Þjóðviljinn - 31.10.1945, Page 8
Ntunda þing F.F.S.I. ályktar:
Að skora á ríkisstjórnina að láta reisa sex
fiskniðursuðuverksmiðjur á næsta ári
Vill beita sér fyrir stofnun sjómannastofu erlendis
Meðal þeirra ályktana og tillagna er sam-
þykktar voru á níunda þingi Farmanna- og fiski-
mannasambands íslands, sem nýlega er lokið, var
ályktun þess efnis að skora á ríkisstjórnina að
hlutast til um að byggðar verði á næsta ári sex
niðursuðuverksmiðjur og að verksmiðjum þessum
verði valdir staðir með tilliti til upplands, hafnar-
skilyrða og fjarlægða frá fiskimiðum. I»á verði
gerðar ýmsar fleiri ráðstafanir til að bæta hag-
nýtingu sjávarafurða og auka vöruvöndunina.
Þingið lagði til að FFSÍ komi upp sjómanna-
stofu erlendis, og komið verði á sambandi við
sjómannastofur Norðurlandaþjóðanna.
Tillögur þingsins um þetta efni o. fl. fara
hér á eftir:
Hagnýting sjávarafurða
og vöruvöndun
9. þing F. F. S. I. ályktar
að skora á ríkisstjórn, að
hlutast til um og stuðia að
því:
1. Að byggðar verði á
næsta ári að minnsta kosti
6 niðursuðuverksmiðjur og
verði ein við Faxaflóa, eirf á
Vestfjörðum, 2 á Norðui-
landi og ein á Austfjörðum,
ein á Suðurlandi. Jafnframt
verði í sambandi viö sér-
hverja verksmiðju starfrækt
hraðfrystihús, fiskimjöls
verksmiðja og kæligeymslu
hús. Æskilegast væri aö
byggingar þessar stæðu svo
nærri hvor annarri að
flutningur allur á rhilii
þeirra gæti farið fram á
böndum svo og milli skipa
og verksmiðju. Byggingum
þessum sé eftir því, sem
við verður komið valdir
staðif með tilliti til upp-
lands, hafnarskilyrða og
fjarlægða frá fiskimiðum.
Niðursuður hver urn sig
séu sem mest innstilltar á
sérstök verksvið, með hlið-
sjón af hverjar fiskitegund-
ir eru auðfengnastar á nær-
lægum fiskimiðum, og því
hvað verksmiöjunni er ætl-
að að framleiða úr þeim
íiski.
Verksmiðjurnar séu hafð-
ar það stórar, að hægt sé
að koma fyrir í þeim hvers-
konar vélasamstæðum, sem
orðið geta til hagkvæms
reksturs og aukinna af-
kasta.
2. Að byggö verði á
næsta ári, að minnsta kosti
ein fullkomin dósaverk-
smiðja.
3. Að fengið verði úr því
skorið, svo fljótt sem auðið
er, hvort framleiðsla á nið-
ursuðuvörum til manneld-
is úr úrgangi frá hraöfrysti-
húsum geti tekizt í stórum
stíl hér á landi, og hvort
sala þessara afurða erlend-
is geti ekki orðið mjög arð-
vænleg.
4. Að byggingu hinnar
fyrirhuguðu fiskiðnaðar-
deildar við Háskóla íslands
verði hraðað sem mest.
5. Að rannsakað verði
hvort hægt sé að þjappa
vatni úr fiski án þess að
gæöum hans sé spillt. Þetta
sé gert í því augnamiði' að
gera hann fyrirferðarminnl
í flutningi.
6. Að rannsakáð verði
hvort hægt sé að gera fisk-
slor geymsluhæft með tilliti
til þess hvort hægt sé áð
nota það sem ræktunará-
burð.
7. AÖ athugaöir séu
möguleikar á útvegun skips
eða skipa til selveiða í Norð-
urhöfum.
8. AÖ Alþingi það, er nú
situr samþykki lög, sem
skyldi menn til ströngustu
vöndunar á öllum sjávaraf-
aröum með opinberu mati
og dyggilegu matvælaeftir-
liti.
íslenzkar sjómannastofur
erlendis
Með sérstöku tilliti til
þeirra íslendinga, er sigla á
erlendum skipum, sem ekki
koma heim, og fá því tak-
markaðar fréttir að heiman
vill 9. þing F. F. S. í. leggja
til að komið verði á sani
bndum við sjómannastofur
böndum við sjómannastofur
landaþjóðanna og þær stofn
anir taki á móti íslenzkum
blöðum og tímaritum. Að
þau liggi þar frammi, og
það auglýst, svo að íslend-
ingum þeim, er þangað
koma verði um það kunn-
ugt. Einnig að stofnanir
þessar veiti íslendingum, er
heimsækja þær, allar fyrir-
greiðslur sem þeir æskja
eftir og að sá kostnaður,
sem af því yrði, verði greidd
ur héöan.
Þingið leggur til að F. F.
S. í. hafi forgöngu um
stofnun sjómannastofu er-
lendis, þegar það álítur það
tímabært. Telur þingið eðli-
legt að hið opinbera styrki
slíka starfsemi.
Óskyldum skólum verði
ekki léð húsnæði í
Sjómannaskólanum
Þá leyfir 9. þing F. F. S.
í. sér að mótmæla því kröft
uglega aff nemendum úr
öðrum óskyldum skólum
hefur verið hleypt inn í
Sjómanrfaskólann, þegar
vitað er að 75 mótorvél-
stjóranemendur vei’ða að
hafast við í setuliðsbrögg
um niður við Skúlagötu.
