Þjóðviljinn - 25.08.1945, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 25.08.1945, Blaðsíða 7
Laugardagur 25. ágúst 1945 ÞJ ÓÐVILJINN 7 Ötrúlegt en satt Framhald af 5. siðu. ósamstilltir sameinuðum and- stæðingum. Við treystum bví, að við um ræður þessar okkar á milli megi takast að ráða fram úr þessum málum á giftusamleg an hátt fyrir sjómannastétt- i'na sem heild. Með félagskveðju. (Undirskriftir).“ Rétt er að geta þess, við- komandi félagastjórnum til sannmælis, að formenn Verka lýðs- og sjómannafél. Kefla- víkur og Verkalýðsfélags Akraness tilkynntu með fyrir vara forföll sín. Á fund- inum mættu fulltrúar frá öðrum viðkomandi félög- um, nema stjórn Sjómanna- félags Reykjavíkur. Þaðan heyrðist hvorki hósti né stuna á þeim fundi. Þriðja bréfið Stjórn Alþýðusambandsins var þó ekki af baki dottin enn og ákvað.því að reyna til þrautar hvort ekki væri unnt að koma vitinu fyrir stjórn S. R. Sendi hún for- manni þess þriðja bréfið, en það fer hér á eftir. „18. júní 1945. Hr. Sigurjón Á. Ólafsson, form. Sjómannafélags Reykjavíkur, Reykjavík. Eins og bréf Alþýðusam- bandsips frá 28. .mai og 9. júní þ. á. til stjórnar Sjó- mannaf élags Reyk j avíkur bera með sér, hefur Alþýðu- sambandið gert nokkrar til- raunir til að koma á sam- starfi með sjómannasamtök- unum við Faxaflóa og öðr- um samtökum sjómanna víðsvegar á landinu um síld- arkjörin fyrir komandi síld- arvertíð, til að stýra hjá því að þau beri fram ósamhljóða kröfur eða undirbyðu hvert annað vegna sambandsleysis sín á milli, og gerðu eitthvað það, sem skaðaði heildina. — Við þurfum ekki að ganga í grafgötur um svo einfaldan hlut sem það, að gagnaðili okkar notar sér hverja smá- vægilega snurðu er hleypur á þráðinn í samstarfi félag- anna, og auðvitað myndu undirboðin á eínstökum stöðum verða vopn í hendi hans gegn heildinni. Þar sem ekki hefur til þessa tekizt að ná sambandi við stjórn Sjómannafélags Reykjavíkur og ennfremur vegna þess, að nokkur önnur félög við Faxaflóa munú byggja allmikið kröfur sínar á samningsuppkasti Sjó- mannafélags Reykjavíkur, í þeirri trú að þar sé stefnt til fullkominnar samræming- ar til jafns við það sem bezt hafi náðst með samn- ingum hér á lardi eða ríf- lega það, viljum vér hér með vinsamlega leiða athygli þína að eftirfarandi: í kröfum Sjómannafélags Reykjavíkur, sem nú liggja hjá ríkissáttasemjara, eru nokkur allþýðingarmikil at- riði, sem boða lakari kjör en gilt hafa í samningum ýmisa sjómannasamtaka út um landið, og skal hér farið nokkrum orðum um þessi at- riði: 1) í uppkasti ykkar, 2. gr. undir b-lið á skipastærð 70—100 rúmlesta, er hlutur skipshafnar, af brúttóafla, 36.8%, skipt í 16 staði eða til hvers skipverja 2.3%. í samningum Sjómannafé- lags Akureyrar hefur alla tíð frá 11. maí 1939 hlutur skips hafnar verið 35% af brúttó- afla, á þessari skipastærð, skipt í 15 staði, eða til hvers skipverja 2.33%. Sömu skipti hafa einnig verið samnings- bundin í Vestmannaeyjum, og á Siglufirði. 2) í uppkasti ykkar, 2. gr. undir c-lið, á skipastærð 100 —150 rúmlesta, er hlutur skipshafnar 35.7%, af brúttó- afla, skipt í 17 staöi, eða til hvers skipverja 2.1%. í fyrrnefndum samningi Sjómannafélags Akureyrar og á Siglufirði hefur skips- höfn, á skipum sömu stærðar, fengið 35% af brúttóafla, skipt í 16 staði, eða til hvers skipverja 2.19%. 3) í uppkasti ykkar, 2. gr. undir d-lið, á skipastærð 150 rúmlesta eða þar yfir, er hlut ur skipshafnar, af brúttóafla, 36%, skipt í 18 staði, eða til hvers skipverja 2%. í fyrrgreindum samningi Sjómannafélags Akureyrar, á Siglufirði og í Vestmanna- eyjum, var hlutur skipshafn- ar á skipum þessarar stærð- ar, 35%, af brúttóafla, skipt í 17 staði, eða til hvers skip- verja 2.06%. Það, að við snúum okkur til þín persónulega í stað þess að bifta þessar upplýs- ingar á opinberum vettvangi, orsakast af því tvennu, fyrst að við trúum því ekki enn, að þið fulltrúar Sjómanna- félags Reykjavíkur hafið af ráðnum hug ætlað ykkur að krefjast lækkunar á kjörum sjómanna, heldur sé hér um að ræða óviljaverk byggt á ónógu sambandi við samtökr in annai's staðar og Alþýðu- sambandið, annað, að við teljum hagvænlegra fyrir sjómannastéttina sem heild, ef takast mætti