Þjóðviljinn - 13.03.1945, Page 2
2
ÞJÓÐVILJiNN
Þriðjudagur 13. marz 1945.
Hlífarmenn krefjast þess að sjálfs-
ákvörðunarréttur verkamanna sé virtur
jft
Neíta ad láia framselja síg frá eínum af-
vínnurekenda til annars
Víðurkenna jafnframt ad vinna við fram-
leíðsluna eígí að ganga fyrír
Enn eiga verkamenn í Hafnarfirði í deilu við bæjarstjóm-
ina.
Tilefnið er valdboðsaðferð sú sem bæjarstjómin hefur tek-
ið upp gagnvart þeim verkamönnum sem í bæjarvinnunni em.
Hefur bæjarstjómin skipað þeim að fara í bryggjuvinnu þegar
henni 'hefur þóknazt og rekið þá sem eigi hlýddu.
Verkamenn telja þetta í senn tvímælalaust brot á sjálfs-
ákvörðxmarrétti sínum og á samkomulagi sem fyrmefndir að-
ilar gerðu s.l. vetur.
Fundur í V.m.f. Hlíf, haldinn s.l. föstudag mótmælti valdboði
bæjarstjómarinnar, en jafnframt hefur stjóm Hlífar lýst því
yfir að hún telji að vinna við framleiðsluna eigi að ganga
fyrir og sé stjómin reiðubúin til þess að ræða málið.
Deila þessi hófst s.l. vetur og náðist þá samkomulag, sem
bæjarstjómin hefur nú rofið. Verður þetta mál því rakið frá
upphafi.
DEILAN VETURINN 1944
Síðastliðinn vetur vann hópur
verkamanna í Krísuvíkurvegin-
um. Samkvæmt skipun bæjar-
ráðs voru þeir óaðspurðir flutt-
ir úr veginum og sendir í skipa
vinnu niðri í Hafnarfirði.
Verkamenn voru mjög óá-
nægðir með þessa ráðstöfun
bæjarráðs og töldu hana brot
á sjálfsákvörðunarrétti sínum.
Héldu þeir fund á vinnustaðn
um og samþykktu þar eftirfar-
andi mótmæli:
„Fundur verkamanna sem
vinna.í Krísuvíkurvegi, haldinn
miðvikudag 29. marz 1944; í
matskála verkamanna við Kleif
arvatn, læturíljósióánægju sína
yfir því hversu gersamlega
sjálfsákvörðunarréttur verka -
manna hefur verið fyrir borð
borinn af bæjarráði, samanber
tilkynningu þess lesna upp af
verkstjóra og flutning verka-
manna að þeim forspurðum úr
Krísuvíkurvegi niður á bryggju
í Hafnarfirði.
Það er einróma álit fundarins
að sjálfsákvörðunarréttur verka
manna á hverjum tíma verði að
viðurkennast af þeim aðilum
sm verkamenn hafa samskipti
við og því verði atvinnurekend-
ur, hverjir sem þeir eru, að láta
sér skiljast, að verkamenn
sætta sig eigi við annað en að
ráða sjálfir hjá hvaða atvinnu-
rekanda þeir vinna og að leiga
á verkamönnum geti aðeins far
fð fram, með samþykki þeirra
sjálfra (verkamanna).
í samræmi við þessa skoðun'
sína, þá samþykkir fundurinn
að verkamenn í Krísuvíkurvegi
anzi ekki skipan um tilfærslu,
til vinnu niður á bryggju í Hafn
arfirði, fyrr en viðkomandi að-
ili hefur viðurkennt rétt verka-
manna til að ráða sjálfir hjá
hvaða atvinnurekanda þeir
vinna og að þeir verði eigi færð
ir á milli vinnustaða að þeim
forspurðum.
Felur fundurinn stjóm Hlíf
ar að tilkynna bæjarráði þessa
samþykkt sína og hafa milli-
göngu í máli þessu.
F. h. fundarins.
trúnaðarmenn í Krísuvíkurvegi
(Undirskrift).
SAMKOMULAG NÆST
Hin ákveðnu mótmæli verka-
mannanna urðu til þess að sam
komulag varð við bæjarstjórn-
in og skyldi sjálfsákvörðunar-
réttur verkamanna í heiðri hafð
ur.
BÆJARSTJÓRNIN VEGUR
ENN í SAMA KNÉRUNN
Hafnfirzkir verkamenn héldu
að nú þyrftu þeir ekki meir
að óttast um að ráðizt yrði á
sjálfsákvörðunarrétt þeirra, en
13. f. m. gat bæjarstjórn Hafn-
arfjarðar ekki lengur haldið
það út að sýna ekki í einhverju
mátt sinn og dýrð, ríki og hús-
í bóndavald, nú skyldu þessm
verkamannaþrjótar fá að s]á
hver væri húsbóndinn á heim-
ilinu.
Verkamenn í bæjarvinnunni
fá fyrirskipun um að fara í
bryggjuvinnu og las verkstjór-
inn yfir þeim svohljóðandi
bréf, frá hennar hágöfgi, bæj
arstjórninni í Hafnarfirði: i
„Hafnarfirði, 15. febr. 1945.
