Þjóðviljinn - 14.03.1945, Síða 8
Iðnnemasambandsþingið
Aljfktair uir iðnnðmsiögin
og skölamðl iðnnemanna
«
Öðru þingi Iðnnemasambands í'slands (aukaþingi) var slit-
ið s. 1. sunnudagskvöld. Alls voru haldnir f jórir þingfundir.
Helztu ályktanir þingsins eru þessar:
Með tilliti til væntanlegrar
endurskoðunar á núgildandi
löggjöf um iðnaðarnám, álykt-
ar þingið að senda milliþinga
nefnd þeirri er um þau mál
fjallar eftirfarandi tillögur:
1. Varðandi lög um iðnaðar
nám:
a) Að allar hömlur sem nú
eru á félagsfrelsi iðnnema séu
afnumdar.
b) Að tala nemenda sé á-
kveðin með samningum milli
sveina- og meistarafélaga í
ihverri iðngrein fyrir sig. Sé
þar miðað við atvinnuhorfur og
aukningarþörf iðngreinanna á
hverju ári.
c) Að námssamningur sé ekki
í gildi fyrr en hann hafi borizt;
iðnfulltrúum til áritunar.
d) Að nemum sé ekki heimt-
ilt að hefja nám fyrr en fyrir
liggur staðfestur námssamning-
ur.
e) Að sett séu lágmarksskil-
yrði fyrir því, hverjir meist-
arar skuli hafa rétt til nem
andatöku. Sé miðað við, að við-
komandi meistari hafi nægilege
fjölbreytni í vinnubrögðum og
þær aðstæður að öðru leyti, að
hann hafi möguleika til að gera
nemann fullnuma í iðn sinni, og
telur þingið heppilegast, að
nefnd skipuð af sveina- cg
meistarafelagi í viðkomandi
iðngrein, framkvæmi árlega
rannsókn á starfsskilyrðum
þeirra meistara, er æskja nein
enda og sé samþykki nefndar-
innar skilyrði fyrir töku nema.
f) Að komið verði á hæfni-
Stúdentaráðsdeilan
Þar sem Alþýðublaðið í gær
minnist á tillögu á það álit
stúdentaráðs, að deilumál er
eingöngu snerta stúdenta inn-
byrðist skuli rædd innan
veggja Háskólans en ekki á öp-
inberum vettvangi, þykir rétt
að birta hér eftirfarandi tillögu
er samþykkt var á stúdenta
ráðsfundi s. 1. sunnudag, vegna
misskilnings er ummæli blaðs-
ins kunna að hafa valdið.
„Þar sem það hefur komið
fyrir oftar en einu sinni og
seinast 1 Alþýðublaðinu 8
marz, að stúdentar færu með
persónulegar svívirðingar á
skólafélaga sína í opinber mál-
gögn, lýsir fundurinn slíkt at
hæfi vítavert.
Telur fundurinn, að deilu
mál, sem eingöngu snerta stúd-<
entá innbyrðis, skuli rædd inn
an Háskólans en ekki á opiri-
berum vettvangi".
Tillaga þessi var samþykkt
með 6 atkv. gegn 1 (atkv. Jóns
Emilssonar).
prófum er framkrvæmd séu í
lok reynslutímans (eftir fyrstu.
þrjá mánuðina).. Skal þar at-
hugað hvort nemifm hafi hæfi-
leika, heilsu og aðrar aðstæður
til að halda áfram námi í
þeirri grein er hann hefur haf
ið nám í.
g) Að tvisvar á námstíman-
um með vissu millibili verði
neminn látinn ganga undir
verklegt próf er skeri úr hvort
meistari láti honum í té þá
kennslu, sem honum< ber. Komi
hinsvegar, í ljós að meistari
geri sér ekki nægjanlegt far
um að sjá nemanum fyrir
kennslu skuli iðnfulltrúar ekki
árita námssamning hjá þeim
meistara fyrr' en úr kennslunni
hefur verið bætt, að dónú
prófnefndar í viðkomandi iðn-
grein.
h) Að tvö fyrri ár námstím-
ans verði nemar ávallt látmr
fylgja sveini við vinnu, en
hin síðari tvö, vinni þeir ávallt
undir eftirliti sveins enda séu'
nemar aldrei fleiri en fullgild-
ir iðnaðarmenn.
i) Próf þau er um getur í lið
f. g., skulu framkvæmd eftir
skilyrðum, sem prófnefnd í
hverri iðngrein kemur sér sam-
an um og undir eftirliti henn-
ar.
j) Að kaup iðnnema sé á
vallt í vissu hundraðshlutfalli
við samningskaup sveina í við-
komandi iðngrein og sé það
aldrei lægra en hér segir:
Á fyrsta ári 30% af kaupi
sveina. — Á öðru ári 40%, á
þriðja ári 55% og á fjórða ári
70% af kaupi sveina.
k) Þingið felur sambands-
stjórn að lemja greinargerð
fyrir þessum ályktunum og
koma þeim á framfæri við
rétta aðila.
