Þjóðviljinn - 11.04.1945, Blaðsíða 4
ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 11. apríl 1945
Miðvikudagur 11. apríl 1945 — ÞJÓÐVILJINN
Útgefandi: Sameiningarjlokkur alþýðu - — Sósíalistajlokkunnn.
Ritstjóri og ábyrgöarmaður: Sigurður Guðmundsson.
Stjórnmálaritstjórar: Emar Olgeirsson, Sigjús Sigurhjartarson.
Ritstjórnarskrifstofa: Austurstrœti 18, simi 8870.
Afgreiðsla og auglýsingar: Skólavörðustíg 19, sími 8181).
Áskriftarverð: I Reykjavík og nágrenni: Kr. 6.00 á mánuði.
Úti á landi: Kr. 5.00 á mánuði.
Prentsmiðja: Víkingsprent h.j., Garðastræti 17.
Gerum samvinnuhreyfinguna aftur að
vígi frelsis og framfara
Mennimir sem hófu merki samvinnustefnunnar á íslandi
fyrir meira en 50 árum voru frumherjar frjálslyndis og framfara á
sínum tíma. Það voru menn sem skildu hvar skórinn kreppti
að alþýðunni, þeir skildu að alþýðumaðurinn varð að taka verzl-
imina í eigin hendur á grundvelli félagsskapar, til að ná því efna-
Iega sjálfstæði sem með þurfti til að hefja einstaklingana og
þjóðina á hærra menningarstig.
Afstaða brautryðjenda samvinnuhreyfingarinnar til sinna
tíma yar á ýmsan hátt svipuð og afstaða sósíalista til nútímans.
enda höfðu margir þeirra kynnzt fræðiritum sósíalista og til-
einkað sér kenningar þeirra, þótt ekki yrðu þeir brautryðjendur
sósíalismans í þess orð eiginlegu merkingu. Efnahagsstarfsemin
var þó ekki komin á það þróunarstig að verkalýðshreyfing gæti
myndazt, og þess vegna skorti grundvöll fyrir sósíalistaflokk.
Brautiyðjendur samvinnuhreyfingarinnar á íslandi voru
djarfir og frjálslyndir hugsjónamenn, en því miður, það rætist
sem einn af merkustu leiðtogum samvinnufélaganna óraði fyrir
eldur hugsjónanna hefur dáið við grafir frumherjanna.
En „á stóli spámanna sitja hinir skriftlærðu“. Þar sem áðui
voru eldheitir brautryðjendur sitja nú steingerðir sérgæðingar,
sem vilja móta samvinnuhreyfinguna þröngri hagsmunaklíku til
framdráttar, klíku sem kennir sig við Framsókn, með enn minni
klíku í skottinu, sem kennir sig við Alþýðu. Þessir menn vilja
nota samvinnusamtökin til þess að berjast gegn hverskonar
frjálslyndi og hverskonar djarfri um'bótabaráttu, þá dreymir um
að láta tímann hætta að líða frá þeirri stundu, er þeir hófust
til valda og urðu ríkir. Þessir menn traðka á hugsjónum þeirra
sem hófu merki samvinnunnar á íslandi, þessir menn eru það
sem misnota tímarit samvinnumanna, þessir menn eru það sem
gefa stríðsyfirlýsingu í nafni samvinnustefnunnar á hendur sósíal-
istum og öðrum frjálslyndum samvinnumönnum, það eru þessi’
menn sem síðustu dagána hafa gengið á vit Sigurbjarnar í Vísl
og beðið hann fulltingis í baráttunni við „kommúnismann“, það
eru þessir menn sem eftir boði „Samvinnunnar“ eru nú að reyna
að mynda bandalag við kaupmenn gegn „kommúnistum" innan
samvinnuhreyfingarinnar.
