Þjóðviljinn - 20.06.1945, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 20. júní 1945.
ÞJOÐ V ÍLJINN
RIT8TJÓRI:
\
SIGRÍÐUR ARNLAUGSDÓTTIR
Tildrögin aö Landspítalanum
— 17tdfal víð Ingtt Láfusdóffur —
Það eru ef til vill ekki margir
sem gera sér grein fyrir því,
hvern þátt íslenzkar konur eiga
í sjúkrahúsmólum landsins. Þær
áttu frumkvæðið að byggingu
Landspítalans, þær komu upp
Hvítabandinu og þær stóðu fyr-
ir byggingu Hressingarhælisins
í Kópavogi, og nú síðast eru
þær að vinna að undirbúningi
bamaspítala.
Þær hafa unnið að þessum
málum utan pólitískra samtaka
og' sigrunum hefur lítið verið
flaggað eftir að þeir hafa náðst.
Um þessar mundir eru 30 ár
liðin síðan fjársöfnun til Lands-
spítalans var hafin og bað i-g
'því Ingu Lárusdóttur að segja
kvennasíðunni eitthvað frá þess
um fyrstu átökum, en hún átti
sæti í Landspítalasjóðsnefnd-
inni.
— Við byrjuðum á þessari
söfnun, segir Inga Lárusdóttir,
i minningu um þau réttindi sem
íslenzkar konur' fengu 19. júni
1915. Fólk gerir sér ef til vill
ekki grein fyrir því nú hve
þörfín var' þá mikil fyrir spítala
hér í Reykjavík. Þá var gaml:
Landakotsspítalinn aðal spítali
bæjarins.
Fyrsta árið unnum við aðal-
lega að því að gera söfnunina
sem víðtækasta, við senduri
söfnunarlista út um allt land.
og árið eftir, 19. júríí 1916, þeg-
ar sjóðurinn var stofnaður var
upphæðin orðin kr. 23.729,09.
— Hvaða konur stóðu aðai-
lega fyrir þessari söfnun?
— Það voru átta kvenfélög
hér í Reykjavík: Thorvaldsens-
félagið, Hið íslenzka kvenfélag.
Verkakvennafélagið Framsókn,
Hvítabandið, Kvenréttindafélag
Islands, Kvenfélag Fríkirkju-
safnaðarins, Lestrarfélagkvenna
og Ungmennafélagið Iðum:..
Þessi sömu félög gerðu 19. júní
að söfnunárdegi fyrir sjóðinn og
héldu hann háfíðlegan ár hvert.
Eftir tæp tíu ár var sjóðurinn
oi’ðinn hátt á 3. hundrað þús.
krónur.
*
Árið 1926 var byrjað ' að
byggja spítalann. Smíðinni var
hraðað eftir því sem hægt var
og keppt að því að verkinu
yrði lokið fyrir Alþingishátíðina
1930. Það tókst og fyrstu íbúar
hans voru vesturíslenzkir gestir
á Alþingishátíðinni. Sem spítali
var hann ekki tekinn í notkun
fyrr en um haustið sama ár.
I Landspítalasjóðnum varð
eftir npkkurt fé, og ætlum við
okkur að láta það renna til fæð-
íngardeildar Landspítalans sem
nú er verið að byrja að byggja.
Þessarar fæðingardeildar hefur
lengi verið beðið og Reykjavík-
urbær og ríkissjóður byggja
hana í sameiningu.
Strax fyrstu árin byrjaði fólK
að gefa minningargjafir til
Landspítalans og yar þá stofn-
aður sérstakur sjóður, Minning •
arsjóður Landspítalans. Hann ..r
nú orðinn 332 þús. krónur. Hann
er notaður til að styrkja þá
sjúklinga spítalans sem eru
hjálparþurfi.
— En þetta er nú ekki nema
önnur hliðin á málinu, segir
Inga Lárusdóttir. Við hefðum
aldrei getað knúið Landspítala-
málið svo fljótt í gegn hefði
Ingibjörg Bjarnason ekki setið á
þingi, og við, fyrir hennar at-
beina haft áhrif á fjárveitinga-
vald ríkisins. Ingibjörg Bjarna
son var formaður samtakanna
og flutningsmaður málsins á Al-
þingi, hún vann ósleitilega fyrir
þetta mál alla tíð, framgangur
þess var fyrst og fremst henmr
verk.
