Þjóðviljinn - 06.05.1945, Page 3
Sunnudagur 6. maí 1945
Þ TÓÐVJ LJ 1N N
Styrmir:
ÚR LÍFI ALÞYÐUNNAR
1
E. H.:
Rétiardagur
Gangnamennimir höfðu á-
kveðið að koma saman í
Brekkukoti um tru leytið að
morgni, það átti að smala fjöll-
in og rétta féð þá um daginn
Alls voru fimm menn sem
gengu upp á afréttina.
Fjallakóngur var Jón bóndi
í Brekkukoti, en fjallkóngor
er æðstur titill meðal gangna-
manra, sama og fararstjóri í
ferðalögum. Veðriðvarhið ákjós
anlegasta, þurrablástur Allir
voru mættir fyrir tíu, þarna
voru menn á öllum aldursskeið
um, allt frá 16 til 73 ára aldurs.
Sá sem var 73 ára hét Dagui .
Eg var ekki svo hátt settur að
teljast til gangnamannanna,
heldur var ég bara snúings-
drengur í Brekkukoti. Eg sótti
hest húsbónda míns þennan
morgunn, eins og endranær,
hann var rétt fyrir utan túnið.
Hann var dökkrauður með
gljóbjart fax, enda hét hann
Glói, var góður til reiðar, ekki
mjög viljugur en þýður og þæg
ur. Hann var mjög styggur, en
ég náði honum oftast, enda not
aði ég mína aðferð við það.
Hún var þessi: Eg læddist aft-
an að honum, greip í stertinn
og hélck bar þangað til han,i
stoppaði. Ekki sló hann, svo
þetta var alveg óhætt, enda
notaði ég oftast þessa aðferð.
Síðan reið ég heim á hlað í
einum spretti og lagði á hann.
Hundarnir voru í bezta skapi,
þeir sperrtu eyrun við minnsta
þrusk og fylgdust með öllu
sem fram fór.
Loks voru allir tilbúnir, og
þá var lagt af stað. Allir fóru
ríðandi til fjalls, sem var bó
nokkur spotti. Hundarnir
stukku á undan, langár leiði’’,
skimandi og geltandi. Eg fói
með upp að fjallinu, því þar
átti ég að gæta hestanna. Eg
reið fyrir afta’n húsbónda
minn. Hann sagði mér sein.ia
frá göngunni um fjallið bví
ekki fór ég upp.
Sú saga var svona: Við .r-
um upp Langahrygg og upp
fyrir Bungur, en svo skipturr.
við okkur í tvo hópá hjá Smala
steini. Eg og Dagur gamli fór-
um inn í Skál og upp Löngu-
brú, einstigi, sem gengið er eft
ir upp fjallskollinn). Dagui
beið mín niðri, því þar þurfti
hans við, til þess að kindurnar
færu ekki niður í girðinga, en
það voru klettar, sem ekki var
hægt að ganga í. Eg fór inn
fyrir Þúfu en sá þar enga kind,
svo hélt ég yfir að Bláhamri
og þar voru sjö kindúr, þrjáv
dilkær og einn hrútur. Eg sendi
Fróða eftir þeim, (Fróði /a:
smalahundur bónda). Þær
runnu niður Löngubrú og fram
eftir Sauðaggnjgi, því Dagn
sat fyrir girðingunum. Síðau
fórum við niður á snasir, en
þar var margt fé og var nú
hópurinn orðinn heldur falleg-
ur. Við héldum áleiðis til
Smalasteins, en þar áttu hóp-
amir að hittast. Allir voru
komnir á undan okkur að ste.in
inurn og biðu okkar þar. Svo
var farið af stað með rekstur-
inn niður af f jallinu. Hundarn-
ir hlupu í kringum féð þegj-
andi, en smalamir hóuðu og
hóuðu enda veitti ekki af, þvi
féð var svo latt og óvant hreyf-
ingunni. Þetta var frásögn hús
bóndans.
*
Nú sá ég hópinn koma niður
Langahrygg. Þetta var fallegur
hópur, féð stanzaði neðst í
Langahrygg, því áin renn .ir
beggja megin við hann. Smal-
amir hóuðu og hundarnir geltu
í ákefð. Hópurinn óð út í ána,
sem var mjög djúp, en ekki
mjög straumhörð. Lömbin urða
hrædd og hlupu upp eftir
hryggnum en hundarnir sóttu
þau og hröktu út í ána. Nú var
hópurinn kominn til min, hver
maður tók sinn hest og teymdi
á eftir sér nema Dagur serr.
reið sínum.
Við réttina var margt fólk,
allir hjálpuðu til að reka féð
inn. Allt gekk vel í fyrstu, en
svo hlupu lömbin á fólkið og
hópur með þeim, en réttinm
var lokað svo féð færi ekki út
aftur. Var nú hópurinn, sem
slapp sóttur og rekinn á vegg-
inn og tókst það vel. Fóru nú
allir að kanna féð, hver að gá
að sínu og ég líka. Eg var í
gúmmístígvélum og heldur en
ekki upp með mér af því að
geta vaðið í réttinni. Eg var að
leita að ánni minni, jú, þama
var hún, feit og bústin, en svo
fór ég að leita að honum Dorra.
en Dorri var hrútur, sem hafði
verið í fjósinu um veturinn og
verið alinn á mjólk. Eg gaf
honum hana alloftast og vor-
um við góðir vinir, ég og
Dorri, en það kallaði ég hann.
