Þjóðviljinn - 22.12.1944, Side 4
2?JÓÐVILJINN — Fostudagur 22. desember 1944
þJÓÐVILIIKN
Útgefandi: SameiningarflokkuT alþýðv — Sásíahsiaflokkurinn.
Bitstjóri og ábyrgðarmaður: Sigurður Guðmundsson.
Stjórnmálaritstjórar: Einar Olgeirsson, Sigfús Sigurhjartarson.
Bitstjómarskrifstofa: Austurstrœti 12, sími 2270.
Afgreiðsla og auglýsingar: Skólavörðustíg 19, simi 218ý.
Áskriftarverð: í Beykjavík og nágrenni: Kr. 6.00 á mánuði.
Úti á landi: Kr. 5.00 á mánuði.
Prentsmiðja: Víkingsprent h.f., Garðastræti 17.
Samvinna ekki samvinna
Það er dálítið fróðlegt og bísna skemmtilegt að athuga af-
stöðu Alþýðuflokksins til samvinnu við Sósíalistaflokkinn.
Fyrir fjórum árum samþykkti Alþýðuflokkurinn, svo sem
vera bar, yfirlýsingu um stjómmálastefnu sína og afstöðu til
annarra flokka. Þegar sú samþykkt var lögð fyrir flokksþingið
stóð þar skýrum stöfum að samvinna við kommúnista kæmi ekki
til greina. Sumum þingmönnum þótti þetta varhugaverð yfir-
lýsing og bentu réttilega á, að flokkar þessir ynnu saman í ýms-
um verklýðsfélögum, og að ekkert væri eðlilegra en að þeir
hefðu allsherjar samstarf innan verklýðshreyfingarinnar. Radd-
ir þessara gætnari og betri manna flokksins fengu því áorkað
að yfirlýsingunni var breytt í það horf, að engin samvinna kæmi
til greina við kommúnista í stjórnmálum. Allir vissu að þetta
þýddi að Alþýðuflokksþingið teldi eðlilegt að þessir tveir flokk-
ar ynnu saman innan verklýðshreyfingarinnar, en hinsvegar rangt
að þeir hefðu samstarf á Alþingi og í bæjarstjórnum.
Vitibomir menn sáu, að slíkt tvístig var ekki á viti byggt,
heldur fram komið sem tilraun til að sætta gjörólík sjónarmið
innan Alþýðuflokksins, sjónarmið sem raunar voru og eru ó-
sættanleg, niðurstaðan hlaut því að verða fálm og tap fyrir hinn
fálmandi flokk, en það var vissulega mál Alþýðuflokksins og
ekki annarra að gera rellu út af því- Nú hófst margháttað sam-
starf þessara tveggja flokka í verklýðshreyfingunni, verklýðs-
hreyfingunni til mikils frama og þar með þjóðinni til blessunar,
því ekkert verk er þjóðinni betra en að vinna að því að verklýðs-
hreyfingin eflist, því það þýðir hagsæld og aukin menning til
handa fjölmennustu stétt þjóðfélagsins. Einnig varð þetta þeim
flokknum til mikils framdráttar, sem stóð einhuga að samstarf-
inu og dró af því þá rökréttu ályktun að halda fram nauð-
syn á allsherjar samstarfi og helzt sameiningu þessara flokka.
Miður gekk fyrir hinum flokknum, þeim með yfirlýsinguna um
ekkert samstarf í stjórnmálum.
Síðan hefur það gerzt, þrátt fyrir yfirlýsingu Alþýðuflokks-
ins, að stjórnmálasamstarf' hefur tekizt milli verkalýðsflokk-
anna og það stjómarsamstarf.
Svo virðist sem sumir Alþýðuflokksmenn vilji þó láta hina
fomu samþykkt gilda, þó með þeirri breytingu að setja nú verk-
lýðsmál í stað' stjómmála og yrði samþykktin þá eitthvað á
þessa leið: Engin samvinna kemur til greina við kommúnista
um verklýðsmál sem þýðir að rétt sé hinsvegar að vinna með
þeim í ýmsum’ greinum stjómmálanna. Þessi stefna, ef stefnu
skyldi kalla, kom berlegast fram á Alþýðusambandsþinginu og
nú síðast hefur hún birzt í þeirri mynd, að stjóm Alþýðuflokks-
íns hefur bannað Alþýðuflokksmönnum að vera í kjöri í stjóm
Ðagsbrúnar eftir áramótin.
