Þjóðviljinn - 20.06.1945, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 20.06.1945, Blaðsíða 2
2 ÞJOÐVILJINN Mi&vikudagur 20. júní 1943. ÞJðflHATfeiN ÚTIA LANDI Vegna rúmleysis gat Þjóðviljinn ekki birt í gær fregnir aí' hátíðahöldunum 17. júní, utan Reykjavíkur. En þá þegar höfðu borizt fregnir víðsvegar að um ágæta þátttöku í hátíðahöld- iiTUim Hér fara á eftir fréttir af hátíðahöldunum í stærstu kaup- stöðum og kauptúnum úti á landi Fáskrúðsfjörður Ungmennafélagið á Páskrúðs- firði gekkst fyrir hátíðahöldunum þar. Útisamkoma hófst á íþróttavell- inum kl. 3. Fór þar fram keppni í handknattleik milli stúlkna í út- bænum og inribæmim og unnu út- bæjarstúlkurnar með 4:3. Þá fór fram keppni í þokahlaupi milli drengja og stúlkna innan ferming- araldurs, urðu þau jöfn. Þá fór fram keppni í hástökki og 100 metra hiaupi og sigraði Ólafur Jónsson í báðum þessum keppn- um. Keppni í fleiri íþróttagreinum átti að fara fram, en varð ekki af vegna slæms veðurs. Iunisamkoma hófst i barnaskól- aasum kl. 4 og setti Gunnar Ólafs- son kennari hana með ræðu. Merki voru seld allan daginn. Norðfjörður Hátiðahöldin í Neskaupstað faófust kl. 1.30 með messu, séra Guðmundur Helgason pðédikaði. Vegna rigningar gátu hátíða- höld þau, sem ákveðið hafði verið að færu fram í skrúðgarði bæjar- ins, tkki farið fram þar, fóru þau fram í barnaskólanum og hófust kl. 4. Ræður fluttu alþingismennirnir Lúðvík Jósefsson og Ingvar Pálmason ,og Jónas Thoroddsen bæjarstjóri. Davíð Áskelsson las upp. Kór, undir stjóm Sigdórs Brekkan, söng. Simdsýning fór fram í sundlaug bæjarins kl. 6. Veður var vont, kuldi og rign- ing, og þess vegna kusu margir að vera heima og hlusta- á hátíðadag- skrána í útvarpinu um kvöldið og voru menn mjög ánægðir með hana. Um kvöldið var mjög fjöhnenn- ur dansleikur í bamaskólanum. Bærinn var fánum skreyttur um daginn. Vestmannaeyjar Hátíðahöldin í Vestmannaeyj- um hófust með skrúðgöngu frá samkomuhúsinu um götur bæjar- ins. Lúðrasveit Vestmannaeyja lék fyrir göngunni undir stjórn Odd- geirs Kristjánssonar. Útihátíð hófst á barnaleikvell- inum kl. 2, með ræðu er séra Jes Gíslason flutti. Þá fór fram fim- leikatýning undir sfjórn Sigurðar Finnssonar og Karls Jónssonar. Karlakór Vestmannaeyja söng undir stjórn Ragnars Jónssonar. Kvennaflokkar úr íþróttafélög- unum Þór og Tý kepptu í hand- knattleik og sigraði Týr með 7:3. Þá flutti Sigfús Jónsson bæjar- stjóri ræðu og Vestmannakórinn undir stjórn Brynjólfs Sigfússonar. Að lokum fór fram víðavangs- hlaup drengja, frá Hásteini og nið- ur að hátíðasvæðinu. Sigurvegari varð Eggert Sigurlásson úr Tý. - Veður var ágætt og fóru hátíða- höldin mjög vel fram. Um kvöldið var dansað í samkomuhúsinu. Hátíðahöldin fóru fram á veg- um Vestmannaeyjabæjar og var aðgangur ókeypis. Ólafsfjörður Veður var kalt í Ólafsfirði 17. júní og rigiiing, svo að útihátíða- höldum varð ekki við komið. KI. 5 e. h. hófst samkoma í sam- komuhúsinu. Bæjarfógetinn, Þor- steinn Símonarson, flutti ávarp í tilefni