Lengi leitað ég um réttina, en
fann hann ekki. Eg fór til Jóns
bónda og spurði hann eftir
Dorra.
„Sérðu h'ann ekki, drengur?“
sagði Jón.
„Nei“, sagði ég.
„Nú, hann er þama fram við
hliðið“.
„Nei, þetta er ekki Dorri,
hann er ekki svona stór“.
„Gáðu að götunum á horn-
unum á honum“.
Eg fór og gerði það. Jú, æjú,
þetta var hann, og orðinr,
svona stór. Eg hélt hann mundi
þekkja mig, stökk niður til
hans, tók um hálsinn á hon
um og ætlaði að kyssa hann.
En fiann var þá alveg búinn
að gleyma mér og tók snöggt
viðbragð, svo ég datt kylliflat-
ur í forina við réttarhliðið. —
Eg var eins og skitadi'umbu’'
þegar Jón bóndi var búinn að
draga mig upp úr forinni. Allir
skellihlógu en ég passaði mig
Það er sunnudagsmorgunn.
Eg vakna er klukkan slær 8
og sólin, sem er komin all hátt
á loft, skín beint á andlitið á
mér svo að mér ætlar að ganga
erfiðlega að opna augun til
fulls. Eg minnist þess nú í
einni svipan að kvöldið áður
var ég búinn að ákveða að far?
á fætur; á undan öllum öðrum
og niður í á að synda. Ástæðan
fyrir því að ég þarf að fara
svona snemma er sú, að nú hafa
verið sífelldar rigningar und
anfama viku og þess vegna
mikið hey óþurrkað, og þegar
svo stendur á veit bóndinn of-
urvel hvað á að gera við gott
veður á sunnudögum; honum
er alveg sama þótt hann sé að
brjóta 3. boðorðið.
Og nú er um að gera fvrir
mig að vera kominn nógu
snemma niður í á, áður en ég
verð gripinn til að breiða eða
þess háttar. Eftir augnablik ei
ég svo kominn út á hlað með
handklæði og sundskýlu. Eg
teyga að mér hreina loftið í
nokkrar sekúndur en hleyp sið-
an suður fyrir bæinn og ætla
nú ekki að stoppa fyrr en við
ána — en nú skeður ólukkan,
— ég hef þá ekki verið fyrstm
á fætur þennan morgun frem-
ur en vant er — þama kemu.
húsbóndi minn á móti mér, —
og má nú, samkvæmt gamalli
að líta ek'ki eftir hrútnum og
hljóp beina leið niður að á og
skolaði af mér mestu moldi:;...
Eg, sem var vanur að sulla
í ánni við að veiða og sigl?.
bátum, stökk óhræddur út í
hyl. En hljóðið sem ég rak upp,
þar rétt eins og verið væri að
drepa mig, svo fannst mér vatr
ið kalt, en það skánaði fljót.t
og fann ég minna til kuldans
eftir því sem ég var lengur
niðri í. Eg þvoði mér rækilega
og fötin líka í ánni. en hljóp
svo heim í spretti. Þegar heim
kom var ég færður í þurr föt
og borðaði síðan kvöldmat,. mat
urinnn var hafður til snemma
svo smalarnir fengju strax að
borða begar heim kom.
Þetta kvöld sofnaði ég hryeg-
ur yfir óförum mínum. — Eg
skildi ekki hvemig Dorri gat
hafa gleymt vináttu okkar á
svo skömmum tíma.
viðkynningu, búast við hihu
versta. En allt fer þó á betr:
veg. Að líkindum hugsar hann
eitthvað sem svo, að ég eigi
nú að vísu þennan dag sjálfur
og það er að öllu leyti betra að
fá mig til að vinna með góð i
en illu. Hann spyr mig aðeins
hvað ég sé að fara, og lítur um
leið all ófrýnilega til hand-
klæðisins og skýlunnar. , Fara“,
endurtek ég eins og mér komi
þetta alveg á óvart. „Ekki neitt
nema hérna niður í ána“, bæti
ég svo við. Seinustu orðin segi
ég slitrótt og hálf feimnislega
„Ætlarðu þá ekki að hjálpa
okkur við heyið í dag?“, segir
hann með róm sem hvori
tveggja felur í sér í senn á-
sökun og beiðni. En ekki vil ég
láta undan að svo stöddu, held-
ur reyni að afsaka mig með
því að enn sé allt of snemmt
að breiða vegna þess hve blautt
er á. En allar slíkar tilraunir
frá minni hálfu hrekur luL
bóndi minn með svo mikilli rök
vísi að ég sé að öil frekari and-
staða er tilgangslaus og höHa
því inn í bæ með miður fögur
orð á vörunum svo að allt gott
fólk flýr frá mér, sumir eftir
árangurslausar tilraunir til ..ð
stilla mig. Eg sé nú að ekki
þýðir annað en að sætta sig við
orðinn hlut og borða ég nú
hafragrautinn minn með beztu
lyst, en gengur samt illa að
koma skapinu í fullt jafnvægj.
