Þjóðviljinn - 08.06.1946, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 08.06.1946, Blaðsíða 2
3.0 ÞJÖÐVILJINN Laugardagur 8. júní 1946. ,AÐ hefur verið heldur fátt um fréttir, sem birtar hafa verið ■tfrá Hornafirði í blöðum og út- ,varpi í vetur; er engu líkara en ,að hér séu engir fréttaritarar tfyrir blöð hötuðstaðarins né út- varp ríkisinr, og er slíkt með ein- daemum, þar sem Hornafjörður niun vera ein með stærstu ver- islöðvum landsins á vetrarvertíð- (um. Að vísu hafði dagblaðið Vís- Br hér fréttaritara um tíma, en ifátt mun blaðið enn hafa birt af |>ví, er hann sendi frá sér, hvað jsem því veldur. Iíauptúnið Höfn í Hornafirði )er mjög í uppgangi, byggingar 'l’jóta upp víðsvegar um kauptún- iið og íbúatalan eykst óðum. Slík ler og eðlileg þróun sjávarþorp- lanna, er eitthvað gefa í aðra liönd. Þróun útgerðar já Homafirði Nú síðari áratugina hefur .ííornafjörður verið aðalútgerðar- Stöð austfirzka vélbátaflotans á .vetrarvertíðinni. Hefst útgerðin ifyrst með því að þrír bátar frá (Eskifirði gera héðan út 1908, xiæstu árin ksmur afturkippur tí útgerð héðan frá Austfjörðum, )en 1915 fara bátarnir að koma Jaftur og 1919 er Hornafjörður X»rðinn aðalútgerðarstöð aust- Jfirzka flotans á vetrarvertíð og þíunda þá hátar frá Eskifirði, [Norðfirði og Seyðisfirði útgerð (héðan og hafa gert það síðan, 'síðar bætast í hópinn bátar frá ÍFáskrúðsfirði, Vopnafirði, Húsa- Jvik nyrðri o. fl. stöðum. Þröngt jvar víða um viðlegupláss fyrir (þessa báta fyrst til að byrja ítrieð, en 1918 hefst Þórhallur (Daníelsson, kaupmaður, handa og jh'yggir verbúðir á Höfn. Hann ibyggir svonefndan Miklagarð og jeru þar íbúðir fyrir 14 bátshafn- |ir uppi, en söltunar- og geymslu- (pláss niðri. Þetta reyndist of Jiröngt er fram í sótti. 1920 bygg- |jr Þórhallur verbúðir í Mikley, ;er þar nægilegt rými fyrir 6 stóra ,vélbáta. 1931—32 hefst. Þórhallur laftur handa og byggir nú ver- frúðir í Álaugarey fýrir 8 báta. iÝmsir byggðu sér sjálfir verbúð- ar í Hornafirði, svo sem Kristján Jónsson frá Eskifirði, Sigurður -Ólafsson frá Bæ í Lóni, Jón •Bjömsson frá Sellátrum í Reyð- larfirði og fleiri. •17—20% rneira verð Eins og i öðrum verstöðvum var ekki um annað að tala en að salta aflann, fluttu bátarnir hann síðan heim með sér að lokinni vertíð og verkuðu hann .þar. Síð- 'Ustu árin Iiefur allur afli verið ífluttur út ísvarinn, fyrst af kaupa tikipum, en síðar af útgerðar- mönnum sjáifum með leiguskip- •um; hafa þer: gert það á eigin ábyrgð og kostnað. Þessi ný- breytni hefur haft bað í för með sér að útgerðarmenn og sjómenn hafa fengið 17 tíl 20'/, meira verð fyrir af.a sinn en áður var. íVetrarvertíðin 194G Vetrarverííðin 1946 mun hafa verið einhver hin bezta, er hér hefur verið cg var afli bátanna sem hér segir: Meðaltal í róðri verður þá £11% skippund á bát. Kristján Imsland: Hornafjörður á að verða með fremstu útgerðarstöðvum landsins Fréttabréf frá Höfn í Hornafirði 4 Lítrar Kaupfélag Austur-Skaftfellinga afn vélbáts: Heimili: Róðrar: lifur: Skp.: hefur rekið hér lifrarbræðslu Marz Norðfjörður 56 25318 931 með því fyrirkomulagi að útgerð- Auðbjörg s. st. 60 24580 817 armenn og sjómenn hafa fengið Hafþór s. st. 53 19099 686 greitt fyrir lifrarlíter eftir sölu- Hrönn Fáskrúðsfj. 