dagsins. Kariakórinn „Kát- ir piltar“ söng alimörg lög við ís- lenzk ættjarðarljóð. Stjómandi kórsins er Sigursveinn D. Krist- insson. Rögnvaldur Möller las kafla úr ræðum Jóns Sigurðssonar forseta. Magnús Magnússon las úr kvæöum Jóns Helgasonar prófess- ors. Sigursveinn D. Kristinsson las kvæði eftir Jóhannes úr Kötlum og Halldór Kiljan Laxness. Að lokum var stiginn dans fram eftir nóttu. Karlakórinn „Kátir piltar“ sá um hátóðahöldiu. Þátttaka var geysimikil og var gerður góður rómur að skemmtiatriðum. Reyðarfjörður Á Reyðarfirði fóru fram marg- vísleg hátiðahöld í tilefni af árs- afmæli lýðveldisins. Hátíðahöldin hófust kl. 14.30 með því að farin var hópganga undir blaktandi fánum frá baraa- skólanum og í trjágarð kvenfélags- ins. Þar flutti Valgerður Bjama- dóttir, form. kvenfélagsins, ávarp. Því næst hélt Gísli Sigurjónsson, bóndi í Bakkagerði, ræðu, og að henni lokinni söng Reyðarfjarðar- deild þjóðkórsins. Vegna óhagstæðs veðurs varð að fella niður íþróttir og ýmsa leiki, sem fram áttu að fara á fjjrótta- velliuum. Kl. 21 hófst samkoma í barna- skólanum. Þar fór fram eftirfar- andi: Ávarp: Björn Eysteinsson, for- maður ungmennafél. „Valur“. Samkór Búðareyrarkirkju söng undir stjórn Eiríks Sigurðssonar, kennara. Ræða: Páll Hemanns.son, al- þingismaður. Samkórinivsöng. Talkór mælti fram Grettisljóð Matthíasar. Gamanleikur: Krókur á . móti bragði. Skrautsýning: „Ægir konungur og móðir jörð“ eftir Hannes J. Magnússon, skólastjóra. Undirleik annaðist Eiríkur Sigurðsson, kenn- ari. Loiktjöldin baálaði Steinþór Eiríksson, vélsmiður, en Ingibjörg Stefánsdóttir, ljósmóðir, og frú Agla Bjarnadóttir æfðu dansana. Að lokum var stiginn dans fram eftir nóttu. Hreppsnefndin og fé- lög þorpsins sáu um hátíðahöldin, og var aðgang.ur og veitingar allar ókeypis. Samkoman var óvenju vel sótt. Fánar blöktu á hverri stöng. Hafnarfjörður 17. júní var minnzt í Hafnar- firði með útisamkomu á Sýslu- mannstúninu. Fór samkoman hið bezta fram, og má telja víst, að sjaldan hafi annar eins mannfjöldi safnazt saman í Firðinum. Klukk- an rúmlega hálf tvö tók fólkið að safnast saman við skemmtistaðinn, en kl. 2 hófst samkoman með því, að Lúðrasveitin Svanur, undir stjórn Karls O. Runólfssonar, lék ættjarðarlög. Þá gengu skátar og íþróttafólk fylktu liði inn á skemmtisvæðið undir fánum, stað- næmdist frammi fyrir mannfjöld- anum og heilsaði með fánakveðju, en iúðrasveitin lék Rfs þú unga íslandsmerki. Þá flutti bæjarstjórinn, Eiríkur Pálsson, snjallt ávarp. Minntist hann dagsins og þakkaði þátttak- endum í hátíðahöldunum. Síðan flutti prófessor Ólafur Lárusson af- burða gott erindi fyrir minni ís- lands og Jóns Sigurðssonar. Á eftir lék lúðrasveitin þjóðsönginn og Hafnarfjörð eftir Friðrik Bjarna- son. Þessu næst söng Karlakórinn Þrestir undir stjóm Jóns ísleifs- sonar nokkra ættjarðarsöngv’a og önnur kórlög. A3 k>kum fór fram keppni í handknattleik milli stúlkna úr Haukum og Fimleikafélagi Hafn- arfjarðar og cinnig milli pilta úr sömu félögum. Leikar fóru