En samvinnustefnan er enn sem fyrr lífræn. Hún getur leyst
ýmis vandámál viðskipta og atvinnulífs, og hún er þess verð að
henni sé fórnað eldlegum áhuga svo sem gerðu brautryðjendui
hennar. Samvinnuhreyfingin á íslandi þarf að ganga í endur-
nýjun lífdaganna. Hún þarf að fá undir merki sín öll hin
frjálslyndustu og framsæknustu öfl þjóðfélagsins og þessi öfl
verða að sprengja af sér það afturhaldsok sem um sinn hefur
lagt samvinnuhreyfinguna í dróma. Hin skefjalausa barátta aft-
urhaldsaflanna sem ráða Sambandi íslenzkra samvinnufélaga,
gegn frumherjum frelsis og framfara, kallar á þessi öfl, hún
kallar á alla sósíalista og frjálslynda menn til starfa innan sam-
vinnufélaganna og býður þeim að gera þau aftur að því sem þau
voru, vígi frelsis og framfara.
Verklýðssamtökin eru beittustu vopn alþýðunnar til sóknar
fyrir frelsi og menningu og um leið sterkasta brynja þeirra gegn
misrétti, kúgun og vansæmandi ómenningu, þar næst kemur
saanvínnuhreyfingin, þetta tæki verður alþýðan að nota, engu
síður en verklýðssamtökin, einhuga á hún að sækja fram innan
samvinnufélaganna, verkamaðurinn, bóndinn og sjómaðurinn.
hlið við hlið, þá mun aftur kvikna sá eldur hugsjónanna, sem
slokknaði við grafir frumherjanna.
„Danir líta björtum augum
til framtlðarinnar44
Kæru landar!
Þegar við Danir niinnumst' 9.
apríl í dag, gerum við það sem
styrjaldarþjóð, því að brátt eru
nú liðin tvö ár síðan 29. ágúst
1943, þegar „hið norska ástand“
var leitt yfir Danmörku og við
hófum fyrir alvÖru stríðið gegn
Þjóðverjuínum; þess vegna telst
Danmörk nú til hinna sameinuðu
styrjaldarþjóða.
' Þetta styrjaldarástand er einn-
ig viðurkennt í þeim kveðjum,
sem stjórnmálamenn Banda-
manna hafa sent til Danmerkur á
síðasta misseri.
Nú síðast segir Eden, utanrík-
isráðherra Bretlands, í kveðju
sinni til dönsku þjóðarinnar ,í til-
efni af 9. apríl:
„Mótspyrnán í Danmörku hef-
ur tekið á sig einkenni reglulegs
stríðs gegn Þýzkalandi, stríðs,
sem er ekki síður raunverulegt, þó
að formlega stríðsyfirlýsingu
vanti; stríðs, sem hinir dönsku sjó-
menn hafa háð frá fyrstu ferð af
hugrekki og dugnaði við hlið sona
Bretlands“.
■ Við Danir, sem erlendis dvelj-
umst, höfum ætíð haldið því fram,
að það væru heimavígistöðvarnar,
sem réðu úrslitum fyrst og fremst,
ekki sízt síðan danska Frelsisráð-
ið tók við forystunni þegar eftir
29. ágúst/
Það, að Danmörk lagði ekki
þegar út í styrjöld, hefur sínar
sögulegu og pólitísku orsakir.
Pólitískt var þessi óvirka af-
staða afleiðing hinnar eindregnu
friðar- og afvopnunarstefnu, sem
var í svo mörg ár ráðandi i Dan-
mörku í fullu samræmi við hina
barnalegu afsláttarstefnu, sem
ríkjandi var í allri Vestur-Evrópu.
En sagan sýnir okkur, að það
er alltaf vinningur að því að verj-
ast með vopn í hönd og að þjóð,
sein ekki verst, er dauðvona.
Vi véd at Fjeld kan sprænges
og tvinges kan en Elv,
men aldrig kan et Folk forgaa,
der ikke vil det selv.
Saga'n sýnir okkur líka, að frels-
ið kemur ekki af sjálfu sér. Það
verður að bérjast ’fyrir því.
