Þjóðviljinn - 14.03.1945, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 14.03.1945, Blaðsíða 2
2 Þ J Ó Ð VIL J IN N Miðvikudagur 14. marz 19í5.. Þegar stormsveit AlþýOublaOsins sigraOi í verkamannatélaginu á SauOárkróki Hún var býsna hraustlega orðuð, dagskipanin, sem A1 . þýðublaðið gaf út til lesenda sinna þann 1. þ. m. um uppgjör Alþýðuflokksins við svikarann á Sauðárkróki. Eg get hugsað mér að fregnin um aðalfund verkamannafélagsins hérna hafi orðið þessu háttvirta málgagni íslenzkrar alþýðu svo munntöm af því að það er nú í seinni tíð orðið frekar fátítt, að það geti birt fréttir um sigra sína í verk lýðsfélögum. Það skyldi heldur enginn lá þeim þó að þeir opni munnim>, — gamalt máltæki segir, að þorstinn sé ekki vatnsvandur, og þó að fréttin sé sönn bara að nokkru leyti, þá er hún jafn góð fyrir því, — handa þeim sem ekki vita um allar aðstæð- ur. Eg held að það særi engar, þó að ég geri þessum góðu mönnum þann greiða, að segja nokkru nánar frá aðdraganda þessa stórsigurs blaðsins. Svikarinn, sem blaðið er að gera upp við, er eins og klaus an ber með sér, fyrrverandi for- maður félagsins og stjórn þess. í henni áttu sæti tveir sósíal- istar, einn Alþýðuflokksmaðrr og tveir óflokksbundnir mer.i. Formaður var Skafti Magnús- son, „svikarinn“ sem Alþýðu- blaðið og fréttaritari þess er fyrst og fremst að „gera upp við“ á svo eftirminnilegan hátt. og skulum við athuga það ögn nánar. UPPSTILLNGARNEFND Undanfarin tvö ár hefur mál um verið svo skipað hjá okkur, að fyrir aðalfund hefur verið kosin þriggja manna nefnd. til þess að stilla upp í stjórn og trúnaðarmannaráð. í fyrra var nefndin á einu máli um að hafa Skafta fyrir formann og stjórn ina eins og hún var skipuð síð- astliðið ár. Engin önnur tillaga kom fram og „svikaramir" voru sjálfkjömir. Þessi uppstillinga nefnd var endurkosin í vetur, en þá fór brátt að koma 1 ljós > að Alþýðuflokksmaðurinn í j nefndinni myndi ekki vera að / öllu leyti ánægður og lagði á- j herzlu á að koma Skafta úr stjóminni, en vildi gjaman hafa okkur hina kyrra. Sakir á Skafta, vildi hann engar láta uppi, en hann var bara óhæf- ur formaður. STJÓRN SKAFTA MAGNÚSSONAR Skafti var varaformaður fé- lagsins 1943 og formaður 1944, eins og að framan getur. Hann þótti góður varaformaður, enda hefur verkamannafélagið héma ekki átt, þessi 15 ár, sem ég hef verið í því, ötulli starfs- manni á að skipa heldur en hann hefur verið. Þegar Skafti I var varafomaður, var Sigurð- ; Pétur Laxdal. ur Pétursson, verkstjóri, formað ur. Snemma á árinu fór hann út á land til ,atvinnu sinnar jg stjórnarforustan hvíldi á Skafta mestan hluta ársins. Haustið 1942 gerði verka- mannafélagið nýja kjarasamn- inga við vinnuveitendur. Meðal fríðinda, sem verkamenn áttu blaðsmennina, að það var hann, sem átti frumkvæðið að þeirn kjarasamningi, sem var gerð ur og það má óhætt fullyrða, að hann vann mest að því að fá vinnuveitendur til að gang- ast inn á hann. Nú eru kaup- samningar okkar með þeim hætti að í sumum vinnuflokk um höfum við einna bezt kaup allra íslenzkra verkamanna og grunnkaup í almennri vinnu er kr. 2,20 á kl.st. VEGAVINNUDEILAN Svo var það í yor að vega- vinnudeila hófst á milli Ai þýðusambandsins og ríkisstjóm arinnar. Meðal tíðinda í þeirri deilu var það að verkamanna félagið héma varð að beita valdi til þess að stöðva vega- vinnuhópa á Vatnsskarði og Öxnadalsheiði, sem unnu þar undir stjóm Rögnvalds Jónsson ar. Rögnvaldur þessi hefur sér að hafa samkvæmt þeim samn- ingi var að orlofsfé skyldi greitt samkvæmt frumvarpi