Þjóðviljinn - 17.04.1945, Síða 7

Þjóðviljinn - 17.04.1945, Síða 7
Þriðjudagur 17. apríl 1945. ÞJOÐVTL JINIÍ V Mikkjel Fönhus: Hrakningar bj órafjöl sky Idunnar% Skammt frá sá hann unga ösp liggja í snjónum. Hún hafði verið felld um haustið en börkurinn var ekki nagaður. Það hlaut að vera góður börkur á henni Þetta var svo freistandi og bjórapabbi var orðinn svo svangur, að hann rölti þangað, lagðist á öspina og fór að naga. Þetta var meira sælgætið. Hann hafði ekki bragðað annað allan veturinn en börk, sem hafði legið í vatni En þetta var nýmeti. Hann tugði ákaft og gleymdi litla bjórnum á meðan hann var að seðja hungur sitt. Eftir litla stund rann dagur. Orri vaknaði á stein í skóginum og gaf frá sér dimm og undarleg hljóð, líkust búktali. Sólin skein beint framan í bjórapabba og hann fór að verða hræddur um sig í birtunni. Enn einu sinni leit hann á litla bjórinn, sem var fastur við tréð. Svo labbaði hann niður að ósnum og stakk sér undir ísinn. — Þrír dagar liðu. Það var komið kvöld. Lágir skrækir og tíst heyrðist í skóginum. Það voru nokkrir skjórar, sem sátu á greinum, hölluðu undir flatt, litu til jarðar, hoppuðu á aðra grein, hölluðu undir flatt. góndu og skræktu af forvitni. Þetta eru ákaflega for- vitnir fuglar. Seinna gat einn þeirra ekki stillt sig lengur. Hann snaraði sér niður úr trénu og settist á stein. Þá sá hann loksins greinilega það, sem þeir höfðu verið að gá að og þótt undarlegt. Ferfætt dýr stóð á afturfótunum upp við fallið tré og sneri höfðinu ofur hægt í áttina til skjórsins, sem sat skrækjandi á steininum. Skjórinn þekkti þennan ferfætling. Það var þessi náungi, sem hafði vakið hann hvað eftir annað og gert hann dauðhræddan á nóttunni í sumar sem leið. Hann felldi tré, svo að brakaði og brast og skjórinn þaut upp í ofboði. Skjórarnir héldu áfram að hoppa í trjánum góða stund. Svo flugu þeir burt hver af öðrum. Sá síðasti lyfti sér til flugs um leið og sólin gekk til viðar, og roða sló á brjóst hans, þar sem hann fór yfir trjákrón- urnar. En litli bjórinn lét aftur augun. Hann var orðinn máttvana og sljór. Nú mundi hann ekki lengur eftir foreldrum sínum og húsinu heima. Hann langaði ekki í mat og honum leiddist ekki að vera einn. Foreldrar hans höfðu komið tvisvar, sitt í hvort skipti, en hann vissi varla af því. Nú fann hann ekki lengur til í fætinum, sem var fastur. Tíminn leið, en hann vissi það ekki heldur. Ehn liðu .þrír dagar. Norðanstormur þaut í trjákrónunum og beygði þær. En* milli byljanna réttu þær úr sér aftur. Refur kom töltandi og sneri trýninu upp í vindinn. Hann hélt beinni stefnu. Öðru hvoru varð hann að krækja fyrir stein eða trjárunna. En það glapti hann 'ekki. Hann var óðar kominn í sömu áttina, rétt eins og hann væri dreginn í bandi. Refurinn hafði veður af æti og rann beint á þefinn. Allt í éinu nam hann staðar — stóð grafkyrr um stund. Mjóu, skásettu augun urðu hvöss og gáðu vel að því, sem framundan var — því, sem þefurinn var af. Og refurinn sá það vel, að hér var auðfengin bráð Bjórinn þarna var dauður. Johannes Buchholtz: ___ þar að auki fékk hann ævilanga óbeit á regni og sól,. hvað þá stormi! Eftir ferminguna fór Mar- teinn í