1 allri sögu okkar höfum við
orðið að berjast við Þjóðverjana
fyrir menningu okkar ogÁilveru
sem sjálfstæð þjóð. Á síðustu þús-
und árum höfum við minnst einu
sinni á hverri.öld háð stríð við
miklu stærri þjóð í suðri. Þrátt
fyrir yfiiiburði andstæðinganna
höfum við aðeins misst lítinn land-
skika. Ef sögulegt réttlæti ríkir,
ættum við nú að fá landsvæðið
milli Flensborg og Dannevirke aft-
ur sem gjald fyrir hiðþýzka’arðrán.
Það hefur oft verið sagt, að við
Danir höfum aðeins viljað nor-
ræna samvinnu í því skyni að fá
Svíþjóð og Noreg til að berjast
með okkur og fyrir okkur. Álcð
jafngóðum rétti er hægt að segja',
að við höfum búið og búum enn
á hættusvæði, á vegamótum sög-
unnar, herleiðinni frá suðri ti!
Sendiherxa Darm, de Fontenai/, flutti í fyrradag, 9. apríl,
útvarpskveðju til Dana á Grœnlandi, í tilefni af því að þá voru
fiimn ár liðin síðan Þjóðverjar gerðu innrás sína í Danmörku
og Noreg. í rœðu sinni sýndi hann hin sögulegu og pólitísku rök
fyrir baráttu dönsku þjóðarinnar. Rœða hans birtist liér i
lauslegri þýðingu:
norðurs, frá vestri til austurs, og
að með því höfum við varið Norð-
urlönd fyrir árásarhættunni.
Þess vegna skjátlaðist umheim-
inum, cf hann hélt á fyrstu árum
hernámsins, að hin danska þjóð
léti sér vel líka valdstjórnin. Hve-
nær sem Þjóðverjarnir reyndu að
framkvæma hina andlegu kúgun
sína rákust þeir á óbugandi mót-
spyrnu og jafnó'buigandi samheldni.
Nazisminn, og allt sem honum við
kom, var og verður okkur fram-
andi.
Og eftir því sein þjóðin skildi,
að nýskipunin var aðeins ofbeldi
og arðrán, einungis til hagsmuna
fyrir ,,húsbóndaþjóðina“ sjálfa, þá
óx mótspyrnan hægt og öruggt,
varð meiri og ineiri.
Menningarbaráttan varð að
skemmdarverkastarfsemi og virkri
baráttu. Ilin hlægilega litla jijóð,
sem dr. Best kallaði okkur eitt
sinn, er hann hafði ekki gát á
tungu sinni, lét ekki kúga sig.
Þetta hlaut og varð að enda í
átökunum 29. ágúst 1943, þegar
öll Danmörk fleygði hanzkanum
í andlit Þjóðverja og hóf barátt-
una fyrir alvöru.
Við erum hreykin af löndunum
heima, við vitum hvað þeir þjást
og víð þjáumst með þeim. Við er-
um hreykin af sjómönnunum okk-
ar, sem ætíð hafa verið í fremstu
viglánu.
Við, sem dveljumst hér úti, og
búum við allsnægtir, hljótum að
dást að þeirri einingu, fórnfýsi og
skapfestu, sem landarnir heima
eru gæddii;, er þeir tæma bikar
þjáninganna.
Heima ríkir nú taumlaust þýzkt
stjórnleysi, sadistiskar ógnir, af-
tökur án dóms og laga, morð, rán
og riipl.
En við vitum líka, af því sem
við fréttum að heiman, að þeir
geta borið það. Já, meira en það:
Her heimavígstöðvanna er reiðu-
búinn að kasta okinu, hann bíður
aðeins fyrirskipunarinnar frá yfir-
Ii ers tj ór n B a n d a m a n n a.
Það er skerfur heimavígstöðv-
anna sem hefur gefið Danmörku
sæti meðal HSnna sameinuðu
þjóða, það eru dáðir heimavíg-
stöðvanna, sem gera okkur Dani
hreykna af því að vera danskir.
