Þjóðviljinn - 09.01.1946, Blaðsíða 4
'4-t-
Þ J ó Ð V I L J I N N : . w Miðvikudagur 9. jan. 1946.
þlÓÐVILIINN
JJtgefandi: gameiningarflokkur alþýöu — Sósíalistaflokkurinn
Kustjori og abyrgöarmaður: Siguröur Guðmundsson.
Stjórnmálaritstjórar: Einar Olgeirsson, Sigfús Sigurhjartarson.
Ritstjómarskrifstofa: Austurstraeti 12, sími 2270. (Eftir kl.
19.00 2184).
Afgreiðsla: Skólavörðustíg 19, simi 2184.
Auglýsingar: Skólavörðustíg 19, sími 6399.
Prentsmiðjusími 2184.
Askriftarverð: í Reykjavík og nágrenni: Kr. 6.00 á mánuði.
Úti á landi: Kr. 5.00 á mánuði.
Prentsmiðja Þjóðviljans h. f.
__________________________________________________
Stefnuskráin
Sósíalistaflokkurinn er eini flokkurinn, sem gengur til
bæjarstjórnarkosninga með ýtarlega stefnuskrá. Þessi
stefnuskrá verður bcrin út um bæinn næstu daga, og er
ekki að efa að hún verður lesin og rædd af öllum, jafnt
stuðningsmönnum, sem andstæðingum.
I upphafsorðum stefnuskrárinnar er dregin sú megin-
lína, sem skilur sósíalista og höfuðandstæðinga þeirra,
íhaldsmenmna. Ágreiningur'nn milli þessara flokka er um
hlutverk bæjarstjórnarinnar- Að dómi sósíalista á hún
ekki aðeins að hafa forustu í þeim málum, sem almennt
eru kölluð félagsmáh heldur og í þeim málum, sem mestu
skipta fyrir hag og afkomu borgarbúa, atvinnumálun-
um og húsnæðismálunum. Um þetta segir svo í stefnu-
skránni meðal annars.
^Sósíalistaflo'kkurinn lýsír því yfir sem stefnu sinni að
bæjarstjórn eigi að hafa forustu í atvinnu- og húsnæð-
ismálum bæjarbúg. Flokkurinn telur vonlaust, að einká-
framtakið eitt leysi þessi mál þannig, að bæjarbúum sé
tryggð atvinna og húsnæði, en það er, að hans dómi, fyrsta
og mik'lvægasta verkefni bæjarstjórnarinnar á hverjum
tíma, að tryggja að allir bæjarbúar, sem vinnufærir eru,
géti stundað nytsama og arðbæra atvinnu og þeir getí
búið í íbúðum, sem uppfylla nútímakröfur um hollustu-
hætti og þægindi".
Þessi stefna sósíalista verður ekki framkvæmd, eins
HEFÐI MÁTT VERA FYRR
„Fæðiskaupandi“ skrifar Bæj-
arpóstinum: „Eg var á undirbún
ingsstofnfundi að samtökum
fæðiskaupenda hér í bænum,
siðastliðinn sunnudag. Eg var
ánægður með þann fund, þar
ríkti svo mikill áhugi fyrir að
bindast traustum og öflugum sam
tökum til að vinna að úrbótum
á fæðissölumálunum. En þörfin
fyrir þennan félagsskap virðist
svo aðkallandi að maður getur
verið bæði undrandi og óánægð
,ur yfir því, að ekki skuli hafa
verið búið að stofna þessi sam-
tök fyrir löngu.“
ÞÁTTUR VERÐLAGSEFTIR-
LITSINS
„Fæðisseljendur hafa myndað
með sér samtök, sem raunar er
ekki nema eðlilegt, en þau sam-
tök hafa haft' alltof frjálsur
hendur gagnvart fæðiskaupend-
um, sem engin samtök hafa haft
sín á milli. Við þekkjum af-
leiðingarnar alltof vel. Verðlags-
eftirlitið, sem átt hefur að hafa
hemil á því að verð á fæði
hækkaði upp^úr öllu valdi, hefur
yarla haft við annað að styðjast
við verðlagninguna en upplýs-
ingar og kröfur fæðissalanna.