Kosningaréttur og kjörgengi
í þrjátíu ár
í gær, 19. júaí, voru 30 ár liðin
síðan íslenzkar konur fengu kosn-
ingarétt og kjörgengi. Sem nærri
má geta fengust þau réttindi ekki
barártulaust. Kvenréttindafélagið
hafði hvað eftir annað sent áskor-
anir til Alþingis, en ötulast allra
barðist áreiðan'lega Bríet Bjarn-
héðinsdóttir fyrir framgangi þessa
máls. Hana má með sanni kalla
fyrstu íslenzku stjórnrtiálakonuna.
Hún var fyrsta íslenzka konan
sem skrifaði blaðagrein og sú
fyrsta sem flutti opinberan fyrir-
lestur.
Briet Bjarnhéðinsdóttir setti á
stofn Kvennab'laðið árið 1895 og
gaf það út í 25 ár. Þar er margt
sem bregður glöggu Ijósi yfir bar-
áttu þessara tíma, og margt sem
á eins mikið erindi til íslenzkra
kvenna nú í dag, eins og þegar það
birtist fyrir nærri hálfri öld.
Árið 1911 var krafan um kosn-
ingarétt og kjörgengi kvenna orð-
in mjög á dagskrá og í Kvenna-
blaðinu 10. árg.þ.á. er grein eftir
Petta er. skemmtileg og hentug Tveédragt. Athugið hvað ermarnar eru þröngar fram
þœr gefa jakkanum alveg sérstakan svip. Jakkaermartiar eru yfirleitt þröngar i ár.
Annars eru tvair ólíkar tízkustefnur uppi nú. önnur, sú enska og ameríska, feggur á-
lierzluna á einfaldleika og beinar línur, lítil vídd í pilsunum, hröngar crmar o'g slcttar
á öxlunum, — hin, sú franska, er af allt Öðrum toga spunnin, har er geysimikil vídd
í pilsunum og ermunum, aðskorin mitti og feykistórir hattar. Skór með þykkum sólum
og háum hœlum. Pað cr dálítið skrítið að tízkan sem kemur frá meginlandi Evrópu
skuli vera svo íburðarmikil. Myndin' hér fyrir neðan gefur dálitla hugmynd um skó-
tízkuna í París.
Bríeti sem gefur glögga hugmynd
um, hvernig málin stóðu.
Hér fer á eftir kafli úr henni:
„íslenzkar konur! Látið sjá í
sumar og hausl, að þér vitið hvað
þér viljið. Rekið það ámæli af
okkur, sem þau blöð og þeir stjórn
málamenn halda fram, sem oss
eru mótdrægir, að fæstar af okkur
konunum óski eftir meiri réttind-
um.
Um þingbímann í vetur voru
nokkrir menn hér í bænum að ráð-
gera að mynda félag nnóti kosn-
ingarétti kvenna. Þeir voru að
því komnir að mynda það, með
konum sínum, en hættu við, þegar
á átti að lierða. Tilgangurinn var,
að fá konur almennt til að skrifa
undlr áskorun til alþingis, um að
veita konum ekki kosningarétt.
Einn af þessum mönnum sagði
síðar, að hann væri reyndar með
jafnrétti kvenna en það hefði ver-
ið svo gaman að „narra þær“ til
að skrifa undir svona áskorun, og
J)að hefði mátt fá fjölda af undir-
skriítum“.
— En þrátt fyrir allt tómlæti
og andstöðu náði þetta réttinda-
mál fram að ganga skömmu síðar.
Það var 19. júní 1915, sem á-
kvæðin um stjórnarfarslegt jafn-
rétti kvenn'a hlutu staðfestingu
konungs. :Þá var ráðherra Einar
Arnórsson. Það vor héldu kvenn-
félög og konur höfuðstaðarins 'há-
tíðasamkomu til að fagna fengn-
um réttindum, Er hér stutt sýnis-
horn af ávarpsræðu frú Bríetar
Bjarnhéðinsdóttir við það tæki-
færi.