()g á þessum sjötta og síðasta
9. apríl getum við Danir heima og
að heiman litið björtum augum til
framtíðarinnar. Danmörk hefur á-
samt bandamönunm sínum stór-
uin og smáum barizt hinni farsælu
baráttu; frelsunin er nærri og með
þakklæti sjáum við heri Banda-
nxanna nálgast landamæri Dan-
merkur.
Þegar sigurinn hefur verið unn-
inn, hittumst við öll aftur í sam-
einaðri og sterkri Danmörku til
að fást við vandamál friðarins af
sama dugnaði og fórnfýsi, sem
Danir hafa sýnt á þessum erfiðu
árum.
Það mun koma í ljós, að:
Alt, hvad Fædrene har kæmpet
Mödrene har grædt,
har den Herre stille lempet,
saa vi vandt vor Ret.
16 ÁRA — FRAMIÐ 22 MORÐ
Réttarhöld yfir fasistískum glæpa
mönnum er byriuð í Búdapest, höf-
uðborg Ungverjalands. Meðal hinna
ákærðu eru siö fyrrverandi meðlim
ir ógnarflokka ungversku fasistanna
og hefur hver þeirra framið milli
20 og 30 morð.
Þrír hinna ákærðu hafa þegar
verið dæmdir. Ákærði Laszlo Harto-
bagy er enn undir lögaldri saka-
manna, 16 ára, en hefur samt fram-
ið siálfur 22 morð og átt þátt í urr
300 öðrum. Hann er einkennandi
fyrir hinum úrkynjaða fasistíska
æskulýð, sem Salaszistjórnin notaði
til að framkv.æma hryðjuverk sín
Hann var dæmdur í 15 ára hegn-
ingarvinnu.
MORÐTILRAÚN
Morðtilraun var gerð í marz s. 1.
á Sforza greifa, hinum ítalska
stjórnmálamanni. Tveir óþekktir
menn reyndu að komast inn í bú
stáð hans í Róm, en flýðu þegar
varðmennirnir skutu á þá.
Átta stundum eftir morðtilraun-
ina, skýrði útvarp fasista á Ítalíu.
að enda þótt Sforza hefði sloppið í
þetta sinn mundi honum engin
miskunn sýnd í framtiðinni.
STOFNUN TIL RANNSÓKNA Á
VIRUSUM
Fyrsta rannsóknarstofnun heims-
ins, sem eingöngu vinnur að rann-
sóknum á virusum, hefur verið sett
á stofn af Læknavísindaakademíi
Sovétríkjanna. Þessi rannsóknar-
stofnun er frábrugðin öðrum stofn
unum sem fást við rannsóknir á
einstökum virussjúkdómum, að því
| leyti að hún mun rannsaka öll hin
j margvíslegu vandamál varðandi vir
; usana, en til bess er hún ágætlega
útbúin.
^ PÓLSKIR BÆNDUR LÍTA BJÖRT-
. UM AUGUM Á FRAMTÍÐINA
I Vikublaðið „Chlopi“, málgagn
Samhjálpar pólskra bænda, birti ný-
lega grein um landbúnaðarbylting-
una í Póliandí. ,,í allri sögu Pól-
lands“, segir blaðið, „er þess ekki
dæmi, að níu milliónir fátækra
bænda vrðu á örskömmum tíma
fuligildir borgarar með horfur á
hagsælli framtið. Landbúnaðarbylt-
ingin hefur leyst úr læðingi hina
j óþrjótandi framleiðslugetu fjöldans
og er hinn sögulegi grundvöliur
raunverulegs sjálfstæðis Póllands"
Svörum stríðsyfirlýsingunum!
Á síðasta aðalfundi Sambands íslenzkra samvinnnfé-
laga, lýsti Framsóknar-Alþýðuflokksafturhaldið því yfir,
að það ætlaði að nota samvinnufélögin til baráttu gegn
sósíalistum og öðrum frjálslyndum samvinnumönnum.