að ná sam- an fundi með ykkur og full- trúum sjómannafélaganna ut an af landi til að samræma afstöðu sjómannasamtakanna um land allt til þessa máls, út frá þeim viðhorfum, sém skapazt hafa nú, heldur en að gera þessi atriði að opin- beru deilumáli, áður en að samstarfsleiðir eru reyndar til þrautar. Við óskum munnlegs eða skriflegs svars um það hvort OAbcrginní Ungur íþróttamaður kveður Næturvörður er í Reykjavíkur apóteki. Næturlæknir er í læknavarð- stofunni Austurbæjarskólanum, sími 5030. Næturakstur: Hreyfill, sími 1633. Ljósatími ökutækja er frá kl. 21.00 til kl. 4.00. Útvarpið í dag: 19.25 Hljómplötur: Samsöngur. 20.30 Útrvarpstríóið: Einleikur og tríó. 21.45 Leikrit: „Og trumburnar glumdu“ eftir C. R. Summ- er (Haraldur Björnsson o. fl.). 21.35 Hljómplötur: Valsar. 22.05 Danslög. Hagkerfi og lýðræði Framh. af 3. síðu. laun í þeim atvinnugreinum, sem siður væru fýsilegar. Af öllu þessu ætti að vera ljóst, að allt tal um frelsi sér- eignaskipulagsins og ófrelsi sósíalismans er byggt á litl- um skilningi og veikum rök- um. Hér er aðeins um að ræða tilraun til að nota hug- tak, sem nýtur mikillar lýð- hylli, sem pólitíska beitu. Hér á landi bíða nú, eins og alls staðar annars staðar í heiminum, ótal verkefni og ó- leyst þjóðfélagsleg vandamál, sem krefjast skjótrar og góðr- ar úrlausnar. Það er nauð- synlegt að allir flokkar og stéttir starfi að lausn þeirra með skilningi og víðsýni, og láti ekki gamlar kreddur, úr- eltar . kennisetningar eða stundarhagsmuni villa sér sýn. Sjálfstæðisflokkurinn hefur á seinni árum sýnt við- leitni í þá átt, viðleitni, sem gleggst hefur komið fram við myndun núverandi stjórnar. Sú skoðun hefur ekki hvað sízt komið fram hjá Morgun- blaðinu, að þeir tímar, sem við nú lifum á, krefjast nýrr- ar og jákvæðari stefnu af borgaralegu flokkunum, 1 stað" skilningsleysis á hinum miklu þjóðfélagsvandamálum vorra tíma og, andófs gegn allri þróun þjóðfélagsins. Ef Sjálfstæðisflokkuxinn bæri gæfu ti.l að halda áfram' á þeirri braut, væri það eitt hið mesta lán, er íslenzku þjóð- inni gæti hlotnast. En flokk- urinn yrði þá að velja sér andlegan leiðtoga, sem væri óhlutdrægari, víðsýnni og raunsærri en Friedrich Hay- ek. Hvernig væri að velja Beveridge eða Keynes? þú vildir eiga tal við okkur um þessi mál í dag eða á morgun. Með félagskveðjum, (Undirskriftir)“. í dag kveður land vórt einn vinsælasti handknatt- leiksmaður þessa bæjar, en það er Sören Langvad. Mun hann hverfa héðan alfarinn nema hvað góðar endurminn- ingar gætu dregið hann að síðar. Langvad hefur dvalið hér um nokkurt skeið og notað frístundir sínar til að iðka í- þróttir sérstaklega handknatt leik, og hlaup nokkuð. Hefur hann verið handknattleiks- liði sínu í Ármanni stoð og stytta. En þar með er ekki sögð öll saga Langvads, sem handknattleiksmanns. Honum hefur tekizt að ná þeim á- rangri í leikni með knött- inn, í staðsetningum og síð- ast en ekki sízt í framkomu í leik að fullyrða má að hann verður mörgum þeim sem hafa séð hann, sönn fyrir- mynd. Þannig hefur honum tekizt að túlka þá fegurð, sem hand- knattleikur á og gefið það fordæmi, sem hollt er öllum þeim, bæði konum og körl- um, sem handknattleik iðka. Það má því segja að hann sé að vissu leyti brautryðj- andi í þessari ungu íþrótt hér á landi. Háttprýði hans, bæði innan vallar og utan er einnig sönn fyrirmynd og er aðalsmerki sannra íþrótta- manna. Eg vil leyfa mér fyrir hönd þeirra mörgu, er kynnzt hafa Langvad á sviði íþróttanna að þakka honum fyrir kom- una og þann skerf sem hann hefur lagt til þessarar ungu íþróttagreinar hér, um leið og honum er árnað allra heilla, gengis og gæfu á ó- komnum árum. F. H. r Ragnar Olafsson Hæstaréttarlögmaður og löggiltur endurskoðandi Vonarstræti 12, sími 5999 Skrifst.tími 9—12 og 1—5. Iíaupum tuskur allar tegundir hæsta verði. HÚSGAGNA- VINNUSTOFAN Baldursgötu 30. Sími ?2y2 Munið Kaffisöluna Hafnarstræti 16 I Tilkynning til íbúa Laugarneshverfis Opnum nýlenduvöruvcrzl - un við Hrísateig 19 í dag Dömudragtir frá HREIÐAR—SVAVAR verða seldar í búðinni næstu daga. Lítið í gluggann um helgina. Ragnar Þórðarson & Co. Aðalstræti 9. — Sími 2315.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.