Undirbúningsnámskeið
viff Stýrimannaskólann
9. þing F. F. S. í. telur
nauðsynlegt að komiö verði
á 14 daga námskeiði með
prófi, fyrir þá háseta á
flutninga- og farþegaskip-
um, sem ætla sér að fá inn-
göngu á Stýrimannaskól-
ann. Námsskeiðið sé haldið
við skólann til þess að
ganga úr skugga um að
þeir hafi þá þekkingu til
að bera sem krefjast veröur
af fullgildum háseta. Til að
Borgarafundur í Reykjavík um áfengismálið
Víðtækt samstarf gegn
áfengisbölinu
Burt með áfengið af Borginni
Héraðabönnin í framkvæmd
Borgœrafundur var haldinn að tilhlutan Þingstúku
Reykjavíkur í Listamannaskálanum i fyrra kvöld. Áfeng-
ismálin voru til umrœðu. Framsögurœður fluttu dr. Matthías
Jónasson og Sigurhjörn Einarsson dósent.
Á fundinn var boðið ríkisstjóm, bcejarráði, þingmönn-
um Reykjavíkur og fleiri ráðamönnum í þjóðfélaginu. -
Eftirfarandi t'llögur komu fram og voru samþykktar
í einu hljóði:
„Fjölmennur borgara-
fundur, haldinn í Reykjavík
fnánudaginn 29. okt. 1945
skorar á forystumenn skóla
öðlast skírteini sem fullgild-1 og menntamála í Reykjavík
ir hásetar eiga þeir að geta og forgöngumenn félags
sýnt leikni sína í, að þekkja
á áttavita og vegmæli, aö
fara með björgunartæki,
setja björgunarbát á flot og
stjórna honum, splæsa sam-
an víra og kaðla, starfrækja
vindur o. s. frv.
legra samtaka, að hefja nú
þegar markvissara og öfl-
ugra samstarf, en verið
hefur, til úrbóta áfengis-
bölinu í bænum og hjá
þjóðinni yfirleitt.
Frá kesmngaskrifstofunni.
SAMKEPPNIN
12. deild kr. 900.00
28. deild — 817.00
3. deild — 700.00
16. deild — 635.00
24. deild — 800.00
23. deild — 710.00
19. deild — 600.00
6. deild — 505.00
20. deild — 400.00
13. deild — 200.00
25. deild — 380.00
4. deild — 350.00
2. deild — 205.00
18. deild — 150.00
5. deild — 150.00
14. deild — 125.00
10. deild — 100.00
7. deild — 60.00
11. deild — 50.00
26. deild — 45.00
22. deild — 20.00
Röð deildanna fer eftir því hve miklu hver deild hefur
safnað pr. félaga.
Á manntalið skal skrifa
alla þá sem hér eiga lögheimili, þótt þeir kunni að
vera fjarstaddir. Munið að láta þá, sem húsnæðislausir eru
í þessari fyrirmyndarborg íhaldsins, skrifa sig á manntalið.
Þ>að er sérstaklega hætt við, að einstaklingar, sem hafa
orðið að hrökklast úr bænum vegna húsnæðisleysis, en
telja sig eiga hér heima, falli af manntali Qg kjörskrám.
Minnið þetta fólk á að láta skrá sig í manntalsskrifstof-
unni ef það skrifar sig ekki á manntalsskýrslumar núna
annars á það á hættu að íalla út af kjörskrá til Aíþingis-
teosninga í júní 1946. —;—— — rrTr:.m.t.:.: .. t.
Fundurinn mótmælir ein-
dregið þeirri ráðstöfun, að
leyfðar séu áfengisveitingar
á Hótel Borg.
Þá skorar fundurinn á
í’íkisstjórrtina að láta lögin
um héraðabönn koma til
framkvæmda, og framfylgja
nú þegar þeirri grein lag-
anna, sem mælir svo fyrir,
aö teljist einhverjir milli-
ríkjasamningar koma í
bága viö lögin, þá skuli rík-
isstjórnin sjá til að slíkum
tálmunum sé rutt úr vegi
til fullkominnar fram-
kvæmdar laganna".
Listamannaskálinn var
þéttskipaður fundargestum
og umræöur uröu miklar.
Þessir töluöu auk frum-
mælenda: Séra Jakob Jóns-
son, Kjartan Bergmann,
Ingimar Vilhjálmsson kenn-
ari, Snorri Jónsson kaup-
maður, Kristinn Stefánsson
stórtemplar, Sigbjöm Ár-
mann, Jón Loftsson kaup-
maður, Helgi Elíasson
fræðslumálastj ói’i, Karl
Guðmundsson lögreglu-
þjónn, Sigfús Sigui'hjartar-
son, Ólafur Björnsson frá
Akranesi, Þorsteinn Magn-
ússon og Jóhannes Stefáne-
son frá Norðfirði.
Hnigu \ ræður manna
mjög á einn veg, þann, að
nú væri nauðsyn að vinna
vel gegn áfengisbölinu.
Stúdentaráðs-
kosningar
Framhald af 5. síðu.
stúdenta): Vilhjálmur Jóns-
son stud. jur., Sveinn Finns
son stud. jur. Jóhannes Sig-
fússon stud. jur. Páll Hann-
esson stud. polyt, Óttar Þor-
gilsson stud. med. og Jón
Þorsteinsson stud. med.
D-listi (Félag róttækra
stúdenta): Magnús Torfi
Ólafsson stud. med., Páll
Bergþórsson, stud. polyt.,
Einar Ágústsson, stud. jur.
Bergsteinn Jónsson stud.
mag., Kristján Eiríksson
stud. jur. og Sigurður Blön-
dal stud. phil.