Sósíalistar eru ákveðnir í að mæta þessari stríðsyfirlýs-
ingu sem vera ber, með því að gera allt sem þeir geta til
að hrinda hinu þröngsýna afturhaldsliði frá völdum í
kaupfélögunum, Þessa dagana stendur baráttan um Kron.
Til leiðbeiningar birtist strísyfirlýsingin gegn sósíal-
istum og öðrum frjálslyndum samvinnumönnum, sem
samþykkt var á aðalfundi S. ,í. S. síðast liðið sumar. Hún
er þannig:
„Fundurínn telur ástœðu til að vekja athygli samvinnu-
félaganna á því, að Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalista-
flokkurinn —, sem þó telur sig vilja aðhyUast sámvinnustefn-
una, hefur:
1. Samþykkt á fiokksþingi sinu 191$ að efna til klofnings-
starfsemi í samvinnufélögum bœnda í þeim tilgangi að
þrískipta þeim og Sambandinu.
2. Ritað og birt fjölmargar greinar í málgögnum sínum, þar
sem farið cr líiilsvirðgndi orðum um bœndastétt landsins,
ásakað bœndur um að þeir séu byrði á þjóðfélaginu, deilt
fast á atvinnuhœtti þeirra og reynt að koma óorði á allar
helztu franúeiðsluvörur sveitanna og torvelda sölu þeirra.
3. Beitt öllu flokksafli sínu á Alþingi í vetur sem leið til þess:
a) að feUa tiUögur um lögskipaða dýrtiðaruppbót á fram-
leiðsluvörur bœnda;
b) að svipta samvinnufélögin eignar- og umráðarétti yfir
mjólkuriðju og mjólkursölu sveitanna og jafnvel heim-
ila að beita■ hreinu eignamámi;
c) að skipuð yrði af Alþingi sérstök nefnd með valdi rann-
sóknar, til þess að hulla fyrir sig sem sakborninga
margaf af kaupfélagsstjórum landsins og nokkra af
starfsmánnum Sambandsins í því skyni að korna frann
ábyrgð á liendur þeirfi fyrir tilbúnar salcir.
ý. Talið það mjög óviðeigandi þegar tnínaðarmenn samvinnu-
félaganna hafa í ræðu og riti varíð kaupfélögin og Sam-
bandið móti þessum órökstuddu og ósóhnu árásum.
Fyrír því lýsir aðalfundur Sambands íslenzkra sa-m-
vinnufélaga 19ýý megnri vanþóknun á framangreindri
klofnings- og skemmdarstarfsemi frá liendi þess stjóm-
málafloklcs og annarra, sefri tekið hafa upp illvígan áróður
gcgn samvinnufélögunum“.
Þannig hljóðar stríðsyfirlýsing Framsóknar- og Al-
þýðuflokksafturhaldsins innan samvinnufélaganna, henni
er beint gegn sósíalistum og öllum frjálslyndum sam-
vinnumönnum.
Svörum með harðvítugri sókn.
Fjórar sumarmyndir frá Danmörku fyrirstríðsáranna: Vngt fólk slekkur þorstann við sódavatnsvagn-
inn; kýrih á hautgripasýningunni þvegin: huvdur lcwlir sig í gosbrunhskerí, og rerkamenn slökkva
þorstann. — Þetta frjálsa óháiða fóllc óraði elcki fyrir þeim ógnum, sem áttu eftir að dynja yfir það.
en þegar til kom tók það örlögum sinum með hetjuslmp og karlmennsku.
Pólitískar ofsóknir
í Grikklandi
Menntamálaráðlierra grísku
stjórnarinnar hefur vikið fjórum
prófessorum, sem voru stuðn-
ingsmenn Þjóðfylkingarinnar (E
A M), frá störfum við háskól-
ann í Aþenu. Á meðal þeirra eru
prófessorarnir Svolos og Angelo-
poulos,m sem voru fjármálaráð-
herra og aðstoðarfjármálaráð-
herra í stjórn Papandreous fram
að 1. desember 1944.