Tvídrægnin og hringlandahátturinn er sem sagt samur við
sig hjá fomstu Alþýðuflokksins. Stefnan er í öðru orðinu sam-
vinna, í hinu orðinu ekki samvinna við kommúnista. Öllum er
Jjóst hvert þessi tvídrægni leiðir flokkinn, hún leiðir hann beint
í gröfina, og við það er það eitt að athuga, að það tefur fyrir
eflingu og veikir einingu verkalýðssamtakanna, væri því vissu-
lega æskilegra að Alþýðuflokkurinn vildi taka afleiðingunum
af því sem orðið er og hefja ærlegt samstarf við Sósíalista-
flokkinn á öllum þeim sviðum sem þeir mætast á, en betra er
en ekki, að svo verði sem er, að annað tímabilið sé samvinna
um verklýðsmálin en hitt um stjómmálin- Því ekki berum við
sósíalistar ábyrgð á lífi Alþýðuflokksins.
Þessi bersöglu orð em sögð Alþýðuflokknum til leiðbein-
ingar, og má hann taka þeim svo sem honum þykir henta.
Stefna ríkisstjórnarinnar og af-
staða verkalýðssamtakanna
18. þing Alþýðusambands ís-
lands samþykkti á þingfundi 26.
nóvember s.l. eftirfarandi ályktun,
með samhljóða atkvæðum þing-
fulltrúa:
„18. þing Alþýðusambands ís-
lands fagnar hinni nýju ríkisstjórn
íslands og stefnuskrá hennar.
Þingið lítur á myndun ríkis-
stjórnarinnar og stefnuskrána sem
mikinn sigur fyrir lýðræðisöfl
landsins í baráttunni fyrir efnalegu
og andlegu frelsi þjóðarinnar.
Þingið vill undirstrika það meg-
inatriði í stefnuskrá ríkisstjórnar-
innar, er fjallar um nýsköpun at-
viniiuvega landsins, einkurn sjáv-
arútvegsins, sem þingið telur und-
irstöðuatvinnuveg landsmanna.
Þingið leggur áherzlu á þá nauð-
syn, að allur hinn skipulagsbundni
verkalýður og þjóðin öll standi
sem órjúfandi heild að baki þeirra
framkvæmda, er stefnuskrá ríkis-
stjórnarinnar felur í sér, og telur,
að þjóðin þurfi að vera vel á verði
gegn tilraunum afturhaldsins til
þess að tortryggja stefnuskrána og
hindra framkvæmd hennar.
Til þess að skapa sem bezta og
voldugasta tryggingu fyrir fram-
kvæmd stefnuskrárinnar álítur
þingið, að einmitt nú sé þess
brýnni nauðsyn en nokkru sinni
fyrr, að alþýða íslands til sjavar
og sveita myndi með sér öflugt
bandalag, er vinni að framkvæmd
stefnuskrárinnar og veiti ríkis-
stjórninni þar með styrk hins vinn-
andi fólks í baráttu hennar fvrir
framförum í landinu.
Þar sem þinginu er það Ijóst, að
framkvæmd stefnuskrár ríkis-
stjórnarinnar er fyrst og fremst
undir því komin, að vinnandi
stéttirnar einbeiti öllum kröftum
sínum að framkvæmd hennar, fel-
ur þingið hinni nýju sambands-
stjórn að gera sitt ítrasta til þess
að koma bandalagi vinnandi stétt-
anna á fót sem allra fyrst.
Ennfremur vill þingið, með til-
liti til hinna nýju viðhorfa í þjóð-
málum landsins, hvetja öll sam-
bandsfélög sín til þess að taka sem
virkastan þátt í því starfi og þeim
áætlunum, sem nú fara í hönd um
nýsköpun atvinnuveganna og al-
mennar framfarir, hvert á sínum
Stað.og í sinni grein.
Um leið og þingið undirstrikar
mikilvægi þess fyrir hinar vinnandi
stettir og alla þjóðina, að sú fram-
sækna tilraun takist, sem nú er
hafin, leggur það áherzlu á nauð-
syn þess, að sem nánast samstarf
takist milli ríkisstjórnarinnar og
Alþýðusambandsms um úrlausn
þeirra miklu framfaramála, er rík-
isstjórnin hefur tekið að sér að
framkvæma“.