þannig, að jafntefli varð hjá stúlkunum, 3:3, en piltarnir úr Haukum unnu með 9 mörkum gegn 3. Formaður undirbúningsnefndar þakkaði félögunum leikina og af- henti formönnúm þeirra lýðveldis- skildi til minningar um þátttöku þeirra í hátíðahöldunum. Bæjarstjórnin gekkst fyrir há-' tíðahöldunum. en sérstök nefnd sá um undirbúninginn. Skipuðu hana þeir Stefán Júlíusson yfirkennari, sem var formaður nefndarinnar, Eyjólfur Kristjánsson gjaldkeri, Ólaflir Jónsson verkamaður, Ha.Il- steinn Hinriksson íþróttakennari og Guðmundur Árnason bæjar- gjaldkeri. ísafjörður Hátíðahöldin á ísafirði hóf- ust kl. 1.45 e. h.. með því að í- þróttamenn söfnuðustsaman nió ur í bæ og. gengu fylktu liði á- samt fleiri bæjarbúum upp á sjúkrahústún. Þar var útísam- koma. Skúli Guðmundsson, ,for- m. íþróttabandalags ísfirðinga. setti samkomuna. Sunnukórinn, blandaður kór, söng undir stjórn Ingvars Jónassoiiar. Guð- mundur G. Hagalín flutti ræðu um Jón Sigurðsson. Þá hófst drengjamót í frjálsum Ó. 1». skrifar Bæjarpóstin- um bréf um 17. júní-hátíða höldin, og hugleiðingar i samhandi við þau. „Menn eru að rabba um 17. júní og hátíðahöldin. Að þessu sinni má með sanni segja að útiskemmtan'r dagsins hafi íarið vel fram. Það leit þó sannarlega ekki vel út með veðrið á laugardagskVöldið, kulda- gjóstur og síþykknandi himinn. Mér datt i hug, þegar ég átti leið um Miðbærinn um kvöldið hve veðr ið gat verið ótrúlega líkt og að kvöldi hins 16. júní í fyrra og sannast að segja kenndi maður nokkurs kvíða fyrir því að illa tæk- ist til með veður á sjálfan hátíðis- daginn. Ekki glæddust vonirnar um gott veður þegar menn vöknuðu á sunnu dagsmorguninn, það var dumbungs- veður og rigning og nærri því logn. Sumir létu þau orð falla að það væru álög á þessum degi og töldu nú séð fram á að hátíðahöldin myndu öll fara út um þúfur. íþróttum. Keppt var í hlaupum, köstum og stökkum. Að lokurr var knattspymukappleikmr milli Harðar og Vestra, og sigr- aði Hörður með 7:1. Keppt var um Leósbikarinn, en það er nýr verðlaunagripur, sem nú er j. fyrsta skipti keppt um 17. júní. Um kvöldið kl. 8,30 hófst skemmtun í Alþýðuhúsinu. — Jón Hjörtur söng ein söng mflð undirleik Áslaug- ar Jóhannsdóttur. Haraklur Le- ósson flutti ræðu um Jónas Hali grímsson. Sjónleikurinn ,,Upp til selja“ var sýndur, og verð- laun fyrir knattspyrnu voru af hent; Herði var afhentur Leós- bikarinn og Vestra afhent verð- laun fyrir að vinna knattspyrnu keppni á móti í fyrra. Dansað var í Alþýðuhúsinu g Uppsölum um kyöldið. íþróttabandalag ísfirðinga sá um undirbúning hátiðahald- anna, ásamt þriggja manna nefnd, kosinni af bæjarstjóm ísafjarðar. — í nefndinni áttu sæti: Grímur Kristinsson, frá Alþýðufl., Halldór Halldórsson, bankastjóri, frá Sjálfstæðisfl. og Halldór Ólafsson, frá Sósía.I istaflokknum. Eskifjörður Hreppsnefndin á Eskifirði gekkst fyrir hátíðahöldum þar og hófust þau með útisamkomu við bamaskólann kl. 2; var far- ið þaðan í skrúðgöngu til hátíða svæðisins. Þar setti Skúli Þorsteinssou hátíðina