2. Um skólamál iðnnema:
a) Að iðnskólar verði starf-
ræktir af því opinbera þ. e
ríkinu.
b) Að iðnskólar verði starf-
ræktir á þeim stöðum á land-
inu þar sem bezt þykir henta,
og í sambandi við þá verði kom
ið upp heimavist fyrir þá nen<-
endur er skólana sækja utan
þeirra staða.
c) Að iðnskólar verði starf-
ræktir sem dagskólar
d) Að nemendur stundi ekki
verklegt nám þann tíma er
skólamir starfa.
e) Að iðnskólamir verði
tveggja ára skólar, og kennslan
fari fram þrjá til fjóra mán-
uði hvort ár.
f) ‘ Að kennslan verði færð
meira til samræmis við þarfir
iðnaðarins en nú er.
Aðrar ályktanir þingsins
verða birtar í blaðinu á morg-
un.
Til fyrirmyndar
Þjóðviljinn liejur áður get-
ið um gjajir, scm honum haja
borizt jrá ekkju einni í Vest-
urbœnum, sem hejur cngar
aðrar tekjur en lítiljjörlegan
ellistyrk. ■— Frá þessari konu
jœr blaðið nú gjajir með ótrú-
lega sköm/mu millibili —
stundum 10 kr. — stundum
20 — stundum 50 krónur.
Mörgum er það ráðgáta
livemig gamalmennin jara að
jramjleyta lífinu aj styrk sín-
um. Samt jinnur þessi lcona
einhver ráð, til að styrlcja
blað sitt >— sem lienni jinnst
engu síður nauðsynleg út-
gjöld og jajnvel nauðsynlegri,
en jyrir mat og drykk.
Ej aUir vinir Þjóðviljans
j vœru gœddir slíkri jórnjýsi
og skilningi vmndi hann vera
í stórt og voldugt blað. Eng-
um öðrum blöðum þýddi að
keppa við hann.
,___________________________J
Söngskemmtun
Guðrúnar Á. Símonar
Næstkomandi þriðjudag efnir
hin vinsæla söngkona, Guðrún Á.
Símonar, til söngskemmtunar í
Gamla Bíó og verða henni til að-
stoðar þessir hljómlistarmenn:
Þórarinn Guðmundsson, Fritz
Weisshappel og Þórhallur Árnason.
Á söngskránni eru 11 lög, bæði
e'ftir innlenda og erlenda höfunda.
Eru mörg þessara viðfangsefna
mjög þung, eins og t. d. Brindisi,
úr óperunni „La Traviata“ eftir
G. Vórdi, Un bel di vedremo, úr óp.
„Madame Butterfly“ eftir G.
Puccini, Intermezzo, úr óp. „Ca-
valleria llusticana“ eftir P. Mas-
cagni, La Partida eftir F. M. Al-
varey og Ástardraumur eftir Franz
Liszt.
Ungfrú Guðrún hefur, eins og
kunnugt er, háa sópranrödd,
mjúka og fagra. Er hún vel skóluð
og leikni í meðferð viðfangsefna
aðdáanleg.
Það rná með sanni segja, að
sönghæ'fileikar ungfrúarinnar séu
reistir á traustum grunni, því að
hið bezta söngfólk á hún í báðar
ættir, lið fram af lið, og faðir henn-
ar, Símon sál. Þórðarson frá Hól,
var einn hinn mest rómaði söng-
maður á sinni tíð.
Ágreiningur Þjóðviljans og Alþýðu-
blaðsins um þjóðfrelsishreyfingar
meginlandsins
^LÞÝÐUBLAÐIÐ er orðið dálítið smeykt við afstöðu sína
til þjóðfrelsishreyfinganna á meginlandi Evrópu.
