Þjóðviljinn - 25.02.1945, Page 2
Mennirnir með „sérþekk-
inguna“
„Gamall Framsóknarmaður“ skrif
ar mér bréf um áburðarverksmiðju
málið, og afskipti Framsóknar af
því. Hann skrifar:
„Það hefur lengi verið háttur
þeirra sem teljast leiðandi menn
innan Framsóknarflokksins að
mæla fagurt í eyru bænda og þykj-
ast vera þeirra einu sönnu vinir
og vemdarar. Þeir hafa verið ó-
sparir á að auglýsa „sérþekkingu“
sína á landbúnaði, og algengustu
svör þeirra við gagnrýni andstöðu-
flokkanna á axarsköftum Fram-
sóknarmanna í málefnum bænda-
stéttarinnar eru þau, að aðrir en
Framsóknarmenn hafi svo sára litla
þekkingu á þessum málum að þeir
séu varla svara verðir.
Eini sérfræðingurinn!
„Sérþekking" þeirra Framsókn-
armanna verður ekki tekin til með-
ferðar hér, en benda mætti á það
svona til fróðleiks fyrir trúaða
Framsóknarmenn, að ekki er kunn-
ugt að til sé í þingmannahópi
Framsóknar nema einn sérfræðing-
ur í búnaðarmálum, en það er Páll
nokkur Z„ sem stundum er nefnd-
ur í sömu andránni og „karakúl".
Verður ekki rætt um sérþekkingu i
hans frekar. Annars verður það að
segjast um Framsóknarforkólfana,
að þeir hafa fremur kosið að
hreiðra um sig í vellaunuðum stöð-
um í höfuðstað landsins en að
taka þátt í lífsbaráttu bændastétt-
arinnar.
Loddaraleikir „bændavin-
anna“
/
Eins og títt er um menn sem
þurfa að vekja á sér athygli og
sýnast aðrir en þeir eru í raun og
veru, hafa Framsóknarmenn leikið
hinar fáránlegustu hundakúnstir
framan í háttvirta kjósendur úr
bændastétt. Aldrei hafa þeir þó
gert sig iafn bera að fláttskap eins
og síðan þeir ultu frá áhrifum á
stjórn landsins, ,við iilan orðstír.
Áburðarverksmiðj u-
málið
Eitt dæmið um starfsaðferðir
Frai»sóknarmanna á þessum síð-
ustu tímum, er moldviðrið sem þeir
hafa þeytt upp út af áburðarverk-
smiðjumálinu.
Sú er saga þess máls, að fyrir
tæpum 10 árum, fóru Framsókn-
armenn að fitla við það mál, en
voru í hálfgerðum vandræðum
með það frá upphafi, því eiginlega
var það nú ekfci Framsóknarmað-
ur heldur Sjálfstæðismaður sem
fyrst hreyfði þessu máli, en það
mátti auðvitað ekki heyrasj nefnt.
Eftir að mál þetta hafði notið
10 ára undirbúnings þeirra Fram-
sóknarmanna, ea mestan hluta þess
tíma skipuðu sæti landbúnaðar-
ráðherra, er sjálfsagt hafa hugsað
stinnt um þetta mikla velferðar-
mál bændanna, lagði þáverandi at-
vinnumálaráðherra, Vilhjálmur
Þór, fram á Alþingi „frumvarp' til
laga um áburðarverksmiðju“.
Margt hafði gleymzt við samningu
þessa, frumvarps. Það var t. d.
hvergi tekið fram hvar á landinu
henni skyldi valinn staður,'og þar
afleiðandi ekki upplýst hvaðan
henni yrði séð fyrir raforku. Það,
sem hlaut að verða aðalatriði við
rannsókn og undirbúning málsins,
auk þess að vera sérlega hugþekkt
fyrir mennina með „sérþekking-
una“, hafði alveg gleymzt, en það
voru tilraunir með notagildi þeirr-
ar áburðartegundar er áformað var
að verksmiðjan framleiddi!!
En það var þó eitt atriði í frum-
varpinu, sem tryggilega var frá
gengið, en það var hverjir skildu
fara með stjórn verksmiðjunnar.
Þar voru tekin af öll tvímæli.
Framsóknarmönnum voru tryggð
þar forráð.
Afgreitt með dagskrá
Þegar þetta síðasta atriði er haft
í huga, verður það skiljanlegt, að
Framsóknarmenn skyldu taka
munninn fullan, þegar málinu var
vísað frá á Alþingi með „rök-
studdri dagskrá“, á þeim forsend-
um, að þar sem málið væri ekki
nægilega undirbúið og ýmsir van-
kantar væru á því, yrði því vísað
til nýbyggingarráðs til frekari at-
hugunar, og yrði sú afgreiðsla af
þingsins hálfu ekki til að seinka
framkvæmdum, eins og i pottinn
væri búið, frá hendi fyrrverandi
rikisstjórnar.