Að vísu hafa verið starfandi
tvær matstofur hér í bænum
sem hafa haft þann tilgang að
selja gott fæði með hóflegu
verði og hafa sýn að hægt er að
selja fæði ódýrara en nú er
almennt, og hagnast þrátt fyrir
það allverulega á rekstrinum, en
verðlagseftirlitið virðist bara
ekki hafa fært sér þessa reynslu
í nyt, heldur látið undan verð-
hækkunarkröfum gróðamann-
anna, sem stunda fæðissQluna
sem atvinnuveg og það meira
að segja sem mjög gróðavænleg-
an atvinnuveig.“
AUKIN EFTIRSPURN —
LÉLEGRA FÆÐI
„Það verður tæplega véfengt,
að verðlagsákvæðin hafa í mörg
um tilfellum orðið til að rýra
gæði fæðisins til mikilla muna,
þrátt fyrir ákvæðin um að það
mætti ekki versna frá því sem
verið hefði. í skióli .þess að eftir
spurn eftir föstu fæði er meiri
en þessar fáu fæðissölur geta
fullnægt, hafa þær gengið á það
lagið að minnka gæðin. Fæðis-
kaupendur hafa ekki getað ráð-
ið við það. Ef þeir hafa möglað
hefur verið hægur vandinn að
segja þeim að þeir gætu borðað
annars staðar.“
ÖFLUG SAMTÖK — NÓG
VERKEFNI
„Samtök fæðiskaupenda hafa
ærið nóg að starfa, og það er
ástæða til að ætla að þau fái
miklu góðu áorkað. Fæðiskaup-
endur eru mjög fjölmennir hér í
bænum og hafa-áreiðanlega skil
yrði til að mynda öílug samtök.
— Þeirra höfuðverkefni hlýtur
að verða það, að hefja öfluga
sókn fyrir lækkuðu verði, bættu
fæði og auknu hreinlæti á mat-
sölustöðum. I þeirri sókn verður
að hagnýta sér reynsluna af
þeim tveimum matsölum sem ég
áður nefndi að hefðu sýnt að
hægt er að selia fæðið ódýrar en
nú er almennt, en' þó betra.“
IIVAR FELUR MATVÆLÁEFT-
IRLITIÐ SIG?
„Það verður einnig hlutverk
þessara samtaka að draga mat-
vælaeftirlitið fram úr því
skúmaskoti er það nú felur sig í
og láta það vinna sitt verk.
Fæðiskaupendur geta ekki þolað
I það lengur að borið sé á borð
fyrir þá hvaða ómeti sem er og
þeim skipað að éta eða hafa
ekkert ella. Slíkt réttleysi má
ekki viðgangast lengur.“
VERKEFNI FYRIR SÉRFRÆÐ-
INGA
„Við höfum nóg verkefni
handa okkar ágætu næringar-
efna sérfræðingum, að rannsaka
óstandið í fæðissölumálunum,
og við krefjumst þess af vald-
höfum rikis og bæjar, að þeir
fái að starfa að þeim málum.
Það væri til dæmis fróðlegt að
vita hve mörg prósent bæjai'búa
ekki hafa fulla starfsorku vegna
þess að maturinn sem þeir neyta
inniheldur ekki nægilega mikið
af nauðsynlegum næringarefn-
um, og hve margir þeir eru sem
þjást af meltingarsjúkdómum af
1 sömu orsökum“.