Svolos prófessor er helzti
grundvallarlagasérfræðingur
Grikkja og samdi frumdrætti
lýðveldisstjórnarskrárinnar, ec'
var samþykkt eftir að lýðveldi
hafði verið stofnað 1923.
Á hernámsárunum var hann
einn af leiðtogum mótspyrnu-
hreyfingarinnar og var formað-
ur stjórnmálanefndar þjóðfrels-
ishreyfingarinnar, sem stofnuð
var í fjöllum Grikklands fvr-
ir ári síðan.
Angelopoulos er sósíalisti
eins og Svolos og kenndi póli-
tíska hagfræði í Aþenu-háskóla.
Frá vinmisíöðvum
og verkalýðs-
félögum
Dagsbrúnarfundinum
frestað
Dagsbrúnarfundinum, sem
halda átti í kvöld í Listamanna
skálanum, er frestað til þriðju
dagsins 26. þ. m.
Dagskrá fundarins var um-
ræður um félagsmál og 1. maí,
og frásögn Bjöms Bjamason
ar og Guðgeirs Jónssonar frá
alþjóðaverklýðsráðstefnunni í
London.
1. maí nefnd verklýðs-
félaganna í Reykjavík
Vörubílstjórafélagið Þróttur hef-
ur tilnefnt Hafliða Gíslason í 1.
maí nefnd verklýðsfélaganna;
Múrarafélag Réykjavíkur Svavar
Benediktsson, óg Sveinafélag
kipasmiða Sigurð Þórðarson.
I. maí nefndin liélt fund s.l.
■ unnudag. Var kosið í ýmsar und-
irnefndir.
10 þús. Danir í fang-
elsum og fangabúð-
um
„Danskeren“, blað danskra
flóttamanna í Svíþjóð, segir m. a.
í tilefni af hernaðarafmælinu:
„Skemmdastarfsemi danskra föð-
urlandsvina helfur orðið Banda-
mönnum að afar miklu liði bæði
beint og óbeint. Hún hefur kost-
að Danmörku um 300 milljónir
króna fram að þessu, en það er
ekki nema lítil -fórn, þegar hún er
borin saman við árangurinn.
10.000 Danir eru nú í fangelsum
og fangabúðum Þjóðverja.
1 Danmörku eru meir en hundr-
að leyniblöð og margar leynilegar
fréttastofur. — Mörg blaðanna
hafa fleiri en cina ritstjórnarskrif-
stofu til að útkoma þeirra þurfi
ekki að tefjast, þótt Þjóðverjar
hafi upp á einhverjum þeirra. En í
fáum þeirra er meir en einn eftir
af hinu upprunalega starfsliði.
Engiun meðlimur frelsisráðsins
er í höndum Þjóðverja. Þeir hafa
náð tveimur eða þremtir þeirra, en
misst þá aftur“.
„Samvinnan skrifar“
Framhald af 1. síðu.
flokkum á Islandi. Þeir segja að
„kapitalistarnir“ standi sér ekki
snúning og «dugi næsta illa í öllum
atvinnuátökum. Þeir þykjast
standa fremur vel að vígi mcð
upplausn hins íslenzka mannfé-
lags. Þeir eigi aðeins eftir eitt
virki, sem ekki sé sundurskotið til
hálfs eða meira. Og þetta eina
virki eru íslenzku samvinnufélög-
in.
Nú er enginn vafi á, að komm-
únistar ætluðu að standa við
fjandskapinn við , samvinnuhreyf-
inguna, bæði að stefnumarkmiðum
og af því að þeir telja að bænda-
stétt landsins, ef hún standi ein-
huga um sín mál, og samvinnu-
hreyfingin, sem nær til nálega
allra bænda og líka til margra í
landinu, séu eina verulega hindr-
unin á leið þeirra að valdatöku
með ofbeldi.
