Þjóðviljinn - 31.03.1946, Síða 4
ÞJÓÐVILJINN
Sunnudajrur 31. márz 1946.
Útgefandir Sameiningarflokk'ur alþýðu — Sósíalistaflokkúrinn
Ritstjórar: Kristinn E. Andrésson, Sigurður Guðmundsson, áb.
Fréttaritstj óri: Jón Bj amason:
Ritstjómarskrifstofur: Austurstrajti 12 og Skólavörðustíg
19. Sími 2270 (Eftír kl. 19.00 eirmig simi 2184).
Afgreiðsla: Skólavörðustíg 19, sími 2184.
Auglýsingar: Skólavörðustíg 19, sími 6399.
Prexvtsmiðjusími 2184.
Áskriftarverð: í Reýkjavík og nágrenni: kr. 6.00 á mánuði.
Úti á landi: kr. 5.00 á mánuði.
Prentsmiðja Þjóðviljans h. f.
Á að ljá Ísland sem árásarstöð og
skotspón?
Það er þró allra þjóða að fá að njóta friðar og velferð-
ar, eftir ógnimar, sem yfir þær hafa gengið. Það er von
allra góðra manna að þetta takist. Það er trú allra viturra
manna, að það sé ekkert auðveldara en tryggja mönn-
unum frið og velgengni, ef stjómað sé af vizku og góðvild.
En það -eru til viti-firrtir menn, sem dreymir um stríð
— af hatri til sósíalismans eða af hroka, því að þeim
finnst þeir einir eiga að drottna yfir heiminum.
Slíka menn er að finna meðal auðjöfra og blaðakónga
Ameríku. Það eru hinir sömu, sem aldre'i hafa getað stjórn-
að ríkasta landi heims, án þess að leiða yfir það örbirgð
og kreppur. Þessa litlu menn með stó.ru bombuna sína
dreymir um að fá að þurrka út alla þá, sem ekki vilja
heygja kné sín fyrir þeim og þeirra Mammon.
Friður og frelsi mannkynsins er því aðeins tryggt,
að þessum „gangsterum" takist ekki glæpaáform sín.
•
4. janúar 1946 rituðu þeir Joseph og Stewart Alsop,
— sem báðir eiga innangengt í utanríkis- og hermálaráðu-
neyti Bandaríkjanna — í New York Herald Tribune, að
takmark Bandaríkjanna „væri að Ieggja keðju af flug-
stöðvum, frá Okinawa yfir Aleuteyjar, Norðurheimsskauts-
lönd Améríku og áfram til íslands, umkringja raunveru-
lega Sovétríkin og ofurselja undir vora náð bæði hið
evrópiska Rússland og hin nýju stóru iðnaðarsvæði 1 Ural-
fjöllum“.
Það er ekki farið í felur með ihlutina. Fyrirlitleg-
ustu blaðkóngar he.'msins, eins cg Hearst, 'heimta svo ís-
land tekið með valdi, til þess að auðjöfrar Ameríku geti
undirbúið atomstríð gegn Evrópu, nógu nærri henni. —
Skammsýnasta og hrokafyllsta auðvaldið heimtar ger-
eyðingarstríð gegn sósíalismanum til þess að leggja í rústir
það, sem Hitler gat ekki eyðilagt og myrt.
O
Allt talið um „hervernd“ Bandaríkjanna gagnvart ís-
landi er argasta lýgi og hræsni. Það sem afturhald Ameríku
heimtar, er að íslenzka þjóð'in fremji sjálfsmorð, svo amer-
ískir fasistar stæðu betur að vígi til að myrða þjóðir Ev-
rópu, — því það má öllum vera ljóst, að það þurfa fasista-
öfl að taka völdin í Bandaríkjunum, til þess að þaðan
verði rekin svona árásarpólitiík. Og hitt þarf heldur ekki
að dylja, að „vernd“ verður ekki í té látin í næsta stríði,
ef það skellur á, — og það væri ekki til að vernda ísland,
að Bandaríkin yrðu hér, heldur til þess að nota það sem
árásarstöð og láta það verða skotspón þarafleiðandi. —
Mehnirnir, sem þurrkuðu út 136000 Japani með einni
sprengju, eru ekki að hugsa um tilveru íslands, þegar þeir
heimta það nú sem árásarstöð fyrir sig.
ísland er 2700 mílna flugl. frá New York, en aðeins 1000
mílur frá Oslo og 1500 frá Murmansk. Sjálf fjarlægðin
sýnir það bezt. að peningafurstar Wall Street hugsa til
árása, þegar þeir láta þjóna sína heimta herstöðva.r á
íslandi, samtímis því sem t. d. Sovétstjórnin kallar her
sinn burt úr Norður-Noregi og frá Borgundarhólmi og
lýsir því yfir að hún óski ekki eftir herstöðvum á íslandi.
