Þjóðviljinn - 13.12.1944, Síða 2
2
ÞJÓÐVILJINN
Miðvikudagur 13. des. 1944.
Sósíalistar!
Þjóðviljann vantar nú þegar unglinga eða
eldra fólk til að bera blaðið til kaupenda í eftir- •
talin hverfi.
Austurbær:
Leifsgata
Rauðarárstígur
Gunnarsbraut.
1 Vesturbær: •
Framnesvegur
Bræðraborgarstígur
Ásvellir.
Hjálpið íil að útvega blaðbera. Talið strax við
afgreiðsluna.
AFGR. WÓÐVILJANS
Skólavörðustíg 19 — Sími 2184
antiglihlip 18. Diigs nmuODsaiDbandslDS
Ný, sérkennileg barna- og unglingabók
Töfragripurinn,
eftir Guðmund Geirdal er sérkennileg og
fögur bók fyrir börn og unglinga. Hún er
ævintýri um jörðina og heiminn allan,
skrifuð af manni, sem skilur börnin og um
efni, sem þau spyrja oft um. — Helgi
, Péturss. ritar nokkur formálsorð fyrir
bókinni og hvetur fólk 'til að kynna sér
hana og láta bömin lesa hana. Bókin er í
góðu bandi. Gefið hinum litla vini ykkar
þessa ágætu barna- og unglingabók í
jólagjöf.
í S R O N .
- •sn/.’wwwwvvwvv%fl///w,^An/Awwwivwwwvwuvvvwi
Hið íslenzka fornritafélag:
| Laxdæla saga
er komin aftur í ljósprentaðri útgáfu.
Fæst hjá bóksölum.
Aðalútsala:
Bókðv. Sigfúsar Eymundssonar
/WW/UVW/^AWWWWUVWVVWVVWVSAWVVtfWVWWVWVV
Hér fara á eftir nokkrar samþykktir 18. þings Al-
þýðusambands íslands, sem Þjóðviljinn hefur eigi áður
birt.
Fjalla þær m. a. um eftirlit með öryggi skipa, breyt-
ingar á byggingalöggjöfinni, breytingar til fullkomn-
unar tryggingarlöggjafarinnar, breytingar á orlofslög-
unum o. fl.
VAXTAKJÖR BYGGINGA-
LÁNA VERÐI GERÐ HAG-
STÆÐARI
„18. þing Alþýðusambands ís-
lands lítur svo á, að ekki verði
bætt úr húsnæðisleysi því, sem
nú ríkir í landinu, nema til
komi stórum meiri aðstoð hins
opinbera en nú er. Fyrir því
skorar 18. þing Alþýðusam-
band íslands á Alþingi að
breyta löggjöf varðandi þessi
mál þannig, m. a., að vaxtakjör
byggingarlána verða hagstæð-
ari en verið hefur og starfrækt
verði teiknistofa fyrir kaup-
staði og kauptún í sambandi
við teiknistofu landbúnaðar-
ins“.
ÖRYGGISEFTIRLITIÐ
„18. þing Alþýðusambands ís-
lands samþykkir að skora á yf-
irstandandi Alþingi að sam-
þykkja frumvarp það, ,sem
milliþinganefnd í öryggismál-
um hefur samið „um eftirlit
með skipum“ og sem nefndin
hefur lagt fyrir ríkisstjórnina“.
BJÖRGUNARSKIP Á
HORNAFIRÐI
„18. þing Alþýðusambands ís-
skorar á Alþingi að hlutast til
um það, að skip verði haft á
Hornafirði til eftirlits og aðstoð
ar fiskibátum á komandi ver-
tíð. Áherzla skal lögð á, að skip
ið verði komið þar í vertíðar-
byrjun, eða ekki seinna en 1.
febrúar, og að ennfremur verði
á skipinu maður, sem kunnug-
ur er öllum aðstæðum11.
FRAMFÆRSLUKOSTNAÐ-
UR VERÐI SAMRÆMDUR
„Vegna þess hvað orðinn er
lítill munur á framfærslu-
kostnaði í Reykjavík og öðrum
landshlutum, þá ályktar 18.
þing Alþýðusambands íslands,
að sá munur sem er á úthlutun
til elli- og örorkubóta miðað
við Reykjavík og aðra staði á
landinu, til sjávar og sveita, sé
nú of mikill og skorar á Al-
þingi og ríkisstjórn að jafna
þennan mismun í samræmi við
framfærslukostnað“.
MÓTMÆLI GEGN BREYT-
INGUM OG SKERÐINGU Á
IÐNNÁMSLÖGG J ÖFINNI
„18. þing Alþýðusambands ís-
lands vill hér með árétta þau
mótmæli er sambandsstjóm hef
ur sent háttvirtu Alþingi, um
breytingar þær á iðnnámslög-
unum, er fyrir því liggja, enda
verði iðnaðarlöggjöfin í heild
í engu skert frá því sem nú er,
þar til gagngerð endurskoðun á
henni hefur farið fram“.