menntaskóla. Greifinn styrkti hann ofurlítið. Hann féll tvisvar við próf, en að lok- um náði hann stúdentsprófi með þriðju einkunn. Þá fór hann samstundis til Kaup- mannahafnar. Síðan hafði Marteinn verið 1 Kaupmannahöfn. Nú var hann orðinn þrítugur. Á nafnspjald- inu hans stóð, að hann væri blaðamaður. Og satt var það, að hann skrifaði stundum í blöð. en ágóðinn var. lítill. Marteinn lifði eiginlega á sparseminni einni saman, og með því hann var vel kynntur, hikaði enginn við að lána honum tvær-þrjár krónur. Hann kunni bezt við að vera úti á kvöldin og aðallega skrifaði hann fregnir frá minni háttar leikhúsum og skemmti- stöðum. „Leikhúsið ,,Skeifan“ mun frá 15. desember auka hina hingað til ágætu skemmtiskrá sína, þar eð söngkonan miss Ásta Mollison, sem er mjög fræg erlendis, ætlar að syngja þar vísur og söngva“. Þannig var ritháttur Mar- teins Askeruds, enda hafði hann ekki beinl'ínis blaðamanna hæfileika. En hann var sjálfur innilega feginn og glaður, þeg- ar hann hafði soðið þessa fregn saman. Þetta lét vel í eyrum, fannst honum. Eigandi „Skeifunnar" var líka ánægður. Hann bauð Mar teini til miðdegisverðar ásamt miss Ástu Mollison, og hún las handritið af fregninni; hrifin með hálf lukt augu. Þetta var yndisleg máltíð. Ásta strauk hönd Marteins, leit á hann þýð- ingarmiklu augnaráði og sagði: „En hvað það er vel orðað hjá yður: „mjög ftæg erlendis“. Hún hét upphaflega Ásta Möller. En Mollisonsnafnið hafði hún tekið eftir frægri flugkonu. Það hljómaði betur en Möller. Ásta varð þó aldrei háflevg í sönglist sinni. Aftur á mótv skapaði hún tímamót í ævi Marteins. Marteinn hnippti í Nielsen stundarkennara, sem borðaði á sömu matsölu og hann, og spurði, hvort hann ætti annríkt — bara augnablik — það var svolítið sem Martein langaði til að biðja hann að gera. Nielsen fór með Marteini heim til hans. Hann bjó í litlu lijvistherbergi. Marteinn gekk fram og aftur um gólfið og var órólegur í bragði, en Nielsen sat á brotnum stól og beið. „Hefur eitthvað leiðinlegt komið fyrir yður?“ spurði stundakennarinn. að lokum. 5,Leiðinlegt og ekki leiðinlegt, eftir hvernig á það er litið. En það er flókið vandamál — al- veg sérstaklega flókið. Pabbi er dáinn og ...“ „Eg samhryggist“. „Ha, hvað? Það er ekki vfir neinu áð samhryggjast. Hann var reyndar faðir minn, svona að nafninu til. Eg hef ekki séð hann í fjórtán ár og sakna hans ekkert. Hann hefur sjálf- sagt verið orðinn eins og úti- legumaður. Ef þér haldið að ég hafi áhyggjur út af dauða hans,þá skjátlast yður. Hann lét eftir sig eitthvert drasl, sem seldist á uppboði fyrir 332 krón ur. — Og ég er eini erfinginn“. „Eg samgleðst yður“. ,5Þakk yður fyrir. Eg hef aldrei á ævi minni átt svona mikla peninga,' og ef það væri satt, sem sagt er, að hamingjan fari eftir auðæfunum, þá væri ég gæfumaður. En sorg og gleði haldast í hendur. Arfurinn kom mér í klípu: Ásta vill að við giftum okkur“. „Ásta?