Þjóðviljinn - 15.04.1945, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 15.04.1945, Blaðsíða 3
Sunnudagur 15. apríl 1945. ÞJÖÐVILJINN 3 | ÚR LÍFI ALÞÝÐUNNAR | Slarfsemi loitskeyftamanns Það heyrist flaut. Eg rýk upp með andfælum, gæti á úrið mitt og kveiki ljósið. Klukkan er hálf átta, að morgni, eða 0730, eins og við loftskeytamenn imir erum vanir að segja. Það er flautað aftur, og nú kem ég loks að fullu til sjálfs mín. Hljóðið kemur úr smáflautu í enda talrörs, sem liggur úr brúnni og aftur í klefa minn, flautan er í raun og veru vekj araklukkan mín. Eini munurinn á henni og venjulegri vekjara- klukku er margfallt andstyggi- legra hljóð, svo að það beinlínis borgar sig að vakna, og það sem fyrst. En það verð ég að segja, öllum vekjaraklukkum tilhróss, að þær hafa aldrei vakið hjá mér slíkar tilfinningar. ★ Eg tek nú flautuna úr rörinu, til að forðast frekari ónæði af henni, og svara. Gegnum rörið heyri ég rödd ,.karlsins“, sem stendur í brúnni og ,,togar“. „Góðan daginn, í nótt alls ellefu pokar“. Eftir að hafa endurtek- ið: „í nótt alls ellefu pokar,“ til frekara öryggis, fer ég að snúa mér að starfinu. Eg opna annað útvarpstækið, og stilli það á 188 metra. Síðan stilli ég talsendinn og tek upp ritvélina. Nú er ég tilbúinn, enda timinn kominn. Skipin, þ. e. togararnir, kalla nú hver annan eftir sett um reglum. Sá sem lengst er búinn að vera á fiskiríi kallar þann sem næstlengst er búinn að vera, segir honum hvað hann hafi fengið frá síðasta sam bandstíma, og annað merkilegt, sem komið hefur fyrir í sam bandi við veiðarnar. Um annað en það sem veiðunum viðkemui má ekkert segja, því það er stríð. Sá næsti svarar ekki þeim fyrsta, heldur kallar sitt skeyti ti'l þess þriðja í röðinni, og þann ig koll af kolli. Þegar kallað er í mig, starta ég rafmagnsmótor, sem framleiðir háspennu fyrir talsendinn. Tek síðan heyrnar- tólið, sem er eins og venjulegí símatól, og þrýsti á fjöður, sem á því er. Nú er stöðin komin í gang, og ég kalla út mitt skeyti: „í nótt alls 11 pokar“ eins og ég sé að tala í síma. A ljósmerkjum í sandinum get ég séð hve mikill straumur fer út í loftnetið, og hvernig hljóð- öldurnar móta hátíðnisveiflurn- ar, sem sendirinn framleiðir. og eftir því stilli ég sendinn, þar til bezta árangri er náð. Þegar ég hef sent skeytið og drepið á sendinum, sný ég mér aftur að ritvélinni og vélrita skeyti þeirra sem á eftir koma, eins og ég áður hafði gert við þau sem á undan voru. Eftir sambandstímann og ýmsar fyr- irspumir og svör, sem oftast fylgja á eftir, t. d. spurnir um dýpi og fiskitegund, til þeirra sem mest hafa fengið skipti ég um blað í vélinni, og vélrita annað eintak af skeytunum. Það eintak er fyrir „karlinn“. frumritinu held ég sjálfur, og safna þeim 1 þar til gerða blokk. Þannig get ég alltaf fylgzt með hyernig fiskiríið gengur, og hve langt hver og einn er kominn að fiska. Nú færi ég mig í jakka, set á mig húfu og,vettlinga, og fer með skeyti fram í brú til ,.karls ins“. ★ Þá er þessu fyrsta morgun verki mínu lokið, og nú fer ég að heimsækja