Þegar Framsóknarmönnum varð
þetta kunnu^t, ráku þeir upp ösk-
ur mikið og börðu sér á brjóst
méð kátlegum tilburðum. Töldu
þeir að nú þyrfti ekki framar vitn-
anna við um fjandskap núverandi
stjórnarflokka i garð bænda og
væri svo sem auðvitað að þeir ætl-
uðu að koma málinu fyrir kattar-
nef.
Undirbúningi málsins var hælt
á hvert reipi. Einn orðhvatasti þing
maður þeirra, Sveinbjörn Högna-
son, lét svo um mælt við fram-
haldsumræðu um fjárlögin 5. des-
ember síðastliðinn:
„Fyrsta mál nýsköpunarinnar,
áburðarverksmiðj-an, var nýlega til
umræðu á þingi. Og stjórnarliðið
sameinaðist um að slá því máli á
frest, og er það þó vissulega lang
bezt undirbúna málið sem í ný-
sköpuninni er áformað“.
Loddararnir fá ofanígjöf
Nú vill svo illa til, fyrir land-
búnaðarsérf ræðinga (!) Framsóknar
flokksins, að kvatt hefur sér hljóðs
um þetta mál, maður sem með allri
virðingu fyrir „sérþekkingu" Fram-
sóknarþingmanna, verður tekinn
alvarlegar í umræðum um þetta
en Sveinbjörn Högnason.
Árni G. Eylands birtir í nýlega
útkomnu hefti af búnaðarblaðinu
Frey, grein er hann ritaði 9. jan.
s. 1. og nefnir: Áburðarverksmiðj-
an. — Nýr áburður. Eftir að hafa
rakið forsÖgu málsins að nokkru,
birt frumvarp Vilhj. Þórs orðrétt
og skrá yfir fylgiskjöl frumvarps-
ins, farast honum orð á þessa
leið: „Ef frumvarpið og fyigiskjöl
þess eru athuguð frá sjónarmiði
hagnýtrar búfræði, verður ekki hjá
því komizt að sjá, að mikið skort-
jr á að þetta áburðarverksmiðju-
mál hafi hlotið þann undirbúning
er skyldi. En því er hér að þessu
vikið, að það ér sérstaklega áber-
andi hve gengið hefur verið fram
hjá hinni búfræðilegu hlið máls-
ins, og öllu, er þar að lýtur. Verð-
ur því ekki neitað, að um það er
hin búfræðilegu atriði varðar, er
undirbúningur mikið lakari, held-
ur en hann var 1935, og var þó
‘ ýmislegt þá er betur hefði mátt
fara, eins og vænta mátti, er um
slíkt nýmæli var að ræða.
Þetta atriði, hve innlend búfræði-
þekking og tilraunastarfsemi er
oft sniðgengin við undirbúning
mála, er varða landbúnaðinn, er
blátt áfram að verða mjög alvar-
leg meinsemd. Það er væn grein
af beim stofni, er dafnar svo vel í
þjóðmálum vorum: vanmat og jafn
vel fyrirlitning á faglegri þekkingu.
Landsföðurlegi'r lýðskrumarar láta
ÞJÓÐVILJINN
Sunnudagur 24. febrúar 1945,
&.#'
OFðin riiitl. i nliK.Hr.
Nortæna fél. hefur 2 útverpshvBld í næsta mðnuði
Noregssöfnun nemur nú mmlega einni milljón króna og er
þá náð því lágmarki er sett var í upphafi söfnunarinnar. Auk
þess hefur verið safnað af fafnaði sem mun vera um 300 þús.
kr. virði og er hann nú tilbúmn til sendingar. Lýsi er Norræná
félagið hefur keypt mun nú vera komið til Norður-Noregs.
Snemma í næsta mánuði liefur Norræna félagið tvö útvarps-
kvöld.
Guðlaugur Rósenkranz skýrði
blaðamönnum frá þessu nýlega.
Gert hafði verið ráð fyrir að
Noregssöfnuninni lyki s.l. haust,
nam hún þá kr. 842,466,80, en
fatasöfnuninni skyldi halda á-
fram.
Jólagjafakort voru seld fyrir
110 þús. kr. og verður ágóðinn
rúml/ 100 þús. kr. að frádregn-
um prentunar- og útsendingar-
kostnaði. Auk þess bárkist þá
einnig gjafir frá fólki, sem ekki
gat náð í jólakort og söfnuðust
50 þús. kr. og nemur Noregssöfn
unin nú kr. 1 003 351,88.