Frelsishreyfingar alþýðunnar í Evrópu hafa sem kunnugt
er, ekki átt upp á pallborðið hjá því blaði, þær hafa ver-
ið rægðar þar eftir riótum trotskista og hægrikrata, sem
mynda oftast samhljóma við áróðurstónlist Göbbels. Um
þessi mál hefur verið og er ágreiningur milli Alþýðu-
blaðsins og Þjóðviljans, því Þjóðviljinn hefur jafnan talið
þjóðfrelsishreyfingarnar í Evrópu merkasta þátt þeirrar
nýsköpunar, sem hefur verið að gerast og er að gerast í
löndunum sem lifað hafa hernám þýzka nazismans.
•
þAÐ hefur verið og er ágreiningur milli Þjóðviljans og
Alþýðublaðsins um það, hverjir væru fulltrúar þjóð-
frelsishreyfinganna í hinum ýrnsu Jöndum. Alþýðublað-
ið taldi lengi vel Mihajlovitsj sannasta fulltrúa júgoslav-
nesku þjóðfrelsishreyfingarinnar, en bar Tito marskálk
hvers konar óhróðri. Þjóðviljinn hefur jafnan talið Tito
marskálk leiðtoga frelsishreyfingar Júgoslava, — og er það
nú, þó seint sé, viðurkennt sjónarmið manna um heim all-
an. Nú er Alþýðublaðið yfirleitt hætt að minnast á hetju
sína Mihajlovitsj og hefur dregið úr níðinu um júgoslav-
nesku þjóðfrelsishreyfinguna.
jþÁ tók við fyrir alvöru stríðið við þjóðfrelsishreyfingar
Grikklands og Póllands, og það er enn í fullum gangi.
Alþýðublaðið reynir eftir megni að telja lesendum sínum
trú um að E. A. M. og E. L. Á. S. séu glæpamannasam-
tök og pólska bráðabirgðastjómin landráðalýður. Al-
þýðublaðið hefur kosið sem sína menn pólsku afturha'lds-
klíkuna í London, gríska hershöfðingjann Plastiras og
Georg kóng, er kom á fasistaeinræði í Grikklandi. Auð-
vi,tað er Alþýðublaðinu frjálst að taka afstöðu með þess-
um öflum. En þróun næstu ára í Grikklandi og Póllandi
mun sýna, hvort sjónarmiðið, Alþýðublaðsins eða Þjóð-
viljans, er nær sanni, hvort það verða róttæku flokkarn-
ir 1 Grikklandi sem njóta trausts þjóðarinnar — eða fyrr-
verandi fasistar, hvort þjóðfrelsisöflin sem standa að
bráðabirgðastjóm Póllands verða sterkari en átrúnaðargoð
Alþýðublaðsins. Þjóðviljinn má vel una við þann dóm
sögunnar, sem þegar er felldur í ágreiningsmálinu við
Alþýðublaðið um Tito marskálk og Mihajlovitsj, og er
ósmeykt við dóm framtíðarinnar um það, hverjir hafi
stjórnað þjóðfrelsisbaráttu Grikkja og Pólverja síðustu
árin.
EN. hitt tekur yfir allan þjófabálk, þegar Alþýðublaðið
fer að hrósa sér af einlægu fylgi við málstað Banda-
manna. Þetta blað, sem hefur óskað nazismanum sigurs
yfir Sovétríkjunum, og þar með yfir Bandamönnum, — og
talið að í sljkum sigri lægi „menningarhlutverk“ nazism-
ans. Þetta blað sem hefur látlaust ausið níði og rógi yfir
eitt af þeim þremur Bandamannastórveldum, sem megin-
þungi baráttunnar gegn nazismanum hefur hvílt á. Þetta
blað trotskistans Stefáns Péturssonar, sem virðist enn
vona, að auðvaldið í heiminum sé nógu sterkt til að sigra
sósíalismann í Sovétríkjunum og annars staðar á megin-
landi Evrópu, — það sem þýzka nazismanum mistókst,
vona þessir herrar að brezka og bandaríska auðvaldinu
takist. En einnig þessi von mun bregðast. Sterkustu auð-
valdsþjóðjr heims sækjast eftir samvinnu við Sðvétríkin —
eindregnari viðurkenning á styrk heimssósíalismans er
óþörf.
Söngkennari ungfrú Guðrúnar
hefur Sigurður Birkis söngmála-
stjóri vcrið undanfarin ár, en það
ræður af líkum, að hún hugsar til
frekara nárns erlendis, svo fljótt
sem kostur er. S.
Æ. F. R.
N. k. fimmtudag hefjast erinda-
kvöldin sem verða haldin næstu
fimm fimmtudaga.
Flutt verða 10 til 12 erindi um
ýmis helztu vandamál, innlend og
útlend.