Þessi ályktun 18. þingsins er í
raun og veru staðfesting æðstu
stofnunar verkalýðssamtakanna í
landinu á áður gefnum yfirlýsing-
um miðstjórnar sambandsins og
fjö'lmargra eimstakra verkalýðsfé-
laga um stuðning við ríkisstjórn-
ina og stefnuskrá hennar.
Það er og alþjóð kunnugt, að
éður en ríkisstjórnin var fullmjmd-
uð, var af hálfu þeirra, er að þvi
unnu, leitað hófænna bæði hjá Al-
þýðusambandinu og Vinnuveit-
enda'félagi Islands um vilja þess-
ara sambanda til að gera með sér
heildarsamninga um kaup og kjör,
er gilda skyldu í 1—2 ár. Var þá
gert ráð fyrir því, að núgildandi
kaupgjald héldist i meginatriðum
óbreytt, nema ]>ar sem nauðsyn-
legt þætti að bæta úr greinilegum
ágöllum.
Bæði samböndin tjáðu sig reiðu-
búin til sameigjnlegra viðræðna
um þessi mál. Má telja fullvíst,
að þessar jákvæðu Undirtektir
verkalýðsins og atvinnurekenda
hafi ráðið miklu um, að svo giftu-
samlega tókst um myndun þing-
ræðisstjórnar, eftir nærfellt 2ja ára
valdatímabil úrræðalausrar utan-
þingsstjórnar afturhaldsaflanna í
landinu.
Nýafstaðin þing beggjia aðila,
Alþýðusambandsins og Vinnuveit-
endafélagsins, hafa fyrir sitt lcyti
staðfest þessar yfirlýsingar mið-
stjórnanna. Liggur nú fyrir að
ir EFTIR
þeim sviðum. Komist framleiðslu-
tækni okkar hinsvegar á svipað
stig og hún gerist bézt með öðrum
þjóðum, sem samskonar atvinnu-
vegi stunda, er lagður grundvöllur
að góðri afkomu fólksins, sem að
framleiðslunni vinnur, og í kjölfar
batnandi fjárhagsafkomu alþýð-
unnar vex alhliða menning og stór-
hugur þjóðarinnar allrar.
Með málefnasamningi núverandi
stjórnarflokka er tryggt, að eigi
minna en jafnvirði 300 millj’. ísl.
króna sé „sett á sérstakan reikn-
ing. Má eigi ráðstafa þeim gjald-
eyri án samþykkis ríkisstjórnar-
innar og eingöngu til kaupa á eft-
irtöldum framleiðslutækjum:
a) Skip, vélar og efni til skipa-
bygginga o. fl., samtals a. m. k.
200 millj. kr.
b) Vélar og þessháttar til aukn-
ingar og endurbóta á síldarverk-
smiðjum, hraðfrystihúsum, niður-
suðu, svo og til tunnugerðar, skipa-
smíða o. fl. — um 50 mil'ljónir kr.
c) Vélar og þessháttar til áburð-
arverksmiðju, vinnslu og hagnýt-
GUÐMUND VIGFUSSON
'höfja undirbúning að þessum heild-
arsamningum milli vinnuveitenda
og verkamanna.
Verkalýðssamtökin starida nú að
mörgu leyti vel að vígi að semja
uin festingu kaupgjaldsins í aðalat-
riðum, um nokkurt skeið. Undan-
farin 2—3 ár hafa þau fært með-
limum sínum margvíslegar kjara-
bætur og kauphækkanir og unnið
stærri sigra en nokkru sinni fyrr á
jafn skömmum tíma og má segja,
að víðast hvar sé kaupið orðið við-
unanlegt, ef um varanlega atvinnu
er að rœða.
En það, sem leggur verkalýðnum
einkum .skyldur á herðar um ótví-
ræðan stuðning við stefnuskiui nú-
verandi ríkisstjórnar, er einmitt
það atriði málefnasamnings henn-
ar, sem snertir nýbyggingu at-
vinnuveganna í landinu. Þar á
verkalýðurinn ekki einungis færi á
að búa í haginn fyrir eigin fram-
tíð og öryggi, heldur og að leggja
sitt lóð á vogarskálina með algerri
umbyltingu í höfuðatvinnuvegi
þjóðarinnar, sjávarútveginum, sem
öllum er orðið Ijóst að tilvera okk-
ingu landbúnaðarafurða og jarð-
yrkjuvélar og efni til rafvirkjana
o. fl. — um 50 milljónir kr.“
Allar þessar einstöku fram-
kvæmdir miða að því, að tryggja
framkvæmd þess höfuðverkefnis
stjórnarinnar „að allir landsmenn
geti haft atvinnu við sem arðbær-
astan atvinnurekstur“, eins og seg-
ir í upphafi málefnasamnings
hennar, og þar með leggja drög
að efnalegri og menningarlegri
hagsæld landsmanna.