•
íslenzka þjóðin hefur ekki þraukað af hörmungar ein-
okuhar og drepsótta, til þess að láta géra sig að ginning-
arfífli ameráskra auðkýfinga og láta tortíma sér fyrir þá
UMFERÐIN
Mér hefur borizt bréf út af
því, sem ég skrifaði «n uxn-
ferðina hér í Bæjarpóstinn á
dögUhum. Er það frá bifreiða-
stjóra, og kann ég honum þakk-
ir fyrir. Eitt segir hann þó í
bréfi sínu, sem hlýtur að véra
á misskilningi byggt. Hann seg-
ir að ég télji það vera sök bif-
reiðastjóra, hve umferðin er
slsem hér í bærtúm. Það voru
eloki mín orð, en ég tók aðeins
nokkur daemi úr umferðinni, og
svo tókst til að bifreiðastjóram-
ir áttu sökina þar. Eg hefði líka
getað tek'ið dæmi um gangandi
fólk, og ég hygg að hjá því megi
finna fleiri daemi um brot á um-
ferðareglunum en hjá bifreiða-
stjórum. Læt ég svo útrætt um
þetta mál að sinni, en gef bréf-
i ritara mínum orðið.
UMFERÐIN Á KROSSGÖT-
UM REYKJAVÍKUR
„Einhver, sem er nýkominn frá
útlöndum hefur skrifað Bæjar-
póstinum bréf, og var það birt
þar 10. þ. m. Bréfritarinn gerir
umferðarmál Reykjavíkur þar að
umtalsefni, og kemst að þeirri
niðurstöðu, sem vonlegt er, að
umferðin hér sé æði óregluleg,
og er helzt að skilja, að hann
telji það ihest sök bifreiðastjór-
anna. Það er sama viðlagið sem
ma.rgir raula, að bifreiðastjór-
amir séu svörtu sauðirnir í um-
ferðavandræðum Reykjavikur,
þó þeir séu flestum löghlýðnari,
sem um götumar ferðast, að und-
anskildum kannski . örfáum
mönnum, sem brjóta allár um-
ferðaréglUr, Jxrgar þeim býður
svo við að hórfa, en ósanngjarnt
að öll bítstjórastéttin sé dæmd
eftir þeim.
SPURNINGU SVARAÖ
Bréfritarinn varpar fram
spurningu, sem hver athugull
maður hefði getað sagt sér sjálf-
ur: Spurningin er svona: „Hvers
vegna aka allar bifreiðar, sem
koma eftir hliðargötu að horni
aðalgötu, fram að brún aðalgöt-
unnar, svo að gangandi umferð,
sem sannarlega á sama rétt á
sér og sú akandi, kemst ekki yf-
ir götuna nema með því að
iganga heila þingmannaleið aftur
með bifreiðaröðinni?"
Eg hef ekki séð Jæssari spum-
ingu svarað, og langar mig til
þess að gera það hér með. Ráðn-
ingin á leyndarmálinu ér aðains
þessi. AUar götur hér i Reykja-
vik, sérstaklegá hlíðargöttlr; eru
mjög þröngar og flesfhófn blind.
í>ess végna ér það, þegár bif-
reiðir hér korná éftir hliðargötu
að aðalgötu,’ sér viðkomándi bif-
reiðarstjóri ekk'i til umferðar-
innár, hvenær honum er óhætt
að fara yfir aðalgötu nenria að
aka „fram að brún aðalgötu".
Og þannig hlýtur það að verða,
þangað til umférð'aljósmerkjum
verður komið upp á krossgötum
í bænum, eins og lögreglustjóri
hefur lofað. En vel á minnzt,
hvað líður götuljósmerkjunum,
hvenær koma þau?
ATHYGLISVERÐ TILLAGA
í SAMBANDI VIÐ GANG-
BRAUTIR YFIK GÖTUR
Bréfritarinn spyr einnig, hvort
ekki eigi að halda við máluðu
strikunum eða bólunum, sem
reknáf eru ofan í malbikið og
marka gangbráutir gangándi
fólks. í sambandi við þessa
spurningu langar mig til að
benda lögreglunni á það, ef
þessar gangbrautir verða endur-
nýjaðar, sem ég tel alveg sjálf-
sagt, að marka þær það inn í
hiiðargötu að ein -bifreið geti
staðnæmzt milli aðalgötu og
gangbrautar. Á þann eina hátt
er það öruggt að bifreiðarstjórar
geti séð til umferðar á aðalgötu,
hvenær óhætt er að fara yfir
hana án þess að trufla að gang-
andi fólk komist leiðar sínnar.
þó bifreiðin bíði vegna umferð-
ar á aðalgötu.
Það mundi áreiðanlega afstýra
mörgum árekstrum og slysum.
Bifreiðarstjóri".