“ „Já. Ásta Mollison á „Skeif- unni“. Hef ég ekki oft sýnt vð- ur smágreinar^ sem ég hef skrit að undir alls konar dulnefnum’ Það er ég sem hef komið henni á framfæri. Það segir hún sjálf Og ég verð að játa að það er satt. — Já, í'eyndar var frægðin ekki langvinn. Henni samdl ekki við húsbóndann, svo að hún fór, og síðan hefur hún hvergi verið beðin að syngja. En það er einhvern veginn svona, að hún er mér þakklát og nú vill hún að við giftum okkur. Eg var svo vitlaus að segja henni frá arfinum. En hún segist elska mig — og það getur svo sem verið, að hún segi það satt“. „En hvaða tilfinningar berið þér til hennar?“ Marteinn hugsaði sig um: „Já, — hvað skal segja. — Ekki hefur hún gert mér neitt“. . Ætlið þér þá að láta hana ráða?“ Marteinn kreppti hnefann og svaraði gramur: „Hún hefui fengið mig til að lofa því. Mál- ið er klappað og klárt. Eg stend við orð mín og það gerir hún líka. Eg ætlaði ekki að spyrja yður að því, kæri Nielsen, hvort yður fyndist, að ég ætti að giftast Ástu Mollison, heldur hvemig- ætti að gifta sig. Fólk heldur, að maður viti allt, af því maður er blaðamaður. Er. það er lygi. Eg veit hvert hæfi- leikar mínir ná — eins^ og Goethe. Eg er til dæmis sauður í öllu verklegu. Ekki hef ég hugmynd um á hverju útvarp ið byggist — og ég veit heldur ekki, hvernig hjónabandi er komið í kring. Eg gæti auðvitað farið til málafærslumanns. En hann væri vís til að okra á mér, af því ég fékk þennan arf. Þess vegna kem ég til yð ar. Þér eruð heiðarlegur mað- ur5 eftir því sem ég hef heyrt. Og nú spyr ég yður í stuttu máli: Hvemig á að fara að því að gifta sig. Eg hef til dæmis heyrt að ménn verði að ganga undir eitthvert sálfræðilegt próf. Er það satt? Eg mundi ekki standast það. Eg er lit blindur. En gerir það nokkuð9 Og þessi próf eru líklega bara fyrir þá, sem giffast í ráðhús- inu. Ásta vill, að við gifturn okkur í Frúarkirkjunni. Það á að vérða þann 18. í næsta mán uði. En hvers vegna hún velur þann dag, hef ég ekki hugmvnd um“. Marteinn settist á rúmstokk- inn sinn. Hárið stóð í allar átt- ir, eins og einhver skelfing væri á ferðum. Nielsen stundakennari klór aði sér bak við eyrað og lofaði að vera honum hjálþlegur. 3. Brúðkaupið fór fram 18. júní, og brúðhjón og svaramenn gengu inn í lítið kaffihús við Kongens Nytorv. Nielsen kynnti hinn svara- manninn: „Ole Ring, vátrygg- ingamaður“. ,.En ég kem ekki hingað i embættisnafni“, sagði Ring og brosti dauflega. 5,Það vátryggir sig enginn gegn því sem bíður mín“, sagði Marteinn. „Gjörið þið svo vel og fáið ykkur sæti. Eigum við ekki að fá okkur sódavatn? Það er hálftími þangað til þetta byrjar“. ,,Sódavatn!“ sagði Ásta. „Nei. takk, góði. Portvín!“ Marteinn maldaði í móinn Hann sagði að portvín væri ekki hollt, svona að morgunlagi En Ásta tók fram í fyrir hon- um: . Eg verð að fá eitthvað sem hleypir í mig kjarki. Eg get sagt ykkur þð, að mér finns'. ég vera við jarðarför — mína eigin jarðarför, eða réttara sagt kviksetningu“. ..Huggaðu þig við, að við verðum jarðsungin saman", sagði Marteinn og leit á Niel- sen í von um samúðarorð. En brúðurin sagði: ..Það ei nú hálfu verra“. „Við skulum ekki velja okk ur raunalegt umtalsefni. Hjóna- vígsla á að vera gleðiathöfn“r sagði Nielsen stundakennári. „Já, svo ætti það að vera“r sagði brúðurin. Marteinn varð hinn versti' „Má ég spyrja, hver er pottur inn og pannan að þessu öllu? Er það ég? Eða ert það þú?“

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.