Kommúnistar reyna nú í sam-
vinnufélögunum eins og í öllum
öðrum félagsskap, þar sem þeir
starfa með frjálslyndum mönnum,
að mynda í leyni áíóðursklikur i
félögunum. Þær „klíkur“ munu
hvarvetna starfa að því að koma
heilum eða hálfum kommúnístum
í valdaaðstöðu i félögunum, sem
deildarstjórum, fulltrúum á aðal-
fund, kaupfélagsstjórastöður eða
við föst atvinnustörf hjá félögun-
um. Hvar sem kommúnisti nær
fótfestu, notar hann aðstöðu sina
til að gylla bolsévika í Rússlandi,
miklast yfir ágæti þeirra, en skap-
ar jafnframt ótrú á öllum íram-
förum á Islandi, og ótrú á því fé-
lagi-, sem þeir starfa í, og starfs-
mönnum þess. Því betur sem fé-
lagið er starfrækt, því ötullegar
vinnur „sellan“ að því að sann-
færa einstaka félagsmenn um, að
þeir hafi tjón eitt af félagssam-
tökum, og að engin bót verði ráð-
in á í því efni nema með gerbylt-
ingu í valdastöðu félágsins, þann-
ig að kommúnistar eða vinir
þeirra fari þar meðf framkvæmd
allra vandamála.
Jafnskjótt og kommúnistar
Iiefja sellustarfsemi til að koma
%_
Norðmenn og Danir minnast 9. apríl
Félög Norðmanna og Dana í Reykjavík minntust þess s. 1.
mánudag, 9. apríl, að þá voru liðin 5 ár frá því þýzki herinn
Téðist á Danmörku og Noreg.
Fánar voru dregnir í hálfa stöng um allan bæ til minningar
um þá Norðmenn og Dani sem fallið hafa í baráttunni fyrir.
frelsi þjóða sinna og landa á hemámsánmum.
Minningarathöfn fór fram í Fossvogskirkjugarði um morg-
uninn, minningarguðsþjónusta í Dómkirkjunni kl. 2 og samkoma
í Gamla Bíó um kvöldið.
Nokkru eftir kl. 10 um morg-
uninn komu sendiherrar Norð-
manna og Dana, stjómir norsku
og dönsku félaganna og nokkr-
ir aðrir samán í kirkjugarðin-
um í Fossvogi. Lögð voru blóm
á leiði þeirra Dana og Norð-
manna er fallið hafa í styrjöld-
inni og jarðaðir eru á þessum
stað. Le Sage de Fontenav,
sendiherra Dana flutti ræðu til
minningar um hina föllnu Dani
en Torgeir Anderson Rysst
minntist hinna föllnu Norð-
manna.
Minningarguðsþjónusta hófst
í Dómkirkjunni kl. 2. Voru har
viðstödd forsetahjónin, ríkis-
stjórnin og fulltrúar erlendra
ríkja. Danskur og norskur fáni
voru bornir í kórinn. Sr. Bjarni
Jónsson vígslubiskup fljutti
minningarræðuna. Þá flutti frú
Gerd Grieg „Ársdagen“, kvæðið
sem maður hennar, Nordahl
Grieg, orti þegar Noregur hafði
verið hemuminn eitt ár. Þá var
sunginn sálmur, en því næst lék
Björn Ólafsson einleik á fiðlii
og Páll ísólfsson lék undir á
orgeb
Samkoma hófst í Gamla Bíó
kl. 9 um kvöldið, sem félög
Norðmanna og Frjálsra Dana
gengust fyrir. G. E. Nielsen
Kveðja frá Roose-
velt til Dana og
Norðmanna
Roosevelt forseti sendi Dönum
og Norðmönnum kveðju í fvrra-
dag í tilefni af 5 ára afmæli her-
námsins. Ha nn sagði m. a.: „Danir
ög Norðinenn hafa þjáðzt í fimm
ár undir oki Þjóðverja, en hafa
aldrei hætt að veita þeim mót-
spyrnu. bg nú munu kvalir þeirra
bráðum taka enda“.
