Þjóðviljinn - 10.11.1946, Síða 6
ÞJÓÐVILJINN
Sunnudagur, 10. nóv. 1946.
6
Ljóð Stefns Steimari*
Framhald af 3. síöu.
Lesandinn lítur uppúr eilífð-
inni og finnur, að svona er þetta
í raun og veru, og að við erum
ekiki komin lengra en svo á fram
farabraut, að við öfundumst, ríf-
umst, metumst á, girnumst, lang-
ar til að sparka í óvin okkar,
þökkum fyrir allt gott, en hötum
fyrir allt slæmt okkur sýnt. Svo
tekur litskrúðið við. Hann gerist
málari í ljóðum:
Hið hvíta Ijós,
sem streymir um strætin.
og
Hið sólhvíta ljós
og hinn suðandi kliður
eru systkini mín.
Hann á jafnt myrkrið sem ljós
ið, ag í myrkrinu sér
hann aliar sínar órættu óskir.
Svart og hvítt eru á takmörkum
Mfs og dauða en litirnir lífið,
sem leikur í allri sinni tilbreyt-
ingu:
og feigðin heldur sér
frammjóum hönduin
í fax hans
Þarna er æðisgengin stígandi
frá hinum fyrsta draumi, yfir í
vonleysi þess, sem hefur séð
Mfið. Hann virðist jafnvel vera
táknræn en í MtavaM sínu, þar
sem hvítt er merki Mfs eða
dauða. Engu orði er ofaukið og
hvert orð hefur sína þýðingu.
Tileinkunin í Ferð án fyrir-
heits er með fegurstu kvæðum:
Til þín, sem býrð á bak við
hugsun mína
blóðlaus og föl og speglar
ásýnd þína
í mínum kalda og annarlega
óði.
Frá mér, sem liorfði úr húmi
langrar nætur
á heimsins blökku dýrð og reis
á fætur
með jódyn allra jarða mér í
blóði.
Og ég var aðeins til í mínu ljóði.
Grænt, rautt og gult
og golan þýtur í þaksins stráum.
Hægur andvari húmblárrar
nætur
um hug minn fer.
Hin djúpa nótt, sem drekkir
augans ljósi
og strýkur burtu bros af rauðri
vör
á sjálf sitt eigið skin og eigin
fögnuð.
Bjarma þess ljóss, sem verður
aldrei kveikt,
bros jþeirrar gleði, sem hvergi
er til.
Hann málar í einföldustu mynd
og í sterkustu andstæðum, sem
eru til. Kvæðið BÖRN AÐ LEIK
sýnir það ef til vill bezt. Þar
stillir hann upp bölsýnismann-
inum og litlum börnum að leik.
nóttinni og deginum:
í hlæjandi sólskini sat ég og
horfði
á sólbrún andlit og nakta fætur.
Minn hugur bar skugga
horfinnar nætur
og hönd mín var köld og þung.
Og festist æ meir og meir í
eínu sérstæða Mtskrúðuga
formi, sem er í einföldustu mynd
•þriggja ljóðlína, þriggja versa,
þar sean þriðja hver Ijóðlína rím
ar saman.
- í sterkustu andstæðum málar
faann:
Hvitt
hvítt eins og vængur
iníns fyrsta draums
ér fax hans
eins og löng löng ferð
á línhvítum fák
er líf manns
Þrungið kvæði með blóðrás.
Ef skorið væri á, myndi blæða.
V. D.
Frá F.F®Í.S.
Framh. af 4. síðu.
vötutegundir, sem mest eru eft-
irsóttar, svo sem síldarlýsi, salt-
síld og þorskalýsi, verði not-
aður til að greiða fyrir sölu á
þeim tegundum, sem minni eft-
irspurn er eftir, þannig að t. d.
sala á lýsi verði bundin því ski]_
yrði að kaupandi þess kaupi jafn
framt ákveðið magn af hraðfryst
um fiski, söltuðum hrognum og
öðrum framleiðsluvörum sjávar-
útvegsins á viðunandi verði“.
VI.
„Fundurinn telur, að fáist
ekki nægilega hátt verð fyrir út-
flutningsvörur þjóðarinnar á er-
lendum mörkuðum til að fram-
leiðslan borgi sig með gildandi
framleiðslukostnaði, þá beri með
al annars að bæta þann halla
með ágóða af innflutningsverzl-
uninni, einkum af þeim vörum,
sem ekki teljast til lífsnauðsynja.
í því sambandi bendir fundur-
inn á, að það er framleiðsla
landsmanna, sem er grundvöllur
undir efnahagslegri afkomu þjóð
arinnar allrar, og því ber fyrst
og fremst að tryggja það, að
framleiðslan beri sig. Mætti
stuðla að því meðal annars með
því að gefa framleiðendum hluta
af gjaldevri þeim, sem fæst fyr-
ir afurðir þeirra, frjálsan til eig-
in ráðstöfunar."
VII.