Og sérstaklega gengur mér illa
að hætta að hugsa um hvernig
ég eigi að hefna þessa ósigurs
Og heyið breiði ég án þess ..ð
mæla orð frá vörum þótt jafn-
vel húsbóndinn reyni með góðu
að toga út úr mér orð. t. d
um hvort ég naldi ekki að
þurrkurinn haldist í allan dag.
Þegar búið er að breiða heyið.
verður tafarlaust að fara að
snúa því. Og nú segi ég mí"
fyrstu orð í heyvinnunni þenr.
an dag, — það var þegar ég sá
að hrífuhausinn minn hafði
verið brotinn. Þau voru vist
ekki úr guðspalli dagsins og
ég ætla ekki að tilfæra þau hér
að sinm — í fyrsta lagi af því
að ég man þau ekki öll, svo
og, að ég veit vart hvort prer.t-
svertan er nógu svört til að hún
geti táknað þau.
Kl. 12 er okkur svo sagt að
koma að borða. En í stað
að setjast að borðinu eins og
kristinn maður, þríf ég nú sund
fötin og þýt af stað án þess að
svara nokkurum fyrirspumum
sem fyrír mig eru lagðar, hvort
ég sé nú orðinn'alvitlaus.
*
Að ö icum iT.íi';.tum liðnurn
stend ég á árbakkanum og er
að klæða mig úr. Eg þyki:-t
viss um að vatnið sé volgt
vegna þess hve heitt er nú í
veðri. Eg þeyti fötunum utan
af mér í allar áttir, stekk að
svo búnu fram á fremstu snös-
ina, kalla upp: einn, tveir, þrír,
svo að bergmálar í klettunum
í kring. En nú fyrst bregður
mér. Vatnið sem ég hélt að
væri svo volgt, reynist ískalt,
svo að ég hef aldrei fyiT á
ævi minni fundið neitt þvílíkt.
Eg tek þrjú eða fjögur sund-
tök áður en ég' kemst að bakk ■
anum og skreiðist upp úr. En
ég sé að ekki kemur til nokk-
urra mála að fara strax heim.
Eg mundi verða nóg hláturo-
efni í heila viku fyrir allt heim
ilisfólkið ef það kæmist upp
að ég hefði ekkért synt eftir
allt saman. Eg ligg því svolitla
stund í brekkunni og læt sól-
ina þurrka mig. Að svo búnu
klaéði ég mig í og legg af stað
heim. Þegar ég kem heim er
farið að snúa. Eg er nú kominn
í allgott skap og ætla strax ..ð
fara að hjálpa fólkinu. En hús-
bóndi minn spyr mig nú hvort
ekki hafi verið kalt í ánni.
„Kalt“, endurtek ég með undr-
un, „O, nei, ekki alveg það. Eg
hef aldrei synt í ánni svona
heitri“, bæti ég svo við. „Ertu
þá ekki svangur?“ spyr hús-
bóndinn. Hann sér víst á mér
að svo er og bætir því við:
„Eg held að þú ættir að fara
inn og fá þér ofurlítinn matar
bita“. „Takk, kannski ég geri
það“, svara ég hrærður yfi:
hugulsemi húsbónda míns. Eg
þýt nú inn í bæ og háma þar
í mig steiktan silung og fleira
góðgæti. Að svo búnu skálma
ég út á tún í bezta skapi, ég
fer jafnvel að tala um hvílík
blessun það hafi verið af for-
sjóninni að senda okkur þurrk-
inn í dag. Og nú var stíflan
alveg bi'ostin 'úr munninum á
mér og enginn setti hana þar
$ aftur.
*
Þegar líða tekur á daginn er
farið að hirða. Eg er settur í
embætti sem kallað er að vera
„hlöðudraugur". Starf hlöðu-
draugsins er í því fólgið að
ryðja heyinu inn í hlöðuna. Það
er oft all erfitt en ég var nú
í svo góðu skapi að mér datt
ekki í hug að kvarta um erfiði.
Fyrst framan af hef ég vel við-
og svo mikill er ákafinn að
stundum steypist ég inn í hlöð
Framhald á 5. síðu.
Tveir ungir piltar,' annar 16, hinn lí ára, skipta með sér
verðlaununum í dag, fyrir greinarnar ,.Sunnudagu-r um■ hey-
vinnutímann“ og „Réttardagur“. Þetta eru yngstu ]>átttakend-
urnir sem greinar hafa sent í verðlaunasamkeppnina. Þeir skrifa
báðir um sveitavinnu, en gaman vœri að fá líka greinar i verð-
launasamJceppnina með lýsingum á lífi ungra verkamanna, sjó-
mamia og iðnuðarmanna í bœ og borg. Þar er af nógu að taka.
Sendið verðlaunagreinar til ritstjórnar Þjóðviljans, Austur-
strœti 12, Reykjavík, og látið fylgja helztu upplýsingar um
yklcur sjálf.