Á fundi Bæjarstjómar Hafrt-
arfjarðar þann 13. þ. m. sam
þykkti bæjarstjórnin að menn
er vinna í bæjarvinnunni, verði
framvegis ráðnir með því skil-
yrði að þeir vinni við afgreiðslu
skipa þégar óskað er. Þeim sern
nú eru í bæjarvinnunni verði
tilkynnt þetta og þeim verka-
mönnum verði sagt. upp sem
ekki sætta sig við þessi skilyrði
Þetta á þó ekki við um aldraða
menn, sem ekki trysta sér að
vinna á bryggjunni.
Er yður hérmeð falið að birta
viðkomandi verkamönnuin
þessa ályktun bæjarstjórnar
Vinnumiðlunarstjóm hefur ver--
ið tilkynnt þessi samþykkt með
fyrirmælum um að hennar
verði gætt við ráðningu verka-
manna í bæjarvinnuna fram-
vegis.
Virðingarfyllst.
F. Skarphéðinsson.
(sign.).
Hr. verkstjóri G-ísli Sigurgeiss.
BÆJARSTJÓRNIN HEFUR
BROTTREKSTRA
Fjórir af verkamönnunum
neituðu að hlýða slíku valtí
boði, þar sem þeir teldu það
brot á sjálfsákvörðunarrétti
verkamanna og myndu fást
nægir menn með frjálsu sam-
komulagi, án þess til slíks vald-
boðs kæmi.
Þeir voru reknir úr vinnunni.
STJÓRN HLÍFAR MÓT-
MÆLIR
Stjórn Hlífar ræddi því þetta
mál og samþykkti meiri hluti
hennar eftirfarandi mótmæli
sem send voru bæjarstjóminni:
„Hafnarfirði 27. febr. 1945
Út af samþykkt bæjarstjórnar
innar 13. febr., sem lesin vgr
UPP yfir nokkrum verkamönn-
um í bæjarvinnunni af verk-
stjóra.
Þá tilkynnum vér yður hér-
með að stjórn V.m.f. Hlíf, sam-
þykkti á fundi sínum 24. þ. m.
að mótmæla harðlega þeim
þvingunarráðstöfunum er bæj-
arstjórn hyggst að beita gagn-
vart verkamönnum í bæjarvirm
unni þar sem hún sviftir verka-
menn sjálfsákvörðunarrétti sín-
um um hvar þeir vinni í hvert
sinn.
Með ''framangreindri sarn-
þykkt hefur bæjarstjórnin rofið
það samkomulag sem gert var
á síðastliðnu vori, milli stjórnar
V.m.f. Hlífar annarsvegar og
bæjarráðs og atvinnumálanefnd
ar bæjarins hinsvegar, um
sjálfsákvörðunarrétt verka-
manna.
Væntum vér þess að bæjar-
stjórnin afturkalli þegar þessa
samþykkt sína. /
Vér erum að sjálfsögðu reiðu-
búnir að ræða við yður út af
deilu þeirri er þér hafið stofn-
að til við Verkamannafélagið
Hlíf, þar sem þér, eins og áður
r\ • ' .......
Ábyrgð verkstjóranna
„Borgnesingur skrifar mér um
ábyrgðarleysi verkstjóra gagnvart
öryggi vegfarenda, og nefnir dæmi
því til sönnunar:
„Hvernig á almenningur að koma
raunverulegri ábyrgð fram á henc-
ur opinberum verkstjórum,' þar
sem sýnilegt' öryggisleysi er undir
stjórn þeirra við vinnuna, eða fram
kvæmdum er hagað þannig, að al-
menn h'ætta stafar af?
Hér í Borgarnesi er verið að
grafa fyrir skolpleiðslu. Á einum
stað er grafið inn í miðjan veginn
og engin trygging fyrir að bílar
keyri ekki ofan í. Þetta er bersýni-
leg lífshætta — óforsvaranlegt og
fullkomið ábyrgðarleysi.
í fyrra varð slys á veginum ir.n
í Lundareykjadalinn. Þar var hlera
útbúnaður yfir rennu sem verið Vaf
,að steypa. Ókunnugur bílstjóri
keyrði yfir hlerann í dimmu, og
hlauzt slys af.
Getur ekki löng verkstjórareynzla
. kennt varkárni gagnvart nauðsya-
legu öryggi?
Hvar er ábyrgð þessara mannav“
Bæjarpósturinn vísar þessari urn-
kvörtun „Borgnesings" til vegamála
stjóra, sem hefur eftirlit með ör-
yggi vegfarenda á þjóðvegum. Ber
honum að sjálfsögðu að rannsaka
mál sem þetta, og áminna þá verk-
stjóra sem sekir kunna að reynast
t
um vanrækslu í starfi.
ir fyrir gengisleysi glímunnar sé
að finna í því keppnisfyrirkorr.ulagi
sem í gildi hefur verið til þessa.