„Fundurinn mótmæiir frum-
varpi, því sem komið er fram
á Alþingi um orlofsfé og skorar
á Alþingi að fella niður aMt or-
lofsfé í sambandi við alla sjávar
útvegssamninga.“
Torolf Eister:
SAGAN UM GOTTUOB
bera á sér sterkan svip öreig-
ans. Ekki vegna þess, að hann
hafi nokkuð á móti honum í
sjálfu sér, en Elsa virðist hafin
yfir alla fátækt og allar áhyggj
ur. Hann ákveður að gera allt,
sem í hans valdi stendur til
þess að ná henni héðan burtu.
Hún ætti að geta farið með hon
um til Noregs.
-— Voila, sagði greifinn.
Síðasti maðurinn var að
koma. Feitur og hlæjandi ná-
ungi, eitthvað yfir þrítugt, með
hátt enni og hæruskotinn. 1 blá-
um flúnelsjakka. Hann gæti ver
ið Gyðingur, hugsar Hanssen,
að minnsta kosti er hann mjög
greindarlegur í útliti.
Þeir heilsast.
— Eg heiti Brúnó, en þau
kalla mig Antoníus.
-— Eða Geheimeráðið, skýtur
Andrés'inn í.
—- Já, þau segja, að ég sé lík-
ur Goethe. KalMð mig livað sem
þið viljið, ég gegni öllum nöfn-
um.
Hinn nýkomni er skemmti-
legur og fyndinn, slengir yfir
þau sögum, fyndni og fjarstæð-
um. Hlær og hefur hátt.
Umræðurnar snuast að létt-
ari og grínsamari hlutum.
Antoníus fer að spjalla um Nor
eg. — Þar lifa menn á því að
veiða hvali, ekki satt? Og
skjóta ísbirni á götunum. Eg
las um' þetta, hvað margt fólk
drepa ísbirnirnir aftur í Osló á
ári hverju? Það var stórkostleg
tala. Og hver og einn einasti
íbúi skrifar skáldsögur, sem
koma út í upplagi, sem skiptir
hundruðum þúsunda. Það geta.
ekki verið aðrir en ísbirnirnir,
sem kaupa þær.
Hanssen reynir að slá um sig
með fyndni um hið heimskulega
stafróf Tékkanna og hvílíkur
ógjörningur það sé að bera
fram nöfnin.
—Já, við friðarsamningana í
St Germain fengu Tékkarnir
því miður of fáa sérhljóða.
Hvað vitið þið annars um
Tékkóslóvakíu í Noregi?
Hanssen er í vandræðum, í
raun og veru veit hann mjög
lítið.
Allt í einu verður honum litið
á Elsu, það er engu líkara en
hún sé dauðveik. Náföl starir
hún á Norðmanninn skelfdum
augum, eins og hún búist við,
að eldingunni slái niður í ha.nn
þá og þegar. — Nú hef ég gett
eitthvað skakkt, í.ugsar hann
hræddur. Elsa hefur lagt hönd-
ina á borðröndxna, Sagiia legg-
ur sína hönd ofan á hana.
Munnur hennar er hálf opinn,
varirnar titra eins og þær væru
að gefa hljóðlaust til kynna
skelfilegustu hugtanir.
Antoníus haldur áfram að
tala. Nú vendir hann sér í það
að ræða norskar bókntenarir,
og þá kemur í ljós, að hann veit
næstum því eins mikið um þxr
og Norðmaðutiu i. I.oks hrópar
hann, að hann lesi sænsjiu ágæt
lega og geri gerí sig-skiíjanÞg-
an á því /nAM
— Skál, segir Andrés, það er
eina skandinavíska orðið, sem
hann kann.
Norðmaðurinn segist fást
lítið eitt við ritstörf, hann
vinni að stórri skáldsögu núna.
Hann er til með að segja aðal-
drættina. .. .
— Nei, hrópar Elsa, sendið
okkur heldur bókina, það er
miklu skemmtilegra.
Hann lítur á hana dálítið
undrandi.
-—Þá eigið þér starfsbróður
hérna, segir Andrés vitund ill-
kvittnislega og bendir á Anton-
íus.
— Æ, nei, þeir tímar eru liðn
ir, að ég skrifaði nokkuð sem
orð væri á gerandi. Nú rita ég
aðeins rugl til þess að halda í
okkur lífi frá degi til dags.
Páizt þér við mikil efni.
— Nei, ennþá er það nú ekki
neitt mikið.
—- Eg gæti gefið yður hug-
mynd, ef þér verðið þolinmóður.
Eg fékk hana á leiðinni heim
áðan. Eg hugsa, að evrópskir
glæpamenn ræni Shirley
Temple, eftirlæti allrar Amer
íku. Ameríka lýsir vitanlega
yfir stríði, og öll ríki Evrópu
gera bandalag, og síðan hefst
langvarandi Trójustríð. Hér eru
margskonar möguleikar fyrir
hendi, ekki satt? Krefst sem
sagt hugmyndaflugs.