SAMVINNUMÖTUNEYTI
„Heppilegasta lausnin, og sú
sem verður árangurríkust, er
Framh. á 7. síðh
-og ljós rök eru leidd að í stefnuskránni. nema bærinn
taki virkan þátt í framle'.ðslu atyinnuveganna og þá fyrst
og fremst sjávarútvegi, fiskiðnaði og landbúnaði; og að
ha’nn taki stórfel'ldan þátt í byggingarframkvæmdum,
hafi á öllum timum tæmandi yfirlit yfir húsnæðisþörfina
og telji það skyldu sína að tryggja að allir bæjarbúar geti
búrð í góðu húsnæði.
íhaldsmennirnir telja hins vegar að þessum málum
sé bezt borgið í höndum einstaklinganna. Þeir telja að
bærinn eigi þá, og því aðeins að gripa inn í að fullkomið
liéyðarástand sé ríkjandi, og með þeim hætti að tryggt
sé að ekki séu tekin gróðatækifærin frá einstaklinguhúm.
Þessa starfsemi þekkja bæjarbúar ofur vel. Á sviði
atvinnumálanná þekkja þeir hana sem atvinnubótavinnu,
Öðru nafni klakahögg og á sviði húsnæðismálanna, sem
Póla, Selbúðir, Bjarnaborg og Höfðaborg, en allir eru
þessir minnisvarðar bæjarstjórnaiiíhaldsins í húsnæðis-
málum hliðstæðlr bröggum og kjallaraíbúðum, 'sem eru
minnisvarðar einkaframtaksins í húsnæðismiálum.
Þótt atvinnu- og húsnæðísmálin sóu meginefnið í
stefnuskrá sósíalista, bá eru þau aðeins tvö af þeirn
nítján málum, sem stefnuskráin fjallar um. Allt þetta
munu bæjarbúar kynna sér rækíiilega, og áreiðanlega
mun kafl.'nn um málefni húsmæðranna vekja sérstaka
athygli.
En bæjarbúum er rétt að gera sér ljóst að þessi
stefna verður ekki framkvæmd néma Sósíalistaflokkurinn
'fái forustuna í bæjarmálunum. Slíka stefnuskrá er óhugs-
ándi að framkvæma í samstarfi við ihaldsflokk. Það er
,því ekki nóg að Sjálfstæðlsflokkurinn missi meirihluta í
stjórn bæjarins, það hefur hann þegar gert, heldur þarf
Sósíalistaflokkurinn að fá þá aðsíöðu að hann geti ráðið
sfefnunni í bæjarmálum. Þá aðstÖðu munu bæjarbúai
"éefa flokknum, því stefnuskrá háris er stefna þeirra.
„Holsteinn“
Bæjarbúar hafa gefið bráða-
birgðaliöll íhaldsins nafn, þessari
sem Eyjólfur gaf ónýta holstein-
inn i og kalla hana „Holstein“.
„Spurull" hefur sent Kosninga-
rabbinu bréf og segir meðal
annars:
........ „Getur þú frætt mig um
hyað Holsteinn muni hafa kost-
að rafveituna? Þér finnst ef til
vill einkennilega spurt. En svo
er mál með vexti, að þar sem
Holsteinn, höll íhaldsins, stendur
nú var áður ein af sþennu-
stöðvum rafveitunnar. Auðvitað
varð spennustöðin að víkja,
hvað annað, fyrirtæki bæjárins
verða nú svo sem að boka þeg-
fir ífialdið ætlar að byggia bráða
birgðahjall, og sjá spennustöðin
var rifin og grafin í jörð. Þetta
hygg ég að hafi verið dýrt fyrir-
tæki, og til eru þeir menn, sem
! halda að takmörkin milli bygg-
ingaframkvæmda Sjálfstæðis-
flokksins og rafveitunnar haíi
ekki verið sem skýrust. En hvað
um það, sþenrmstöðin 'er sokkm
á staðnum og Hois! .. a hvilir
á þaki hcnnar?“ ........
„Það var dýrt“
Ritstjóri Kosningarabbsins
sneri sér til Sigfúsar Sigurhjart
arsonar og spurði hvort hann
hefði ekki fengið upplýst eitt-
hvað um þetta mál í baejarráði.