50 18264 662 verði lýsis að frádregnum öllum Bára s. st. 51 19023 641 kostnaði, eða með öðrum orðum: Þristur Hornafjörður 57 17154 605 Kaupfélagið hefur rekið lifrar- Þráinn Norðfjörður 55 19015 600 bræðsluna sem sameignarfélag Þór s. st. 53 16048 599 væri. I vetur fékk Kaupfélagið Brynjar Hornafjörður 53 16849 564 hingað Þórð Þorbjarnarson fisk- Björg Norðfjörður 48 14702 540 iðnfræðing Fiskifélags Islands, til Kr. Jónsson Eskif jörður 53 16090 531 að athuga um möguleika fyrir Véþór Seyðisfjörður 51 14706 505 enn hagnýtari vinnslu lifrarinn- Hvanney Fáskrúðsfj. 45 12745 485 ar; þ. e. fjölþættari vinnslu víta- Gylfi Hornafjörður 41 7827 288 mína og meira fituefnis úr lifr- Hafaldan Norðfjörður 25 4438 192 inni en nú er hægt að vinna hér Vingþór Seyðisfjörður 13 4005 128 með þeim tækjum, sem fyrir eru. Meðalafli á bát verður um 550 skippund. Þrjár vertíðir gáfu 16—18 millj. kr. í erlendum gjaldeyri Á vetrarvertíðinni 1944 voru gerðir út héðan 28 bátar, var útflutningsverðmæti aflans 3 milljónir og 245 þúsund krónur. Þegar miðað er við kaupverð fiskjar hér á staðnum, en það mun hafa gefið um 6 milljónir og 400 þúsund krónur í erlendum gjaldeyri. 1945 eru gerðir út 32 bátar, er útflutningsverðmæti þeirra um 3 milljónir og 175 þús. krónur, eða í erlendum gjaldeyri um 6 milljónir og 300 þúsundir. 1946 eru gerðir út 16 bátar, út- flutningsverðmæti þeirra er 2 milljónir og 255 þúsund krónur, eða um 4 milljónir og 500 þús. kr. i erlendum gjaldevri. 1944 er selt lýsi frá verstöðinni fyrir 209 þúsund krónur, 1945 fyrir 377 þúsundir og 1946 má áætla lýsis- framleiðsluna 160 til 180 þúsund kr. Þessar þrjár síðustu vertíðir munu hafa lagt ríkinu til 16—18 milljón krónur í erlendum gjald- eyri. Hvað hefur svo ríkið gert til hafnarbóta á Hornafirði og til að skapa sjómönnum aukið ör- yggi við sjósóknina? Austfirzkir sjómenn krefjast hafnar, björgunarstarfsemi og landhelgisgæzlu Ríkið hefur ekkert gcrt; í það minnsta ekkcrt að hafnarbótum. 1944 og ’45 var varðskipið Óðinn lítið eitt við björgunarstarfsemi og landhelgisgæzlu hér á vertíð- inni, en í vetur fengu sjómenn ekkert skip til slíkrár starfsemi hingað; því litla, sem fengizt haföi til bóta í þessum efnum. var kippt burtu. Engin björgun- arstarísemi, engin landhelgis1 gæzla, enda hafa erlend og inn- lend botnvörpuskip vaðrð hér uppi í landhelgi,- spillt fiskimið- um og eyðilagt veiðarfæri bát- Samtals 764 249863 8774 anna. Slíkt afskiptaleysi af hálfu ríkisstjórnar, gagnvart einni beztu veiðistöð landsins er með öllu óþolandi og verður það ófrá- víkjanleg krafa austfirzkra sjó- manna að þessu verði kippt í lag fyrir næstu vertíð. Frystihús Einu af nauðsynjamálum þeim er varða verstöðina hér og lengi hefur valdið erfiðleikum, hefur nú verið ráðin bót á, en það var bygging frystihúss. Tvö beitu- geymsluhús