Þau tala um allt milli himins
og jarðar. Andrés segir frá
strætisvagnsstjóra, sem var tek
inn fastur fyrir að aka atvinnu
leysingjum ókeypis. En Elsa
situr allan tímann steinhljóð og
föl án þess að hlusta og við og
við nuddar hún höndunum fast
saman.
— Jæja, nú er ekki til meiri
matur, segir Anna.
-— Nú, þá verðum við að gera
okkur ánægð með þetta, segir
Antoníus kátur. Munið, að sum
ir hafa ekki neitt að borða og
lofa guð fyrir.
Þau drekka kaffi, og flótta-
mennirnir masa dálítið sín á
milli. Hanssen er meira og
meira utanveltu. Þau ræða
aftur kringumstæðurnar, en
hann skilur lítið af því.
— Eg talaði við Erlkönig í
dag, segir Páll. Hann sagðist
hafa ljóstrað upp um ungversk
an njósnara.
— Já, það stendur í kvöld-
blöðunum, segir Antoníus. Að
sjálfsögðu er Erlkönig ekki
nefndur.
-—- Nei, enginn veit, hvern þátt
hann átti í þessu.
Sagha er alltaf óánægður
yfir nærveru Hanssens og send
ir honum stöðugt harðneskju-
legt augnaráð.
Elsa hefur setzt hjá Sagha
og talar við hann í hljóði, en
lítur kvíðin á Norðmanninn
hvað eftir annað.
Hann tekur eftir því, að
Andrés er alltaf að fara í kring
um Elsu eins og köttur í kring
um heitan graut, og reynir að
koma með athugasemdir eða
stríða Sagha. Loks gefst hann
þó upp og fer að tala um Elsu
við Hanssen.
— Hún er einskonar hetja
hér. Jafnvel gamla fallbyssu-
skyttan óttast hana.
— Ó, hættu þessari vitleysu,
segir Elsa snúin.
— Eg má þó alltaf segja frá
því, sem komið hefur fyrir þig.
Hún flúði yfir landamæri Ung-
verjalands með farfuglunum —
ekki undan lögreglunni, heldur
glæpamönnum, eða svo held ég
megi kalla þá. Þeir voru alveg
á hælunum á henni. En á landa
mærunum var hún stöðvuð af
slóvakiskum vörðum, og þá. .
— Hættu, Andrés, það er við
bjóðslegt að hlusta á þetta
kjaftæði.
Svo þagna þau aftur. Páll og
Anna fara að skammast, lágt,
en með æsingi. Þau- eru bæði
rauð í framan. Hanssen verður
að leggja að sér til þess að
heyra ekki, hvað þeim fer á
milli.
Loks þolir hann ekki lengur
mátið. Hann stendur upp og
segist verða að fara. Páll og
Antoníus kveðja hann hjartan-
lega og segja, að hann verði að
koma einhverntíma aftur; liin
kveðja þurrlega, ekki einu sinni
ImiÉaka I.s-
land í samein-
uðu þ|óéiruai*
Framh. af 1. síðu.
um. Um ísland sagði hann,
að þegar það kom til tals, að
hann kæmi hé.r við á leið
sinni á allsherjarþingið, þá
hefði sért sem kominn væri
frá hitabeltislandi, þótt sú
uppástunga. all-glæfraleg. —
En hluti af inversku sendi-
sveitinni, sem kom við á Ís-
landi, hefði skýrt sér frá, að
loftslag hér vœri bara þcegi-
legt og fólkið hjartahlýtt og
vingjamlegt■
Dr. Lange fulltrúi Póllands
mælti með inntökubeiðnun-
um og gat sérstaklega aðstoð
ar Svía við Pólverja á stríðs
árunum og eftir styrjöldina.
Kaufmann sendiherra tók
aftur til mláls og kvað inn-
töku íslands og Svíþjóðar
vekja sérstaka ánægju með
Dönum. Gat hann þess, að
ísland hefði til skamms tíma
verið í konungssambandi við
Danmiörku, en nú tengdu
löndin engin bönd, nema
bönd frændsemi og vináttu.
Danir vonuðu, að þau yrðu
enn sterkari og nánari í fram
tíðinni.
iMolotoff flutti stutta ræðu
og lýsti fylgi sínu við breyt
ingartillögu Kaufmanns. —
Hann kvað Sovétrikin
fagna inntöku Islands, Sví-
þjóðar og Afghanistan í sam
einuðu þjóðirnar.
Fulltrúar Equator og
Uruguay tóku einnig til
máls- Breytingartillaga Kauf
manns var samþykkt sam-
hljóða og inntökuályktunin
siðan svo breytt samþykkt
með lófataki.
ísland, Svíþjóð og Afg-
hanistan eru fyrstu þjóðirn-
ar, sem teknar eru í samtök
satneinuðu þjóðanna síðan
þau voru stofnuð. Fulltrúar
þeirra taka sæti á allsherj-
arþinginu er þeir hafa undir-
ritað skipulagsskrána og full
nægt öðrum formsatriðum.