Þjóðviljinn - 21.01.1945, Qupperneq 1
VILJINN
10. árgangur.
Sunnudag-ur 21. janúar 1945.
17. tölublað.
Davið Stefánsson
hylltur með blysför
á fimmtugs-
afmælinu
Sóknin vestur
í fullum gangl
Tcbur Tílsíí, D^íaMowo, Kolo, Nowy Sacz, Kosíce,
Prcíov og samfals um 2000 borgír, bæt og þorp
Ekkert lát er á sókn rauða hersins vestur Pólland
og inn í Austur-Prússland og Tékkóslóvakíu.
Þjóðverjar segja Rússa hafa tekið pólska bæinn
Kepnu, 65 km. fyrir norðaustan Breslau, og að þeir séu
komnir inn í Slésíu austast.
Her Tsérniakovskis tók borgina Tilsit í Austur-
Prússlandi í gær og er 15 km. frá Insterburg.
Her Súkoffs er kominn 170 km. vestur fyrir Varsjá,
— tók í gær borgina Kolo, 120 km. frá Poznan.
Her Petroffs tók í gær Nowy Sacz, syðst í Póllandi,
og Presov og Kosice í Tékkoslóvakíu.
Rússar hafa ekki tilkynnt neitt
ennþá um, að þeir hafi farið yfir
landamæri Slésíu.
Samkvæmt dagskipunum Stal-
íns er her Súkoffs kominn lengst
vestur á bóginn. — Sótti hann
fram um 50 km í gær og er kom-
inn 170 km vestur fyrir Varsjá. —
Tók hann Kolo, 160 km fvrir vest-
an Varsjá, — 120 km frá stórborg-
inni Poznan.
Her Tsérniakovskis tók Tilsit í
Austur-Prússlandi og 4 bæi aðra.
Norskt flóttafólk
kemur enn til
Svíþjóðar
Frá Stokkhólmi er tilkynnt,
að fréttir frá Uddervalla hermi,
að flóttafólksstraumurinn frá
Noregi til Svíþjóðar sé enn
talsverður. — Til þessa héraðs
eins koma um 80 flóttamenn á
mánuði.
(Frú norska blaðafuUtrúanum).
Sú borg er rnikil iðnaðarmiðstöð
með 60.000 íbúa. Sami her er 15
km frá Insterburg að norðan.
Her Rokossovskis tók bæinn
Dzialdowo, skammt frá suður-
landamærum Austur-Prússlands.
— Þjóðverjar segja hann kominn
norður yfir landamærin og sé bar-
izt við Gilgenburg, sem er nokkr-
um kílómetrum sunnar en.Tannén-
berg, og við Neidenburg, 25 km
austar. Á þessu svæði var það sem
rússneski herinn beið mikinn ósig-
ur í fyrri heimsstyrjöldinni. En nú
virðist vaka fyrir Rokóssovski að
króa meginhluta Austur-Prúss-
lands af, og bíða Þjóðverja þá
miklu meiri hrakfarir en Rússar
urðu að þola fyrir 80 árum.
KONÉFF FYRIR VESTAN
CZESTOCHOWA.
Her Konéffs breikkaði sóknar-
fleyg sinn mikið í gær og er kom-
inn að landamærum Slésíu á löngu
svæði fyrir vestan Czestochowa
(— þarna segja Þjóðverjar Rússa
vera komna yfir landamærin —).
Tóku við embætti í gær
Franklin D. Roosevelt, forseti Bandaríkjanna síðast liðin 12
ár, tók við forsetatigninni í fjórða sinn í gær.
Forsetinn situr hér að snæðingi með nýja varaforsetanum,
Harry S. Truman, í garði Hvíta hússins.
Tvær dagskipanir frá Stalín í
gær fjölluðu um sigra hers þess,
sem Petroff stjórnar norðan og
sunnan Karpatafjallgarðsins.
Syðst í Póllandi, í hlíðum Karp-
atafjalla, hefur hann tekið borg-
ina Nowy Saez, og suður í Tékko-
slovakíu tók hann borgirnar Pres-
ov og Kosice. — Sú fyrri er við
ána Torysa og hefur 15.000 íbúa.
— Ivosice er við ána Hornad, —
hefur 30.000 íbúa.
Bretar sækja fram
norðan Sittard
Bretr tóku nokkur þorp fyrir j
norðan Sittard í gær.
Suður í Alsace sóttu Frakkar
fram um 5 km. í átt til Colmar.
— Er sú borg miðstöð allstórs
innikróaðs landsvæðis á valdi
Þjóðverja.
25.000 FANGAR.
Herir Rokossovskis, Sú'koffs og
Konéffs hafa tekið um 25.000
þýzka fanga á fyrstu viku sóknar-
innar, 12.—19. janúar.
Urn 480 skriðdrekar og vélknún-
ar fallbyssur voru teknar herfangi.
Um 65.000 Þjóðverjar féllu.
Næstum 190 skriðdrekar Þjóð-
verja voru eyðilagðir i gær. t
Roosevelt tekur við
embætti í f jórða sinn
Roosevelt forseti tók form-
lega við embætti í 4. sinn í
gær.
Athöfnin fór fram í Hvíta
húsinu að vanda, en var miklu
einfaldari en siður hefur verið.
Forsetinn hélt stutta ræðu.