Þeir hafa spáð að vinsældir glím-
unnar mundu brátt aukast og þátt-
taka að vaxa að miklum mun, ef
glímumönnum yrði skipt niður í
flokka eftir þyngd. Þá 'mundu hin-
ir léttari og kraftaminni einmg
finna hvöt hjá sér til glímuiðkana,
þegar sýnt væri að ekki einungis
þeir, sem eru stórir vexti og sterk-
ir gætu vænzt árangurs í glímu-
keppni, þótt kunnátta og leikní
væri ekki á háu stigi, heldur kæmu
þar fleiri til greina.
Krafan um að glímukeppni fari
fram í þyngdarflokkum, vinnur scr
óðum fylgi meðal íþróttaunnenda og
forusta íþrpttamálanna hefur tekið
hana til yfirvegunar. Fyrsti sýni
legi árangurinn er nú þegar kom-
inn í ljós. íþróttasamband íslauJs
og Glímuráð Reykjavíkur, hafa aug
lýst flokkakeppni í glímu n.k. laug-
ardag hér í bænum. Verður keppt
í fjórum þyngdarflokkum.
Er þetta vonandi fyrirboði þess
að hér verði tekin upp sú regla
að skipta glímumönnum eftir þyngd
til keppni og gefnir verði verðlauna
gripir, til að keppa um árlega í
flokkakeppninni. Þarf þá ekki að
efast um, að okkar gamla og góða
íþrótt, glíman, eignist aftur verö-
ugan sess í íþróttalífi okkar.“
Þyngdarflokkun í glímu-
keppni
„Iþróttavinur“ skrifar mér um
íslenzku glímuna og nauðsyn þe.s
að keppt sé í þyngdarflokkum í
glímu:
„Það hefur lengi verið áhyggju
efni öllum þeim er unna hinni þjóð-
legu íþrótt, glímunni, hve litlu gengi
hún hefur átt að fagna hjá þjóð-
inni á síðustu áratugum. Uin
orsakir þeirrar hnignunar hefur
margt verið rætt og ritað. Sumir
hafa viljað kenna hana óþjóðleg-
heitum \ungu kynslóðarinnar, aðnr
talið glímuna ljóta og ruddalega
íþrótt, sem eðlilegt væri að þoK-
aði fyrir knattspyrnu og handknatt-
leik, og mætti jafnvel alveg hverfa
úr sögunni. Þeir hinir sömu hafa
lofað hnefaleikana sem glæsilega
íþrótt, í sömu andránni og þeir hafa
nýtt glímuna.
Þeir sem hugleitt hafa þetta mál
af velvild og skilningi, hafa ko.x/-
ist að þeirri niðurstöðu, að orsak-
segir, hafið rofið það samkomu
lag er gert var við yður.
Virðingarfyllst.
Hermann Guðmundsson.
Ólafur Jónsson.
VERKAMENN í BÆJAR-
VINNUNNI MÓTMÆLA
Bæjarstjórnin virti ekki þetta
bréf Hlífar svars en verkamenn
þeir sem vinna í bæjarvinn-
unni samþykktu eftirfarandi
mótmgéli gegn valdboði bæjar
stjómarinnar og brottrekstrum
verkamannanna:
Fundur verkamanna, sem
vinna í bæjarvinnunni, haldinn
miðvikudag 7. marz 1945 í
Verkamannaskýlinu.
Mótmælir samþykkt þeirri
sem bæjarstjórnin gerði á fundi
sínum 13. febr. s.l. þar sem
verkamönnum í bæjarvinnunni
Framhald á 5. síðu.
Or borglnnl ]
Næturlæknir er í læknavarðstof-
unni í Ahsturbæjarskólanum,
sími £030.
Næturvörður er í Lyfjabúðinni
Iðunn.
Næturakstur: Litla bílstöðin, síini
1380.
Ljósatími ökutækja er frá kl.
18.30 til 6,50.
Útvarpið í dag:
13.00 Bænda- og húsmæðravika
Búnaðarfélags íslands — Er-
' indi:
(Pétur Gunnarsson, fóðurfræð
ingur, Unnsteinn Ólafssoa
skólastjóri, Helga Sigurðai-
dóttir forstöðukona).
18.30 Dönskukennsla, 1. flokkur.
19.00 Enskukennsla, 2. flokkur.
19.25 Hljómplötur: Lög úr óperett-
um og tónfilmum.
20.20 Tónleikar Tónlistarskólaris:
Tríó í B-dúr °p. 97, eftir Beet
hoven (Tríó Tónlistarskólans
leikur).
21.00 Erindi: Um stjórnskipun íc-
lendinga. — Alþingi (Gunnar
Thoroddsen prófessor).
21.25 Hljómplötur: Gömul kirkju-
tónlist.
Leikfélag Reykjavíkur er nú að
hætta sýningum á danska sjón-
leiknum Álfhól, sem það hefur
haft sýningar á síðan um jól. Enn-
þá er mikil aðsókn að leiknum, en
þar sem næsta verkefni Leikfélags-
ins er nú að verða tilbúið til sýn-
ingar verður að hætta sýningum nú
og er því eina ráðið fyrir þá, sém
ekki vilja missa af leikritinu að
reyna að ná í aðgöngumiða á þess-
ar tvær sýningar, sem eftir eru.