Annað höfuðatriði málefnasamn-
ingsins fjallar um verndun Qg við-
hald sjálfstæðis og frelsis þjóðar-
innar. Er. þetta hvorttveggja svo
samofið, sjálfstæði landsins út á
við og efnaleg afkoma þess fólks,
sem bj'ggir landið, að ekki verður
sundurskilið. Fátæk þjóð og fá-
kunnandi stendur aldrei þegar til
lengdar lætur svo trúan vörð um
frelsi sitt, sem nauðsyn ber til.
íslenzku þjóðarinnar bíður nú
hið mikla verkefni uppbyggingar-
innar. Höfuðandstöðustéttir auð-
ar sem sjálfstæðrar mcnningar-1 valdsjijóðfélagsins íslenzka, verka-
þjóðar byggist á.
Öllum er og Ijóst, að áframhald
sömu stefnu og áður ríkti í at-
vinnu- og fjárhagsmálum þjóðar-
innar, hefði leitt til atvinnuleysis
og hruns. Hinar miklu og marg-
lýðsstéttin og atvinnurekendurnir
við sjóinn, hafa samið grið um
stund til að hrinda uppbygging-
unni í framkvæmd. Báðum er ljóst
að engu er gleymt af ágreinings-
efnum þeirra um varanlega skip-
"ni m’mnnwj/ nn ’• ''t'i rr
að sér að leysa, verða rnörg erfið
viðfangs og sterk öfl í þjóðfélagi
okkar leggjast gegn þeim, óska að
framkvæmd þeirra mistakist. Það
mun reyna á samheldni þeirra afla,
er að þessari tilraun standa. Það
mun og reyna á þrautseigju þeirra
og úthald, þegar á móti blæs. Mikl-
ar vonir eru tengdar við nýsköp-
un atvinnulífsins og önnur stærstu
úrlausnarefnin. Alþýðan skyldi
minnug þess, að samtök hennar
eru sterkari í dag en nokkru sinni
áður, og beiti hún mætti þeirra til
framgangs þessara miklu verkefna
og gegn þeim afturhaldsöflum, sem
hindra vilja nýsköpunina, getur
hún gefið mikilvægustu trygging-
una, sem nokkur samtök lands-
manna geta í té látið, fyrir því að
verkefnín verði framkvæmd og
þessi merkilega tilraun heppnist.
Við eigum um að velja ísland nú-
tímatækninnar eða hrunið og ves-
aldóminn. Alþýðan hefur þegar
valið. Hún vcitir framfaraöflunum
fullkomið brautargengi.
En undirstaða markvísrar þátt-
töku verkalýðssamtakanna í ný-
byggingu atvinnuveganna og sköp-
un hins nýja Islands, er einingin í
samtökunum sjá'lfum. í hverju ein-
asta verkalýðsfélagi þarf að styrkja
hina stéttarlegu sameiningu með-
limanna um samciginleg áhuga-
mál og stéttarhagsmuni. Það er
grundvallarskilyrði þess að alþýðu-
samtök landsins leysi af hendi sitt
stóra hlutverk i starfinu að fram-
kvæmd þeirra mikilvægu úrlausn-
arefna, sem núverandi ríkisstjórn
hefur ásett sér að leysa.
(Grein þessi birtist í 11.—12. tbl.
vinnunnar).
Ólöf Jónsdóttir
Minningarorð.
Júgóslavneskir kvisl
ingar á förum til
Svisslands
Útvarpsstöð júgoslavnesku Þjóð-
frelsisnofndarinnar skýrir svo frá,
að samkvæmt fregnum frá Zagreb
hafi erlendur gjaldeyrir og gull
hækkað mjög í verði. — Stafar
þessi hækkun af auknum gull- og
gjaldeyriskaupum kvislingafor-
ingjanna (Ustasi), sem eru að búa
sig undir að flýja.
