Þjóðviljinn - 08.06.1946, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 08.06.1946, Blaðsíða 1
11. árgangur. Laugardagur 8. júní 1940. 128. tölublað. Mótmælaalda menntamanria og alþýðu Islands gegn rís hæna os hærra Þjóðhátíðardagmn 17. júní n. k. mun öll þjóðin samemast og sjálfstæði landsins Hvað clvelur ríkisstjórama að krefjast brottfarar hers- ins. - Hver frambjóðandi, sem ná vill kosningu, verður að heita því frammi fyrir þjóðinni, að hann gangi aldrei til samninga um afsal íslenzkra landsréttinda Síðan stúdentar héldu liinn sögulega mótmœlafund sinn í Reykjavík, hafa fleiri og fleiri félagssamtök íslendinga tekið undir mótmœli þeirra og krafizt brottfarar Bandaríska hersins af íslandi. Öll alþýða og mennta menn hafa þegar sameinast í þessu máli. Þjóðhátíðardagurinn 17. júrú fernú brátt í hönd. Þann dag ber íslerid- ingum af öllum stjórnmálaflokkum að endurvekja þjóðareininguna frá 1944 og taka einhuga undir kröfuna: Burt með erlendan her af íslenzkri grund! En fyrir þennan dag er það skylda ríkisstjórnarinnar að gera opin- bera kröfu til stjórnar Bandaríkjanna um, að hún standi við gefin loforð og flytji herlið sitt tafarlaust burt af íslandi. Ennfremur ber að gera þá kröfu til allra stjórnmálaflokkanna, að þeir gefi skýlausa og ótvírœða yfirlýsingu um afstöðu sína í herstöðvamálinu. Fyrir Jcosningar 30. júní verða kjósendur í landinu að krefjast þess af frambjóðendum sínum, að þeir heiti því frammi fyrir þjóðinni, að þeir gangi aldrei til neinna samninga um afsal íslenzkra landsréttinda í nokk- urri mynd. Vér mótmælum allir! Mótmælasamþykktir gegn dvöl Bandaríkjahers- ins á íslandi hafa Þjóðviljanum borizt undanfarið frá þessum félögum, auk allra þeirra, sem áður hafít verið birtar: Þing Ungmenna- og íþróttasambands Austfjarða, haldið 30.—31. maí, samþykkti svohljóðandi ályktun: „Þingið ályktar að dvöl erlendra herja í landi voru á friðartím- um og umráð þeirra yfir íslenzkum landsvæðum, stórum eða smá- um, sé skerðing á sjálfstæði voru, enda ósamrýmanlegt því og stofnar þjóðerni voru, tungu og þjóðlegri menningu í voða. Þess vegna telur þingið, að engu erlendu ríki megi veita hér ítök né herstöðvar og skorar á íslenzka æsku og íslenzk stjórnarvöld og íslenzku þjóðina í heild að vísa eindregið á bug öllum slíkum málaleitunum og krefjast þess að sá erlendi her, sem nú dvelur liér á landi, hverfi á brott þegar í stað.“ Verkalýðsfélagið Afturelding, Hellissandi: „Fundur haldinn í verkalýðsfélaginu Afturelding, Hellissandi, 23. apríl 1946, mótmælir eindregið veru hins bandaríska herliðs hér á landi og skorar á ríkisstjórn og Alþingi að beita sér fyrir þvi, að erlent herlið hverfi sem fyrst af landi burt. i að standa Um einhug meginþorra ís- lendinga í þessu máli hefur aldrei verið að efast. Fjöldi félagssamtaka! alþýðu og menntamanna, hafa mctmælt Eins og opinberlega er ingur í landinu, kunngert, hefur Bandaríkja- fast a verði. stjórn aðeins frestað „í bili“ kröfu sinni til framhaldandi herstöðva hér á landi. Sífellt fleiri fregnir berast erlendis frá þess efnis, að fresturinn sé aðeins fram yfir kosning- ar. Eftir kosningar eigi að leita eftir nýjum samningum vlð Islendinga. Og staðreynd er hvorttveggja, að Banda- ríkjaherinn situr hér sem fastast og sýnist vera að búa hér um sig t.'.l frambúðar. — Hættan í herstöðvamálinu er því síður en svo liðin hjá. Hér innanlands eru menn, sem leynt og ljóst vinna að því, að samið verði við Banda ríkln um herstöðvar á ís- landi, og allt bendir til, að eftir ráðleggingum þessara ólánsmanna sé einmitt frest- urinn á kröfu Bandaríkja- stjórnar ákveðinn fram yfir kosningar. Eftir kosningar telja þessir samsærismenn gegn íslenzku þjóðinni hægar að koma svikráðum sínum fram. Gegn þessari hættu verður þjóðin sjálf, almenn- dvöl hins erlenda hers hér á landi. Menn af öllum stjórn málaflokkum hafa risið upp til andmæla. En hins vegar eru sterk og áhrifamikil öfl innan borgaraflokkanna, sem Framhald á 16. síðu. Enn fremur skorar fundurinn á ríkisstjórn Islands að gera enga þá samninga, sem leyfa dvöl erlends herliðs í landinu.“ Fundur Kvenfélags Skeiðahrepps, haldinn að Brautarholti í apríl 1946: „Fundur Kvenfélags Skeiðarhrepps haldinn að Brautarholti í Framhald á 16. síðu. Iteykvíkingar mótmæla dvöl Bandaríkjahersins á Islandi. Frá útifundi stúdenta í Reykjavík,

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.