„Mér hefur hlotizt sú sæmd, að
mega ávarpa yður hér á þessum
mikiivægu tímamótum okkar ís-
'lenzku kvennanna, og fegin hefði
ég viljað vera þvi vaxin, að geta
lá'tið endúrminningar, óskir og
Vonir okkar allra bergmála svo í
orðum mínum, að þau snértu ail-
ar ykkar inztu og beztu tilfinn-
ingar. að þau vúktu heilar fvlking-
ar af björtum hugsjónum qg
góðum framtíðarvonum, um' leið
og þér minnist liðna bímans með
öllu hans striti og stríði, gleði og
sorgum.
Þegar vér í dag í glóbjarta
góðviðrinu, stöndum hér fvrir
framan þinghúsið, til }>ess að
halda minningarhábíð þess, að vér
séum orðnar löglegir borgarar
íslands, með fullum rétti til að
vinn'i sameigmlega að öllum þess
velfeiðarmálupi með bræðr-
um vorum, J>á verður það fvrst
og' síðast Alþingi og bess leíðandi
menn, sem vér þökkum þessi
stóru réttindi: Skúla Thoroddsen
fyrir hans J>rautseigu liðveizlu
fyrr á tímum, þegar hann mátti
tala út i bláinn, án þess að heyra
annao en h'ljóm sinna eigin orða.
Hannesi Hafstein, stnn bæði sem
ráðherra og þingmaður hei'ur
stutt að beztu málalokunum fyrir
mál vor kvennanna, og nú síðast
vorum núverandi ráðherra, sem
hefur boxið málið fram til sigurs,
gegnum allar öldur hins ókyrra
pólitíska hafs, og bjargað því
heilu í höfn.
Það er }>ví með glaðri von og
trú, sem vér tökum við þessúm
réttindum þótt þau til að byrja
með séu ekki eins útfærð og vér
hefðum óskað. —
Alþingi íslands, þessi kjörgrip-
ur íslenzku þjóðarinnar. hefur
svnt sig velviljað í vorn garð, og
vér óskum einskis fremur, en að
fá að vinna að sameiginlegum
landsmálum með bræðram vorum,
undi; löggjafarvaldi }>ess. Vér vit-
um vel. að }>að er fjöregg frelsis
íSlenzku þjóðarinnar sem vand-
Lega ber að varðveita að hvorki
brákist né brotni, og vér konur
múnum ekki revnast því ótrárri
liðsmenn en bræður vorir.
Vér heilsum glaðar framtíðinni,
þar sem karlar og konur vinna í
bifiðerni saman að öllum lands-
málúm, bæði á heimilunum og á
Alþingi“.
Matarupp-
skríftír
MEXÍKÖNSK POTTSTEIK
2 kg. kjöt (eins og það kemur
fyrir með beinum).
2 matsk. hveiti.
3 matsk. feiti.
1 meðalstór laukur, sneiddur.
1 bólli söxuð steinselja.
3 bollar tómabmauk.
IV2 tsk. Warchesterhire sósa.
1 tsk. salt.
!4 tsk. pipar.
Núið hveitinu vel inn í kjöt-
bitana, brúnið kjötið og lauk-
inn í feitinni í þungum potti,
blandið saman kryddinu og bæt
ið þvi í pottinn, setjið hlemm
■á pottipn og látið sjóða við
heldur lítinn hita þar til kjöt-
ið er mátulega meyrt.
SOYABAUNABIJÐINGUR
(fyrir fjóra)
Hakkið tvo bolla af soðnum
soyabaunum. Bætið í:
2 tsk. brytjuðum lauk.
3 hrærðum eggjarauðum
1 tsk. salt
!4 tsk. pipar
2 matsk. pétursselja eða ann-
að grænmeti.
Stífþeytið eggja hvítur og
blandið þeim lauslega saman
við.
Bakið í ofni við hægan hita.
ea. 1 klst.