Samkvæmt útvarpsfréttinni hef-
ur aðalaðstoðarmaður Pavelics og
aðrir háttsettir kvislingar þegar
fengið erlend vegabréf. — A cinum
degi voru gefin út 40.vegabréf til
Svisslands handa þeim.
umtö'luðu inneignir þjóðarinnar er- an þjóðfélagsins. En jafnframt
lendis hefðu hrobkið skammt sem
eyðslueyrir, of allt hefði verið lát-
ið fljóta sofandi að feigðarósi um
endurnýjun og nýbyggingu fram-
leiðslutækjanna. Og hagur vcrka-
lýðsins, og reyndar allrar þjóðar-
innar, hefði fljótlega orðið bágbor-
inn, ef fylgt hefði verið þeirri
stefnu, að láta skeika að sköpuðu
um framleiðslutæknina, meðan
aðrar þjóðir búa sig undir stór-
felldar breytingkr í framfaraátt á
gera þær sér fullkomlega ljóst, að
nú er óvenjulegt tækifæri til að
hrinda stórum málum áleiðis, ef
framsýni og stórhugur er ráðandi
en ekki smásálarskapur og skamm-
sýni um þjóðarheill. Verkalýðs-
breyfing íslands hefur heils hugar
fagnað þessari ríkisstjórn, fyrstu
ríkisstjórninni, sem hún á veru-
legan þátt i að mynda. En það er
ckki nægilegt að fagna. Verkefni
þau, sem ríkisstjórnin hefur tekið
Lóð undir Kennara-
skólann
Skólastjóri Kennaraskólans hefur
farið þess á leit við bæjarráð, að
skólanum verði ætluð lóð til fram-
búðar við Miklatorg, milli Eiríks-
götu og Hringbrautar. Er í ráði,
að bráðlega verði hafizt handa um
byggingu tilrauna og æfingaskóla
fyrir Kennaraskólann og liggur það
í hlutarins eðli, að hann verður
bezt settur á þeim stað, sem Kenn-
araskólanum verður ákveðinn til
frambúðar. Mál þetta er undir at-
hugun.
Það var óvænt sorgarfregn, þeg-
ar ég heyrði sagt frá andláti Ólaf-
ar Jónsdóttur í útvariiinu 12. þ.
m. Ég hafði þá hitt hana fyrir
nokkrum dögum hressa og káta.
Hún i^iinntist reyndar á, að hún
inyndi Ieggjast inn á sjúkrahús til
uppskurðar, en var svo örugg og
viss u m bata sinn, að sízt óraði
mig fyrir, að dauðann mundi bera
svo fljótt að garði. 1
Með Óliifu sálugu er horfin mæt
kona og góð og heitur verkalýðs-
sinni. Hún var meðlimur í Sósíal-
istaflokknum og lagði þar fram
krafta sína með þeim áhuga og ó-
sérplægni, sem einkennir þá er
vita, að öll þau störf, sem unnin
eru i þágu frelsisbaráttu verka-
lýðsstéttarinnar, eiga eftir að bera
ávöxt, hversu yfirlætislaus og smá
sem þau kunna að sýnast.
Þegar konur í Sósíalistaflokkn-
um gengust fyrir því að safna ull-
arfötum til barnaheimilis í Sovét-
ríkjunum, lagði Ólöf þar drjúga
hönd að verki, og síðasta erindi
(hennar til mín var einmitt að af-
henda mér stóran böggul af barna-
fötuni í þessa söfnun. Hún prjón-
aði þau sjálf í frístundum sínum
og lagði við þá alúð, sem henni
var lagið, við hvert það starf, er
hún tók að sér. Hún sagðist mundi
bæta einhverju meira við, þegar
hún kæmi aftur af spítalanum.
En dagarnir voru taldir og hún
kom ekki aftur úr þeirri ferð. Og
nú þegar við njótum ekki lengur
starfskrafta hennar og á'huga finn-
um við með sársauka, að skarð er
fyrir skildi, þar sem hún stóð. En
'hugsjónir hennar halda áfram að
lifa í íslenzku verkalýðssamtökun-
um og verða bornar áfram'til fulln-
aðarsigurs. Og þegar bygging hins
samvirka þjóðfélags rís af grunni,
mun því ekki gleymt, að traust-
ustu hornsteinarnir voru lagðir
með starfi þeirra mörgu í landinu,
sem áttu sama drengskap og hug-
sjónaeld og Ólöf heitin.