kokkinn. Hann heitir nú reyndar matsveinn á íslenzku, en það gæti verið vafa samur titill um borð í- togara, og auðveldlega valdið misskiln ingi. En þetta var nú útúrdúr Eg ætlaði sem sé að fá mér eitthvað í gogginn. Það er að vísu enginn matmálstími, þvi morgunmaturinn er kl. 6, og kaffið ekki fyrr en kl. 9, en samkvæmt sérstökum vináttu- samningi við kokkinn get ég fengið ka'kó og brauð, til að slökkva mesta hungrið. Þegar ég hef etið, fer ég aftur upp í klefa minn. Klefinn er heimili mitt og vinnustaður um borð, og því held ég að réttast sé að lýsa nokkuð þessum merkilega stað. Loftskeytaklefinn, eða klefinn, eisn og hann venjulega er kall- aður, er aftan til á skipinu, uppi á bátapalli, beint yfir eldhús- inu. Að utan lætur hann heldut lítið yfir sér, og er einna líkast- ur járnkassa á hvolfi. Aðeins hurðin, að aftan, „kúaugun“, þrjú, eitt á hverri hinna hlið- anna, gefa til kynna, að þarna muni vera mannabústaður. En glöggir menn geta þó séð, einn- ig að utan frá, hve virðulegu hlutverki kassi þessi hefur að gegna. Niðurtökin úr loftnetun- um, sem ganga niður úr þakirn , gegnum mikla postulínseinang. ara, og stærðar sívalningur, með hreyfanlegum ramma ofan á. sem gengur úr einu hominu, tala sínu máli: „Hin þráðlausa miðstöð skipsins og einkaíbúð starfsliðsins.“ Dularfullur stað- ur, finnst mörgum, og til lítils nýtur. ★ En nú er tími kominn til að fara inn og sjá hvernig „kass- inn“ lítur út frá þeirri hlið Eg opna hurðina, sem er úr ei'k, með smekklás fyrir og á koparlömum. Gjörið svo vel! En í guðanna bænum, farið var lega. Umfram allt verjið vel á ýkkur skallanna. Það stendur nefnilega þannig á, að lítill loftskeytamaður var á skipinu, þegar klefinn v.ar byggður, og þið gætuð rekið ykkur all- óþyrmilega uppundir. Hvað mig sjálfan snertir, er alveg sama hvernig ég sný mér og hagræði, og hvort sem ég er 1 láréttu eða lóðréttu ástandi, get ég aldrei rétt úr mér. Höfðinu er hér al- veg ofaukið, annars er klefinn góður að mörgu leyti, og við- kunnanlegur. Hanner allur fóðr aður að innan með „masonite“, og loftið er hvítt, en veggirnir ei'karmálaðir. Bekkur er eftir endilöngu með framhliðinni, með stoppuðum dýnum, bæði undir og upp með veggjunum ’í kring. Á bekknum sef ég, sit og ligg. Hann er mitt bezta og þarfasta húsgagn. Borð er þar á móti, með afturveggnum, og á því og veggjunum fyrir ofan það er flest tækin.' Þar er t. d. stór morssendir, ásamt morshylki. Talsendir og tvö viðtæki. Klukka og ýmis- legt annað smávegis. Undir Efiir GIC borðinu eru svo rafmagnsmótor arnir, sem framleiða' háspenn- una fyrir sendana. Þar eru einn ig startarar fyrir þá, hleðslu- töflur o. fl. í loftinu eru ein- angrarar, þar sem loftnetin koma inn í klefann, og frá þein' og að sendunum liggja kopar- teinar, sem betra er að koma ekki við, þegar verið er að sendi, því að eftir þeim fer þá nok'kur þúsund volta rafstraum ur út í Joftnetin, og þaðan út í loftið. Yfir bekknum, gengt hurðinni, kemur svo þessi dul arfulli sívalningur, sem við sá- um merktum á. Þegar hjólinu Neðan á honum er