Þegar hafa verið send 10 þús.
pund til norska Rauða krossins
í London. Þá hefur Norræna fél.
keypt 542 föt af meðalalýsi og
annað slagið dátt að bændum og
landbúnaði og segjast vilja veg
þeirrar stéttar og þéssa atvinnu-
vegar, sem mestan, en virðast svo
þess á milli skammast sín þegar
öndvert horfir og á reynir, fyrir
að hafa verið svona „sveitó", og
kappkosta þá að ganga fram hjá
því, sem landbúnaðinum viðvíkur,
jafnvel því álitlegasta, sem hann
hefur að sýna og fram að færa.
Góð mynd af þessu viðhorfi er
það, þegar hérna um árið var far-
ið með allháttsettan starfsmann í
landbúnaðarráðuneyti Bandaríkj-
anna í kynningarferð til Norður-
lands og honum sýnt allt hið mark-
verðasta, er var að siá á Akureyri
nema tilraunastöð Rækíunavfél.
Norðurlands, elztu tilraunástöð
landsins! Sá var gerður hlutur land
búnaðarins. — Það gefast mörg til-
efni til þess að búnaðarmálamenn
spyrji: Hvenær verður horfið að
því ráði, að fara með málefni land-
búnaðarins á æðri stöðum, eins og
þau séu búnaðarmál?"
Þá ræðir Árni um áburðarteg-
undina sem gert var ráð fyrir að
verksmiðjan framleiddi og nefnist
Ammoniumnitrat. Gefur hann þær
upplýsingar, að í Bandaríkjunum,
þar sem áburðartegund þessi sé
framleidd, að „allt fram til áranna
1943—1944 var 35% Ammonium-
nitrat hvergi notað óblandað til á—
burðar, svo nokkru næmi.“ En að-
allega hafi það verið notað sem
sprengiefni. Hinsvegar sé þar i
landi verið að gera tilraunir til að
koma þessari áburðartegund í það
form, að hægt sé að nota hana til
áburðar.
Fer nú að verða lítið úr fujlyrð-
ingum séra Sveinbjarnar við út-
varpsumræðurnar 5. des. ,,um lang-
bézt undirbúna málið“!
Árni endar grein sína með því
að brýna það fyrir _„forráðamönn-
um lands og þjóðar", að notagildi
þessarar áburðartegundar verði
rannsakað ýtarlega á tilraunastöðv-
um okkar, og að undangenginni
þeirri rannsókn og fyrr ekki, verði
fengin vissa um notagildi þessa
nýja áburðar.
Hvað vakað hefur fyrir þeim
Tímamönnum, með brölti sínu í
þessu máli, verður sennilega bezt
skýrt með þessum orðum, teknum
úr leiðara Tímans, 28. nóvember
s. L: „Og hverjum þeim þingmanni
sem þannig ætlar að hjálpa til að
eyða málinu, þarf að gera ljóst,
að honum tiái ekki að sýna sig
framar í framboðserindum í sveit-
um landsins“.
mun það nú vera komið til íbúa
Norður-Noregs. Fatnaðurinnhef
ur nú vérið flokkaður og pakk-
aður, er hann 13104 stykki og
pör og er nú tilbúinn til fluto
ings til Norður-Noregs og mun
verðá fluttur þangað á næst-
unni. Guðlaugur Rósenkranz
bað þess sérstaklega getíð að
þeir sem hafa í hyggju að gefa
fatnað þurfi að hafa komið hon
um fyrir 1. marz.
ÚTVARPSKVÖLD NORRÆNA
FÉLAGSINS
Þess er nú að vænta að stríð-
inu ljúki bráðlega og verður þá
hægt að taka upp norræna sam-
vinnu að nýju. Norræna fél. hef
ur skrifað skólastjórum allra
æðri skóla um að verja 1 klst.
28. febr. n.k. til þess að ræða
um Norðurlönd, og hefur feng-
ið góðar undirtektir.
Fyrri hlut'a næsta mánaðar
hefur Norræna félagið 2 sam-
felld útvarpskvöld. Fyrra kvöld
ið hefst með ávarpi forsætis-
ráðherra, Ólafs Thors, en ræður
flytja Guðlaugur Rósenkranz,
ritari Norræna fél. sr. Bjarni
Jónsson og Kristmann Guð-
mundsson skáld. Seinna kvöld-
ið flytja ræður: Bjarni Ásgeirs-
son. alþm., Tóm'as Guðmunds-
son skáld og sr. Sigurþjörn Ein-
arsson. Pálmi Hannesson rektor
og Vilhjálmur Þ. Gíslason skóla
stjóri lesa upp og verður Vil-
hjálmur jafnframt kynnir
kvöldanna. Þá verða einnig leik
in klassisk norræn tónverk.