Lík hennar verður flutt til út-
landa og brennt. Á þeim síðasta
áfanga fylgja henni kveðjur og
innilegt Jiakklæti félaga og vina
fyrir samveruárin.
Ólöf var fædd á Torfastöðum í
Fljótsihlíð, ólst þar upp hjá for-
eldrum sínum. Hún átti tvær syst-
ur og dó önnur á unga aldri, hin
'systirin, Kristín, býr á Njálsgötu
84 hér í bæ, og bjuggu þær systur
í sama húsi. Ólö’f fluttist til
Reykjavíkur 1921 og dvaldist hér
síðan. Hún vamn fyrir sér með
saumum, var ógift, og 45 ára, þeg-
ar hún andaðist.
Þóra Vigfúsdóttir.'
Fjölnir kominn út
ljósprentaður
P $ « }f r * i n-
Bókmenntaviðburður er það, að
Fjölnir er kominn út, í hinni ljós-
prentuðu útgáfu sem Lithoprent
hóf fyrir nokkrum árum.
í þessari útgáfu er Fjölnir fimm
hefti, fyrsti árgangurinn sér, en í
seinni heftunum tveir árgánggr
saman. Á kápum eru myndir af
Jónasi Hallgrímssyni, Tómasi Sæ-
mundssyni, Konráð Gíslasjmi,
Grími Thomsen og Benedikt Grön-
dal.
í formála, sem Sigurður Nordal
ritar að 1. bindi, segir hann m. a.:
. „Af slíku riti vilja menn einmitt
lesa frumútgáfuna eða eftirmynd
hennar. Þeir vilja liorfa á blaðsíð-
urnar, eins og þcir Jónas og Kon-
ráð ákildu við þær í síðustu próf-
örk. Þær bera með sér angan þess-
ara vordaga í þjóðlífi Islendinga,
og hún dofnar, ef breytt er um let-
ur og stafsetningu“.
„Nú geta margir menn, sem
varla liafa séð Fjölni og því síður
, lesið hann, kynnt sér efni hans frá
: upphafi til enda. Drjúgur meiri-
hluti þcss er hvergi á prenti nema
hér, þar á meðal nær allar ritgerð-
ir Tómasar. í rauninni ætti hver
íslendingur að telja sér skjdt að
lesa þær. Þó að flestir þckki kvæði
Jónasar, munu einmitt þeir, sem
unna þcim mest, hafa yndi af að
jlesa þau hér einu sinni ennþá — í
jsömu röð og með sama svip sem
'þau birtust fyrst. Þeim mun verða
ljósara, hversu hægt Jónas fór sér
með skáldskapinn framan af: eitt
kvæði í fyrsta árgangi, aðeins litla
„Heiðlóarvísan“ í öðrum, tvö
'kvæði í þriðja, annað þeirra
(Grikkur: Fýkur yfir hæðir) prent-
að án leyfis hans, eitt kvæði í
fjórða (GunnarShólmi) og ekkert í
fimmta árgangi, sem Tómas var
einn um að gefa út. Kvæði Jónasar
fara ekki fyrr en í sjötta árgangi,
1843, að skipa mikið rúm í Fjölni.
Níundi árgangur, 1847, er að mestu
helgaður minningu lians og því,
sem óprentað var eftir hann í
sundurlausu máli. Þá eru þeir
Tómas og Jónas, vinirnir og and-
stæðurnar, eldhuginn og snilling-
urinn, báðir horfnir úr hópnum, og
Fjölnir tekur andvörpin. Margir
muriu líka hafa gaman* af að lesa
héf fyrstu kvæðin, sem komu á
prent eftir þá Grím Thomsen,
Benedikt Gröndal og Jón Thor-
oddsen“.
Ný bók
Föstudagur 22. deseinber 1944 — ÞJÓÐVILJINN
Ásmundur Guðmundsson,
prófessor: Þor og þrótt-
ur. Bókaverzlun Sigurðar
Kristjánssonar gaf út.
Freysteinn Gunnarsson kallar
bók þessa kennslubók í sjálfsupp-
eldi, og er það sannnefni. Kafla-
fyrirsagnirnar: Vertu reglusamur,
Vertu áreiðanlegur, Vertu einbeitt-
ur, Vertu þrautseigur, gefa nokk-
uð til kynna um efni bókarinnar.
