður grundvöllurinn að
því að takast megi að byggja við-
unandi íbúðir fyrir alla Reykvík-
inga á næstu fimm árum. Með sam-
tökum má hrinda þessu í fram-
kvæmd og nú er um að gera að
bæjarfélagið styðji bæjarbúa í því
að .þetta megi takast, og verði jafn
framt hin leiðandi stjarna í þessu
efni. Um leið og ég þakka Sigfúsi
alla þá vinnu sem hann hefur lagt
í þessar tillögur, þá vil ég hvetja
alla bæjarbúa og sérst^klega þá
sem nú búa við húsnæðisskort, að
kynna sér þær rækilega.
Húsnæðislaus".
Afvi»ndmáiin í
Hafnarfirði
Nídudag
BÆRINN SETJI Á STOFN
KÚABÚ í KRÝSUVÍK
Að bærinn hefji nýtingu á
landi sínu í Krýsuvík er bæði
eðlilegt og sjálfsagt nú þegar
vegasamband er að komast
þangað, eða er komið. Það sem
er næsta viðfangsefnið 1 því
sambandi er að bærinn hefji
stórfellda ræktun, ræsi fram
mýrarnar og fleira. Síðan verði
komið þar á stofn stóru og
myndarlegu kúabúi, svo hægt
verði að fullnægja frá því þörf
Hafnfirðinga á mjólkurafurð-
um. Um nauðsyn slíks kúabús
þarf eigi að fjölyrða. Ástand
það sem nú ríkir í mjólkurmál-
um hér, ætti að vera næg hvatn
ing til þess að bærinn setti kúa-
búið á stofn, þegar bærinn er
mjólkurlaus að meira eða
minna leyti mánuð eftir mán-
uð. Skyr og rjómi fæst ekki
hvað sem í boði eða veði er,
og íslenzkt smjör hefur ekki
sézt hvað þá fengizt mánuðum
saman.
Að Hafnfirðingar verði sjálf-
um sér nægir um þessar nauð-
synjavörur, er takmark sem
bærinn sjálfur á að keppa að
og ná, með stofnun og starf-
rækslu á kúabúi.
VIRKJUN HVERAORKUNN-
AR í KRÝSUVÍK
Virkjun hveraorkunnar í
Krýsuvík er annað viðfangsefni
bæjarins þar syðra, orka sem
þar er hægt að beizla er stór-
kostleg, og má auka ótakmark-
að með jarðborunum. Orku
þessa má nota til þess að fram-
leiða rafmagn, sem leiða mætti
til Hafnarfjarðar og nota til
ljósa,, hita og aukins iðnaðar
og til iðnaðar á staðnum eins
og t. d. vinnslu á brennisteini
og fleiri efnum, sem þar mundu
fást úr jörðu og lofti.
• Þó að við Hafnfirðingar fáum
rafmagn úr Soginu, er það vit-
að áþreifanlega, að það raf-
magn, sem bærinn fær þaðan,
er alltof lítið og litlar líkur til
þess að það aukist, því að reynsl
an hefur sýnt, að þótt nýjar
aflvélar komi við Sogið, þýðir
það ekki annað, en að fleiri
staðir, sveitir og kauptún verða
tengd við rafmagnskerfi Sogs-
ins og fá þaðan rafmagn, en
ekki aukið rafmagn til þeirra
staða, sem áður voru fyrir og
tengdir við Sogið.
Nóg rafmagn frá eigin orku-
verum Hafnarfjarðar er tak-
markið, sem vel er þess vert
að keppa að.
Vinnsla á brennisteini í Krýsu
vík var hér áður fyrr stunduð,
4,, þíngí Sambands ungra sósíalísfa slífid
Fjórða þingi Æskulýðsfylkingarinnar, sambands
ungra sósíalista, lauk í fyrrakvöld og höfðu mörg helztu
áhugamál íslenzkrar æsku verið rædd ýtarlega og á-
lyktanir gerðar. Verða nokkrar þeirra, sem ekki hafði
verið gengið frá, er síðasta æskulýðssíða Þjóðviljans fór
i prentun, birtar í næstu æskulýðssíðu.