NORRÆNA HÖLLIN
Áður hefur verið skýrt frá
íyrirhugaðri byggingu norrænn
ar hallar á Þingvöllum. Félagið
hefur fengið 8—10 ha land
fremst í Kárastaðanesi og fjár-
veitingu til vegarlagningar
þangað, að honum lögðum verð
ur hafizt handa um byggingu.
í húsinu verð'a samkomusalir
og norrænt bókasafn. 100 þús.
kr. hlutafé hefur' þegar verið
safnað.
Félagið efnir til happdrættis
til ágóða fyrir bygginguna.
Vinningarnir erju: ókeypis árs-
dvöl við háskóla á Norðurlönd-
um og ferð ivrii" 2 til Norður-
landanna með 4 daga dvöl í höf
uðborg hvers lands.
Árshátíð Nonæna fél. verður
1, marz n.k.
Ilí^gidagslæknir: Bjarni Jónsson,
Reynimel 58, sími 2472.
Næturakstur í nótt: Litla bíl-
stöðin, sími 1308. Aðra nótt: B.S.Í.
sími 1540.
Næturvörður er í Laugavegs apó-
teki.
íþróttakvikmyndasýning verður í
Hafnarfjarðarbíó í dág kl. 1.30 e.h.
— Sýndar verða úrvals íþróttakvik-
myndir, erlendar og íslenzkar. Þar
á meðal sérstaklega góð kennslu-
Fjallamenn byggja
skála við Tinda-
fjallajökul
Fjallamenn byggöu s. I. sumar
nýjan skála við Tindafjallajökul.
Skálinn stendur í 850 m. hæö á
mjöp fögrum stað. Skíðafæri er
allt árið. 25 manns geta gist í
skálanum í einu.
Á fundi fjallamanna nýlega
voru sýndar kvikmyndir frá
þessum sérkgnnilega stað, er
þeir höfðu tekið Vigfús Sigur-
geirsson og Guðmundur Einars-
son frá Miðdal.
Fjallamenn hafa undanfar-
andi ár unnið að undirbúningi
skálabyggingarinnar og var efni
fengið víða að, m. a. allmikið af
rekatimbri af söndunum eystra,
en hann var að mestu leyti
smíðaður hér í Reykjavík og var
Þórður Þorsteinsson yfirsmiður
en teikninguna gerði Jón Víðis.
Meðan skálabyggingin stóð yfir
bjuggu menn þarna í tjöldum.
Framh. á 5. síðu.
# __________"
"T' j ] |Tj—j ...
vi! i
lý
ctölrlnim
» f
Uí* hot*q)nnl
Næturræknir er í læknavarðstof-
unni í Austurbæjarskólanum.
sími 5030. ^
Útvarpið* í dag:
10.30 Útvarpsþáttur (Helgi Hjörv-
ar).
11.00 Messa í Dómkirkjunni (séra
Bjarni Jónsson vígslubiskup)
14.00—16.30 Miðdegistónleikar (plöt
ur):
a) „Óður jarðar“, tónverk
eftir Mahler.
b) Eroica-tilbrigðin eftir
Beethoven.
c) 15.25 Söngvar eftir Hugo
Wolf.
d) 16.05 Hljómsveitarverk
eftir Bliss, o. fl.
18.30 Barnatírþi (Pétur Pétursson
o. fl.
19.25 Hljómplötur: Dauðraeyjan eft.
ir Rachmanioff.
20.20 Einleikur á píanó (Fritz
Weisshappel):
„Lorelei" eftir Franz Liszt.
20.35 Myndir úr sögu þjóðarinnar:
Um uppruna íslendinga; síð-
ara erindi (Jón Steffensen
prófessor).
21.00 Upplestur og tónleikar:
a) Úr ljóðum Guðfinnu Jóns-
dóttur frá Hömrum (frú
Guðbjörg Vigfúsdóttir
les).
b) Sögukafli eftir Sigurð
Róbertsson (Höfundur les)
c) Ýms lög, leikin og sungin
(plötur).
22.05 Danslög.
Útvarpið á morgun:
18.30 íslenzkukennsla, 1. flokkur.
19.00 Þýzkukennsla, 1. flokkur.
20.30 Samtíð og framtíð: Verk-
fræði og heimilishald (Björn
Sigurðsson læknir).
20.55 Hljómplötur: Lög leikin á bíó-
orgel.
21.00 Um daginn og veginn (Sig-
urður Bjarnason alþingis-
maður).
21.20 Útvarpshljómsveitin: Dönsk
þjóðlög.
Einsöngur (Ungfrú Guðrún
Þorsteinsdóttir):
a) „Fjólan“ eftir Mozart.
b) Þjóðlag eftir Schumann.
c „Kennst du das Land“, eft-
ir Thomas.
d) „Ein sit ég úti á steini“
eftir Sigfús Einarsson.