Sigfús svaraði:
„Á síðasta fundi bæjarráðs
var rafmagnsstjóri spurður um
kostnað við þessar framkvæmdir
Svarið var sfutt og laggott,
hann sagði: „Það var dýrt“. En
rafmagnsstjóri verður áreiðan-
jlega spurður oftar, sjálfsagt gef-
i ur hann ljósari svör að athug-
I uðu, máli.“
Heimreiðin að Holsteini
,,Spurull“ hel-dur áfram:
........ „Skelíing þykir mér á-
nægjulegt þegar þeir Bolli og
Einar Pálsson kistuleggja eina
cg eina ihaldssynd undir gang-
stéttarhellur og malbiki, nóg er
samt eftir af moldargötum
íhaldsins. En sk.vldi bað nú hafa
verið það sem mest reið á að
malbika allar þær fjórar leiðir,
sem liggia til Holsteins. Eins og
kunnugt er klýfur þessi bygging
Vallarstræti. Það liggur því að
henni á tvo vegu ennfremur
liggur þangað leið um Veltu-
sund og Thorvaldsensstræti.
Bæjarverkamenn hafa verið í
kapphlaupi við byggingamenn,
sem reisa Holslein um að
koma þessum götum undir mal-
bik, og stóðst það á .eiidum að
malbikuninni var lokið er höllin
var vel fokheld“ ....
*
Listi sósíalista er C-Iisti
Tryggið sósíalistum giæsilegan
kosningasigur
*
Sundraðir flokkar
Fullkomið stefnuleysi og sundr
ung einkenna alla andstöðu-
flokka sósíalista. Aðeins eitt er
þeim sameiginlegt, baráttan
gegn stefnu nútímans, sósíalism-
anum, en þessí sameiginlegi þátt
ur stefnu þeirra allra er hins
vegar ekki sameign flokksmanna
í neinum þessara flokka. Þetta
veldur því að andstöðuflokikar
sósíalista, brír að tölu, Sjálf-
stæðisflokkurinn, Alþýðuflokk-
urinn og Framsóknarflokkurinn
hafa sameinast um einn lísta
bæði á Húsavík og Blönduósipog
mjög víða munu þeir hugsa til
samstjórnar að kosningum lokn-
um.
En þetta veldur einnig því að
fjöldi fólks um allt land er nú
að yfirgefa þes_sa flokka, þetta
fólk vill að stefna nútímans,
sósíalisminn, sé framkvæmdur,
og það streymir nú í Sósíalista-
flokkinn.
Þó er sprengiflokkuiinn hans
Stefáns heildsala verst settur
Megin þorrinn af kjósendum
Alþýðuflokksins vill samvinnu
við sósíalista, og ýmsir af for-
ustumönnum flokksins eru sama
sinnis. En Stefán heildsali og
Stefán hinn, ráða stefnu flokks-
ins, og standa þar sem klettur
úr hafinu, boðandi þetta eitt:
Aldrei að eilífu samvinnu við
sósíalista.
Fyrir fylgjendur Alþýðu-
flokksins er því ekkert að gera
annað en að líta ekki við sprengi
lista Stefáns, og kjósa með sósíal
istum. Með því einu móti geta
þeir skapað þá einingu alþýð-
unnar sem þeir þrá.
*
Alþýða íslands! Kjóstu þinn
flokk — Sósíalistaflokkinn
*
Hvar er stefnan?
Efag eftir dág leita menn í
felublaði Sjálfstæðasfllokksinþ,
Morgunblaðinu, að stefnu flokks
ins í bæjarmálum. Stefnan er
ófundin enn. Þjóðviljinn endur-
nýjar fyrirheif sín um verðlaun
til handa þeim sem finnur.
"'..•i i- - n<i
Þannig skrifa þeir málefnalausu
Málgagn heildsalaflokksins,
Vísir, segir:
Framhaid á 7. síðu.