Efnismeðferðin skiptir hér þó
meira máli. Siðaprédikanir eru oft-
lega fluttar í því formi, að áhrifin
verða fremur neikvæð en til gagns,
vekja leiða og andúð. Um þessa
litlu bók er því öðruvísi farið. IIún
er skemmtileg aflestrar, snjöllum
lýsandi dæmum er haglega ofið
inn í frásögnina og siðakenning-
unum þannig stillt í hóf, að á'herzla
er yfirleitt lögð á það eitt, sem
hefur mannlegt og persónulegt
gildi. Ilvernig sem menn greinir á
um stefnur í uppeldismálum,
stjórnmálum eða trúmálum, þá
munu íslendingar eins nú og til
forna sammála um að telja reglu-
semi, orðheldni, einbeittni óg
þrautseigju til eftirsóknarverðra
dyggða. Hver er sá, sem vildi ekki
kjósa. sjálfum sér og börnum sín-
urn þessa eiginleika í sem ríkust-
um mæli? Ekki ber þó að skilja
þessi ummæli svo, að ég sé höf.
sammála í öllum atriðum. Til
dæmis hefði ég kosið á annan veg
ummæli hans á blaðsíðu 29 um
*
ósannsögli og ýkjur barna, sem
auðvelt er að misskilja. Sannleik-
urinn er sá, að ýkjur og missagnir
ungra barna eru eðlileg fyrirbrigði
og þurfa ekki að benda á veilur í
skapgerð. Skyldi því með varúð
ávíta ung börn fyrir slíkt.
En hvað um ]iað. Bókin Þor og
þróttur lætur í té skynsamlegar og
'hleypidómalausar leiðbeiningar og
hvatningar, sem eiga brýnt erindi
til margra.
Sigurður Thorlacius.
KAUPIÐ ÞJÓÐVILJANN!
Jólatré og greni
jólatrésfætur og allskonar
jólagjafir.
Nýkomið skreyttar blómakörfur og bátar, einnig
nokkrar sælgætisskálar, skreyttar.
Verzlunin Ljósbiik
Laugaveg 53A — Sími 4461.
og greinar frá Skotlandi
Ennfremur jólatrésfætur sem halda trjánum rökum. sem
varnar því að nálarnar losni og detti á dúkinn.
Komið og talið við Agnar Hreinsson' í krikanum bak við
Verzlun O. Ellingsen.
Leikföng
Speglar
Eldfast gler.
IARN & GLER h. f.
Laugavegi 70. — Sími 5362.
Um jurtalitun
Nýlega er komin út lítil bók:
Um jurtalitun. Höfundurinn er
Matthildur Halldórsdóttir, hús-
freyja að Garði í Aðaldal. Eins
og nafn bókarinnar ber með
sér er hún um það hvemig
nota megi til litunar allmargt
íslenzkra jurta.
Matthildur . Halldórsdóttir
hefur s. 1. 25 ár fengizt við
jurtalitun og vakti litun henn-
ar og band fyrst athygli á
heimilisiðnaðarsýningunni 1921.
Árið 1939 hlaut Matthildur
nokkurn fjárstyrk frá Alþingi
og varði hún honum til þess að
reisa litunarklefa.
Þekking sú á jurtalitun sem
Matthildur hefur aflað sér með
25 ára tilraunum og starfi er
samankominn í þessari litlu
bók.
Málaflutningskrifstofa
Áki Jakobsson
Sigurhjörtur Pétursson.
Lögfræðingar
Jakob J. Jakobsson
Klapparstíg 16-
Sími 1453.
Málfærsla, innheimta,
reikningshald, endur-
skoðun.
Bör Börson junior
inn á hvert heimili um jólin
i .« -----n--r r-iii—inrrjuiu
MUNIÐ
Kaffisöluna
Hafnarstræti 16
Enskt ullartau
Drengjafataefni
ERLA
Laugaveg 12.
Við RYDENS KAFFIÐ heitt ég hressist
hvaða þraut, sem gengur að.
Það er eins og í mér blessist
ekkert kaffi nema það.
ATHUGIÐ
Hvítir pokar með rauðu bandi
yfirstimplað
Rydens kaffi