til orlofs- laga, sem þá lá fyrir Alþingi hvort sem það frumvarp yrði að lögum eða ekki. Nokkru efbr að Sigurður fór að heiman um vorið og Skafti var tekinn við formennskunni, fór hann að at- huga hvort kjarasamningnum hefði að öllu leyti verið full- nægt af vinnuveitenda hálfu. Kom þá í ljós að orlofsfé var ógreitt. Skafti leit svo á að hér væri ófullnægt samningsatriði og fór á stúfana til að fá þetta lagfært. Gekk það í miklu þófi. Vinnuveitendur voru að sjálf- sögðu til með að greiða orlofs- fé frá þeim tíma að lögin tækju gildi, en vildu hinsvegar ekki taka mark á samningnum. Skafti leit svo á að kjarasamn- ingar verkamannafélagsins væru ekkert sérstakt grín, og leikar fóru svo, að honum tókst að innheimta hvern eyri eins og til stóð. Mér er vel kunnugt um að þar lá mikið starf að baki og sýndi hann þar hve ötull og lipur hann er og mér er ekki grunlaust að þessir aurar til verkamannanna hefðu vel get- að glatast ef hans hefði ekki notið við. Þetta sama ár höfðu tvelr verkamenn hérna ráðið sig hjá einu atvinnufyrirtæki, fyrir lægra kaup en taxti og sama- ingar félagsins ákváðu. Það kom einnig í hans hlut að leið- rétta það. Árið eftir er Skafti formaður. Það er undarleg tilviljun og ekki alveg laus við að vera dá- lítið kaldhæðin fyrir Alþýðu- það ti'l ágætis umfram aðrar einkunnir, að hann mun einn allra íslenzkra verkstjóra í þeirri deilu hafa eggjað verka menn sína lögeggjan til þess að vera verkfallsbrjótar. Hann hét því við höfuð sitt að taka eng- an þann í vinnu, sem þátt hefði átt í vinnustöðvuninni. Hann rak menn, sem að vinnustöðvun inni stóðu, úr vinnu eftir að samningar tókust, og sýndi slík an fjandskap að það er blettur á Vegagerð ríkisins að hafa slík an mann í þjónustu sinni. Skafti hafði að sjálfsögðu á hendi forustu þessarar vinnu- stöðvunar, og það er verkamönn um hér sómi, að færri komust í farartækin, sem við höfðum til umráða, en þeir, sem fara vildu. Þeir voru ákveðnir í því að láta ekki sitt eftir liggja, og gerðu það ekki heldur, en hins- vegar bar ekki hátt á stórskota- liði Alþýðuflokksins við þessar hernaðaraðgerðir, og virtist sem þeir væru alveg óvenjulega upp gefnir dagana þá, og auk þess var málatilbúnaður þannig, að vel mátti búast við að ekki kæmu allir heilskinnaðir heirn. En það kom ekki til átaka, og er það haft eftir Rögnvaldi verk stjóra, að yið höfum verið svo fjölmennir að það myndi ekk- ert hafa þýtt fyrir hann að kveðja lið sitt til vopna. ALÞÝÐUSAMBANDS- ÞINGIÐ Það sem eftir er ársins verð- ur fátt stórra tíðinda, en í haust voru kosnir fulltrúar á Alþýð ;- sambandsþing, og Skafti var kosinn. En hann var barg ekki , kosinn af Alþýðuflokknum ein- um. Hann var líka kosinn af Sjálfstæðismönnum og Fram-- sóknarmönnum, og hann var kosinn af sósíalistum. Hann fékk nefnilega atkvæði allra fundarmanna. „Á það þing var hann kosinn sem andstæðingur'kommúnista,1' segir Alþbl. Það er nú svo. Allir félagsmenn, sem mættir voru, þegar kosningin fór fram, geta vottað það að Skafti spurði að kosningu lokinni hvort eng inn vildi gefa þeim fulltrúun 1 um veganesti til ferðarinnar, en það var steinhljóð. Skafti fór á þingið, og má hver lá honum sem vill, að hann tók þar af- stöðu til mála samkvæmt eigin sannfæringu, en spurðist ekki fyrir um það á ritstjórn Alþýðu blaðsins hvernig hann ætti að greiða atkvæði hverju sinni. Magnús Bjarnason, sporgöngu- maður Alþýðublaðsins fullyrðir að Skafti hafi svikið blaðið en hann sýnt því trúnað. Eg geri ráð fyrir því að Magnús viti ógerla hvernig Skafti eða aðrir ^hafa kosið, þar sem kosning var leynileg. En hafi opinber at- kvæðagreiðsla hans orðið Magn úsi á móti skapi, þá er það af | því að Skafti tók afstöðu með | lögum Alþýðusambandsins (;. . d. um kjörbréf). En ef svo hef I ur nú farið að Skafti hafi brugð ist Alþýðublaðinu og Magnúsi eins blygðunar- og kinnroða laust eins og þessir aðilar vilja vera láta, má ég þá spyrja hvað það er hjá Magnúsi Bjarnasyni. þegar hann greiddi atkvæði á móti Alþýðublaðinu og Sigu> jóni Ólafssyni? Vafalaust eru það ekki svik. Það mun heita að taka afstöðu til máls eftir eig- in skynsemi og sannfæringu. Hversvegna þá að álasa öðrur.r fyrir það? Næturl'eknir er í læknavarðstof- unni í Austurbæjarskólanum, sími 5030. Næturvörður er i Lyf jabúðinni Iðunn. Næturakstur annast B.S.I., sími 1540. Ljósatími ökutækja er frá kl. 18.50 til kl. 6.25. Útvarpið í dag: 13.00 Bænda- og húsmæðravika Búnaðarfélags íslands. — Ex- indi: (Jóhann Fr. Kristjánsson, húsameistari. Ingólfur Davíðs- son magister, Páll Zophonías son ráðunautur). 18.30 íslenzkukennsla, 2. flokkur. 19.00 Þýzkukennsla, 1. flokkur. 19.25 Hljómplötur: Söngvar úr óper um. 20.20 Föstumessa í Dómkirkjunní (séra Bjarni Jónsson, vígslu- biskup). 21.15 Kvöldvaka: a) Kvæði kvöldvökunnar. b) Dr. Sigurður Þórarinssor. jarðfræðingur: Heima og erlendis. — Erindi. c Tónleikar. Hjóuaefni: Síðastliðin laugardag opinberuðu trúlofun sína ungfrú Kristín Eggertsdóttir,- Hverfisgötu 104'C og Jóhannes Guðmundsson, prentari, Hrísakoti við Kaplaskjóls- veg. VERKSTJÓRAFÉLAGIÐ Eitt atvik kom fyrir í vetpr,. sem 'gott er að minnast í þessu sambandi. Það er til félag sem kallar sig Verkstjórafélag Skagafjarðar og Austur-Húna vatnssýslu. Það hélt aðalfund sinn skömmu eftir áramótin. Átta meðlimir þess félags eru einnig félagar í verkamannafé- laginu Fram. Á fundi þessum er náttúrlega kosin stjórn fyrir fé- lagið. Forsæti hennar skipar Rögnvaldur Jónsson, sem að framan getur. Ekki er annað vitað en að þessir átta félagar okkar hafi einnig kosið hann fyrir oddvita sinn, og þar með vottað honum fullkomið traust sitt og virðingu. Framhald á 5. síðu. P • fv/‘) flf ’v Ósæmileg blaðamennska Undanfarið héfur talsvert verið rætt um manna’hvörf í Reykjavík, og í gær birti Víkverji Morgun- blaðsins greih um málið, sem væg- ast -sagt fer langt út yfir það sem hægt er að telja sæmilega blaða- mennsku. Víkverji viðurkennir, að „þessi mál eru viðkvæm og yfirleitt ekki rætt um þau opinlberlega, vegna aðstandenda þeirra er horfið 'hafa“. Þrátt fyrir þessa yfirlýsingu hikar blaðamaðurinn ekki við að segja nokkru síðar: „Frá hinu er ekki skýrt að hver og einn einasti mað- ur, sem horfið hefur hafði ástæðu til að fyrirfara sér, eða að mirnsta kosti benda allar Irkur til þess að þeir ha'fi gripið til þess örþrifa- ráðs“ .... „Maður sem hefur dregið sér fé, hefur misst atvinnu sína og veit ekki hvað hann á til bragðs að taka í lífinu, getur líka leiðst út í það að stytía sér aldur, er honum finnast öll sund Iokuð“. Eg' minnist þess ékki að hafa séð slíkar dylgjur og aðdróttanir um menn, senr ástæða er til að halda að séu ekki lengur í lifenda tölu. Hvaðan fær Víkverji þessar upplýsingar? Areiðanlega ekki frá rannsóknarlögreglunni. Blaðamað- urhrn virðist í þessu máli hafa tek- ið sér leynilögregluvald og dóms- vald, og niðurstöðum hans er dembt í dylgjuformi yfir lesendur Morgunblaðsins. Það mega vera undarlega innrættir nrenn, senr ekki telja greinar eins og þessa Víkverjagrein ásœmilega blaða- mennsku.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.