FLOKKURINN
Annað kvöld, fimmtudag.
halda sósíalistar í Reýkjavík
fund að Skólavörðustíg 19. Nán-
ar auglýst á morgun.
sínum mönnum með óeðlilegum
hætti í trúnaðarstöður í félögum,
þá verður jafnsk-jótt myndað sam-
band milli hinna raunverulegu fé-
lagsmanna, til varnar félagsheild-
inni. Hvar sem kommúnistum
tekst nieð leynilegum undirróðri
að býggja sér valdaaðstöðu. munu
samvinnuhicnn gæta þess, að þeir
geti ekki komið fram vilja sínum“.
(Marz—apríl hefti Samvinnunn-
ar 1944. Samvinnustefnan og
kommúnistar. Ef til vill birtir
Þjóðviljinn síðar fleiri sýnishorn
r.f skrifum Samvinnunnar).
formaður Fél. frjálsra Dana,
setti samkomuna með ávarpi
Þá fluttu ræður Rysst, sendi-
herra Norðmanna og Fontenay,
sendiherra Dana. Lárus Pálsson
leikari las upp úr leikriti Kaj
Munks: Niels Eb'besen. Guð-
mundur Jónsson söng nokkur
lög, íslenzk, norskt og danskt.
Sámal Davidsen blaðafulltrúi
Færeyinga flutti ávarp til Norð
manna og Dana.
Síðast flutti Sigvard A. Friid,
blaðafulltrúi Norðmanna ræðu,
þar sem hann sagði að á þess-
ari minningarsamkomu væru
Norðmenn fullvissir um að
þetta yrði síðasti 9. apríl, sem
Norðmenn þyrftu að dveljast í
útlegð frá landi sínu.
Bæ j ar póstur inn
Framhald af 2. síðu.
gjalda þess með frámunalegum sóða’
skap og hirðuleysi. Hver hefur tekið
þá rögg á sig að láta taka girðing-
una burtu, er mér ekki kunnugt
En nú má ekki láta þar við sitja.
Garðinn verður að hirða sómasam-
lega upp frá þessu. Hann gæti ver-
ið sannkölluð bæjarprýði, enda
þannig settur að óviðunandi er aö
hann sé það ekki.“
N áttúr ulækningaf élagið
Framhald af 2. síðu.
fleiri tegund'a grænmetis er.
annars eru hér á boðstólum.
Frú Matthildur Bjömsdóttjr
skýrði frá á fundinum, að skipu
lagsskrá fyrir Hælissjóð Nátt-
úrulækningafélagsins sem sam-
þykkt var á síðasta aðalfundi.
hefði verið staðfest, en frúir.
er formaður sjóðsstjómarinnar.
Sjóðsstjórnin hefur fengið leyfi
til að selja merki 2. sunnudag
í júnímánuði ár hvert, og hún
er að láta prenta minningar-
spjöld, sem koma munu á næst
unni. I sjóðnum eru nú rúmar
55 þúsundir króna.
Stjórn félagsins var endurkos
in: Jónas Kristjánsson læknir.
Björn L. Jónsson veðurfr, Hjört
ur Hansson stórkaupm., Axe1
Helgason, lögregluþjónn og Sig
urjón Pétursson kaupm. Endur-
skoðendur voru kosnir Pétur
Jakobsson fasteignasúli, og
Kristmundur Jónsson skrifai’i.
Stjórn Hælissjóðs var einnig
endurkosin, en hana skipa: Fni
Matthildur Björnsdóttir fni
Kristjana Carlsson, frú Fanney
Björpsdóttir og Pétur Jakobs
son fasteignasali.
Að loknum störfum aðalfund-
ar sýndi Vigfús Sigurgeirsson
tvær garðyrkjukvikmyndir, sem
hann hefur tekið. en Sigurður
Sveinsson, garðyrkjuráðunautur
útskýrði myndirnar. Var að því
hinn mesti fróðleikur og
skemmtun