— Sagði hann núlifandi kyn-
slóð ganga undir hörðustu próf-
raun mannkynssögunnar. —
Hann kvað bandarísku þjóðina
hafa hlotið dýrkeypta i;eynslu
og ætti að læra*'af henni, að
hún gæti aldrei einangrað sig.
— Bandaríkjamenn hefðu lært,
að þeir yrðu að vera borgarar
heimsins.
Fjellbu biskup á
Hálogalandi
Norska kirkjumálaráðuneytið
í London tilkynnir, að Arne
Fjellbu dómprófastur hafi ver-
ið settur biskup til bráðabirgða
í hinum frelsaða hluta Háloga-
landsbiskupsdæmis. Fjellbu á
að stjórna kirkjumálum í þess-
um héruðum og hefur verið
veitt vald til að gera ýmsar
ráðstafanir, sem hið óvenjulega
ástand krefur.
I *
Skömmu áður en Fjellbu var
settur biskup, var hann útnefnd
ur herprestur og fer sem slík-
ur með norska lögregluliðinu
frá Svíþjóð til Austur-Finn-
merkur.
(Frá norska blaðafulltrúianum).
Brezkur þingmaður um
Churchill:
„Slyngasti stað-
reyndafalsarinn”
í fyrradag var síðari dagur
Grikklandsumræðnanna í neðri
deild brezka þingsins. — Varð
stjórnin fyrir afar harðri gangrýni
vegna stcfnu sinnar í Grikklandi,
en áður en lauk var vantrausts-
tillaga frá formanni Conunon-
wealthflokksins felld með miklum
atkvæðamun, en mikill fjöldi þing-
manna sat hjá.
Aneurin Bevan, þingmaður frá
Wales, deildi fast á ræðu Chur-
c'hills frá upphafi umræðnanna. —
Sagði hann, að hún hlyti að spilla
mjög fyrir friðsamlegri lausn í
Grikklandi og kosta fleiri mannslíf.
Viðvíkjandi hryðj uverlcasö gun-
um sagði hann, að þœr vœru venju-
legur „ChurcJiiUs þvœttingur“. —
Sagði hann, að enginn einasti
stjórnviálumaður vœri jafn-snjall
og Churchill að falsa staðreyndir.
Að því, er gisla snerti, kvaðst
Bevan vilja spyrja, hvað Churchill
segði um, að þeir E.A.M.- (Þjóð-
frelsishreyfingar-) leiðtogar, sem
lögreglan í Aþenu hefði í haldi,
væru látnir lausir.
Síðustu fréttir frá Grilcklandi
herma, að fuUtrúar frá E.L.A.S.
Iiafi undirritað skuldbindingu um
að láta alla gisla lausa.
Ungverska bráða-
birgðastjórnin fær
vopnahlé
Ungverska bráðabirgðastjórn-
in, sem stofnuð ,var í Debrecen
fyrir nokkrum vikum, undirrit-
aði vopnahléssamninga við
bandamenn í Moskvu í gær.
Vorosjiloff marskálkur skrif-
aði undir fyrir hönd allra
banotemanna.
\ ■ 1
Davíð Stefánsson skáld er
fimmtugur í dag. Hefur skáld-
inu verið sýndur marghátt-
aður sómi í tilefni af afmælinu.
Mun Menntaskólinn á Akur-
eyri hylla Davíð með blysför
í dag.
Verður gengið með 100 tendr-
aða kyndla um götur Akureyr-
ar og staðnæmzt við Bjarka-
stíg, en þar er heimili skálds-
ins. Sungið verður meðan á
blysförinni stendur og bumbur
barðar, en heima hjá Davíð
leikur Lúðrasveit Akureyrar og
Karlakórinn Geys”ir syngur. Þá
hylla Akureyringar skáldið og
ávörp verða flutt.
Útvarpið helgaði skáldinu
verulegan hluta af dagskrá
sinni í gærkvöld.
Flutti Sigurður Nordal prófes
sor ávarpsorð og las upp úr rit-
um 'Davíðs. Lárus Pálsson leik-
ari las 4. þátt „Gullna hliðsins"
o- fl. og Andrés Bjömsson og
Jón Sigurðsson frá Kaldaðar-
nesi lásu upp úr verkum skálds
ins._________________________
Finnskir sjómenn í
haldi hjá Þjóð-
verjum
Þjóðverjar hafa haldið um
120 finnskum sjómönnuiA, þar
af 9 konum, í varðhaldi skammt
frá Osló í marga mánuði. —
Þetta eru skipstjórar, vélstjór-
ar, stýrimenn og hásetar.
Hafa þessir menn nú verið
fluttir til Þýzkalands.
Mikill hluti þeirra er sænsk-
finnskur og margir Álendingar.
Þeir voru settir í varðhald,
af því að þeir neituðu að sigla
fyrir Þjóðverja, þegar Finnland
samdi um vopnahlé og varð
að reka Þjóðverja burt.*
Finnsku sjómennirnir voru
fluttir með skipi frá Osló til
Danmerkur og áttu að fara í
jámbraut þaðan til Þýzkalands.
(Frá' norska blaðafulltrúanum).
ÚR LÍFl ALÞÝÐUNNAR
Rósberg G. Snædal hlaut
verðlaunin N
Rósberg G. Snædal á Akureyri
hlaut verðlaun vikunnar í sam-
keppninni um greinar ÚR LÍFI AL-
PÝÐUNNAR. Grein Rósberffs:
SKÓLAFÖR TIL ÞINGVALLA,
birtist á 3. og 8. síðu blaðsins í dag.