voru starfrækt hér áður, eitt á Höfn, annað á Álaug- arey; en þessi íshús voru gamal- dags og erfitt að varðveita þar síld óskemmda til langframa. Nú hefur Kaupfélag Austur-Bkaft- fellinga byggt stórt og vandað vélfrystihús á Höfn, og hefur það annazt beitu og bjóðageymslu fyrir bátana í vetur. Alls voru geymdir þar 2040 strokkar af síld; 2935 bjóð af síld voru tekin til geymslu, sum lengri eða skemmri tíma í senn eftir gæft- um; jafnframt þessu seldi svo frystihúsið nokkrum útflutnings- skipum is. Hafa þegar borizt hingað tillög- ur hans og áætlanir og mun Kaupfélagið sennilega taka þær til athugunar fyrir næstu vertíð. * Félagslíf á Hornafirði er mjög starfsamt, sérstaklega virðast meðlimir ungmennafél. „Sindri“ hafa vakandi auga fyrir bættu skemmtanalífi. Félagið á nú sennilega eitthvert bezta sam- komuhús hér nærsveitis og þó lengra væri leitað, er það 22 metra skáli með leiksviði, bak við það er byggt búningsherbergi, en við hinn enda skálans er byggð rúmgóð forstofa og her- bergi fyrir aðgöngumiðasölu, en uppi er klefi fyrir kvikmynda- vélar. Áhorfendasalurinn tekur 200 manns og eru í honum upp- hækkaðir bekkir. Félagið fékk nýja ameríska vélasamstæðu í vetur, byrjaði það sýningar kvik- mynda 9. apríl, en alls hefur það haít 19 sýningar á vertíðinni, einnig hefur félagið komið sér upp 220 volta rafstöð fyrir kvik- myndareksturinn og samkomu- húsið. Leiksýningar hafði félagið og í vetur, sýndi það leikritin Gleiðgosann og Spanskfluguna, alltaf fyrir fullu húsi. Kvenfélag- ið á Höfn sýndi einnig í vetur Kristján Imsland. leikritið Saklausi svallarinn. Ung mennafélagið í Nesjum kom út á Höfn á vertíðinni og sýndi tvö leikrit: Sýslumaðurinn á Felli og Tengdamömmu eftir Kristínu Sigfúsdóttur. Öll voru þessi leik- rit yfirleitt vel leikin og sum hlutverkin prýðilega af hendi leyst, þar sem hér er eingöngu um „amatöra“ að ræða. Karlakórinn í Nesjum, undir stjórn Bjarna Bjarnas., skemmti hér einnig með söng. Áhugi fyrir aukinni út- gerð Hornfirðinga sjálfra Þó Hornafjörður sé vetrarver- stöð Austfirðinga, hafa Horn- firðingar sjálfir átt frekar lítinn bátakost. Á seinustu árum hafa þeir. keypt hingað þrjá báta yfir 12 tonn, en tveir bátar voru fyr- ir, nú virðist allmikill hugur í yngri mönnum að auka skipa- kostinn og fá hingað stærri og hentugri báta. I vetur var stofn- að hlutafélag til kaupa á skipi og hefur það nú keypt eitt af 80 smálesta skipum ríkisstjórnar- innar frá Svíþjóð; það mun verða tilbúið urn mánaðamótin maí— júní, kemur þá upp til Horna- fjarðar og verður þar útbúið til síldveiða. Er vel farið, að áhugi sé vakn- aður fyrir því, að Hornfirðingar sjálfir eignist góðan og hag- kvæman skipakost og er vonandi að Hornfirðingar verði samtaka um að hagnýta sér þá möguleika, sem kauptúnið á og skipa því á bekk með fremstu kauptúnum landsins — því þar á Hornafjörð- ur tvímælalaust heima. Kristján Imsland. Frá Höfn í Hornafirði. Aðalverbúðin. Mikligarður, sést á miðri myndinni.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.