Fjögurþúsundkrónaskáld hótar fimmhundruð-
króna skáldi lífláti
Átta rithöfundar og skáld
hafa mótmælt aðgerðum hinn-
ar þingkjömu útlilutunar-
nefndar. Einn rithöfundur og
heildsali, Guðmundur Gíslason
Hagalín, hefur lýst yfir á-
nægju sinni. Þó er gleði hans
blandin undarlegri beiskju og
hatri, sem brýzt út í fúkyrð-
um og hótunum. Er það
hvorki óvenjulegt né umtals-
vert. En vel mættu Alþýðu-
flokksmenn í Reykjavík vera
minnugir þess, að flokksbræð-
ur þeirra á ísafirði lögðu aílt
kapp á að losna við Guðmund
Gíslason Hagalín úr byggöar-
lagi smu og tclja nú framtíð-
arhorfur sínar stórum betri
eftir að hann er fluttur. Telja
þeir að ósigur Alþýðuflokks-
íns við hæjarstjórnarkosning-
arnar á ísafirði sé eingöngu
sök þessa landskunna rithöf-
undar.
Eitt er þó það atriði í grein
Guðmundar Gíslasonar Haga-
líns sem sérstök ástæða er til
að benda á og bregður skæru
ljósi á ándlega innviði hans en
það er árás hans á fyrrver-
andi skjólstæðing sinn, Óskar
Aðalstéin Guðjónsson. Þegar
Óskar Aðalsteinn Guðjónsson
var að brjótast til ritstarfa
naut hann aðstoðár Guðmund-
ar Gíslásonar Hagalíns, og er
það góðra gjalda vert, encía
þótt Hagalín kunni að hafa
ætlað að tryggja sér öruggan
fylgifisk með hjálpsemi sinnv
En hinn ungi rithöfundur
og þeirra illa málstað, ef þeir rejma að kveikja ófriðar-
bálið að nýju, af því að þeim fannst þeir ekki græða nóg
á því síðasta.
Amerískir auðjöfrar og brezkir yfirgangsseggir af sama
sauðahúsi ætla sér að nota lönd frjóisra þjóða sem tafl-
reiti og þjóðirnar sjálfar sem peð eða skotspæni fyrir sig
í hejmsbaráttu sinni gegn sósíalisma og þjóðfrelsisstefnu
nýlendnanna. Hver frjálshuga þjóð neitar að láta nota sig
til slíks óþokkaverks. Og imeð því að neita, gera þær stríðs-
æsingamönnum erfiðara fyrir, að leiða ógnirnar á ný yfir
mannkynið.
Vér íslendingar mótmælum því allir að láta nota þjóð
vora sem peð til dráps í fyrsta leik og land vort sem árás-
arstöð til hryðjuverka á öðrum þjóðum áífu vorrar.
Vér krefjumst þess að fá að lifa frjálsix og í friði, —
og vér vitum að með því að vákja hvergi frá þeirri kröfu,
þá leggjum vér fram drjúgan skerf til þess að tryggja
heiminum frið.
hafði tií að bera svo mikið
af sjálfstæðri hugsun að hann
þverskallaðist við að verða á-
nauðugur þræll velgerðarmanns
síns. Hann gerðist svo djarf-
ur að gagnýna á mjög kurt-
eislegan hátt eina af bókum
hins andlega stjúpföður síns.
Síðan hefur Guðmundur Gísla-
son Hagalín lagt fullt hatur á
þennan unga rithöfund, og
nær það hámarki sínu í þess-
ari Alþýðublaðsgiein þar sem
hann hótar Öskari Aðalsteini
Guðjónssyni lífláti. Guðmund-
ur Gíslason Ha.galín setur mál
ið fram á eftirfarandi hátt: í
Ljósvetningasögu er talað um
deilur þeirra Guðmundar ríka
og Þorkels háks. Guðmundur
ríki hyggst áð ráða niðurlog-
um fja.ndmanns sms með að-
stoð manns sem kallaður er
Þorsteinn rindill. Þorsteinn
þessi rindill kemur á bæ Þor-
kels háks og þiggur þar næt-
urgistingu. En um nóttina
skýtur l-.ann lokum frá hurð-
um, svo að Guðmundur ríki
kemst inn í hæinn með iloi
sínu og drepur I orkel liák.
Guðmundur Gíslasön Hagalín
segir nú að Óskar Aðalsteinn
Guðjónss. hafi leikið sama leik
og Þorsteinn rindill. Hann hafi
launað andlcga gestrisni með
því að skrifa. um sig ritdóm.
Samlíkingin er hvorki hnittin
né fyndin, og engum mun finn
ast Óskar Aðalsteinn Guðjóns-
son hafa gert annað en heiðar
legum manni sæmir. En Haga-
lin lætur sér ekki nægja þetta.
Frh. á 8. síðu.