hjöl, eins og bílstýri, og skífa með gráð- um merktum Á. Þegar hjólinu og um leið skífunni er snúið. snýst ramminn uppi á þakinu, en í honum er nokkurs konar loftnet, fyrir miðunarstöðina Ramminn er tengdur við tæki, sem er í hinu horninu, yfir békknum, og er í rauninni að- eins venjulegt viðtæki. Þegar rammanum er snúið, og hlustað á tæki í gegnum heyrnartól, heyrist stöðin eða radiovitinn sem hlustað er á, mismunandi vel, eftir afstöðunni til ramm- ans, og í einum punkti heyrist ekkert. Þar er stefnan, og mað- ur getur lesið hana af gráðuskíf unni og séð í hvaða átt vitinn eða stöðin er, miðað við stefnu skipsins. Klefinn er hitaður með miðstöðvarofni, sem fær gufu frá eimkatlinum, svo alltaf á tæki í gegnum heymarfól. Nú hef ég í stórum dráttum lýst þessari sérkennilegu íbúð. svo tímabært er orðið að halda áfram að segja frá lifnaðarhátt unum, og held ég því áfram þar sem fyrr var frá horfið. 'k Morgunverkum var lokið, ég var búinn að fá mér í gogginn. og var aftur kominn upp í i klefann. Nú legg ég mig á bekk i inn og fæ mér dálítinn morgun- blund. — Kl. 0930 er ég vak- inn. Það er kokkurinn, sem er kominn í kurteisisheimsókn, og hefur haft með sér morgunkaffi handa mér. Nú fyrst finnst mér dagurinn vera að byrja. Allt hitt er í rauninni forleikur, eða virðist að minsta kosti vera það þegar maður sofnar aftur, eins og ég gerði núna. Nú sptra ég í mig kaffið, afar hægt að vanda, og maður getur alltaf verið viss um að sykurlaust mjólkurkaffi, dálítið sterkt, með einni til tveim sígarettum svíkur engan. Þegar ég hef lok- ið við kaffið, kokkurinn er far- inn og ég hef jafnað mig, fer ég að búa mig undir starfið á ný, en nú er það fólgið í bví að hlusta. Eg opna viðtækin bæði, stilli annað á 188 metra, til að heyra allt sem togararnir hafa að segja og einhver gróði gæti verið að vita, en hitt stilli ég á 181.8 metra, sem er neyð- aikylgjan fyrir talstöðvar, og jafnframt kallbylgja landstöðv anna. ★ Síðan tek ég mér í hönd „Hið ljósa man,“ Kiljans, leggst aft- ur á bekkinn og fer að lesa. Á 181.8 metrunum heyrist ekkert fyrr en kl. 1050, að Reykjavík radio kallar út „traffiklistann“. Það er aðeins eitt skeyti, til Forseta, sem hann tekur þegar á móti, annars er ekkert að heyra á þeirri bylgju. Á 188 metrunuum, sem er samtals- bylgja fyrir skip og báta, er f jör ið aftur á móti heldur meira Togararnir ta'la að vísu ekkert saman núna, en bátarnir bæta það bá upp, eins og vant er. Þeir hafa sjaldnast neina fasta sambandstíma og aldrei skipu- lagða, enda kjafta þeir nær ó slitið allan sólarhringinn, og iðulega senda beir hver ofan í annan, svo að ekkert heyrist annað en ýlfur og vein. Okkur sem eitthvað þykjumst siðaðri í þessum sökum, finnst þessi söngur ekki vera nein verð- launamúsík, enda líkist hann einna mest kliði í fuglabjargi eða kerlingafundi. En nauðugur viljugir verðum við samt að hlusta á hann, eina ráðið verður því að taka hann sem hverjar aðrar truflanir, og hleypa hon- um inn um annað eyrað og út um hitt. Þannig ligg ég og les við þetta fagra undirspil, þar til