með ávarpi. Kirkjukór- inn söng, undir stjórn Ólafs Her mannssonar. >á flutti Ragnar Þorsteinsson ræðu fyrir minni ísktnds, því næst söng blandaður kór undir stjórn Auðbjörns Emilssonar. Eiríkur Bjarnason flutti ræðu fyrir minni fánans, því næst söng kirkjukórinn, undir stjórn ólafs Hermannssönar. Leifur Bjömsson oddvit; flutti ræðu fyrir minni Eski- Framhald á 5. síðu. Veðurfregnir útvarpsins um há- degið glæddu þó vonir manna d.g svo fór að birta til. Ósiður sem þarf að hverfa Það eru ýmsar mótsagnir við þennan merkasta hátíðisdag okkar íslendinga sem ekki verður hj- komizt að reka í 'augun. í stormin- um að kvöldi hins 16. var t. d. afar mikið af fjúkandi bréfarusli á suni- um götum miðbæjarins, ýmist voru þetta stórar bréfaflyksur eða tætl- ur úr bréfum, sem reitt höfðu verið í smátt. Að þessu er hinn herfileg- asti óþrifnaður og næsta einkennl- legt að nokkur skuli hafa gaman af að tæta bréf og annað rusl út á götur og láta það fjúka þar um. En þetta kvað vera siður í Ameríku, þar lætur fólkið í ljós fögnuð siijn með því að tæta i sundur bréf og kasta þeim úr háum húsum yfir fólkið á strætunum. Fráleitt er þé að við eigum að taka okkur þetta til eftirbreytni. Annað, sem ég hika ekki við að telja versta ósið, bar fyrir augu mín í Hljómskálagarðinum um kvöldið. Fyrir utan eitt veitinga- tjaldið stóðu nokkrir kassar með tómum flöskum, sem strákar og, hálffullorðnir menn týndu upp, eina eftir aðra, og köstuðu í síkið sem liggur frá tjörninni um garð- inn. Höfðu þessir landar okkar hina beztu skemmtun af því að reyna hittni sína og brióta sem flestar flöskur með því að kasta þeiro hverrl á aðra. Ekki varð séð að nema fáir þeirra fullorðnu manna sem þarna voru hjá, fyndu sér skylt að banna þetta, tæplega hefði það þg skert helgi dagsins þó eitthvað heiði verið hast- að á þessa skemmdarvarga. Meiri dagamunur Hér er aðeins drepið á þetta til viðvörunar. Þetta er aðeins smáræði við það hve langflestir fundu skyldu hjá sér til að gera daginn að reglu- legum hátíðisdegi — og gerðu það En giarnan mættum við hafa í hugtí að skreyta bæinn okkar meir með ísl. fánalitunum þennam dag ar hvert og beini ég þeim áskorunum til þeirra sem annast gluggaútstill- ingar verzlana o. fl. — :— Það ger r bæinn hátíðlegan og kemur okkrur í hátíðaskap.“ Næturlæknir. er í læknavarð- stofunni Austurbæjarbamaskólan- um, sími 5030. Næturakstur: B.S.R., sími 1720. Næturvörður: er í Laugarvegs- apóteki. Útvarpið í dag: 13.00 Messa í Dómkirkjunni. — Setning prestastefnu (Prédik- un: Magnús Jónsson prófessor. Fyrir altari séra Friðrik Hal) grímsson dómprófastur og séra Garðar Þorsteinsson). 15.30—16.00 Miðdegisútvarp. 19.25 Hljómplötur: Óperulög. 20.30 Synódus-erindi í Dómkirki- unni: Frjálsyndi (séra Jako‘> Jónsson). 21.05 Hljómplötur: Kreisler leikur á fiðlu. 21.15 Erindi: Frá Finnmörk, siðara erindi (Valtýr Albertsson læknir). 21.40 Hljómplötur: Áttmenningam:r syngja (Hallur Þorleifsson stjórnar).

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.