I’ingið ber vott um að Æskulýðsfylkingin er í góðri
framför og að mikils má af henni vænta á næstu ár-
um. Þingið ákvað m. a. að hefja nú þegar öfluga út-
breiðslustarfsemi og verður það eitt mikilvægasta verk-
efni hinnar nýju sambandsstjórnar að gera Æskulýðs-
fylkinguna að fjöldahreyfingu íslenzkrar alþýðuæsku,
efla deildirnar sem fyrir eru og stofna deildir víðsveg-
ar um land til sjávar og sveita. Því aðeins að þetta tak-
ist, verða samtökin fær um að gegna því hlutverki sínu,
að hafa forystu í baráttu íslenzkrar æsku fyrir bættum
lífsskilyrðum og auknum réttindum.
Iiaraldur Steinþórsson, forsetú
*
Á síðasta fundi þingsins, í
fyrrakvöld var' kosin sambands
stjórn (framkvæmdaráð) til
næstu tveggja ára, og er hún
þannig skipuð:
Forseti: Haraldur Steinþórs-
son.
Varaforseti: Gísli Halldórs-
son.
Ritari: Halldór B. Stefáns-
son.
Gjaldkeri: Gestur Þorgríms-
son.
Fjármálaritari: Óskar Þórð-
arson frá Haga.
Fulltrúar á þing Sósíalista-
ílokksins voru kosnir: Aðalfull-
trúar: Haraldur Steinþórsson,
Lárus Bjarnfreðsson og Böðv-
ar Pétursson og varafulltrúar:
Skúli H. Nordahl, Helgi Hóseas
son og Gísli Halldórsson.
en lagðist niður, meðal annars
vegna flutningserfiðleika. Nú,
þegar vegurinn er komin þang-
að suður og nægilegt rafmagn,
er mjög líklegt að vinnsla á
brennisteini borgi sig vel.
BYGGING GRÓÐURHÚSA —
SUMARHÓTELS OG HRESS-
INGARHÆLIS.
Bygging gróðurhúsa í Krýsu-
vík og ræktun þeirra ávaxta og
grænmetis, sem hægt er að
rækta við þau skilyrði er við
það skapast, er mjög mikið hags
munamál. Má til dæmis benda
á, að Danir, sem verða að kynda
sín gróðurhús upp með kolum
og mó, framleiddu fyrir stríð
grænmeti og ávexti fyrir 16
milljónir króna í gróðurhúsum.
Bygging og rekstur sumarhó-
tels og hressingarhælis við suð-
urenda Kleifarvatns, virðist
ist ékki vera nein fjarstæða.
Náttúrufegurð er mikil þar
syðra og hverirnir og leirinn þar
þrunginn af bætandi efnum fyr
ir gigtveika og aðra sjúka. Víða
erlendis eru slík hressingarheim
ili og sumarhótel mjög mikið
sótt, og er eigi ólíklegt að svo
myndi einnig verða með sumar-
Framh. á 5. síðu.
Ilalldór B. Stefánsson, ritari.
I fyrrakvöld hélt Æskulýðs-
fylkingin í Reykjavík kveðju-
samsæti fyrir fulltrúana á sam-
bandsþinginu og gesti þeirra.
Hófst samsætið kl. 9.30 í Að-
alstræti 12 með sameiginlegri
kaffidrýkkju. Meðan setið var
undir borðum flutti Haraldur
Steinþórsson, hinn nýkjörni for
seti sambandsins, ræðu. Auk
hans fluttu ræður þeir Gísli
Halldórsson, Halldór Stefáns-
son og Magnús Torfi Ólafsson.
Páll Bergþórsson las kvæði er
hann hafði ort og Öskar Þórð-
arson frá Haga las upp frum-
samda smásögu. Milli atriða var
fjöldasöngur en áður en staðið
var upp frá borðum flutti Sig-
fús Sigurhjartarson samsætinu
kveðju frá formanni Sósíalista-
flokksins, Einari Olgeirssyni, er
ekki gat mætt vegna annríkis.
Að lokum var dansað fram eft-
ir nóttu
Nýff sósfalísfa~
félag
Sósíalistafélag var stofnað í
Stykkishólmi þ. m., og nefn-
ist Sósíalistafélag Styklcishólms.
Voru stofnendur ellefu.
Stjórn skipa: Bjargmundur Jóns
son formaður og Jó'hann Rafnsson
og Viggó Jónsson meðstjórnend-
i
ur.
Félagið sendir fulltrúa á flokks-
þingið.
Gestur Þorgrímsson, gjaldkeri.
*
Óskar Þórðarson, fjármálaritari-