ÁSKORUN TIL ALÞINGIS
UM FULLKOMNUN TRYGG-
IN GARLÖGG J AF ARINN AR
„18. þing Alþýðusambands ís-
lands fagnar því, að samkvæmt
loforði ríkisstjórjiarinnar og
samkomulagi flokka þeirra, er
styðja hana, muni komið á full
kominni tryggingalöggjöf á ís-
landi á næstu árum. Skorar
sambandið á Alþingi og ríkis-
stjóm að taka upp í hinum
nýju tryggingalögum eftirfar-
andi atriði:
1. Réttur gamalla manna og
sjúkra til framfærslu sé tryggð
ur af ríkinu án tillits til að-
standenda.
2. Öryrki, sem hefur til þess
orku, hefur rétt og skyldu til
náms á kostnað ríkisins. Óheim
ilt er að draga af örorkustyrk
nema að sannað sé að sú orka
sem öryrkinn kann að hafa,
komi honum að notum til fram-
færslu.
3. Allar kpnur, giftar sem ó-
giftar, eigi rétt á fæðingar-
hjálp úr ríkissjóði, án sérstakra
iðgjalda.
4. Kona, sem er í atvinnu,
eigi rétt á fríi frá störfum allt
að 6 vikna tíma fyrir barns-
burð og jafnlengi eftir, með
fullu kaupi. Sé þetta greitt úr
ríkissjóði, að því leyti sem rétt
ur þessi er ekki tryggður með
samningum eða á annan hátt.
5. Kona, sem ein er' fyrir-
vinna heimilis síns eigi rétt á
launum úr ríkissjóði, til við-
bótar öðrum tekjum sínum, ef
nokkrar eru, sem géri henni
fært að halda heimilinu sam-
an-
6. Landið sé allt eitt fram-
færslusvið og meðlög greidd úr
ríkissjóði, iðgjaldalaust.
7. Konur, sem sviptar eru fyr
irvinnu, vegna sjúkdóma, ör-
orku, fangavistar eða óreglu
manna sinna, eigi rétt á með-
lögum með bömum sínum á
sama hátt og ekkjur“.
FRAMFÆRSLULÖGUNUM
VERÐI BREYTT ÞEGAR Á
ÞESSU ÞINGI
„18. þing Alþýðusambands ís-
lands skorar á Alþingi að
breyta þegar á þessu þingi fram
færslulögunum samkvæmt of-
angreindri tillögu, þar sem of
lengi hefur dregizt að rétta hlut
þessara kvenna“.
GRUNNMEÐLÖG BARNA
VERÐI HÆKKUÐ OG SAM-
RÆMD
„18 þing Alþýðusambands ís-
lands skorar á Alþingi að
breyta lögum um aðstöðu for-
eldra til óskilgetinna barna á
þann veg, að samræming með-
laga um land allt komi til
framkvæmda frá 1. janúar 1945,
grunnmeðlagið verði jafnt all-
an framfærslualdur bamsins og
enginn eða lítill munur gerður
á meðlagi eftir landshlutum.
Grunnmeðlagið verði hækkað
verulega11.
LANDBÚNAÐARVÖRU-
VERÐ
„18. þing Alþýðusambands ís-
lands skorar á hið háa Alþingi
að gera ráðstafanir til þess að
landbúnaðarvöruverð sé eigi
hærra út um land en í Reykja-
vík“.
BREYTINGAR Á ORLOFS-
LÖGUNUM
„18. þing Alþýðusambands fs-
iands telur eftirfarandi breyt-
ingar á orlofslögunum æskileg-
ar, og felur sambandsstjórn að
koma þeim á framfæri við Al-
þingi:
1. Hlutasjómenn fái undan-
tekningarlaust óskertan orlofs-
rétt (þ. e- 4%).
2. Ríkið setji á stofn ferða-
skrifstofu, er með sérstaklega
hagkvæmum kjömm sjái um
hópferðir orlofsnotenda á sjó og
lar^di, og annist rekstur ódýrra
dvalarstaða fyrir þá, sem halda
vilja kyrru fyrir í orlofi sínu.
3. Við dauðsfall orlofshafa
gangi orlofsfé það, sem hann
hefur hlotið á yfirstandandi ári
til nánustu ættingja hans, svo
sem foreldra, barna og maka.
4. Einhliða ákvörðun um or-
lofstöku,, bæði af hendi or-
lofsveitanda og orlofstaka sé
óheimil nema með minnst viku
fyrirvara“.
Jólabókín er kotnín í bókaverslanír:
GLITRA DAGGIR, GRÆR FOLD
Hlaut bæsfu bókmenntaverðlaun Svíaríkís 1943 25000 krónur