kl. 1120. Þá næ ég aftur sam bandi við „karlinn" gegnum talrörið, og fæ bað sem ég á að segja því að annar sambandstirr. . inn er kl. 1130. Hann gengur fyr ir sig, eins og sá fyrri, og að hon um loknum færi ég „karlinum ‘ skeytin eins og' þá. Nú er kominn matur. Áður en ég fer niður að éta, stilli ég tækin á 1111 metra. þ. e. Út- varp Reykjavík, og set þau í samband við hátalara, sem eru frammi í brú og niðri í káetu. svo sem flestum gefist kostur á að hlusta á hádegisútvarpið. Síðan fer ég niður og borða af beztu lyst. Eg borða í káetunni ásamt yfirmönnum skipsins og kyndurum, en hásetarnir borða í „borðsalnum“. Að aflokinni máltíð byrja ég svo starfið enn á ný. Nú fer ég að athuga kassa, sem stendur fyrir aftan klef- ann, á bátapallinum. Hann hef- ur inni að halda alla geymana fyrir tækin, og nú er bezt að sjá hvers þeir þurfa við. Eg tek lokin af geymunum og bæti vatni á þá sem þess þurfa, og mæli sýruþyngd þeirra með þar til gerðri loftvog til að sjá hve mikið er á þeim og hverja þurfi að hlaða. Eftir þessa rannsókn set ég þær hleðslur í gang, sem með þarf, stilli tækin, til að hlusta, eins og um morguninn, og byrja aftur að lesa „Hið ljósa man“. Þannig líður tíminn og tilbreytingin er lítil, því eng- an getur maður fengið til að rabba við. Allir eru önnum kafn ir. Skipstjórinn stendur í brúnni og „togar“, hásetar eru á dekki við aðgerð, eða að taka og kasta trollinu, „meistarar" í vélarrúminu, kyndarar á „fvr- plássinu“, kokkurinn í eldhús- inu og ég í klefanum. Eg tek lífinu með hinni mestu ró, og reyni eftir beztu getu að notfæra mér tímann, til and- legrar uppbyggingar. Aðeins þeg ar híft er, verð ég í svip meira veraldlega sinnaður, og kíki þá út um kúaugun til að sjá hve mikið er í. — Kl. 15.00 er kaffi og því fylgir alltaf dálítil til breyting. Milli 10 og 20 háset- ar, sem eru á dekki, heimta all- ir kaffið í einu og hugsa lítið um að vanda orðbragðið. Kokk- urinn verður einn að fást við „illþýðið“, eins og hann stund- um kallar þá, svo að ekki þarf að búast við að skapið sé gott. Enda er það sánnast að segja. að það væri aumur togarakokk- ur sem ekki væri geðvondur a. m. k. á matmálstímum. — Kl. 15,20 er þriðji sambandstíminn, og svipar honum í öllum grein- um til hinna tveggja. Að hon- um loknum stilli ég annað tæk- ið á Reykjavík og gef samband í brúna, svo að karlinn fái mið- degisútvarpið sem nú er .ð byrja. Fer síðan fram í brú með skeytin. (Framhald s'íðar). Samtíðin, 3. hefti 12. árg. er ný komin út. Þessar greinar eru í heft- inu: Hér þarf jötuneflt átak, eftir ritsjórann; Nokkur orð um amerísk- ar kvikmyndir, eftir ritstjórann; Sig urður Þórðarson tónskáld fimmtug- ur, eftir Svein G. Björnsson; „Gjald ið keisaranum það, sem keisarans er“ (úr ísl. menningarsögu VI.), eft ir Björn Sigfússon, og kurteisasta fallbyssa í heimi. Sagan í þessu hefti heitir Hræðsla og er eftir Þórir þögla. Eitt kvæði er í heft inu: Bæn syndarans, eftir Gísla H Erlendsson. Ennfremur eru skopsög ur, bókarfregn, krossgáta.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.